Morgunblaðið - 10.10.2020, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 10.10.2020, Qupperneq 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor, því hún var mild og máttug og minnti á – jarðneskt vor. (Davíð Stefánsson) Guðbjörg Garðarsdóttir. Elsku amma Sigga. Takk fyrir allar yndislegu samverustundirn- ar sem við áttum, þær eru ómet- anlegar og hlýja mér um hjarta- rætur, mér verður oft hugsað til þeirra þessa dagana. Það var allt- af jafn yndislegt að koma til ykk- ar afa í Norðurgarðinn, oftar en ekki áttuð þið smjörköku sem við Selma borðuðum með bestu lyst og var eftir það kennd við ykkur. Ekki fækkaði heimsóknunum til þín eftir að þú fluttir á Kirkju- hvol, þangað var alltaf gott að koma og spjalla. Þú varst alltaf jafn falleg og vel til fara, og ekki mátti sjást í grátt hár þó svo að þú ættir 26 barnabörn og tæp- lega 40 barnabarnabörn! Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér elsku amma og góða ferð. Þín Freyja. Amma Sigga Elsku besta amma mín, mikið sem þú varst alltaf fín. Mikið af skarti þú áttir, allir skildu við þig sáttir. Mikið af börnum þú átt, hjá þér var alltaf gaman og hlegið dátt. Í Norðurgarðinum var best að vera, nú þú ert orðin falleg ljósvera. Margt var það sem þú kenndir mér. Ég væri til í að vera alltaf hjá þér. Þú gafst mér bestu mömmu í heimi. Um þig ég dreymi. Selma Friðriksdóttir. Það er skammt á milli kveðju- stundanna hjá elstu kynslóðinni í fjölskyldu okkar. Þannig hefur það verið nokkur undanfarin ár. Nú hefur Sigríður Halldórsdóttir kvatt þessa jarðvist. Við systur minnumst Siggu allt frá bernskuárum okkar aust- ur í Fljótshlíð. Hún var gift Ósk- ari föðurbróður okkar, miklum uppáhaldsfrænda. Þau settust að á Hvolsvelli þar sem þau bjuggu alla tíð. Töluverður samgangur var, enda ekki langt á milli heim- ila. Pabbi byrjaði síðar í rútu- bransanum með Óskari og við fluttum til Reykjavíkur. Þá var auðvelt að taka rútuna austur um helgar og hitta ættingjana. Sigga var heilsteypt kona, hreinskiptin og raungóð. Einnig var hún glaðlynd og söngelsk og alltaf fín og vel tilhöfð. Nóg hefur verið að gera hjá henni með stóra barnahópinn þeirra og bóndi hennar sjaldan heima. Við minn- umst ferðalaga með þeim hjón- um, bæði vestur á firði og í Dal- ina. Auk þess voru þau dugleg að heimsækja okkur, þar sem við bjuggum hverju sinni. Við kíkt- um einnig við hjá þeim þegar ferðin lá austur, sérstaklega þeg- ar foreldrar okkar voru með í ferð. Alltaf var okkur vel tekið. Þegar önnur okkar flutti svo aft- ur austur í Fljótshlíð treysti hún enn betur tengslin við fólkið okk- ar fyrir austan. Við erum afar þakklátar Siggu og Óskari fyrir hjálpina við for- eldra okkar þegar þau voru að byrja að byggja upp sumarhúsið í Strákateig og planta þar trjám. Óskar átti þar ófá handtökin og þau fóru margar ferðir til að líta eftir hvort allt væri í lagi þegar eigendurnir voru fjarri. Sigga var einnig afar góð við móður okkar þegar hún var komin á Kirkju- hvol og orðin veik. Við minnumst Siggu með mik- illi hlýju og þakklæti. Hún hefur átt góðrar heimkomu von. Börn- um hennar, tengdabörnum og öðrum afkomendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Bless- uð sé minning hennar. Erna Marsibil og Sigurlín Sveinbjarnardætur. Þann 28.septem- ber síðastliðinn kvaddi okkur mikil- væg manneskja, móðir, tengdamóðir, amma og langamma. Á kveðju- stundum eins og þessari rifjast upp margar góðar minningar sem við áttum saman. Þar sem helst nefna jól, páska, sumarbú- staðarferðir, heimsóknir og síð- ustu ár heimsóknir á Sólvang. Við minnumst þess að koma í heim- sókn til Guðrúnar og Kristjáns þar sem vel var tekið á móti öllum og alltaf nóg af kökum og kakói. Heima hjá þeim var útvarpið allt- af í gangi enda Guðrún mjög mik- ill tónlistarunnandi. Þessar stundir verða ekki eins eftir að Guðrún kvaddi okkur og skilur það eftir mikinn söknuð þar sem Guðrún hafði hlýja nærveru og góð áhrif á okkur öll. Guðrún og Kristján voru mjög samrýnd og samstíga í öllu líkt og álftarpar. Síðustu árin talaði Guðrún mikið um foreldra sína og það yljar okkur um hjartarætur að vita að nú hafi þau sameinast á ný. Við fjölskyldan viljum senda sértakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta, skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þór Kristjánsson, Magný Ósk Arnórs- dóttir, Arnór Ingi, Jón Þór, Áslaug Ýr, makar og barnabarnabörn. Í dag kveðjum við elskulega Guðrúnu Helgu frænku. Guðrún var systir ömmu Þórhöllu og þeg- ar ég var lítil stelpa og bjó hjá ömmu og afa á Víghólastígnum þá var mikill samgangur á milli og hitti ég Gunnu frænku oft og manninn hennar Kristján. Seinna eignuðust þær systur og menn- irnir þeirra stórt sumar- bústaðarland í Þrastalundi sem fékk nafnið Systralundur. Í systralundi var fyrst um sinn hjólhýsi en það leið ekki á löngu þar til systurnar Gunna frænka, Kristján maðurinn hennar, amma Þórhalla og afi Jóhann voru búinn að byggja sér glæsi- lega sumarbústaði á jörðinni. Það var alltaf mjög skemmtilegt að koma í Systralund til ömmu og afa og þá var auðvitað heilsað upp á Gunnu og Kristján. Ég man það reyndar að amma var pínu við- kvæm fyrir því að við krakkarnir værum að fara mikið yfir til Gunnu því hún kærði sig ekki um Guðrún Helga Karlsdóttir ✝ Guðrún HelgaKarlsdóttir fæddist 20.11. 1924. Hún lést 28.9. 2020. Útför Guðrúnar fór fram 5. október 2020. að við værum mikið að trufla þau. En við krakkarnir hlustuð- um ekkert endilega alltaf á ráð frá full- orna fólkinu og í þessu tilfelli frá ömmu Þórhöllu, svo við laumuðumst mjög oft yfir til Gunnu frænku og Kristjáns. Gunna frænka tók alltaf vel á móti okkur og bauð okkur krökkunum inn í bústaðinn og við fengum eitthvert huggulegt bakkelsi og spjölluðum við frænku. Gunna hafði mikinn áhuga á okkur krökkunum og hafði gaman af því að spjalla við okkur og segja sögur og þannig var líka Kristján. Oft var grillað í bústaðnum hjá ömmu og afa og þá komu Gunna og Kristján yfir, og það var dansað svo mikið að stundum hélt ég að veröndin á sumarbústaðnum myndi gefa sig, fjörið var það mikið. Ég dansaði einu sinni við Kristján, hann var svo sterkur að maður þurfti ekkert að kunna nein dansspor því hann hélt þétt- ingsfast utan um mann og svo barasta flaug maður um gólfið eins og í ævintýrunum. Gunna smakkaði aldrei áfengi en hún var alltaf hress og kát og gat al- veg skemmt sér án þess. Árin í Systralundi voru yndisleg og þaðan á ég og við fjölskyldan ótal margar góðar minningar. Þær systur Gunna og amma Þórhalla voru góðar systur og þótti mikið vænt hvorri um aðra en með tím- anum minnkuðu samskiptin eftir að þau hættu með Systralund. Þegar amma Þórhalla var komin inn í hvíldarinnlögn á Hrafnistu þá bað hún mig að fara með sér til Gunnu systur sinnar sem var þá búsett á hjúkrunarheimili í Hafn- arfirði. Við amma fórum í heim- sóknina og tókum Geira bróður þeirra systra með. Þegar við komum til Gunnu þá var Gunna svo glöð að sjá okkur og þær systur féllust í faðma og voru báðar mjög klökkar. Það var síð- asta skipti sem ég hitti elsku Gunnu frænku og trúlega síðasta skipti sem þau systkinin hittust. Ég tók nokkrar myndir af þeim systkinum á þessum fallega degi og á myndinni voru systkinin Gunna frænka, amma Þórhalla Fjóla og Geiri, en á myndina vantar Þórdísi systur þeirra sem hefur verið þeim systkinum al- gjörlega einstök í einu og öllu. Blessi þig blómjörð, blessi þig útsær, blessi þig heiður himinn! Elski þig alheimur, eilífð þig geymi, signi þig sjálfur Guð! (Jóhannes úr Kötlum) Guð blessi og varðveiti minn- ingu þína. Þín Berglind frænka. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELEN ÞORKELSSON sjúkraliði, Víðilundi 24, Akureyri, lést á SAK þriðjudaginn 29. september. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 12. október klukkan 13.30. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu munu einungis nánustu ættingjar vera viðstaddir. Athöfninni verður streymt á FB-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - beinar útsendingar. Jóhann Björgvinsson Ásthildur Sverrisdóttir Erla Björg Þorkelsson Halla B. Þorkelsson Sigurður G. Sigurðarsson Emma Agneta Björgvinsd. Ásta Hrönn Björgvinsdóttir Guðjón Steindórsson ömmubörn og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA STEFÁNSDÓTTIR, Krókatúni 6, Akranesi, lést á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi sunnudaginn 4. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 13. október klukkan 13 að viðstöddum nánustu aðstandendum og vinum vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Starfsfólki Höfða sendum við sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun og hlýju. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Höfða, dvalar- og hjúkrunarheimili. Magnús Magnússon Halla Bergsdóttir Guðmunda Magnea Magnúsdóttir Guðríður Ólafía Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, bróðir, afi og tengdafaðir, GUNNAR SIGURÐSSON skotleiðbeinandi og prófdómari, lést á Gran Canaria föstudaginn 2. október. Útför verður auglýst síðar. Fjölskylda hins látna Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STYRMIR HREINSSON, Eyrargötu 26, Eyrarbakka, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvöllum Eyrarbakka sunnudaginn 4. október. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 13. október klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á vef Selfosskirkju. Ásdís Styrmisdóttir Magnús I. Guðjónsson Öfjörð Gunnar Styrmisson Bára Hafliðadóttir Hjalti Styrmisson Martha Rut Sigurðardóttir Sólveig Styrmisdóttir Viðar Þór Pálsson Ragnheiður Ásta Styrmisd. barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, SKÚLI MAGNÚSSON húsasmiður, Daggarvöllum 4a, Hafnarfirði, áður Vogum á Vatnsleysuströnd, lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn 6. október. Útförin fer fram í Kálfatjarnarkirkju, Vatnsleysuströnd, föstudaginn 16. október. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir útförina, en athöfninni verður streymt. Upplýsingar um streymið má finna á fésbókarsíðu Skúla. Steinunn Helga Aðalsteinsdóttir Sveindís Skúladóttir Guðmundur Hjálmarsson Guðrún Skúladóttir Magnús Skúlason Helga Sóley Kristjánsdóttir Ingibjörg Skúladóttir Hermann Torfi Björgólfsson og barnabörn Okkar ástkæra, AUÐUR BESSADÓTTIR, Sóleyjarima 7, er lést á líknardeild LSH í Kópavogi 27. september, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 12. október klukkan 13. Aðeins munu nánustu ættingjar verða viðstaddir, athöfninni verður jafnframt streymt á www.kirkja.is og https://youtu.be/dLFI1oLj6Og. Feruccio Marinó Buzeti Vésteinn Hilmar Marinósson Margrét Á. Ósvaldsdóttir Hólmfríður B. Marinósdóttir Halldór Rósi Guðmundsson Bragi Þór Marinósson Erla Sigrún Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.