Morgunblaðið - 10.10.2020, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020
✝ Auðunn Har-
aldsson fæddist 8.
október 1928 á Þor-
valdsstöðum í
Skeggjastaða-
hreppi, Norður-
Múlasýslu. Hann
lést 2. október 2020
á dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn.
Foreldrar hans
voru Haraldur Guð-
mundsson, bóndi og
kennari á Þorvaldsstöðum, f.
9.10. 1888 á Öngulsstöðum í
Eyjafirði en ólst upp í Skaga-
firði og víðar, d. 1.6. 1959 á Þor-
valdsstöðum og Þórunn Björg
Þórarinsdóttir, húsfreyja og
ljósmóðir á Þorvaldsstöðum, f.
18.12. 1891, d. 3.9. 1973. Önnur
börn þeirra voru Ingveldur, f.
8.12. 1917, bústýra á Þorvalds-
stöðum hjá bræðrum sínum, d.
30.8. 2019, Unnur, f. 17.3. 1919,
d. 15.5. 1941, Þórdís, húsfreyja á
Patreksfirði, f. 26.6. 1920, d. 2.8.
Reykjavík, f. 22.6. 1939, d. 20.4.
2020. Auðunn átti hálfsystur,
Kristínu Haraldsdóttur, f. 16.7.
1920 í Steintúni í Skeggja-
staðahreppi, d. 14.11. 1998.
Auðunn ólst upp á Þorvalds-
stöðum við almenn sveitastörf.
Skólagöngu og menntun öðl-
aðist hann heima fyrir. Hann tók
við búrekstrinum ásamt systk-
inum sínum þeim Ingveldi og
Þórarni þegar foreldrar þeirra
létu af búskap. Bjó hann þar
lengstan hluta ævi sinnar eða
fram undir fyrsta áratug þess-
arar aldar. Lagði hann þá niður
búskap og fluttu þau systkinin í
þorpið á Bakkafirði og síðar á
dvalarheimilið Naust á Þórs-
höfn. Hann var góður og gegn
bóndi, verklaginn og hagur eins
og margt hans fólk og liggja eft-
ir hann ýmsir smágerðir smíða-
gripir. Auðunn var glöggur og
fróðleiksfús. Hafði hann næmt
auga fyrir fyrirbærum náttúr-
unnar og var vel að sér um ýmsa
þætti hennar, veðurfar, dýralíf
og gróður. Auðunn var ókvænt-
ur og barnlaus.
Útför Auðuns fer fram frá
Skeggjastaðakirkju í dag, 10.
október 2020, og hefst athöfnin
kl. 14.
2008, Þórarinn,
bóndi og hrepp-
stjóri Þorvalds-
stöðum, f. 27.11.
1921, d. 12.5. 1995,
Steinunn, hús-
stjórnarkennari og
matráðskona í
Reykjavík, f. 3.1.
1923, d. 16.2. 2012,
Sigrún, húsfreyja í
Reykjavík, f. 19.2.
1924, d. 3.2. 2020,
Ragnar, búfræðingur og sjó-
maður í Reykjavík, f. 13.5. 1926,
d. 11.3. 2016, Hálfdán, kennari
og skólastjóri í Norðfjarðar-
hreppi, f. 30.7. 1927, d. 26.4.
2019, Arnór, verkamaður á Ak-
ureyri, f. 10.12. 1929, d. 31.10.
2018, Guðríður, húsfreyja og
sjúkraliði í Reykjavík, f. 24.2.
1931, Haraldur, húsgagnasmið-
ur og bólstrari í Hafnarfirði, f.
3.6. 1932, Þórunn, húsfreyja í
Hafnarfirði, f. 1.5. 1934, Ragn-
hildur, húsfreyja og sjúkraliði í
Nú er Auðunn frændi fallinn
frá og laus við þær viðjar sem
heftu hann undir það síðasta.
Nú er hann aftur léttur á fæti
eins og forðum. Hann stikaði
strandlengjuna til að huga að
reka af hafi, gekk um heima-
hagana og heiðarlöndin í ná-
grenni Þorvaldsstaða til að líta
að sauðfé, athuga um fuglalíf
og halda lágfótu í skefjum.
Hann var samofinn náttúru og
umhverfi sínu og þekkti öll ein-
kenni heimahaganna og lífið
sem þar hrærðist. Hann taldist
ekki víðförull maður en kunni
góð skil á þeim landshlutum
sem fjarri voru.
Hann var að því leyti and-
stæða bróður síns Ragnars sem
var á ferð og flugi og starfaði
lengst af á sjónum og sigldi til
margra landa.
Á Þorvaldsstöðum var starfs-
vettvangur Auðuns og líf. Þar
var hann búmaður og annaðist
þau störf sem því fylgdi. Ég
kynntist Auðuni frænda þegar
ég var 12 og 13 ára í sumardvöl
hjá ömmu og afa á Þorvalds-
stöðum fyrir liðlega 60 árum.
Þá var hann á besta skeiði.
Þegar ég var að skríða á fætur
á morgnana var hann að koma
heim og búinn að fara um hag-
ana og líta að sauðfénu og vissi
hvað því leið. Þá hafði hann
einnig gengið strandlengjuna
að líta að reka. Hann var hagur
í höndum eins og bræður hans
og systur og bjó til marga dýr-
gripi. Ég á taflmenn og tafl-
borð úr völdum rekaviði sem
hann tegldi og held mikið upp
á.
Hann tók sér fyrir hendur
unglingur að endurhlaða tún-
garð á sjávarbökkunum á Þor-
valdsstöðum og var til þess tek-
ið hvað það var vel gert.
Garðurinn stendur enn þótt
hann hafi eitthvað gengið úr
skorðum á tæpum áttatíu árum
og lifir verkmanninn. Verk-
manninn sem lagði alla sína
hæfni og alúð í garðinn og önn-
ur viðfangsefni sem honum
voru falin. Það verður ekki far-
ið fram á meira. Þannig lifði
Auðunn og í því birtist mennt-
un hans og veganesti úr for-
eldrahúsum.
Ég kveð Auðun frænda
hinstu kveðju og votta eftirlif-
andi systkinum, frænda mínum
og frænkum, innilegustu sam-
úð.
Úlfar frændi.
Í dag er til moldar borinn
Auðunn Haraldsson bóndi á
Þorvaldsstöðum á Langanes-
strönd. Þar kveður mætur mað-
ur.
Hann átti heima þar alla sína
ævi. Þau urðu þar eftir þrjú
systkinin og bjuggu þar án
þess að eignast lífsförunauta
eða afkomendur.
Eftir að Þórarinn féll frá
bjuggu þau Auðunn og Ingveld-
ur áfram á Þorvaldsstöðum en
fluttu þaðan á Bakkafjörð og
bjuggu þar í nokkur ár. Þaðan
komu þau hingað á Dvalar-
heimilið
Naust á Þórshöfn sem varð
þeirra endastöð.
Ég kynntist Auðuni ekki fyrr
en ég flutti hingað til Þórs-
hafnar. Það varð mér til láns að
fá Auðun með mér til að ganga
úti um göturnar. Auðunn var
góður félagi, margfróður og gat
verið hnyttinn í tilsvörum.
Hann hafði verið alltaf heima
og stundaði aðeins nám við
barnaskóla í sveitinni. En þrátt
fyrir það var hann fróður um
eitt og annað.
Þeir bræður höfðu haft þann
starfa að telja fugla á sinni
landareign. Það varð til þess að
Auðunn las sér til um fugla,
bæði íslenska og flækinga.
Hann hafði einnig þann starfa
að liggja á grenjum á vorin.
Það var ekki notalegt verk þeg-
ar illa viðraði.
Hann sagði mér að einn ref-
ur hefði komið með 24 mófugla
í kjaftinum og svo lömb og
lambaræfla. Þetta var ekki
skemmtilegt.
Auðunn gat verið orðheppinn
og snöggur til svara. Hann fór
stöku sinnum austur í Þor-
valdsstaði til að vitja um mið-
stöðina og bæta á hana vatni.
Eitt sinn fór ég með hann í
þessum erindum og bað hann
þá ráðskonu okkar að lána sér
hálfs annars lítra flöskur.
Henni varð á að spyrja hvað
hann ætlaði að nota þær. „Nú
undir landann auðvitað,“ var
svarið.
Það lá sá orðrómur á að
Ströndungar hefðu farið að
brugga eftir að þeir fengu koní-
akstunnuna á rekanum forðum.
Svona gat hann verið skemmti-
legur félagi.
Ég þakka Auðuni þann tíma
sem við áttum saman og óska
ættingjum hans alls hins besta.
Far þú í friði vinur.
Sigtryggur.
Auðunn
Haraldsson
✝ Ásgeir Pálssonfæddist þann 6.
júní árið 1933 á
æskuheimili sínu
við Højrebyvej 5 í
Sørup á Lálandi í
Danmörku. Hann
lést á Landspít-
alanum föstudag-
inn 25. september
2020.
Skírnarnafn
hans var Aage Lau-
rits Grymen Hansen. Foreldrar
hans voru Poul Valdemar Han-
sen og Agnes Johanne Marie
Grymen Hansen. Systkini hans
voru Jørgen, f. 15. júní 1931, d.
2019, og Kirsten, f. 21. febrúar
1938, d. 7. desember 2017. Árið
1960 kvæntist Ásgeir Jónu Sig-
ríði Baldursdóttur, f. 1. nóv-
ember 1936. Lést hún þann 17.
febrúar árið 2006. Ásgeir og Sig-
ríður eignuðust þrjú börn 1)
Bjarni, f. 11. nóvember 1960.
Maki hans er Rannveig Eyberg
2012. Fyrir átti Jóna Sigríður
Gunnar Hlöðver, f. 29. nóvember
1954. Maki hans er Unnur Her-
dís Ingólfsdóttir. Gunnar Hlöð-
ver ættleiddi barn Unnar Her-
dísar, hana Kolbrúnu Maríu, f.
28. desember 1979, og á hún tvö
börn, þau Davíð Má, f. 6. desem-
ber 1995, og Ísafold, f. 24. janúar
2004. Ásgeir ólst upp á Lálandi
en fór ungur að heiman og vann
víðs vegar um Danmörku og í
Noregi áður en hann hélt til Ís-
lands. Hann kom fyrst til lands-
ins árið 1955 og fyrstu árin
dvaldist hann í Fljótshlíðinni og
vann bústörf. Nokkrum árum
síðar kynntist hann svo eig-
inkonu sinni er þau störfuðu
bæði á Álafossi í Mosfellssveit.
Fyrstu búskaparár sín bjuggu
þau á Íslandi, í Danmörku og í
Svíþjóð en 1967 fluttu þau til Ís-
lands og hófu aftur störf á Ála-
fossi. Þar bjuggu þau til ársins
1972 er þau fluttu á Stórateig 7
þar sem Ásgeir bjó þar til hann
lést. Ásgeir vann á Álafossi þar
til hann lét af störfum árið 2001.
Útför Ásgeirs fór fram í kyrr-
þey.
Stefnisdóttir. Bjarni
á þrjár dætur með
fyrrverandi eig-
inkonu sinni. Þær
heita Inga Ásta, f. 7.
ágúst 1984, Laufey,
f. 15. mars 1988.
Maki hennar er
Baldur Hauksson og
börn þeirra eru þau
Jóhann Helgi, f. 25.
október 2012, og
Bríet Sól, f. 22. sept-
ember 2016. Sóley Þöll, f. 22.
september 1996. 2) Kristján, f.
20. maí 1965. Maki hans er Linda
Björk Haukdal. Kristján á tvö
börn með fyrrverandi eiginkonu
sinni. Þau heita Kolbrún Sigríð-
ur, f. 26. september 1995, og Jón
Ásgeir, f. 12. júní 1998. 3) Agnes,
f. 6. mars 1974. Maki hennar er
Ragnar Guðmundsson. Börn
þeirra eru þau Dagrún, f. 22.
janúar 2004, Álfrún, f. 10. júní
2006, Eyþór Snorri, f. 7. ágúst
2010, og Hafrún, f. 25. október
Hlýjar og góðar minningar
koma upp í hugann þegar ég
minnist Ásgeirs. Hann var
tengdapabbi og vinur. Honum
kynntist ég fyrir 40 árum þegar
ég tók saman við son hans
Bjarna. Leiðir okkar skildi síð-
an eftir 20 ár og þremur börn-
um síðar. Ég var svo heppin að
fá að halda góðu sambandi við
tengdaforeldrana alla tíð og var
vel tekið á móti mér á Stórateig
í kaffi og spjall. Þau Ásgeir og
Sigga voru afskaplega glöð
þegar ég sagði þeim að ég væri
sko ekkert að skilja við þau.
Eftir að tengdamamma lést,
blessuð sé minning hennar, var
Ásgeir mjög duglegur að koma
í heimsókn til mín og áttum við
alltaf notalegt spjall um heima
og geima og á ég eftir að sakna
þeirra gæðastunda.
Ásgeir var mér ákaflega
hjálplegur ef þurfti að sækja
börnin eða ef einhverju öðru
þurfti að bjarga, það var allt
svo sjálfsagt og þakka ég fyrir
það.
Nú þegar komið er að leið-
arlokum þakka ég samfylgdina
og sendi börnum og aðstand-
endum mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Minningin lifir.
Helga Steinþórsdóttir.
Elsku afi, okkur systurnar
langaði að minnast þín með
nokkrum orðum. Við minnumst
yndislegra tíma bæði með þér
og ömmu Siggu á Stórateig þar
sem alltaf var tekið vel á móti
manni.
Alltaf var eitthvað á boð-
stólnum hvort sem það voru
rjómapönnukökur eða Royal-
búðingur sem er enn í uppá-
haldi hjá okkur.
Safnið af Andrésar Andar-
blöðum á dönsku þótti okkur
alltaf skemmtilegt að skoða og
jafnvel hjálpaði það okkur eitt-
hvað með dönskukunnáttuna.
Manni þótti alltaf merkilegt að
eiga afa frá Danmörku sem
breytti nafninu sínu þegar hann
flutti til Íslands og kynntist
ömmu.
Elsku ömmu sem fór of
snemma frá okkur. Þrátt fyrir
að afi væri kominn á efri ár var
frábært hvað hann var alltaf
duglegur að gera allt sjálfur,
hann bjó einn, keyrði á milli,
fór á golfvöllinn og var dugleg-
ur að koma í heimsókn. Þetta
gerði hann allt fram á seinasta
dag.
Núna eru þið amma samein-
uð en mikið eigum við eftir að
sakna þín.
Er vorið hlær og fagrar grundir
gróa
og geislar himins leika’ um hæð og
mó,
er syngur dírrin dí í lofti lóa
og ljóssins englar dansa um strönd
og sjó.
Við komum, elsku afi, til að kveðja
með ástarþökk og bænarljóð á vör.
Þín æðsta sæla var að gefa og
gleðja,
og góðir englar voru í þinni för.
(H.P.)
Inga Ásta, Laufey
og Sóley Þöll.
Ásgeir Pálsson
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýju vegna
andláts og útfarar elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
FINNS ÞORVALDSSONAR,
Aðalgötu 1, Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Guðmundur Finnsson Sigríður Aradóttir
Þorvaldur Finnsson
Ævar Már Finnsson Guðrún Einarsdóttir
Guðbjörg S. Finnsdóttir Kjartan Haukur Kjartansson
barnabörn og barnabarnabarn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför áskærrar systur og frænku,
ÁSTU KRISTÍNAR ÞORLEIFSDÓTTUR
frá Naustahvammi, Neskaupstað,
Hlévangi, Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í
Hlévangi fyrir alúð og umönnun.
Stefán Þorleifsson Guðbjörg Þorleifsdóttir
Guðrún Þorleifsdóttir Vilhjálmur N. Þorleifsson
systkinabörn og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, mágur og tengdasonur,
EIRÍKUR ÞÓR VATTNES JÓNASSON
kennari,
varð bráðkvaddur á bráðamóttöku
Landspítala Fossvogi 12. september.
Jarðarför Eiríks fór fram 7. október.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát hans.
Hjördís Lóa Ingþórsdóttir
Óliver Freyr Eiríksson
Emma Lóa Eiríksdóttir
Jónas Helgason Eyþóra Vattnes Kristjánsdóttir
Ingunn Vattnes Jónasdóttir Sverrir Óskarsson
Kristján Vattnes Jónasson
Ingþór Arnórsson Guðný Sigríður Sigurbjörnsd.
Ástkær eiginmaður minn,
ÞORSTEINN FRIÐRIKSSON
fv. bankafulltrúi,
lést á Landspítalanum 1. október.
Útförin verður miðvikudaginn 14. október
klukkan 15 frá Langholtskirkju.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á
slóðinni: https://youtu.be/8ie0RN3BJBc
Guðrún Lýðsdóttir
Okkar ástkæri
JENS KARLSSON
lést á Sunnuhlíð fimmtudaginn 1. október.
Í ljósi aðstæðna hefur útförin farið
fram í kyrrþey.
Þökkum samúð og hlýhug.
Jónína Magnúsdóttir
Perla Dögg Jensdóttir
Magnús Geir Jensson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIGNÝ EGILSDÓTTIR,
Bláskógum 13, Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði,
þriðjudaginn 6. október.
Elsa Backman Rúnar Skarphéðinsson
Helgi Backman
Marteinn Friðriksson Íris Blandon
Katrín Friðriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn