Morgunblaðið - 10.10.2020, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 35
Ísfélag Vestmannaeyja auglýsir laust starf:
Umsjónarmaður
fiskvinnsluvéla
Ísfélag Vestmannaeyja hf. auglýsir starf til umsóknar í frystihúsi félagsins í
Vestmannaeyjum. Umsjón og viðhald fiskvinnsluvéla hússins. Í frystihúsinu eru
sjö Baader síldarflökunarvélasamstæður, tveir Baader bolfiskhausarar og þrjár
Baader bolfiskflökunarvélar og ný bolfiskroðrífa frá Baader. Mjög góð
vinnuaðstaða er á vélaverkstæði fiskvinnsluvéla.
Starfssvið og helstu verkefni
· Viðhald og umsjón fiskvinnsluvéla
· Samvinna við verkstjóra við keyrslu véla
· Leiðbeina starfsfólki á fiskvinnsluvélum
· Brýningar hnífa
· Innkaup varahluta og lagerhald
Menntunar og hæfniskröfur
· Menntun í viðgerðum véla er kostur
· Reynsla í viðgerðum fiskvinnsluvéla
· Sjálfstæði og skipulagshæfileikar
Nánari upplýsingar veitir Björn Brimar Hákonarson
framleiðslustjóri frystihúss í síma 892 0215 eða í
netfangi bjorn@isfelag.is. Umsóknir sendist
einungis í tölvupósti eigi síðar en 1.nóvember 2020.
BLÖNDUÓSBÆR
Hnjúkabyggð 33 | 540 Blönduós | Sími 455 4700
Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi
Blönduósbær auglýsir laust til umsóknar starf Menningar-, íþrótta- og
tómstundafulltrúa. Um nýtt starf er ræða með starfshlutfalli 80–100%.
Tilgangur starfsins er að hafa umsjón með öllu menningar-, íþrótta- og
tómstundastarfi Blönduósbæjar í góðu samstarfi við hlutaðeigandi
aðila. Á Blönduósi er góð aðstaða fyrir öflugt íþróttastarf og skýr
framtíðarsýn fyrir styrkingu á núverandi tómstundastarfi fyrir alla
aldurshópa í þessu vaxandi samfélagi á NV-landi. Hér er fjölbreytt og
skemmtilegt tækifæri fyrir skipulagðan einstakling til þess að móta
nýtt starf í samstarfi við fjölmarga aðila á svæðinu. Næsti yfirmaður
er sveitarstjóri.
Markmið og verkefni:
• Verkefnavinna og þátttaka í stefnumótun í þessum málaflokkum.
• Vinna náið með menningar-, íþrótta- og tómstundanefnd
sveitarfélagsins.
• Umsjón og þróunarvinna með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar
Skjólsins.
• Er tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með
skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu, á
grundvelli samninga.
• Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og
íþróttamiðstöðvar.
• Er tengiliður og umsjónaraðili með verkefninu Heilsueflandi
samfélag.
• Verkefnastjórn við undirbúning viðburða á vegum sveitarfélagsins.
• Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af sveitarstjóra.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfinu, gjarnan á sviði kennslu,
tómstunda- og félagsmálafræði, eða önnur menntun sem nýtist.
• Góðir forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
• Reynsla og þekking af íþrótta- og tómstundastarfi.
• Mikill áhugi á velferð íbúa og hæfni til að eiga samskipti við alla
aldurshópa.
• Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi.
Launakjör erum samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Hreint sakavottorð er
skilyrði fyrir ráðningu. Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að
sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Valdimar O Hermannsson,
sveitarstjóri. Upphaf starfs er sem fyrst eða samkvæmt nánara
samkomulagi. Umsóknum skal skilað á netfangið, valdimar@
blonduos.is Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2020.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
GEYMSLUHÚSNÆÐI ÓSKAST Á
LEIGU FYRIR ÞJÓÐSKJALASAFN
ÍSLANDS
Auglýsing nr. 21169
Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu
geymsluhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Umsjónar-
aðili er Framkvæmdasýsla ríkisins.
Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að taka á leigu
geymsluhúsnæði undir skjöl á EURO-brettum auk stoð-
rýma s.s. móttöku bretta, grófflokkun, úrvinnslu gagna og
starfsmannarýma. Miðað er við að húsnæðið verði tekið
á leigu í a.m.k. 5 ár með möguleika á framlengingu til
5 ára í viðbót. Gerð er krafa um staðsetningu á höfuð-
borgarsvæðinu. Ekki er æskilegt að byggingin sé staðsett
á áhættusvæði vegna náttúruváar, s.s. jarðskjálfta-, flóða-
og sprungusvæði.
Brettageymslurými má vera í óskiptu 1.200 fm rými.
Stoðrými þurfa að vera um 170 fm.
Til að geta endurnýtt brettahillur sem Þjóðskjalasafn á nú
þegar, er óskað eftir að lofthæð verði 6 metrar eða yfir. Þá
er gert ráð fyrir 3-4 hæðum af brettum (gólf og 2-3 hæðir
til viðbótar).
Skilyrði er gott aðgengi fyrir stóra sendiferðabíla og
möguleiki á affermingu bretta undir skyggni eða
innandyra.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður
að uppfylla verða aðgengilegar rafræna kerfinu TendSign,
á vefslóðinni https://tendsign.is/.
Fyrirspurnir varðandi verkefnið 21169: Geymsluhúsnæði
óskast á leigu fyrir Þjóðskjalasafn Íslands, skulu sendar
rafrænt í gegnum kerfið TendSign og verða svör birt þar.
Athygli er vakin á að fyrirspurnarfrestur rennur út
16. nóvember 2020 en svarfrestur er til og með
19. nóvember 2020.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og
staðsetning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila
rafrænt í kerfinu eigi síðar en kl. 12:00, mánudaginn
23. nóvember 2020. Ekki verður tekið við tilboðum
eftir að tilboðsfresti lýkur, hvort sem er með rafrænum
hætti eða bréflega. Bjóðendur eru því hvattir til að skila
tilboðum tímanlega.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit
til leiguverðs, stærð húss og innra fyrirkomulagi s.s.
sveigjanleika og tenginga milli rýma, hönnunar, tæknikerfa
og væntingar leigutaka; skipulags þess út frá fyrirhugaðri
starfsemi, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu,
almenningssamgöngum og aðkomu.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin
lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr.
11. gr.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa a.m.k. innihalda
eftirfarandi upplýsingar:
• Afhendingartíma húsnæðis
• Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og
tillöguteikningar auk upplýsinga um efnisval s.s.
veggjagerða, gólfefna o.sv.fr.
• Leiguverð per/m2 m. VSK og heildarleiguverð m. VSK.
• Húsgjöld
Nánari upplýsingar á www.utbodsvefur.is
Áhugasamir eru hvattir til að senda inn svör tímanleg.
Álag getur verið á rafræna kerfinu. Það er á ábyrgð
fyrirtækis að svör berist innan tímafrests.
HÚSNÆÐISÖFLUN
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100