Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 38

Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðsins Jólablað Kemur út 26.11. 2020 Fullt af flottu efni fyrir alla aldurshópa Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú getur komið miklu í verk í dag ef þú bara færð frið til þess. Fáðu fólk til að taka höndum saman í sameiginlegu máli. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þú ert óánægður með eitthvað skaltu líta í eigin barm og athuga hverju þú getur breytt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú nýtur loks uppörvunar og fjárhagslegs stuðnings til að gera það sem þig langar til. Um leið og þú ert skemmti- leg/ur gefur þú kennslustund í hvernig á að tengja saman lífið og húmorinn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Rödd úr fortíðinni kveður sér hljóðs og þú þarft að bregðast við henni. Kannski leggur þú of mikla áherslu á að þóknast öðrum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að gæta þess að leita stöð- ugt uppi nýja hluti, því stöðnun á illa við þig og dregur úr þér allan mátt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sýndu samstarfsfólki þínu meiri sanngirni og umburðarlyndi. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú eyðir peningunum þínum í eitthvað sem þú kannt að sjá eftir síðar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Stundum komum við verr fram við vini en ókunnuga. Mundu að allir eiga sinn rétt. Annríkið má aldrei vera svo mikið að þínir nánustu verði útundan. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sjálfstraust þitt er í miklum blóma því starf þitt skilar þeim árangri sem þú ætlaðir. Sæktu þér lærdóm og lífs- visku sem þroskar þig og hjálpar þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hver kunningi sem þú eignast reynir á félagsfærnina. Haltu þig við já- kvæða hugsun og þá fer allt vel. 22. des. - 19. janúar Steingeit Án nokkurs vafa verður þú að forðast samræður um viðkvæm málefni í dag. Þér verður boðið í sumarbústað. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er óþarfi að bugast þótt allir hlutir gangi ekki upp eins og best verður á kosið. Leggðu þitt af mörkum til að bæta umhverfi þitt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Sumt fólk fer afskaplega í taug- arnar á þér. Teldur samt upp að tíu áður en þú tjáir þig. Hlutirnir ganga smurt fyrir sig því hamingjan er þér hliðholl. hópi metnaðarfulls skólafólks.“ Þau hjónin ásamt dótturinni fóru til Bandaríkjanna í námsleyfi Eyrún- ar þar sem hún nam við háskólann í Oregon í Eugene og vann að meist- araverkefni sínu, Tekist á við kerfið, undir leiðsögn dr. Dianne Ferguson. Verkefnið byggðist ekki síst á reynslu hennar í starfi sérkennslu- fulltrúa í tæpan áratug. „Ég myndi segja að tjáskiptamátinn Tákn með tali hafi verið ein af grunnstoðum í þróun aðferða í starfi mínu sem tal- meinafræðingur. Upp úr þeim far- vegi spratt samstarf okkar dr. Þóru Másdóttur talmeinafræðings um vinnslu bókarinnar Lubbi finnur málbein og útgáfu fjölþætts málörv- unarefnis undir heitinu Hljóða- smiðja Lubba þar sem byggt er á niðurstöðum úr doktorsrannsókn Þóru. Lubbabókin hefur náð ótrú- lega miklum vinsældum og til marks stundakennari var ég ráðin í starf sérkennslufulltrúa hjá Fræðsluskrif- stofu Reykjavíkurumdæmis árið 1990 sem var mjög áhugavert starf og að sama skapi umfangsmikið og erilsamt. Þar kynntist ég stórum E yrún Ísfold Gísladóttir fæddist 11.10. 1950 í Eyjafirði en flutti til Ísafjarðar þriggja vikna gömul. Nafnið, Eyrún Ísfold, felur í sér land- fræðilega tengingu við Eyjafjörð og Ísafjörð og var hugmynd föður henn- ar. „Það var gott að alast upp á Ísa- firði. Ég fór á alla tónleika og leik- sýningar með foreldrum mínum sem buðust. Pabbi var Bolvíkingur og mjög stoltur af því. Hann var mikill áhugamaður um tónlist og söng í öll- um kórum bæjarins auk þess að vera liðtækur skákmaður og síðasti hand- hafi veglegs silfurbeltis sem glímu- kóngur Vestfjarða.“ Eftir landspróf fór Eyrún í Sam- vinnuskólann á Bifröst. „Ég var tæp- lega 16 ára og yngst í nemenda- hópnum. Bifrastarhópurinn hefur haldið mjög vel saman og við höfum ferðast um landið í árlegum Jóns- messuferðum auk ferða til útlanda.“ Sautján ára fór hún til Flórída sem skiptinemi. „Ég eignaðist yndislega fósturfjölskyldu og tengslin eru ennþá sterk.“ Eftir skiptinemaárið fór Eyrún í Kennaraskólann, útskrif- aðist 1972 og kenndi þrjá vetur í Fossvogsskóla, en þá var förinni heitið til Danmerkur. Eyrún lauk námi í talmeinafræðum auk sér- kennslufræða frá Danmarks Lærer- højskole og Sturla Guðmundsson, eiginmaður hennar, sem rafmagns- tæknifræðingur. Kynni af danskri menningu og samfélagi höfðu var- anleg áhrif á þau og danski vinahóp- urinn er fjölmennur. „Eftir heim- komu frá Danmörku réð ég mig sem talkennara við Öskjuhlíðarskóla þar sem ég fékk tækifæri til að innleiða tjáskiptamátann Tákn með tali í kjölfar þess að hafa tileinkað mér að- ferðina þar úti.“ Úr Öskjuhlíðarskóla lá leiðin í KHÍ þar sem henni var fal- ið að hafa umsjón með svokölluðu starfsleikninámi í sérskólum og sér- deildum auk umsjónar með BA-námi í sérkennslufræðum að hluta. „Eftir fimm ára starf þar sem fastráðinn um það er 7. prentun væntanleg frá Forlaginu. Í kjölfar útgáfu efnisins hafa verið haldin á annað hundrað Lubbanámskeið fyrir starfs- mannahópa leikskóla auk fjölda kynninga.“ Eyrún hefur alltaf verið tónelsk og lærði á píanó sem stelpa. „Í kjölfar 50 ára afmælisins lét ég gamlan draum rætast og skráði mig í harm- onikunám. Þar varð til harmoniku- sveitin Smárinn og tókst okkur um síðir (2014) að gefa út hljómdisk með útsetningum lærimeistara okkar, Karls Jónatanssonar. Ég veit fátt skemmtilegra en að spila á nikkuna og æfi með Léttsveit Harmoniku- félags Reykjavíkur auk þess að taka gigg með Smáranum.“ Eyrún hefur ásamt sex öðrum tal- meinafræðingum rekið Talþjálfun Reykjavíkur um árabil, en hefur ákveðið að draga úr vinnu við þessi Eyrún Ísfold Gísladóttir talmeinafræðingur – 70 ára Ljósmynd/Rut Talþjálfun, harmonika og Lubbi finnur málbein Combo Smárinn Harmonikusveitin Smárinn gaf út geisladisk 2014. Fjölskyldan Myndin er tekin árið 2007 í stúdentsveislu Guðrúnar Jóhönnu. Aftari röð f.v.: Snorri Björn, Gísli Örn, Mar- ie sambýliskona Gísla, Guðrún Jóhanna og Sturla. Fremri röð: Móðir Eyrúnar, Guðrún J. Vigfúsdóttir, og Eyrún. Þann 2. október 2020 varði Theódór Skúli Sigurðsson, barnasvæfinga- og gjörgæslulæknir, doktorsritgerð sína við Háskólann í Lundi. Ritgerðin ber heitið „Aspects of pediatric hemo- dynamics – a study in young children undergoing corrective heart surgery“. Leiðbeinandi var dr. Lars Lindberg, sérfræðingur í barnasvæfingum og dósent við Háskólann í Lundi, and- mælandi var dr. Willem-Pieter de Boode, prófessor í nýburalækningum við Radboud-háskólann í Hollandi, og meðdómari var dr. Per-Arne Lönnqvist, prófessor í barnasvæfingum við Karól- ínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Doktorsritgerðin fjallaði um rann- sóknir á blóðrásarkerfi barna eftir hjartaaðgerð, þar sem ný mælitækni var borin saman við eldri staðal- aðferðir. Nýja mælitækið, COstatus frá fyrirtækinu Trans- onic Systems í Bandaríkjunum, metur blóðrásar- breytingar með hjálp ómtækni og æðaleggja sem alla jafnan eru að- gengilegir í alvar- lega veikum börn- um.Umfjöllun um rannsóknina komst á forsíðu Anesthesiology, eins virtasta tímarits á sviði svæfingalækninga samhliða sérstakri ritstjórnargrein, en fimm ritrýndar greinar hafa birst um rannsóknina. Helstu niðurstöður voru að nýja tæknin væri jafn áreiðanleg og fyrri aðferðir, en væri nákvæmari og öruggari og vel til þess fallin að hjálpa til við klínískt mat á alvarlega veikum börnum á gjörgæsludeildum. Theódór Skúli Sigurðsson Theódór Skúli Sigurðsson fæddist 2.11. 1976. Hann útskrifaðist frá MR 1996 og lauk læknaprófi frá HÍ árið 2003. Hann hlaut sérfræðileyfi ísvæfinga- og gjör- gæslulækningum í Svíþjóð við Háskólasjúkrahúsið í Lundi 2010. Theódór lauk framhaldsnámi í barnasvæfingum og gjörgæslulækningum 2013 og vann sam- hliða sem sérfræðingur við Barnasjúkrahúsið í Lundi 2010-2017. Theódór dvaldi í skemmri tíma á Great Ormond Street-barnasjúkrahúsinu í London og gjörgæslu- deild University College of London sjúkrahússins þar sem hann kynnti sér smit- varnir á gjörgæsludeildum. Hann lauk evrópska svæfingaprófinu (DESA) á veg- um European Society of Anesthesia 2010 og evrópska gjörgæsluprófinu (EDIC) á vegum European Society of Intensive Care Medicine 2014. Fyrstur Íslendinga fékk hann sérfræðiviðurkenningu í svæfingalækningum og gjörgæslu barna árið 2016 og hefur starfað á svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítalans frá 2017. Hann er giftur Guðbjörgu Vigdísi Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðingi og dætur þeirra eru María Sara og Auður Margrét. Doktor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.