Morgunblaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 KNATTSPYRNA Þjóðadeild UEFA: Laugardalsvöllur: Ísland – Danmörk. 18.45 UM HELGINA! Ekki liggur fyrir hvenær leikur 21- árs landsliða Íslands og Ítalíu í und- ankeppni EM í knattspyrnu fer fram en honum þurfti að fresta í gær. Þá komu upp þrjú kórónu- veirusmit í leikmannahópi Ítala, m.a. hjá Matteo Gabbia, miðverði ítalska stórliðsins AC Milan. Leik- urinn átti að fara fram á Víkings- vellinum síðdegis í gær. Nýr leik- dagur hefur ekki verið gefinn upp en það er í höndum UEFA. Íslenska liðið sækir Lúxemborg heim á þriðjudag og á að leika ytra gegn Írlandi og Armeníu í nóvember. Óvíst með leik- inn við Ítalina Morgunblaðið/Eggert U21 Alfons Sampsted og félagar gátu ekki spilað í gær. Knattspyrnusamband Íslands hef- ur framlengt frestun sína á leikj- um á Íslandsmótinu, eftir að hafa á miðvikudaginn tilkynnt að öllum leikjum næstu sjö dagana yrði frestað. KSÍ tilkynnti í gær að ákveðið hefði verið að fresta öllum leikjum til og með 19. október en það er í takt við tilmæli Almannavarna og sóttvarnalæknis. Áður höfðu flest önnur íþróttasambönd tilkynnt frestanir til 19. október. Í tilkynningu KSÍ segir að mark- miðið að ljúka keppni samkvæmt mótaskrá sé enn óhaggað þrátt fyrir þessar frestanir. Þær þýða að umferð sem leika átti í Pepsi Max-deild karla fimmtudaginn 15. október er frest- að, og sömuleiðis umferð sem leika átti dagana 18. og 19. október. Þetta eru tvær af þeim fjórum um- ferðum sem eftir eru. Þá eru það lokaumferðirnar í Pepsi Max-deild kvenna, 1., 2. og 3. deild karla sem verður frestað, til viðbótar við það sem áður lá fyrir. KSÍ framlengir frestanir allra leikja til 19. október EM KVENNA Kristján Jónsson kris@mbl.is Jón Þór Hauksson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, tilkynnti í gær 23 manna hóp fyrir leik Svíþjóðar og Íslands í und- ankeppni EM sem fram fer í Sví- þjóð 27. október. Ein breyting er á hópnum frá leikjunum tveimur í september þegar Ísland vann Lettland 9:0 og gerði 1:1 jafntefli við Svía á Laug- ardalsvellinum. Andrea Rán Hauksdóttir kemur inn í hópinn í stað Rakelar Hönnudóttur, sam- herja síns úr Breiðabliki. Rakel gaf ekki kost á sér af persónu- legum ástæðum. „Tilfinningin er rosalega góð. Ánægjuleg og jákvæð tilfinning,“ sagði Andrea Rán þegar Morgunblaðið heyrði í henni hljóð- ið í gær en valið má kalla rökrétt framhald af frammistöðu hennar undanfarið. Lék hún til dæmis mjög vel í mikilvægum sigri Breiðabliks á Val í toppslag Ís- landsmótsins. „Já, ég myndi halda það. Ég hef lagt hart að mér í sumar. Og hef fengið þau viðbrögð frá fólki að maður hafi staðið sig mjög vel. Sem er mjög ánægjulegt að heyra enda hefur maður lagt mikið á sig. Til dæmis með aukaæfingum. Þeg- ar maður hefur lagt mikið á sig þá fylgir því góð tilfinning að upp- skera. Ég er kannski þannig leik- maður að ekki er endilega tekið eftir manni á vellinum en það er gott að einhver taki eftir því,“ sagði Andrea og hló. Fyrsti mótsleikurinn? Andrea Rán er ekki ókunn landsliðinu og landsleikjum, en hún var síðast í landsliðinu fyrri hluta síðasta árs í Algarve- bikarnum og í Suður-Kóreu. En hún hefur þó ekki leikið mótsleik enn sem komið er, þ.e.a.s í und- ankeppni EM eða HM. „Já mikið rétt. Ég er að sjálf- sögðu með mín markmið og móts- leikur væri að sjálfsögðu næst á dagskrá. Það er gaman að vera sýnt traust fyrir alvöru leik en maður hefur jú verið með í lands- leikjum áður.“ Talið berst að keppnistímabilinu 2020 sem kórónuveiran hefur sett svip á og fór Andrea Rán ekki var- hluta af því. Hún greindist jákvæð eftir að hún kom heim frá Banda- ríkjunum snemma sumars og fór yfir þau mál í Morgunblaðinu fyrr í sumar. Í ljósi þess sem gengið hefur á er kannski enn meira gleðiefni en ella að fá þær fréttir að hún sé komin í landsliðið? „Einmitt. Það er það nefnilega. Loksins gerðist eitthvað jákvætt. Mikið hefur gengið á hjá mér eins og hjá mörgum öðrum. Ég var nýbúin að sleppa orðinu í morgun, þegar maður sá tilkynningarnar um bönn við æfingum og fleiru, að nú hlyti eitthvað jákvætt að fara að gerast. Nefndi þetta einmitt við vinkonu mína,“ sagði Andrea en hún segir að í herbúðum Breiða- bliks hafi samstaðan verið af- skaplega góð í sumar hvort sem það var í meðbyr eða mótbyr. Nú blasir Íslandsmeistaratitillinn við Breiðabliksliðinu. Samkeppni en samstaða „Auðvitað er frábært að vera í þeirri stöðu sem við erum í. Maður hugsar samt alltaf bara um næsta leik. Það væri ánægjulegt ef mótið yrði klárað og hægt væri að ljúka þessu. Ég er stolt af liðinu og hvernig við höfum farið í gegnum sumarið. Þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt og margt sem spilar þar inn í. Mér finnst við hafa tækl- að vel hvert einasta verkefni hvort sem það var að æfa við erfiðar að- stæður eða spila leikina. Andinn hefur verið geggjaður og við erum á sömu blaðsíðunni. Alveg frá leik- mönnum og upp í stúku og allir þar á milli. Allir skipta máli, alveg sama hver það er. Maður fær til dæmis mikinn stuðning frá leik- mönnum sem eru utan hópsins. Allir eru saman í þessu en á sama tíma er mikil samkeppni á æfingum vegna þess að keppn- isskapið er ekki langt undan. Ég held að við séum allar þannig gerðar að við þolum ekki að tapa en fyrir vikið þá fáum við líka mik- ið út úr æfingunum,“ sagði Andrea í samtali við Morgunblaðið í gær.  Á mbl.is/sport er einnig að finna stutt viðtal við landsliðsþjálf- arann, Jón Þór Hauksson, frá því í gær. Eitthvað jákvætt hlaut að fara að gerast  Andrea Rán Hauksdóttir hefur unnið sér sæti í landsliðinu á ný Morgunblaðið/Eggert Lykilhlutverk Andrea Rán Hauksdóttir hefur spilað mjög vel á miðjunni hjá Breiðabliki að undanförnu. MARKVERÐIR: Sandra Sigurðardóttir, Val.............................................................. 31 0 Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Fylki ........................................................ 1 0 Sonný Lára Þráinsdóttir, Breiðabliki............................................... 7 0 VARNARMENN: Hallbera Guðný Gísladóttir, Val ................................................... 114 3 Ingibjörg Sigurðardóttir, Vålerenga, Noregi............................... 32 0 Anna Björk Kristjánsdóttir, Le Havre, Frakklandi ..................... 43 0 Elísa Viðarsdóttir, Val...................................................................... 38 0 Glódís Perla Viggósdóttir, Rosengård, Svíþjóð............................ 86 6 Guðný Árnadóttir, Val........................................................................ 8 0 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Val .................................................... 73 10 Barbára Sól Gísladóttir, Selfossi....................................................... 1 0 MIÐJUMENN: Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki ............................................. 7 2 Dagný Brynjarsdóttir, Selfossi ....................................................... 90 29 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki............................................ 30 2 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Breiðabliki....................................... 3 1 Sara Björk Gunnarsdóttir, Lyon, Frakklandi............................. 133 20 Svava Rós Guðmundsdóttir, Kristianstad, Svíþjóð....................... 21 1 Andrea Rán Hauksdóttir, Breiðabliki ............................................ 10 2 SÓKNARMENN: Sveindís Jane Jónsdóttir, Breiðabliki............................................... 2 2 Sandra María Jessen, Leverkusen, Þýskalandi ............................ 32 6 Elín Metta Jensen, Val...................................................................... 51 16 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Le Havre, Frakklandi................ 45 4 Hlín Eiríksdóttir, Val........................................................................ 16 3 Hópurinn sem fer til Svíþjóðar  Spánverjinn Rafael Nadal tryggði sér sæti í úrslitunum á opna franska meistaramótinu í enn eitt skiptið er hann vann Argentínumanninn Diego Schwartzmann í þremur settum í gær, fyrstu tvö 6:3 og það þriðja eftir upp- hækkun, 7:6 (7:0). Þetta verður í þrettánda sinn sem Nad- al keppir til úrslita á mótinu en hann hefur tekið þátt í því sextán sinnum á ferlinum. Hann hefur aldrei tapað í úr- slitum, hefur unnið mótið tólf sinnum og þar af síðustu þrjú árin. Nadal mætir Serbanum Novak Djokovic í úrslitunum á sunnudaginn. Serbinn hafði betur gegn Grikkjanum Stefanos Tsitsipas í undanúrslitunum.  Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson skoraði sitt áttunda mark í sjö leikjum er hann gerði eina mark Excelsior í 1:1- jafntefli gegn Eindhoven í hollensku B- deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Elí- as spilaði fyrstu 86 mínútur leiksins fyrir gestina og kom þeim yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Elías skoraði sjö mörk í fyrstu þremur leikjum tímabilsins fyrir Excelsior sem er í 12. sæti með sjö stig eftir sjö leiki.  Handknattleiksmaðurinn Sveinn Ar- on Sveinsson er genginn til liðs við Sel- foss en félagið sagði frá þessu á heima- síðu sinni í gærkvöldi. Sveinn er 27 ára vinstri hornamaður sem var viðloðandi öll yngri landslið Íslands á sínum tíma. Sveinn er uppalinn hjá Val á Hlíðarenda þar sem hann lék árum saman, varð Ís- lands- og bikarmeistari með liðinu árið 2017, en einnig lék hann um tíma með Aftureldingu eða hluta úr keppnis- tímabilinu 2017/2018.  Knattspyrnukonan Ásta Eir Árna- dóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Breiðablik en hún hef- ur verið hjá uppeldisfélaginu allan sinn feril. Blikar sögðu frá þessu á sam- félagsmiðlum sínum í gær. Ásta hóf að spila með meistaraflokki Breiðabliks árið 2009 og hefur síðan þá spilað 112 leiki í efstu deild sem og átta A-landsleiki fyrir Ísland. Ásta er bak- vörður og hefur verið einn af mikilvæg- ari leikmönnum liðsins undanfarin ár. Hún spilaði alla deildarleiki liðsins bæði 2018 og 2019 en hefur ekkert komið við sögu í sumar vegna barneigna.  Forráðamenn enska knattspyrnu- félagsins Arsenal vilja setjast niður með Mesut Özil og reyna að semja um starfslok við þýska knattspyrnumann- inn en hann er úti í kuldanum hjá knatt- spyrnustjóranum Mikel Arteta þrátt fyrir að vera launahæsti leikmaður liðs- ins. Þjóðverjinn er launahæsti leikmaðurinn í sögu Ars- enal en hann þénar um 350 þúsund pund á viku og á níu mán- uði eftir af samn- ingi sínum. Sam- kvæmt Daily Mail á Englandi ætlar Özil ekki að fara frá félaginu nema það greiði upp samninginn í heild sinni, um 13 milljónir punda. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.