Morgunblaðið - 10.10.2020, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 10.10.2020, Qupperneq 41
ÞJÓÐADEILDIN Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Eftir mikilvæga sigurinn á Rúmen- íu á fimmtudaginn á leið Íslands að lokakeppni EM karla í knattspyrnu tekur við öðruvísi verkefni annað kvöld á Laugardalsvellinum. Ís- lenska landsliðið tekur þá á móti Danmörku í Þjóðadeild UEFA þar sem Ísland er á botni riðilsins eftir tap gegn Englandi og Belgíu í síð- asta mánuði. Danir eru í þriðja sæt- inu, töpuðu gegn Belgum en gerðu markalaust jafntefli gegn Englandi. Það er kannski til marks um breytta og betri tíma íslenskrar knattspyrnu að landsleikur gegn Dönum hefur verið jafn lítið í um- ræðunni undanfarið og raun ber vitni. Ísland er í dauðafæri á að komast á sitt þriðja stórmót í röð og það að vinna fótboltaleik gegn frændum okkar er kannski ekki lengur helsta óskin. Er samt ekki kominn tími á það? Kemur loks fyrsti sigurinn? Ísland og Danmörk mætast í 24. skipti í A-landsleik á morgun en saga viðureigna liðanna er jafn- gömul og landsliðssaga Íslands, fyrsti landsleikurinn var gegn Dön- um á Melavellinum árið 1946. Danir sigruðu 3:0 og hafa síðan iðulega leikið okkur grátt. Ísland hefur aldrei unnið Danmörku, gert fjögur jafntefli og tapað 19 sinnum. Liðin mættust síðast í Herning á Jótlandi í mars 2016 er íslenska liðið var að undirbúa sig fyrir þátttöku á EM um sumarið. Danir unnu þar sinn sjöunda sigur gegn Íslandi í röð, 2:1. Arnór Ingvi Traustason skoraði mark Íslendinga. Danir eru nú þegar búnir að tryggja sér sæti á EM og unnu 4:0- sigur á Færeyjum í vináttulands- leik á miðvikudaginn. Síðan þá hafa tveir leikmenn liðsins dregið sig úr hópnum vegna meiðsla. Sóknar- maðurinn Andreas Cornelius skor- aði og fór meiddur af velli gegn Færeyjum og er snúinn aftur til Parma á Ítalíu. Þá er Kristian Ped- ersen, sem spilar í ensku B-deild- inni, einnig farinn heim eftir að hafa spilað sinn fyrsta landsleik á miðvikudaginn. Eftir leikinn á Laugardalsvelli fara Danir til Lundúna og mæta Englendingum á Wembley á miðvikudaginn. Álaginu verður dreift Landsliðsþjálfarinn Erik Hamr- én stillti upp sínu sterkasta liði í leiknum mikilvæga gegn Rúmeníu á fimmtudaginn en fastlega má gera ráð fyrir því að álaginu verði dreift á hópinn í næstu tveimur leikjum. Kári Árnason fór meiddur af velli í umspilsleiknum og var fyrst um sinn óttast að hann væri fótbrotinn. Góðu fréttirnir eru þær að svo er ekki, en hann verður að öllum líkindum ekki með á morgun. Þá áttu þeir Arnór Sigurðsson og Jón Dagur Þorsteinsson að spila með 21-árs landsliðinu gegn Ítalíu í gær en þeim leik var frestað og verða þeir því til taks á morgun. Jó- hann Berg Guðmundsson spilaði í 83 mínútur gegn Rúmeníu og var það hans fyrsti leikur í tæpan mán- uð. Það er því óvíst hvort hann verður með. Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson mun spila gegn Dönum en ekki gegn Belgíu og þá verður áhugavert að sjá hvort Birkir Már Sævarsson kemst aftur að eftir vasklega framgöngu með Val und- anfarið. Erfiðasti andstæðingurinn  Ísland tekur á móti Danmörku á Laugardalsvellinum í Þjóðadeildinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Danir Arnór Ingvi Traustason í baráttu við Rúmenann Mihai Balasa í fyrra- kvöld. Annað kvöld glíma Arnór og félagar við Dani á Laugardalsvellinum. ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 Ég lenti í matarboði fyrir ekki svo löngu. Félagsskapurinn var þannig saman settur að ég bjóst við því að fá frí frá vinnunni og íþróttunum vegna þess að þær eru ekki á áhugasviði þeirra sem þar voru. Bleik var þess vegna brugðið þegar ég fékk gula spjaldið í matarboðinu fyrir störf mín á Morgunblaðinu. Því átti ég ekki von á þótt vitaskuld sé þar næg- an efnivið að finna til að gagn- rýna. Bjóst bara ekki við þessu úr þessari átt. Frændi minn sagðist sem sagt hafa veitt því athygli hvernig sjálfboðaliðar hjálpuðu í stórum stíl til við að gera Íslandsmótið í golfi að veruleika í Mosfellsbæ í ágúst. Þetta væri stórmerkilegt á tímum þegar erfitt væri að fá fólk til að sinna sjálfboðastarfi eftir því sem hann best vissi. Hvort sem það er í íþróttunum eða annars staðar. Nú er þessi frændi minn ekkert sérstaklega upptekinn af golf- íþróttinni en sagðist hafa veitt þessu athygli í fjölmiðlum. Sagð- ist hins vegar ekkert botna í því að ég hefði ekki skrifað svona Bakvarðarpistil um málið og hve þetta hefði verið til mikillar fyrir- myndar hjá fólki í hreyfingunni. Útskýrði hann fyrir gestum hvernig kórónuveiran setti mark sitt á mótshaldið. Til að koma í veg fyrir sameiginlega snertifleti þurftu sjálfboðaliðar að fara með hverjum einasta ráshópi og taka boltana fyrir keppendur úr holunni. Hátt í fimm tíma göngutúr, fjóra daga í röð, þar sem veðurguðirnir eru misjafn- lega upplagðir. Klukkan sjö að morgni þess vegna, þegar enn er hánótt. Frændi minn hefur lög að mæla. Ég þyrfti endilega að skrifa Bakvörð um þetta. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Danmörk Kolding – Bjerringbro/Silkeborg..... 29:32  Ágúst Elí Björgvinsson varði níu skot í marki Kolding. Tvis Holstebro – Aarhus..................... 33:29  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði eitt mark fyrir Tvis Holstebro.  Efstu lið: Aalborg, GOG, Tvis Holstebro, Mors-Thy, Bjerringbro/Silkeborg, Skand- erborg, Skjern, SönderjyskE. Frakkland B-deild: Nice – Strasbourg................................ 30:30  Grétar Ari Guðjónsson varði þrjú skot í marki Nice.  Undankeppni HM 2022 Suður-Ameríka: Úrúgvæ – Síle ........................................... 2:1 Paragvæ – Perú........................................ 2:2 Argentína – Ekvador ............................... 1:0 Undankeppni EM U21 árs 1. riðill: Ísland – Ítalía..................................... frestað Svíþjóð – Lúxemborg............................... 4:0 Staðan: Írland 7 5 1 1 12:3 16 Ítalía 6 4 1 1 15:3 13 Svíþjóð 7 4 0 3 17:8 12 Ísland 6 4 0 2 11:9 12 Armenía 7 1 0 6 4:17 3 Lúxemborg 7 1 0 6 2:21 3  Lúxemborg og Ísland mætast næsta þriðjudag. Holland B-deild: Eindhoven – Excelsior ............................ 1:1  Elías Már Ómarsson lék fyrstu 86 mín- úturnar fyrir Excelsior og skoraði eitt mark.   Karla- og kvennalandslið Íslands í körfuknattleik leika ekki heima- leiki í undankeppnum stórmótanna í nóvembermánuði eins og til stóð. Þess í stað fer kvennalandsliðið til Grikklands og karlalandsliðið til Slóvakíu þar sem öll liðin í viðkom- andi riðlum koma saman og leika fyrri umferðina á nokkrum dögum. Kvennalandslið Íslands átti að leika við Slóveníu á heimavelli 12. nóvember og Búlgaríu á útivelli 15. nóvember í undankeppni EM. Þess í stað fer liðið til Heraklion í Grikk- landi og mætir þar Slóvenum, Búlg- örum og Grikkjum dagana 8. til 15. nóvember. Karlalandsliðið átti að leika tvo heimaleiki í forkeppni HM 2023, gegn Lúxemborg 26. nóvember og gegn Kósóvó 29. nóvember. Þess í stað verður farið til Bratislava og leikið þar gegn Lúxemborg, Kósóvó og Slóvakíu dagana 23. til 29. nóv- ember. Seinni umferð riðlanna verður leikin í febrúarmánaði á svipaðan hátt, samkvæmt áætlun FIBA. Körfuboltalandsliðin missa af heimaleikjum sínum Arnar Grétarsson mun halda áfram störfum sem þjálfari úrvalsdeild- arliðs KA í knattspyrnu og hefur skrifað undir nýjan samning til tveggja ára. Arnar tók við KA- liðinu 15. júlí, sama dag og Óli Stef- án Flóventsson hætti störfum með Akureyrarliðið sem hafði þá ekki náð að vinna leik í fimm fyrstu um- ferðum Pepsi Max-deildar karla. Undir stjórn Arnars hefur KA að- eins tapað einu sinni í þrettán leikj- um, 1:0 gegn toppliði Vals, en unnið þrjá leiki og gert níu jafntefli og er í sjöunda sæti deildarinnar. Arnar verður áfram með KA Ljósmynd/Þórir Tryggvason KA Arnar Grétarsson verður áfram á Akureyri næstu tvö árin. UNGVERJAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ungverjar munu þekkja mætavel til íslenska karlalandsliðsins í fót- bolta sem mætir þeim í úrslita- leiknum um EM-sætið í Búdapest 12. nóvember. Aftur á móti er ljóst að Íslendingar þekkja mun minna til ungverska liðsins sem teflt verður fram í þeim leik. Ísland og Ungverjaland skildu jöfn, 1:1, í Marseille í Evrópukeppn- inni í Frakklandi sumarið 2016 þar sem ungverska liðið náði jafntefli með sjálfsmarki á 88. mínútu, eftir að Gylfi Þór Sigurðsson hafði skor- aði fyrir Ísland í fyrri hálfleiknum. Ungverjar unnu riðilinn afar óvænt og Ísland hafnaði í öðru sæti á með- an Portúgalar rétt skriðu áfram í 16-liða úrslitin með þremur jafn- teflum í þriðja sæti og Austurríki féll út. Þegar Ungverjar unnu Búlgara 3:1 í Sofia í umspilinu í fyrrakvöld voru þeir aðeins með þrjá leikmenn í byrjunarliði sem tóku þátt í leikn- um í Marseille fyrir fjórum árum. Það voru miðvörðurinn Ádám Lang, leikmaður Omonia á Kýpur, sem var hægri bakvörður í leiknum í Marseille, miðjumaðurinn Ádám Nagy, sem leikur með Bristol City í ensku B-deildinni, og framherjinn og varafyrirliðinn Ádám Szalai, leikmaður Mainz í Þýskalandi, sem kom inn á sem varamaður í Mar- seille. Sá fjórði sem tók þátt í báðum leikjum var Nemanja Nikolic, sókn- armaður ungverska liðsins Fehér- vár, en hann kom inná gegn Íslandi 2016 og aftur gegn Búlgörum í fyrrakvöld þar sem hann innsiglaði sigurinn með þriðja marki ung- verska liðsins. Níu sem mættu Ungverjum Aftur á móti tóku níu af þeim leik- mönnum íslenska landsliðsins sem léku gegn Ungverjum í Marseille þátt í sigurleiknum gegn Rúmeníu á Laugardalsvellinum í fyrrakvöld. Ungverjar urðu í fjórða sæti af fimm liðum í undankeppni EM á síð- asta ári, á eftir Króatíu, Wales og Slóvakíu en á undan Aserbaídsjan. Þeir unnu fjóra leiki en töpuðu fjór- um í jöfnum riðli. Sigruðu Asera tvisvar og unnu heimaleikina gegn Króatíu og Wales. Þeir fengu því níu af tólf stigum á heimavelli sínum í Búdapest þar sem þeir taka á móti Íslandi í leiknum mikilvæga eftir rúman mánuð. Sigur og tap í september Ungverjar léku tvo leiki í Þjóða- deildinni í september. Þeir unnu óvæntan útisigur á Tyrkjum, 1:0, með marki frá hinum 19 ára gamla Dominik Szoboszlai, leikmanni Salz- burg í Austurríki. Þremur dögum síðar töpuðu þeir 2:3 fyrir Rússum á heimavelli eftir að hafa lent 0:3 und- ir. Roland Sallai, leikmaður Freib- urg í Þýskalandi, og Nemanja Niko- lic minnkuðu muninn um miðjan síðari hálfleik. Ungverjar eru á leið í tvo leiki í Þjóðadeildinni eins og önnur lið. Þeir mæta grönnum sínum Serbum á útivelli annað kvöld og sækja síð- an Rússa heim á miðvikudags- kvöldið. AFP Skorar Nemanja Nikolic hefur ver- ið á skotskónum að undanförnu. Gjörbreytt lið frá EM 2016  Aðeins fjórir eftir af þeim sem léku með Ungverjalandi gegn Íslandi í Marseille

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.