Morgunblaðið - 10.10.2020, Qupperneq 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ragnar Ólafsson, söngvaskáld og
tónlistarmaður, gaf út sína aðra sóló-
plötu 1. október og ber hún titilinn
m.i.s.s. sem vísar í staðinn sem hún
var samin á, Mississippi-fljótið í
Bandaríkjunum.
Ragnar hefur komið víða við í tón-
list á síðastliðnum 15 árum, hefur
m.a. fengist við klassík og óperu,
popp og þungarokk. Hann ólst upp
og bjó erlendis fyrstu 22 ár ævi sinn-
ar, einkum í Svíþjóð en auk þess í
Bandaríkjunum og á Svalbarða. Hóf
hann að leika með hljómsveitum og
tónlistarmönnum á meðan hann var í
menntaskóla í Gautaborg og að loknu
stúdentsprófi flutti hann til Sval-
barða og bjó þar í tvö ár. Þar stofnaði
hann Iris-Magnus, „nyrstu hljóm-
sveit í heimi“ eins og hann kallar
hana.
Árið 2003 flutti Ragnar til Íslands
og hóf nám í bókmenntafræði og
sænsku við Háskóla Íslands samhliða
tónlistarnámi í Tónlistarskóla Kópa-
vogs og FÍH. Hann vann fyrir sér
sem trúbador á knæpum höfuð-
borgarinnar samhliða náminu í nokk-
ur ár og hefur komið að stofnun
nokkurra hljómsveita, t.d. Ask the
Slave og In Siren, og hann er líka
meðlimur í hljómsveitunum Light-
speed Legend, Different Turns og
Sign auk þess að hafa farið í tónleika-
ferðalög með Sólstöfum og leikið á
hljómborð. Einna þekktastur er
hann þó sem einn liðsmanna hljóm-
sveitarinnar Árstíða sem ferðast hef-
ur til yfir 30 landa, gefið út sex plötur
og hlotið mörg verðlaun. Síðast en
ekki síst hefur Ragnar útsett tónlist
fyrir Söngvakeppnina og samið tón-
list fyrir sjónvarpsefni og kvikmynd-
ir.
Vísar líka til kvenna
og söknuðar
Nýja platan, m.i.s.s., er óður til
Mississippi-fljótsins og fólksins sem
Ragnar kynntist á mánaðarlangri
siglingu sinni en titillinn vísar líka til
kvenna (e. missus) sem skáldið sakn-
ar (e. miss) og hugsar til þegar hann
situr með gítar í hendi á dekki og
fylgist með straumi fljótsins, eins og
Ragnar lýsir því sjálfur. Á plötunni
eru tólf lög og í þeim skiptast á skin
og skúrir.
„Þetta er sólóverkefnið mitt,
ákveðin hlið á mér þar sem ég er per-
sónulegri, hneppi frá brynjunni og
tala um hjartans mál,“ segir Ragnar
um plötuna nýju í samtali við blaða-
mann. „Ég samdi alla plötuna á innan
við fjórum vikum í bátsferð á Miss-
issippi.“
– Hvers vegna varstu í þeirri báts-
ferð, hver er forsaga hennar?
„Vinur minn, John Holdson, er
mikill ævintýrakarl og hafði keypt
sér húsbát, var staddur í Watergate
Marina hjá Twin Cities þar sem
Mississippi byrjar og ætlaði að sigla
fljótið endilangt og bauð mér með.
Ég hélt nú það og flaug til Twin Cit-
ies og við sigldum þaðan niður ána í
fjórar vikur,“ svarar Ragnar. „Ég sat
alla dagana með gítar í hendi og
samdi lög, eitt til tvö á dag og kom
heim með um 30 lög í farteskinu. 12
þeirra enduðu á plötunni.“
Ragnar segir lögin flest vísa í fljót-
ið með einum eða öðrum hætti en þau
fjalla þó um fólk og tilfinningar.
„Myndlíkingin er alltaf áin,“ segir
Ragnar og að lögin myndi í heild
ferðasögu. Fyrsta lagið á plötunni er
það fyrsta sem Ragnar samdi í ferð-
inni og lokalagið samdi hann á heim-
leið. Þegar til Reykjavíkur var komið
fór hann að huga að útsetningum.
„Þetta er svona „singer songwriter“
með smá rokk-, kántrí- og blúsívafi.
Það gerðist bara sjálfkrafa því ég
drakk í mig menninguna þarna á
Mississippi. Það er blúslag á plötunni
og nokkur kántrískotin,“ útskýrir
Ragnar. Hann fékk góða menn til liðs
við sig í upptökum; Skúli Gíslason
trommaði, Halldór Árnason lék á
bassa og Magnús Jóhann á hljóm-
borð, svo nokkrir séu nefndir.
Sérstakur menningarheimur
Ragnar er spurður að því hvort
hann hafi hitt áhugavert fólk á ferða-
lagi sínu niður Mississippi og segist
hann heldur betur hafa gert það.
„Þetta er ákveðinn menningarheim-
ur, fólk sem býr við svona stóra og
mikla á hefur ákveðinn karakter, er
mjög hjálpsamt og hlýtt,“ segir
Ragnar. Þeir vinirnir hafi þurft að
kaupa birgðir og fá ýmsa þjónustu í
bæjum við ána og allir hafi þar verið
af vilja gerðir og hjálplegir.
Ragnar bendir á að fólk sem býr á
eyju hafi líka ákveðinn karakter, til
dæmis við Íslendingar. Sjórinn sé
lífshættulegur líkt og Mississippi
sem margir drukkni í ár hvert. „Það
vita allir að þessi á getur verið hættu-
leg, eins falleg og hún nú er og það er
ákveðinn andi þarna, fólk stendur
saman og hjálpast að.“
Og talandi um náttúruöflin þá
lentu Ragnar og vinur hans í alls kon-
ar veðrum, m.a. stormi sem hann
segir hafa verið ansi skuggalegan
með mikilli rigningu, þrumum og
eldingum. „Það var svolítið strembið
að ná stjórn á bátnum og koma hon-
um í skjól,“ segir Ragnar. Hann segir
ferðalagið virkilega eftirminnilegt og
líkir plötunni við minnisbók sem
hann hafi skrásett ferðalagið í, sagt
frá fólki sem hann hitti, hvernig hon-
um leið og hvað hann upplifði.
10 ferðir til Póllands
Fyrsta sólóplata Ragnars, Urges,
fékk prýðilegar viðtökur á sínum
tíma og má nefna lof frá Arnari Egg-
erti Thoroddsen poppdoktor. Ragnar
segir þá plötu hafa sprottið upp úr
ástarsorg. „Hún var stálheiðarleg, ég
var ekki með neina stæla og ekki að
reyna að sanna neitt. Ég þurfti að
gera plötuna fyrir sjálfan mig og svo
var bara bónus að mörgum þótti hún
góð. Ég fékk líka mikla athygli fyrir
hana í Póllandi og hef farið reglulega
í tónleikaferðalög þangað, spilað lög-
in af henni og líka núna af nýju plöt-
unni,“ segir Ragnar sem er nýkom-
inn úr tónleikaferð um Pólland. „Ég
var þar fyrir nokkrum vikum, hélt 18
tónleika einn með gítarinn,“ segir
Ragnar en hann er með bókara sem
sér um skipulag slíkra ferða.
Ragnar segist hafa farið tíu sinn-
um til Póllands á þremur árum, eftir
að Urges kom út. „Það sem var
merkilegt við þennan túr var að mér
tókst að spila 18 tónleika í miðjum
Covid-faraldri,“ segir Ragnar um síð-
ustu ferðina en gætt var að fjöldatak-
mörkunum og hæfilegri fjarlægð
milli gesta. „Ég var hikandi áður en
ég fór en fann svo hvað fólk sem kom
á tónleikana var þakklátt. Þetta var
svolítið sérstakur túr upp á það að
gera,“ segir hann að lokum.
Ljósmynd/Justyna Stachowska
Víðförull Ragnar Ólafsson hefur bæði búið og leikið víða um lönd á 15 ára löngum tónlistarferli sínum.
Fljót, fólk og tilfinningar
Ragnar Ólafsson sigldi niður Mississippi-fljót í mánuð og samdi lög og texta fyrir plötuna m.i.s.s.
sem nú er komin út Hefur komið víða við í tónlist og farið tíu sinnum í tónleikaferð til Póllands
Hópur gjörn-
ingalistamanna
sem kalla sig
Sunday Seven
verður með
gjörninga-
dagskrá á netinu
í annað sinn í
dag, 10. október.
Dagskrána kalla
þau 10 10 2020.
Listamennirnir
eru Ásta Fanney Sigurðardóttir,
Darri Lorenzen, Ingibjörg Magna-
dóttir, Magnús Logi Kristinsson,
Sigtryggur Berg Sigmarsson,
Snorri Ásmundsson og Styrmir Örn
Guðmundsson.
Dagskráin hefst kl. 20 og verður
streymt frá Berlín, Hannover, Hel-
sinki, Reykjavík og sænsku og
frönsku sveitinni á vegg hópsins á
Facebook og á vefnum artzine.is.
Hópurinn mun bjóða upp á gjörn-
ingadagskrá reglulega í vetur.
Gjörningar Sunday
Seven í annað sinn
Ásta Fanney
Sigurðardóttir
Laufey Johansen opnar myndlistar-
sýninguna Undur hafsins í Grafík-
salnum, Hafnarhúsinu, á morgun,
sunnudag, kl. 16. Á sýningunni eru
12 olíumálverk, flest unnin árið
2018 en nokkur þeirra voru til sýnis
á einkasýningu Laufeyjar í New
York það ár.
Í tilkynningu segir að verkin séu
litrík, björt og kraftmikil og mikið
flæði í myndunum því Laufey leyfi
tilfinningum að flæða óhindrað þar
sem hverja pensilstroku leiði af
annarri og litir og form myndist í
sameiningu. Hafið og náttúra þess
eru áberandi viðfangsefni í mynd-
um Laufeyjar að þessu sinni.
Í djúpinu Hluti af verki eftir Laufeyju.
Undur hafsins
Í frétt um að bandaríska ljóðskáldið
Louise Glück hreppi Nóbelsverð-
launin í bókmenntum í ár láðist að
geta þess að söngvaskáldið Bob Dyl-
an var síðasta ljóðskáld á undan
henni til að hreppa verðlaunin, og
janframt síðastur Bandaríkjamanna
þess heiðurs aðnjótandi.
Bob Dylan hlaut verðlaunin árið
2016 en næsta ljóðskáld á undan
honum var Svíinn Tomas Tran-
strömer sem hlaut þau árið 2011.
Rithöfundurinn Toni Morrison var
næsti Bandaríkjamaður á undan
Dylan til að hljóta Nóbelinn í bók-
menntum, fyrir 27 árum.
Dylan síðasta ljóðskáld á undan Glück
LEIÐRÉTT
... stærsti uppskriftarvefur landsins!