Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 44

Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 VIÐ GERUM VIÐ allar tegundir síma, spjaldtölva og tölva Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Hansdætur spila á allantilfinningaskalann ogætti lesandanum ekki aðbregða þótt hann skellti upp úr, fyndi til vorkunnar, gleði og reiði við lesturinn ásamt því að vökna allverulega um augun. Bókin segir frá upplitsdjarfri og ákveðinni ungri stúlku sem gengur í buxum í byrjun tuttugustu aldar í Arnarfirði á Vest- fjörðum. Ber hún nafnið Gratíana og fæðist inn í ólukkulegar að- stæður móður sinnar sem á þrjú börn með þremur mönnum. Þá sér móðirin einnig um móður sína sem sér inn í fleiri heima en okkar eigin. Gratíana, eflaust lítt hrifin af því lífi sem móðir hennar hefur þurft og mun þurfa að þola, ákveður að verða blaðamaður og kvenréttindakona og helst meiri karl en kona, í þeim skiln- ingi að hún einsetur sér að fá að upp- lifa og afreka það sama og karl- maður. Reiðin yfir misrétti heimsins, bæði hvað varðar misrétti kynjanna og misskiptingu auðs í Arnarfirði, drífur hana áfram og barnsleg ein- lægnin gerir það að verkum að hún leyfir sér að láta vaða í nafni jafn- réttis í stað þess að hugsa um afleið- ingarnar, kónga og presta. Lesand- inn fær að fylgjast með henni þroskast, læra á sín „prinsíp“ og um- fram allt rækta réttlætiskenndina sem styrkist með hverri blaðsíðunni. Gratíana er hreint út sagt stór- kostlegur karakter rétt eins og aðrir sem hana umkringja, Evlalía móðir hennar, Mæamma sem segir mis- gáfulegar sögur daginn út og daginn inn, Sella systir Gratíönu sem er svo kvenleg og ólík systur sinni að Gratí- ana stingur enn meira í stúf, Björn Ebeneser, frændi Gratíönu og rit- stjóri Arnarins, sem opnar fyrir frænku sinni annan heim, Mangi Beri sem ber vatn og skít þorpsbúa og yrkir ljóð þess á milli og svo mætti lengi telja. Persónurnar eru allar úthugsaðar, sama hvort um er að ræða auka- eða aðalpersónur og gæða þær söguna sterkum litum. Hver einasta þeirra er sögunni þörf og samkvæm sjálfri sér. Hvað söguþráðinn varðar þá á klisjan „ég gat ekki látið bókina frá mér“ við í þessu tilviki. Þrátt fyrir að um sé að ræða nokkuð rólega frásögn af löngu horfnum tímum nær höf- undur að halda uppi einhverri ótrú- legri spennu yfir því sem gerist næst. Misréttið í bókinni er áþreifanlegt og þótt nútímalesanda kunni að þykja óþægilegt að lesa í sífellu stað- hæfingar um að konur séu svona og karlar á hinn veginn þá passar það í frásögn af þessu tagi, frásögn sem á að gerast á þeim tíma sem viðhorf til kynjanna voru öðruvísi en í dag. „Skolvatnið bíður undir íshellunni í vöskunarkassanum eftir að kólnandi kvenmannshendur brjóti klakann of- an af og byrji að vaska og skola og þrífa. Og inni á sínum kontór bíður kaupmaður eftir því að geta horft yfir öxl bókarans og séð hann færa tekjur af útfluttum saltfisk í viðeigandi reit. Með heitum og mjúkum karlmanns- höndum.“ Það er ómögulegt að spara stjörn- urnar þegar bók eins og Hansdætur verður á vegi manns, já eða konu, og vildi ég gjarnan að ég gæti gefið sög- unni eitthvað meira en fullt hús stiga. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Benný Sif „Það er ómögulegt að spara stjörnurnar þegar bók eins og Hans- dætur verður á vegi manns,“ skrifar rýnir hrifinn eftir lestur á sögunni. Skáldsaga Hansdætur bbbbb Benný Sif Ísleifsdóttir. Mál og menning, 2020. Innb., 342 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Kaldar hendur og heitar Nýtt verk Ófeigs Sigurðs-sonar, Váboðar, liggureinhvers staðar á óskil-greindum stað í flokkunarkerfinu. Það er safn smárra sagna en hugtakið smá- sagnasafn er þó ekki fullnægjandi til þess að lýsa verkinu. Það er meira en bara safn smásagna. Það er flókið net sagna sem tvinnaðar eru sam- an á ýmsa vegu. Einhverjir gætu fært rök fyrir því að hér væri um svokallaðan sagna- sveig að ræða en það hugtak nær heldur ekki alveg að fanga það sem gerir þetta verk svo sérstakt. Fyrstu frásagnirnar eru góðar og gildar smásögur, og satt að segja mjög vel heppnaðar, svo fyrst um sinn virðist um hefðbundið smá- sagnasafn að ræða en eftir því sem lesandinn kemst lengra inn í verkið fara tengsl ólíkra sagna að koma í ljós. Lítil atriði úr fyrri sögum stinga upp kollinum, unnið er áfram með svipuð umfjöllunarefni og sum- ar sögurnar eru jafnvel endurskrif- aðar. Ófeigur stefnir saman ólíkum stíl- um og frásagnarháttum en þrátt fyrir að sögurnar hafi ólíkt yfir- bragð byggir höfundurinn upp spennandi net frásagna sem mynda smám saman forvitnilegt heildar- verk. Sumar sagnanna hefðu getað staðið einar og sér, sem fullmótaðar smásögur, en aðrar hefðu misst marks ef þær hefðu ekki haft stuðn- ing af samhenginu. Heildarmyndin styrkir hverja sögu og heildar- myndin styrkist með hverri sögu. Tvö meginþemu eru til umfjöll- unar í verkinu, náttúran og hið yfir- náttúrlega. Sem samfélag höfum við fjarlægst hvort tveggja; misst tengslin við náttúruna og við trúna á draumráðningar, vitjanir og váboða. Það er gleðilegt að sjá höfund vinna með samband manns og náttúru enda mikilvægt að samtíma- listamenn þori að glíma við nátt- úruvá, loftslagsbreytingar og fram- tíðarsýn í verkum sínum. Ófeigur gerir það á frjóan hátt með því að stilla viðfangsefninu upp við hlið draumaþemans. Náttúruvá og vá- boðar kallast á í vangaveltum um framtíðarhorfur lands og þjóðar. Tíminn virðist ekki alltaf líða eins og honum ber í draumum og það leikur Ófeigur sér með í Váboðum. Ártöl, sem venjulega hjálpa lesanda að tímasetja söguna í þeim heimi sem hann þekkir, eru í meðförum Ófeigs einskis nýt. Tímaskynið bregst lesandanum í hvívetna. Saga íslensku þjóðarinnar, sönn og skáld- uð, og vangaveltur um framtíðina, um hvað bíður okkar, blandast sam- an í einn stóran hrærigraut þar sem snakkverksmiðja, Ozzy Osbourne, Seylon og api Ellýjar Vilhjálms koma við sögu. Sögurnar eru misgrípandi og þrátt fyrir að Váboðar sé ekki langt verk þá verður lesandinn á stöku stað að vopnast þolinmæðinni, nema hann hafi sérstakan áhuga á orðsifj- um fuglategundaheita eða endur- teknum lýsingum á draumförum ólíkra einstaklinga. Endurtekningarnar hafa þó sinn tilgang. Ófeigur nýtir þetta stíl- bragð til þess að ná fram óþægileg- um áhrifum. Lesandinn finnur sig fanginn í draumaveröld sem í senn er heillandi og óhugnanleg. Sú til- finning sem menn þekkja úr draum- um, að kannast við sig en samt ekki og að allt sé einhvern veginn á skjön við raunveruleikann, er alltumlykj- andi. Það gerir lestrarupplifunina í senn gríðarspennandi og hálf- óþægilega. Líkt og í draumi Sagnasafn Váboðar bbbbn Eftir Ófeig Sigurðsson. Forlagið, 2020. Innbundin, 196 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Ljósmynd/Gassi Ófeigur „…þrátt fyrir að sögurnar hafi ólíkt yfirbragð byggir [hann] upp spennandi net frásagna sem mynda smám saman forvitnilegt heildarverk.“ Glæpasagan Drottningin eft-ir Fritz Má Jörgensson erum sumt hefðbundinglæpasaga, ef svo má að orði komast, en kærleikurinn er ívið meiri en gengur og gerist í þessum sagnaheimi, þó mikilvægi hans sé aldrei orðum aukið. Morðmál geta verið snúin og þó mikið liggi við er atburðarásin í Drottningunni frekar hæg þar til allt í einu að hún tekur kipp, leikurinn æsist þegar á líður söguna og nær há- punkti undir lokin. Morðvettvang- urinn er austur í sveitum en höfuð- borgarsvæðið er nánast allt undir í rannsókninni. Persónur eru margar, of margar, en nokkrar þeirra eru meira áber- andi en aðrar og þá jafnvel vegna einhvers sem er þeim til vansa. Addi lögga er fær í sínu fagi, en hann er 120 kg sykurfíkill, sem notar hvert tækifæri til þess að fá sér sætindi og er alltaf með súkkulaði við höndina. Valur, starfsfélagi hans, stígur ekki í vitið og er aðeins eftirminnilegur þess vegna. Jónas er trausti hlekk- urinn í lögregluliðinu en hann er ein- mana eins og séra Sigrún, vinkona hans. Geir fylgir hins vegar kalli guðs í lögreglustarfinu og verður vel ágengt. Tónn sögunnar er grafalvarlegur, morð og barnshvarf, en höfundur tínir til nokkur af helstu vandmálum líðandi stundar eins og eiturlyfja- framleiðslu og -sölu, mansal og er- lenda glæpaflokka, og tengir við at- burðarásina. Lesandinn er teymdur um víðan völl, en þrátt fyrir að hugs- unin í sambandi við plottið sé góð er umfjöllunin oft yfirborðsleg og endurtekningar miklar. Á stundum er eins og tikka þurfi í öll boxin, en engu að síður eru góðir sprettir og lýsing á þrám Sverris, ístöðulauss eiturlyfjaneytanda, um framtíðina er gott dæmi. Oddur Helgason ætt- fræðingur kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti en er líkur sjálfum sér, þótt innlegg hans vegi ekki þungt í lausn málsins. Bregður fyrir rétt eins og Alfred Hitchcock í kvik- myndum sínum. Ætla má að prestar hafi kærleik- ann almennt að leiðarljósi og því kemur ekki á óvart að hann svífi yfir vötnum í skáldverki prests í þjóð- kirkjunni, jafnvel þótt um glæpa- sögu sé að ræða. Hann er samt hugsanlega fullfyrirferðarmikill á köflum og þar skín í gegn viðleitni prestsins til þess að leggja áherslu á hið góða, þótt víða sé pottur brotinn. Það er vissulega jákvætt og veitir kannski ekki af þegar öllu er á botn- inn hvolft. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fritz Már „Tónn sögunnar er grafalvarlegur, morð og barnshvarf,“ segir rýnir en „kærleikurinn er ívið meiri en gengur og gerist“ í glæpasögum. Glæpasaga Drottningin bbbnn Eftir Fritz Má Jörgensson. Ugla 2020. Kilja, 252 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Kærleikurinn og glæpirnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.