Morgunblaðið - 12.10.2020, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 2. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 240. tölublað 108. árgangur
ÓHÆTT AÐ MÆLA
MEÐ PRÝÐILEGRI
TÖFRASÝNINGU ÁTTI AÐ NOTA Í ÁTÖKUM
TILFINNINGA-
ÞRUNGIN STUND
Á LAUGARDAG
FLÓTTAMANNALEIÐ 10 KRÝSUVÍKURKIRKJA 8LALLI TÖFRAMAÐUR 29
Ekki kom fyrsti sigurinn gegn Dönum í A-
landsleik karla í knattspyrnu í gær þegar þjóð-
irnar mættust á Laugardalsvellinum. Danir höfðu
betur eins og svo oft áður en leikurinn var liður í
Þjóðadeild UEFA. Í þetta sinn unnu Danir 3:0 og
íslenska liðið bíður eftir fyrsta sigrinum í þessari
nýlegu keppni. Danska liðið sýndi hvers það er
megnugt í leiknum en fékk þó hjálp frá sænska
dómaratríinu til þess að ná forystunni því fyrsta
markið hefði ekki átt að standa. Boltinn virtist
ekki hafa farið allur inn fyrir marklínuna. Um-
fjöllun um leikinn er að finna á bls 27.
Morgunblaðið/Eggert
Enn þarf að bíða eftir því að vinna Dani
„Við reiknum með því að við munum
sækja okkur tekjur á almennan
markað upp á um 1.800 milljónir og
það er ekki búið að nefna eitt eða
neitt við stjórnina að til standi að
taka RÚV af auglýsingamarkaði,“
segir Guðlaugur G. Sverrisson,
fulltrúi Miðflokksins í stjórn Ríkisút-
varpsins.
Nýlega var samþykkt í stjórn Rík-
isútvarpsins að veita útvarpsstjóra
umboð til að ganga frá og undirrita
þjónustusamning á grundvelli samn-
ings eða draga að samningi sem
ræddur var í stjórninni. Í frétt í
Morgunblaðinu á laugardag segir að
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og
menntamálaráðherra, hafi gert nýjan
þjónustusamning við Ríkisútvarpið,
sem var ofmælt þar sem samning-
urinn hefur ekki verið undirritaður.
Lilja hefur gert athugasemdir við
fréttaflutninginn og segir meðal ann-
ars að aðeins hafi verið um drög að
ræða.
Stjórnarmaður í RÚV sem vildi
ekki koma fram undir nafni segir að
það hafi verið skilningur stjórnar að
samningurinn væri svo til tilbúinn til
undirritunar en Stefáni Eiríkssyni
útvarpsstjóra væri falið að fara yfir
ýmisleg smávægileg atriði til þess að
klára samninginn. Þá bendir hann á
það að hlutverk stjórnar sé að gera
þjónustusamning miðað við núgild-
andi lög. Ef áhugi sé á því að breyta
fyrirkomulagi um RÚV á auglýsinga-
markaði þá þurfi að ræða það á Al-
þingi. »4
Gera ráð
fyrir auglýs-
ingatekjum
Ekki var búið að
gera samninginn
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Rauði krossinn er búinn að útbúa
eina hæð í Hótel Rauðará fyrir ein-
angrun sjúklinga með Covid-19.
Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónar-
maður farsóttarhúsa, segir að hæðin
verði tekin í notkun þegar þörf
verður á. Það gæti orðið í dag.
Í gær voru alls 86 gestir í farsótt-
arhúsunum, 63 í einangrun og 23 í
sóttkví. Starfsemin hefur tvö hótel
við Rauðarárstíg til afnota, Hótel
Lind og Hótel Rauðará. Lind er not-
uð fyrir fólk sem fengið hefur
kórónuveiruna og þarf að vera í ein-
angrun en hefur af einhverjum
ástæðum ekki aðstæður til þess að
dvelja heima. Gylfi segir að húsið sé
að fyllast og tímaspursmál hvenær
farið verði að nota 4. hæðina á
Rauðará til einangrunar.
Rauðará hefur til þessa eingöngu
verið notuð fyrir fólk í sóttkví og þá
aðallega hælisleitendur. Alls hafa
hátt í 600 gestir gist farsóttarhúsin í
seinni bylgju kórónuveirunnar.
Fjölgað hefur verið um tvo starfs-
menn til að sinna gestum í farsótt-
arhúsunum og eru þeir nú átta.
Tveir eru á vakt á mestu álagstím-
um. Telur Gylfi að þörf kunni að
vera á að fjölga starfsfólki enn frek-
ar. Hlutverk þeirra er að færa gest-
unum mat, kanna líkamlega og and-
lega líðan þeirra og vera til taks ef
þeir þurfa á aðstoð að halda. Auk
þess eru tveir öryggisverðir á vakt
allan sólarhringinn, tveir starfs-
menn í þrifum og einn í afgreiðslu.
Ótaldir eru sjálfboðaliðar Rauða
krossins.
Breytist á hverjum degi
Gylfi Þór segir að fjöldi gesta
breytist dag frá degi og erfitt að
gera áætlanir. Nú er pláss fyrir 150
til 160 sjúklinga í einangrun í far-
sóttarhúsunum. Fjöldi herbergja
ætti því að duga nokkuð vel en Gylfi
segir að fjöldinn sé fljótur að breyt-
ast, í báðar áttir, eftir þróun farald-
ursins. »4
Einni hótelhæð bætt við
fyrir fólk í einangrun
Eldra farsóttarhúsið orðið fullt Fjölga þurfti starfsfólki
Farsóttarhús Lind við Rauðar-
árstíg er nú full af sjúklingum.
Ábending sem barst Neyðarlínunni,
um eld í húsbíl við Torfastaði í
Grafningi í Árnessýslu skömmu fyr-
ir miðnætti á föstudagskvöld skilaði
sér ekki til lögreglunnar.
Lögreglu barst svo önnur tilkynn-
ing daginn eftir, klukkan 13.30 á
laugardag. Þá var bíllinn illa útleik-
inn og mikið brunninn. Leiddi rann-
sókn í ljós að líkamsleifar manns á
fertugsaldri voru í bílnum.
Oddur Árnason, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi,
staðfestir þetta í samtali við Morg-
unblaðið. Hann segir að skoðað
verði hvernig stendur á því að til-
kynningin hafi ekki ratað á borð lög-
reglu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru það sumarhúsaeigend-
ur í Grafningi sem hringdu í Neyð-
arlínuna á föstudagskvöld, þar sem
þeir þóttust sjá eld hinum megin
Sogsins. Töldu þeir sig einnig sjá
bremsuljós bifreiðar. Sú bifreið get-
ur þó ekki verið húsbíllinn sem
brann enda sneri framendi hans í átt
að vatninu. Starfsmaður Neyðarlín-
unnar hafi vísað þeim áfram á lög-
reglu en þar hafi síminn hringt út.
Óskar eftir ábendingum vitna
Rannsókn lögreglu á eldsvoð-
anum stendur yfir, en á meðan verst
lögregla allra fregna af atburða-
rásinni. Þannig fást ekki upplýs-
ingar um það hvenær talið er að eld-
urinn hafi kviknað eða hvort grunur
leiki á um íkveikju. „Það eru allir
mögulegir þættir rannsakaðir, en
við viljum helst ekki móta neitt um
það fyrir fram,“ segir Oddur. Lög-
regla hafi óskað eftir ábendingum
frá vitnum og einhverjir haft sam-
band. Þá séu þeir sem vita meira um
málið hvattir til að láta í sér heyra.
Ábending skilaði
sér ekki til lögreglu
Fundu líkamsleifar í húsbíl sem brann