Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
!
"#$! '(
) *+,
- +, .)+ /0)0
1* / ) 20
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Mörður Árnason, sem situr í
stjórn Ríkisútvarpsins tilnefndur
af Samfylkingu, segir að sá þjón-
ustusamningur um starfsemi
RÚV sem kynntur var stjórn-
armönnum sé í megindráttum sá
sami og gerður var í ráðherratíð
Illuga Gunnarssonar. Hann segir
jafnframt að stjórnin hafi veitt
sitt umboð til undirritunar. Frá
sjónarhóli stjórnarinnar sé næst
á dagskrá að menntamálaráð-
herra og Stefán Eiríksson und-
irriti samninginn. Hann verði
ekki kynntur stjórninni að nýju
nema hann taki breytingum. „Við
[stjórnin] höfum verið undrandi á
því hvað þetta hefur tafist lengi í
ráðuneytinu,“ segir Mörður. Síð-
asti samningur rann út undir lok
síðasta árs. „Hann er byggður á
síðasta samningi og það eru eng-
ar stórkostlegar breytingar á
þessum samningi. Menn höfðu
uppi ýmis orð um þann samning
en hann reyndist vel. Þess vegna
erum við hissa á því að hann hafi
ekki verið endurnýjaður. Ég gæti
trúað að ástæðan sé einhver
klaufagangur í Sjálfstæðisflokkn-
um,“ segir Mörður.
Samningur ekki fullgerður
Í frétt í Morgunblaðinu á laug-
ardag var meðal annars sagt frá
því að samningurinn hefði verið
gerður og að „gríðarlegrar
óánægju gæti með það hjá sjálf-
stæðismönnum á þingi, sem segja
að Lilja hafi svikið loforð um
samráð við gerð samningsins.
Þeir segja að frumvarp hennar
um styrki til einkarekinna fjöl-
miðla sé „steindautt“ fyrir vikið.“
Lilja Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra gerir athugasemd-
ir við þennan fréttaflutning.
„Nýr þjónustusamningur við
RÚV ohf. er ekki fullgerður.
Samningur er ekki undirritaður
af stjórn RÚV, eins og ranglega
fram kemur í fréttinni,“ segir
Lilja í tilkynningu sem send var
Morgunblaðinu í kjölfar fréttar-
innar.
„Fyrir liggja samningsdrög
sem stjórn RÚV hefur fjallað um
og samþykkt að veita útvarps-
stjóra heimild til að ganga frá við
mennta- og menningarmálaráð-
herra. Hvorki ráðherra né út-
varpsstjóri hafa undirritað samn-
inginn.“
Fulltrúar beggja stjórnar-
flokka hafi fengið samningsdrög-
in til skoðunar og samvinna við
fulltrúa stjórnarflokkanna í fjöl-
miðlamálum almennt gengið vel.
„Fyrirspurn Morgunblaðsins
til ráðherra fjallaði ekki um meg-
ininntak fréttarinnar. Fyrirspurn
frá öðrum blaðamanni Morgun-
blaðsins, um hvort þjónustu-
samningur hefði verið undirrit-
aður, barst ráðuneytinu á
miðvikudaginn og var honum
svarað samdægurs. Í svari ráðu-
neytis kom skýrt fram að ekki
væri búið að undirrita þjónustu-
samninginn,“ segir í tilkynningu.
Einnig var sagt í fréttinni að
Ragnheiður Ríkharðsdóttir væri
stjórnarformaður RÚV ohf. Það
er hins vegar ekki rétt heldur er
Jóhanna Hreiðarsdóttir stjórnar-
formaður. Beðist er velvirðingar
á þessu.
„Eftir stendur, að stjórnvöld
hafa einsett sér að bæta rekstr-
arumhverfi einkarekinna fjöl-
miðla. Ég hef lagt mig alla fram
um það og klárað frumvarp þess
efnis,“ segir Lilja. „Ég skora á þá
sem vilja hag fjölmiðla sem mest-
an að fylkja sér að baki fjölmiðla-
frumvarpsins á yfirstandandi
þingi, ásamt því að ráðast í fleiri
umbætur sem tengjast stóru al-
þjóðlegu efnisveitunum.“
Tímamörk liggi ekki fyrir
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri
segir að næstu skref séu að skrifa
undir samninginn við menntamála-
ráðherra. Ekki liggja fyrir tíma-
mörk um það hvenær það verður
gert.
Ekki náðist í Jóhönnu Hreið-
arsdóttur formann stjórnar RÚV
og fulltrúa Framsóknarflokks við
vinnslu fréttarinnar.
Ráðherra gerir
athugasemd við frétt
Stjórnarmaður segir stjórn undrast tafir á samningnum
Færri kórónuveirusmit greindust í
fyrradag en verið hefur undanfarna
daga. 60 innanlandssmit greindust
þá en 87 daginn áður. Meirihluti
þeirra sem greindust var báða dag-
ana í sóttkví. Jóhann K. Jóhannsson,
upplýsingafulltrúi almannavarna,
telur of snemmt að álykta sem svo að
tölurnar í fyrradag sýni mikla niður-
sveiflu í faraldrinum. Áhrifa aðgerð-
anna sem gripið var til muni ekki
gæta fyrr en vika eða tíu dagar eru
liðnir frá því þær tóku gildi.
Hertar aðgerðir tóku gildi mánu-
daginn 5. október og hertar aðgerðir
á höfuðborgarsvæðinu tveimur
sólarhringum síðar, á miðvikudag.
Er því von til þess að áhrifa þeirra
fari að gæta næstu daga og hertar
reglur á höfuðborgarsvæðingu eftir
miðja viku.
50 nemendur í sóttkví
Kórónuveirusmit kom upp í fé-
lagsmiðstöð Salaskóla í Kópavogi.
Að sögn Hafsteins Karlssonar skóla-
stjóra greindist starfsmaður með
veirusmit í lok vikunnar. Um 50
nemendur í unglingadeild hafa verið
settir í sóttkví vegna smitsins, um
fjórðungur nemenda deildarinnar.
Hópur starfsmanna í útibúi Dom-
inos í Skeifunni var sendur í sóttkví
eftir að starfsmaður greindist með
Covid-19 í fyrradag. Húsnæðið var
hreinsað hátt og lágt og eftir það hélt
starfsemin áfram. Í tilkynningu frá
Dominos er tekið fram að starfsmað-
urinn sem smitaðist hafi ekki verið í
nánu samneyti við viðskiptavini.
Smitrakningarteymi almannavarna
hafi upplýst fyrirtækið um að við-
skiptavinir staðarins þurfi ekki að
hafa áhyggjur.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, mælir með því að
fólk klæðist grímu inni í verslunum
til að verjast kórónuveirunni. Lög-
reglunni berst fjöldi ábendinga um
vankanta á sóttvörnum og lúta
margar þeirra að fjarlægð á milli
fólks innan verslana. „Það er mjög
misjafnt hjá stóru verslununum
hvort þær eru með grímuskyldu eða
ekki. Það gefur samt augaleið að
fyrirtæki getur ekki tryggt þarna
inni að tveggja metra fjarlægðar sé
gætt.“ Bendir hann á að alls staðar
þar sem ekki er hægt að tryggja
tveggja metra fjarlægð eigi fólk að
bera grímur.
Of snemmt að
álykta um niður-
sveiflu í faraldri
Mælt með grímum í verslunum
Morgunblaðið/Eggert
Vörn Það færist í vöxt að fólk beri
grímur, jafnvel utanhúss.
„Við byrjuðum á þessu í fyrstu bylgj-
unni til þess að reyna að gera gott úr
þessu ástandi. Það gekk mjög vel og
fólk var ánægt
með þetta og því
héldum við
áfram,“ segir Jón
Askur Sörtveit,
yfirþjónn hjá Mat-
bar á Hverfisgötu,
en veitingastað-
urinn hefur lagt
áherslu á heim-
sendingarþjón-
ustu til þess að
takast á við þann
samdrátt sem fylgt hefur kórónu-
veirufaraldrinum. Að sögn hans selst
maturinn alla jafna upp. „Það reynd-
ist miklu flóknara en við héldum að
gera mat sem yrði jafn góður þegar
henn kemur heim til fólks,“ segir Jón
Askur. Hann segir að fyrsta bylgjan
hafi farið í það að þróa matinn og mat-
seðilinn sem hafi breyst umtalsvert
að undanförnu. „Maturinn sem við er-
um að gera núna er allt öðruvísi en
hann var fyrst,“ segir Jón Askur. Að
sögn hans er staðurinn opinn frá mið-
vikudegi til laugardags. „Alla daga
sem þetta hefur verið í boði hefur
maturinn selst upp. Síðustu tvo daga,
föstudag og laugardag, seldist allt
upp klukkan 18. Móttökurnar hafa
því verið frábærar. Við munum sjá til
hvort við bætum í. Við erum svolítið
bundin af því hvaða matvæli eru í boði
því við reynum að nota íslensk hráefni
og erum árstíðarbundin,“ segir Jón
Askur. Aðspurður segir hann að það
sé ólíklegt að mikil áhersla verði á
heimsendingarþjónustu þegar hlut-
irnir komast í samt horf aftur.
v idar@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Matbar Heimsendingarþjónustan hefur gengið vel hjá Matbar. Hún var próf-
uð í fyrstu bylgjunni og þótti takast vel. Allt hefur selst upp upp á síðkastið.
Heimsendingarþjón-
ustan gengur vel
Erfitt að gera mat sem helst góður
Jón Askur
Sörveit