Morgunblaðið - 12.10.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.isljósmyndastofa
NJÓTUMMINNINGANNA
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í baráttunni við COVID-19 er
vísindalegri þekkingu beitt með
mun markvissari hætti, en áður
hefur verið gert í heilbrigðisvís-
indnum og þjónustu við sjúk-
linga,“ segir Ólafur Baldursson,
framkvæmdastjóri lækninga á
Landspítalanum. „Í raun er
magnað að starfa á háskóla-
sjúkrahúsi við þessar aðstæður,
sem enginn óskaði þó eftir. Kór-
ónuveiran mun fyrirsjáanlega
breyta mörgu í heilbrigðisvís-
indum á komandi árum. Í áratugi
hafa læknavísindin ekki staðið
andspænis jafn alvarlegum og út-
breiddum faraldri eða smit-
sjúkdómi og nú er á kreiki; veiru
sem við höfum nú þó öðlast tals-
verða þekkingu á.“
Faraldurinn ekki óvæntur
Tæpast er ofsagt í myndrænu
máli að COVID-19 hafi sett heim-
inn í handbremsu. Gangvirki sam-
félagsins snýst á hálfum hraða og
margt í daglegu lífi okkar sem við
töldum sjálfsagt liggur niðri.
Áhersla allra beinist að því að
halda kórónuveirunni í skefjum
og lækna þá sem veikst hafa. Þar
eru Landsspítali og starfsfólk
hans í aðalhlutverki.
„Auðvitað liggur fyrir marg-
vísleg þekking um veirusjúkdóma
sem sýkja öndunarfæri. Þó skort-
ir okkur vissulega sértæka þekk-
ingu á því hvernig kórónaveiran
hegðar sér,“ segir Ólafur. „Far-
aldurinn nú kom samt ekki al-
gjörlega á óvart, samanber svína-
flensuna sem var á kreiki fyrir
um áratug og veiruna Sars árið
2002. Síðarnefndi faraldurinn
náði reyndar aldrei til Íslands, en
vísindamenn sögðu þá að í fyll-
ingu tímans kæmi væntanlega
annar slíkur af sama meiði sem
yrði erfiðari viðfangs, eins og nú
gengur eftir.“
Ósýnilegar hindranir lægri
Stöðug miðlun upplýsinga
hefur, að sögn Ólafs, verið for-
gangsatriði í starfi Landspítala að
undanförnu. Daglega eru haldnir
15 mínútna langir stöðufundir þar
sem stjórnendur sjúkrahússins og
fólk frá hinum ýmsu deildum hans
fer yfir stöðu stundarinnar – og
verkefnin sem leysa skal. Einnig
fundar framkvæmdastjórn – efsta
lagið í stjórn spítalans – daglega
með farsóttanefnd og fleiri
stjórnendum. Þannig er tryggt að
flóknar ákvarðanir sem krefjast
sérhæfðrar þekkingar farsótta-
nefndar, komist í framkvæmd.
„Á dínamískum vinustað þar
sem eru 5.000 – 6.000 starfsmenn
eru auðvitað alltaf miklar skoð-
anir – og við auðvitað nærumst á
gagnrýnni umræðu þar sem ólík
sjónarmið koma fram. Slíkt gerir
vinnuna áhugaverða og vandaðri.
En allt hefur þetta samt skilað því
að hindranir og ósýnilegir veggir
hafa lækkað.“
Rétt eins og vísindalegum að-
ferðum hefur verið beitt í lækn-
ingum við Covid-19 hefur starf
síðustu mánaða skapað nýja þekk-
ingu og lærdóm. Vísindafólk
Landspítala í samvinnu við ýmsa,
hafa gert margvíslegar rann-
sóknir og fengið greinar birtar,
meðal annars í hinu virta banda-
ríska læknatímariti The New
England Journal of Medicine.
„Mér finnst líklegt að rann-
sóknir á smitsjúkdómum á næst-
unni beinist talsvert að því hvern-
ig veirur, bakteríur og aðrar
örverur hafa mismunandi áhrif
frá manni til manns. Í heilbrigð-
isþjónustu verða áhrifin svo vænt-
anlega þau að fjarþjónusta eykst.
Hefðbundum heimsóknum á
sjúkrahús eða heilsugæsluna
fækkar og erindum verður frekar
sinnt með textaskilaboðum, sím-
tölum og myndfundum yfir netið.
Áhrifin á daglegt líf almennings
eru svo að talsverðu leyti komin
fram, það er að vinna og heimili
verða eitt. Fleiri starfa heima.“
Reynslunni ríkari
Kórónaveiran er í vexti, víð-
ast hvar í heiminum. Bóluefni eru
sögð væntanleg á næstu mán-
uðum, þó talið sé að kófið verði
ekki kveðið í kútinn fyrr en langt
sé liðið á næsta ár. Stríðið er ekki
búið, þó landsýn sé.
„Læknar nota sýklalyf tals-
vert gegn mörgum bakteríusýk-
ingum, sem virka fljótt og vel, til
dæmis gegn lungnabólgu. Bakt-
eríurnar eru í raun frumur sem
innihalda ýmis frumulíffæri, sem
eru gott skotmark lyfja. Veirur
eru annars eðlis; í raun líffæra-
laus erfðaefni sem lauma sér inn í
frumur líkamans og leika þar
lausum hala. Því er ólíklegt að
veirulyf vinni á Covid-19, en mér
kæmi á óvart ef bóluefnin sem vís-
indamenn eru þróa og prófa verði
ekki tilbúin á fyrri hluta næsta
árs. Þangað til verðum í heil-
brigðisþjónustunni að mæta
vandamálum eftir bestu getu, án
þess að nein afgerandi aðferð til
lækninga sé til. Þó eru við margs
vísari og reynslunni ríkari eftir
hvern dag.“
Vísindin virk í verki í kórónuveirustríðinu á Landspítalanum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Læknisfræði Í áratugi hafa vísindin ekki staðið andspænis jafn alvar-
legum faraldri eða smitsjúkdómi og nú, segir Ólafur Baldursson.
Ekki óvæntur faraldur
Ólafur Baldursson er fæddur
árið 1964. Hann las læknisfræði
við HÍ en fór svo í framhalds-
nám vestanhafs. Er sérfræð-
ingur í lyf- og lungnalækningum
og lauk doktorsprófi frá HÍ í
samvinnu við University of Iowa
árið 2004.
Ólafur hefur verið fram-
kvæmdastjóri lækninga á Land-
spítala frá árinu 2009 auk þess
að starfa við lyf- og lungna-
lækningar. Hann hefur einnig
stundað kennslu- og vísinda-
starf og unnið að þróun nýrra
lyfja gegn lungnasjúkdómum.
Hver er hann
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Laxar fiskeldi geta meira en tvöfald-
að framleiðslu sína á laxi í Reyðar-
firði eftir að fyrirtækið fékk starfs-
og rekstrarleyfi til aukningar starf-
seminnar. Þegar leyfin verða full-
nýtt, sem stefnt er að eftir tvö eða
þrjú ár, verða útflutningsverðmæti
afurðanna 12,5 til 15 milljarðar kr.
Laxar fengu starfs- og rekstrar-
leyfi frá Umhverfisstofnun og Mat-
vælastofnun fyrir 10 þúsund tonna
viðbót við framleiðsluna í Reyðar-
firði. Unnið hefur verið í átta ár að
öflun leyfanna. Fyrir var fyrirtækið
með 6 þúsund tonna framleiðslu-
heimild og getur því aukið fram-
leiðsluna í 16 þúsund tonn.
„Þetta er einstaklega kærkomið
og gríðarlega mikilvægt fyrir félag-
ið. Við vorum farin að gera okkur
vonir um að leyfin myndu klárast í
haust. Því var ákveðið á vordögum
að fara í fjárfestingar til næstu tólf
mánaða til að mæta væntanlegri
aukningu. Við fjárfestum í seiðaeld-
isstöðvum okkar og kaupum á bún-
aði fyrir sjóeldið,“ segir Jens Garðar
Helgason framkvæmdastjóri. Stór
fóðurprammi sem fyrirtækið hefur
fest kaup á er væntanlegur í vor.
Að sögn Jens Garðars nemur fjár-
festingin í seiðastöðvum félagsins í
Ölfusi um 1,3 milljörðum króna og
milljarði í sjóeldisdeildinni í Reyð-
arfirði. „Þess utan hefur þurft að
fjölga starfsfólki þónokkuð. Nú er
verið að auglýsa þrjár nýjar stöður í
Ölfusi og fjöldi starfsmanna hér fyrir
austan mun nálgast fjórða tuginn
þegar búið verður að ráða í allar
stöður á næsta ári,“ segir Jens Garð-
ar. Hann bætir því við að Búlands-
tindur á Djúpavogi sem félagið á að-
ild að sé að fjárfesta fyrir um hálfan
milljarð á þessu ári, meðal annars í
nýjum flokkurum frá Marel og öðru
vélmenni frá Samey, til að mæta
aukinni vinnslu á komandi árum.
Reiknað er með að framleiðslan í
ár nemi níu þúsund tonnum og hún
mun aukist smám saman þangað til
leyfin verða fullnýtt árið 2023.
Reyðarfjörður þolir 20 þúsund
tonna framleiðslu, samkvæmt burð-
arþolsmati Hafrannsóknastofnunar.
Hins vegar er leyfð hámarksfram-
leiðsla 18 þúsund tonn, með skilyrð-
um um stærð seiða, samkvæmt
áhættumati sömu stofnunar. Jens
Garðar segir næstu skref ekki
ákveðin en markmiðið sé þó að nýta
það sem Reyðarfjörður getur gefið
af sér.
Áskoranir á mörkuðum
Slátrun upp úr kvíunum í Reyðar-
firði hefst í vikunni, eftir hlé vegna
uppsetningar nýs búnaðar í slátur-
húsinu á Djúpavogi.
Spurður um stöðuna á mörkuðum
fyrir lax segir Jens að þar séu áskor-
anir vegna kórónuveirufaraldursins.
Bjartsýni hafi ríkt í sumar um að
markaðurinn væri að taka við sér en
bylgjan sem nú gengur yfir Evrópu
hafi þrengt að hótelum, veitingastöð-
um og veisluþjónustu. Því hafi
starfsmenn þurft að leggja sig ennþá
betur fram í sölumálunum en áður.
Framleiðsla Laxa meira en tvöfaldast
Gefin út leyfi til 10 þúsund tonna aukningar í Reyðarfirði Munu flytja út fyrir 12-15 milljarða kr.
Vinna Mikil umferð er við sjókvíar Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Auk vinnu-
og brunnbáta fyrirtækins liggja kvíarnar við siglingaleið flutningaskipa.
Vinnu við grundun fjölnota íþrótta-
húss í Vetrarmýri í Garðabæ er að
ljúka. Byrjað er að reisa stálgrind
hússins.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildar-
stjóri umhverfis og framkvæmda hjá
Garðabæ, segir að framkvæmdir
gangi eftir áætlun. Austurríska
fyrirtækið Keller, undirverktaki
ÍAV, hefur undanfarnar vikur unnið
að jarðvegsstyrkingum í mýrinni og
staurum undir sökkla. Því er lokið.
Enn eru um tvær vikur eftir í vinnu
við að koma stögum niður í klöpp en
hún tengist vinnu við sökklana.
Áætlað er að stálgrind íþróttasal-
arins verði risin fyrir áramót og að
búið verði að ljúka klæðningu veggja
salarins og að steypa upp veggi stoð-
bygginga í mars á næsta ári. ÍAV á
að skila verkinu af sér fyrir lok
næsta árs.
Framkvæmdir við húsið hófust á
síðasta ári en stöðvuðust vegna
ágreinings um kostnað við grundun
hússins. Hann var leystur, meðal
annars með samkomulagi um að fela
gerðardómi úrlausn málsins.
Í húsinu verður rými fyrir knatt-
spyrnuvöll í fullri stærð, auk upphit-
unaraðstöðu og tilheyrandi stoð-
rýma.
Byrjað að reisa
stálgrind hússins
Fjölnota íþróttahús rís í Garðabæ
Morgunblaðið/Baldur
Vetrarmýri Fyrstu stálbitarnir í fjölnota íþróttahúsinu eru risnir.