Morgunblaðið - 12.10.2020, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
Missið ekki af áhugaverðum þætti um sögu og
starfsemi Flugfélagsins Ernis og viðtali við
Hörð Guðmundsson flugstjóra
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
• Fjallið Ernir er í Bolungarvík þar sem flugfélagið
var stofnað árið 1970
• Þröngar aðstæður við flugbrautir á Vestfjörðum
• Flug á kosningafundi með Hannibal og fleiri
frambjóðendur
• Staða og framtíð Reykjavíkurflugvallar
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá
Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld
Saga og starfsemi Flugfélagsins Ernis Síðari hluti
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Polestar kom eins og stormsveipur
inn á rafbílamarkaðinn í Noregi og
Svíþjóð í ágúst og seldi fleiri eintök
af Polestar 2 en Tesla af Model 3.
Polestar, eða Pólstjarnan, er
smíðaður í Chengdu í Kína.
Vörumerkið er í eigu Volvo og
kínverska móðurfélagsins Geely,
sem keypti Volvo árið 2010.
Volvo keypti Polestar-vörumerkið
af sænsku fyrirtæki árið 2015 og
árið 2017 greindi Volvo frá því að
Polestar myndi smíða lúxusrafbíla
undir eigin merkjum í framtíðinni.
Hafði Volvo þá selt eigin bíla með
uppfærslum kenndar við Polestar.
Samkvæmt vefsíðu Polestar er
bíllinn í boði í Svíþjóð, Noregi,
Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Bret-
landi og Sviss. Þá verður hann í boði
í Bandaríkjunum og Kanada.
Brimborg hefur umboð fyrir
Volvo á Íslandi.
Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar, segir Polestar ekki hafa gef-
ið upp hvenær sala bílsins hefst á Ís-
landi. Bíllinn verði seldur á netinu
og Brimborg þjónustar bílana.
Mögulega á næsta ári
Hins vegar sé líklegt að það verði
fyrr en seinna og mögulega á næsta
ári. Með hliðsjón af nýjungagirni Ís-
lendinga sé ekki loku fyrir það skot-
ið að einstaklingar muni kaupa bíl-
ana á eigin vegum og flytja til
landsins. Það hafi gerst árið 2012
þegar Teslu-bílar komu til Íslands á
vegum kaupenda en Tesla ekki opn-
að útibú hér á landi fyrr en 2019.
Egill segir Polestar setja upp sýn-
ingarrými í stórborgum sem jafn-
framt eru afhendingarstaðir.
Að svo komnu máli sé ekki raun-
hæft að setja upp svo stóra sali á
smærri mörkuðum. Því sé líklegt að
þar muni söluaðilar Volvo sjá um
dreifingu og þjónustu fyrir bílana.
Sama grunntækni
Egill segir Polestar 2 byggðan á
sömu grunntækni og Volvo XC40-
jepplingurinn. Með því nái Volvo
fram stærðarhagkvæmni en hönnun
aðgreini bílana á markaði.
Samkvæmt upplýsingum frá Pole-
star megi ætla að söluverðið verði í
kringum 60 þúsund evrur. Ætla
megi að söluverðið verði álíka hátt á
Íslandi, að því gefnu að hér verði
hvorki greiddur virðisaukaskattur
né vörugjöld. Flutningskostnaður
muni þó bætast við söluverðið.
„Þetta er í raun lúxusbílamerki.
Það er merkilegt að þarna er búið að
búa til nýjan bílaframleiðanda úr
engu. Polestar var áður vörumerki
fyrir uppfærslur innan Volvo.
Polestar hóf sölu í Kína fyrir
nokkru síðan en er nú að sækja á
Evrópumarkað. Þetta er 100% raf-
bílamerki og stökkpallur fyrir Volvo
til að komast hratt inn á hreina raf-
bílamarkaðinn, en geta samt haldið
áfram að þróa vörumerkið Volvo.
Þessu má líkja við að smíða Teslu
undir eigin nafni, án þess að þurfa
að hoppa beint með Volvoinn í þá
samkeppni, því slíkt er alltaf erfitt
þegar þú ert með ákveðinn kúnna-
hóp sem þú þarft að þjónusta,“ segir
Egill.
Polestar 2 Er kominn á markað í nokkrum löndum. Áætla má að söluverðið á Íslandi verði í kringum 10 milljónir. Ljósmyndir/Polestar.com
Kínverskir lúxusrafbílar á leið til Íslands
Rafbíllinn Polestar, eða Pólstjarnan,
hefur fengið góðar viðtökur í Noregi
og Svíþjóð Bíllinn verður í boði á Íslandi
innan tíðar en honum svipar til Teslu
Innanrýmið Polestar 2 er með stórum skjá, líkt og Teslu-bíllinn.
Hugmyndabíllinn
Polestar Precept veitir vís-
bendingu um sýn félagsins.