Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 10
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Í síðustu viku var unnið við viðgerðir á
malbiki á hluta Elliðavatnsvegar á
milli Kaldárselsvegar og Vífils-
staðavegar. Þar á milli hefur vegurinn
liðast um holt og hraun í brekkum og
bugðum í tæplega áttatíu ár, lagður í
seinni heimsstyrjöldinni. Reyndar hef-
ur vegurinn eða hlutar hans gegnt
ýmsum nöfnum og nefna má heitin
Setuliðsvegur, Flóttamannaleið,
Flóttavegur, Flóttamannavegur,
Vatnsendavegur og Ofanbyggðaveg-
ur. Talsverð umferð er um þennan
veg, sem liggur um vinsælt útisvist-
arsvæði auk þess sem byggð hefur
aukist á þessum slóðum og umferð er
oft þung um Reykjanesbraut.
Friðþór Eydal, sem þekkir vel til
sögu stríðsáranna hér á landi og
mannvirkja þess tíma, segir að veg-
urinn hafi verið lagður á vegum
bandaríska herliðsins 1942. Bretar og
síðar Bandaríkjamenn hafi verið með
miklar herbúðir í Mosfellssveit og við
Geitháls. Þeir fyrrnefndu hafi látið
leggja veg úr Mosfellssveit meðfram
Hafravatni að Suðurlandsvegi. Bretar
hafi haldið vegagerðinni áfram og lagt
veg frá Rauðavatni og suður á Vatns-
enda. Árið 1942 hafi Bandaríkjamenn
látið leggja veg frá Vatnsenda að
Kaldárselsvegi í Hafnarfirði.
Friðþór segir að í pappírum frá
verkfræðideild bandaríska hersins sé
vegurinn ýmist kallaður Back Road
eða Tactical Road. Um þennan veg
hafi herliðið austan Reykjavíkur átt að
sækja fram ef til átaka kæmi í Hafnar-
firði eða á Reykjanesi, fremur en um
Hafnarfjarðarveg sem hefði verið hin
eiginlega flóttaleið íbúanna og því
ófær fyrir herliðið.
Friðþór segir að vegurinn hafi lengi
verið kallaður Setuliðsvegur. Það heiti
er meðal annars að finna í Þjóðvilj-
anum í október 1957 þegar sagt er frá
því að Skógræktarfélag Reykjavíkur
fái til skógræktar hluta úr Vífilsstaða-
landi. Sömuleiðis er það heiti að finna í
ársriti Skógræktarfélags Íslands 1975.
Hugsaður sem varavegur
Friðþór segir það rangt að um
flóttaleið hafi verið að ræða og einnig
sé það misskilningur að Bretar hafi
lagt veginn, en hvort tveggja má finna
í gögnum.
Í Örnefnalýsingu frá 1988 segir svo:
„Um Urriðakotsháls liggur nú bílveg-
ur, sem venjulega er kallaður Flótta-
vegur eða Flóttamannavegur. Hann
liggur milli Hafnarfjarðar og Suður-
landsvegar og var lagður af Bretum á
stríðsárunum. Hann var líklega hugs-
aður sem varavegur, ef Hafnarfjarð-
arvegur lokaðist vegna hernaðar-
aðgerða og hafa einhverjir hugsað
sem svo, að hann væri ætlaður til að
flýja eftir.“
Ómar Ragnarsson, fréttamaður og
umhverfisverndarsinni, er meðal
þeirra sem hafa fjallað um þennan
vegarkafla og lagt til að sérstakt upp-
lýsingaskilti verði sett upp um heitið
Flóttamannaleið. Hann segir reyndar
í bloggi að breska hernámsliðið hafi
lagt veginn til að bæta samgöngur á
svæðinu, búa til nokkurs konar hring-
leið og hringleiðir og leggja ekki allt á
aðeins einn veg, Hafnarfjarðarveg.
Reyndar hafi nafnið síðar fengið
aðra merkingu heldur en á stríðs-
tímum „þegar ökumenn sem höfðu
kannski fengið sér aðeins of mikið neð-
an í því, notuðu hana til að komast
fram hjá eftirliti lögreglunnar eða
undan henni á flótta“.
„Stríðsvegur“
með mörg nöfn
Ljósmynd/Richard Meisinger
Vegurinn nýlagður Við hliðið að bandarísku herbúðunum Camp Russel á Urriðakotsholti veturinn 1942, Vífilsstaðir
í baksýn. Búðirnar hýstu símavinnuflokk Bandaríkjahers sem lagði símalínur m.a. á Suður- og Suðvesturlandi.
Urriðaholt
Vatnsendi
Flóttamannaleið
Frá Kaldárselsvegi að Vífi ls-
staðavatni og Vatnsenda
K
o
rt
a
g
ru
n
n
u
r:
O
p
e
n
S
tr
e
e
tM
a
p
HAFNAR-
FJÖRÐUR
Elliðavatn
Vífi l-
staða-
vatn
Flóttamannaleið
GARÐABÆR
KÓPAVOGUR
H E I Ð M Ö R K
REYKJAVÍK
Rey
kjan
esbr
aut
Vífi lsstaða-
vegur
Elliða-
vatnsvegur
Kaldárselsvegur
Heiðmerkur-
vegur
Vatnsenda-
vegur
R
ey
kj
an
es
br
au
t
Lagður af Bandaríkjamönnum
Átti að nota ef til átaka kæmi
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
PON er umboðsaðili