Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 10
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í síðustu viku var unnið við viðgerðir á malbiki á hluta Elliðavatnsvegar á milli Kaldárselsvegar og Vífils- staðavegar. Þar á milli hefur vegurinn liðast um holt og hraun í brekkum og bugðum í tæplega áttatíu ár, lagður í seinni heimsstyrjöldinni. Reyndar hef- ur vegurinn eða hlutar hans gegnt ýmsum nöfnum og nefna má heitin Setuliðsvegur, Flóttamannaleið, Flóttavegur, Flóttamannavegur, Vatnsendavegur og Ofanbyggðaveg- ur. Talsverð umferð er um þennan veg, sem liggur um vinsælt útisvist- arsvæði auk þess sem byggð hefur aukist á þessum slóðum og umferð er oft þung um Reykjanesbraut. Friðþór Eydal, sem þekkir vel til sögu stríðsáranna hér á landi og mannvirkja þess tíma, segir að veg- urinn hafi verið lagður á vegum bandaríska herliðsins 1942. Bretar og síðar Bandaríkjamenn hafi verið með miklar herbúðir í Mosfellssveit og við Geitháls. Þeir fyrrnefndu hafi látið leggja veg úr Mosfellssveit meðfram Hafravatni að Suðurlandsvegi. Bretar hafi haldið vegagerðinni áfram og lagt veg frá Rauðavatni og suður á Vatns- enda. Árið 1942 hafi Bandaríkjamenn látið leggja veg frá Vatnsenda að Kaldárselsvegi í Hafnarfirði. Friðþór segir að í pappírum frá verkfræðideild bandaríska hersins sé vegurinn ýmist kallaður Back Road eða Tactical Road. Um þennan veg hafi herliðið austan Reykjavíkur átt að sækja fram ef til átaka kæmi í Hafnar- firði eða á Reykjanesi, fremur en um Hafnarfjarðarveg sem hefði verið hin eiginlega flóttaleið íbúanna og því ófær fyrir herliðið. Friðþór segir að vegurinn hafi lengi verið kallaður Setuliðsvegur. Það heiti er meðal annars að finna í Þjóðvilj- anum í október 1957 þegar sagt er frá því að Skógræktarfélag Reykjavíkur fái til skógræktar hluta úr Vífilsstaða- landi. Sömuleiðis er það heiti að finna í ársriti Skógræktarfélags Íslands 1975. Hugsaður sem varavegur Friðþór segir það rangt að um flóttaleið hafi verið að ræða og einnig sé það misskilningur að Bretar hafi lagt veginn, en hvort tveggja má finna í gögnum. Í Örnefnalýsingu frá 1988 segir svo: „Um Urriðakotsháls liggur nú bílveg- ur, sem venjulega er kallaður Flótta- vegur eða Flóttamannavegur. Hann liggur milli Hafnarfjarðar og Suður- landsvegar og var lagður af Bretum á stríðsárunum. Hann var líklega hugs- aður sem varavegur, ef Hafnarfjarð- arvegur lokaðist vegna hernaðar- aðgerða og hafa einhverjir hugsað sem svo, að hann væri ætlaður til að flýja eftir.“ Ómar Ragnarsson, fréttamaður og umhverfisverndarsinni, er meðal þeirra sem hafa fjallað um þennan vegarkafla og lagt til að sérstakt upp- lýsingaskilti verði sett upp um heitið Flóttamannaleið. Hann segir reyndar í bloggi að breska hernámsliðið hafi lagt veginn til að bæta samgöngur á svæðinu, búa til nokkurs konar hring- leið og hringleiðir og leggja ekki allt á aðeins einn veg, Hafnarfjarðarveg. Reyndar hafi nafnið síðar fengið aðra merkingu heldur en á stríðs- tímum „þegar ökumenn sem höfðu kannski fengið sér aðeins of mikið neð- an í því, notuðu hana til að komast fram hjá eftirliti lögreglunnar eða undan henni á flótta“. „Stríðsvegur“ með mörg nöfn Ljósmynd/Richard Meisinger Vegurinn nýlagður Við hliðið að bandarísku herbúðunum Camp Russel á Urriðakotsholti veturinn 1942, Vífilsstaðir í baksýn. Búðirnar hýstu símavinnuflokk Bandaríkjahers sem lagði símalínur m.a. á Suður- og Suðvesturlandi. Urriðaholt Vatnsendi Flóttamannaleið Frá Kaldárselsvegi að Vífi ls- staðavatni og Vatnsenda K o rt a g ru n n u r: O p e n S tr e e tM a p HAFNAR- FJÖRÐUR Elliðavatn Vífi l- staða- vatn Flóttamannaleið GARÐABÆR KÓPAVOGUR H E I Ð M Ö R K REYKJAVÍK Rey kjan esbr aut Vífi lsstaða- vegur Elliða- vatnsvegur Kaldárselsvegur Heiðmerkur- vegur Vatnsenda- vegur R ey kj an es br au t  Lagður af Bandaríkjamönnum  Átti að nota ef til átaka kæmi 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020 PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA PON er umboðsaðili

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.