Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020 Komin er út skýrslan „Sjálf- bær orku- framtíð, Orku- stefna til ársins 2050“ og er af- rakstur vinnu starfshóps sem ferðamála-, iðn- aðar- og ný- sköpunarráð- herra setti á laggirnar vorið 2018. Samtals 17 einstaklingar skipuðu starfshópinn. For- maður og varaformaður, starfsmaður og ráðgjafi, frá ráðuneytum komu fimm og stjórnmálaflokkum átta. Ég geri ráð fyrir að fyrstu fjór- nefndir hafi unnið verkið en hinir verið áheyrn- arfulltrúar. Athyglisvert er að hvorki orkufyrirtækin né orkuráð- gjafar voru kallaðir til þátt- töku og ber skýrslan þess merki. Að vísu var öllum boðið að senda inn at- hugasemdir, en það er ann- ars eðlis. Ég vitna í aðalskýrslu starfshópsins en þar hlýtur að koma fram það sem hann óskar að koma á framfæri. Tilvitnanir í skýrsluna eru skásettar. Hugtök Ég hef eftirfarandi skiln- ing á nokkrum hugtökum sem snerta raforkumálin:  „Sjálfbær þróun“ um- hverfis, t.d. vegna orkufram- leiðslu, uppfyllir þarfir nú- tímans án þess að skerða getu komandi kynslóða til að mæta þörfum sínum síðar meir (Brundtland 1987). Þessi hugsun hefur verið höfð að leiðarljósi við stefnumörkun 21. aldar.  „Endurnýjanleg orka“ kemur frá náttúrulegum orkulindum sem eru notaðar í sama mæli og þær koma fram í náttúrunni. Stöðu- orka vatnsfalla er talin end- urnýjanleg. Jarðvarmaorka hefur jafnan verið flokkuð sem endurnýjanleg, því varmainnihald jarðgeyma er takmarkalaust eða nánast óendanlegt.  „Græn raforka“ er framleidd úr endurnýj- anlegri orku og umhverfis- áhrif virkjunar á endurnýj- anlegri orku eru sjálfbær. T.d. er grænt vetni unnið úr grænni raforku. Skrípihugtök eins og end- urnýjanlega raforku og sjálfbæra orku ber að forð- ast. Hugtakanotkun skýrsl- unnar Hugtök í skýrslunni koma stundum und- arlega fyrir sjónir. Má taka dæmi á fyrstu textasíðu skýrslunnar blaðsíðu 8:  Endurnýj- anleg orku- framleiðsla, en orkuframleiðsla getur ekki ver- ið endurnýj- anleg. Í ljósi skilgreininga hér að framan mætti kannski frekar standa „[raf]orkuframleiðsla úr endurnýjanlegri orku“.  Orkan er nýtt með sjálfbærum hætti. Ég geri varla ráð fyrir að starfshóp- urinn hafi ætlað að skipta sér af nýtingu orkunnar inn- andyra hjá fyrirtækjum og almenningi heldur að tak- marka sig að útvegg hjá neytendum.  Sjálfbær orkuvinnsla er í mínum huga bara orða- skrípi.  Endurnýjanlegir orku- kostir. Þetta skil ég bara ekki, en kannski er þarna átt við virkjunarkosti sem nota endurnýjanlega orku. Sem dæmi um heilar setn- ingar má finna neðar á sömu blaðsíðu: Orkukerfið er snjallt, sveigjanlegt og engu er sóað. Atvinnulíf nýtur góðs af verðmætasköpun, þekkingu og nýsköpun sem sprettur frá orkugeiranum. Þessi texti boðar ekki gott en endurspeglar stílinn á því sem á eftir kemur í skýrsl- unni. Þetta eru mest slag- orð, sem ásamt órök- studdum og samhengislausum fullyrð- ingum virðast vera ann- aðhvort tekin upp úr at- hugasemdum í fylgiskjölum eða bera jafnvel merki þess að vera „gúgluð“ úr erlend- um vefsíðum. Hvað vantar í skýrsluna? Sá sem vill kynna sér orkustefnu Íslands óskar eftir að lesa umfjöllun um m.a. eftirfarandi:  Raforkukerfið, sam- setningu og eiginleika þess, þ.e. hvert er viðfangið? Nú- verandi raforkuöflunarkerfi byggist nánast alfarið á vatnsafls- og jarðvarma- virkjunum. Eigum við að halda því áfram og hverjar eru takmarkanir þannig áforma?  Hvaða virkjunarkosti eigum við að taka til skoð- unar, hvort sem um er að ræða vatnsafls- eða jarð- varmavirkjanir, vind- eða sólarorku, sjávarfallaorku og jafnvel kjarnorku, þ.e. kjarnakljúfa (fission) eða kjarnasamruna (fusion). Þeir síðastnefndu gætu bara ver- ið til viðmiðunar allavega í fyrstu.  Mun val milli virkj- unarkosta hafa áhrif á upp- byggingu flutningskerfisins? Í skýrslunni segir: Ófull- nægjandi flutningsgeta raf- orkukerfisins dregur úr hag- kvæmri nýtingu aflstöðva, en það er ekki rökstutt.  Í skýrslunni segir: Þó að Ísland búi enn yfir óbeisluðu vatnsafli og jarð- hita er skynsamlegt að auka fjölbreytni í orkugjöfum með hagnýtingu vindorku og annarra nýrra endurnýj- anlegra orkukosta fyrir raf- orkuvinnslu. Þetta er ekki einfalt mál og lítt rannsakað hérlendis þótt það hafi verið skoðað í eldsneytisdrifnum kerfum erlendis. Ég hef þó reynt það lítillega: https://2veldi.files.wor- dpress.com/2016/04/wind- power-in-iceland.pdf  Kostnaðartölur fyr- irfinnast ekki í skýrslunni, en eins og kunnugt er þarf að taka rækilega tillit til hagkvæmni við uppbyggingu kerfisins í framtíðinni. Raforkumarkaður Það er vafasöm forgangs- röð hjá ráðherra að þrýsta á um að ljúka skýrslum starfshópa um orkuöryggi og orkustefnu áður en til- lögur að nýjum raf- orkumarkaði liggja fyrir. Búast má við að starfsreglur markaðarins eigi eftir að hafa mikil áhrif á þróun raf- orkumála og gætu raunar breytt öllu. Ekki virðist enn liggja fyrir hver þátttaka raforkufyrirtækjanna í markaðnum verður í reynd, en þau hafa öll lýst yfir stuðningi við málið í sam- ræmi við þriðja orkupakk- ann. Landsnet hefur unnið að undirbúningi raforkumark- aðar frá stofnun fyrir- tækisins 2005, samkvæmt raforkulögum frá 2003. Síð- asti sprettur hefur staðið í nokkur ár og vonandi birt- ast tillögur á næstunni. Eftir Skúla Jóhannsson » Það er vafasöm forgangsröð hjá ráðherra að halda úti starfshópum um orkuöryggi og orkustefnu áður en tillögur um raf- orkumarkað liggja fyrir Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is Um skýrsluna – Sjálf- bær orkuframtíð, orku- stefna til ársins 2050 Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfu- daga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Það má ekki vera en þó er það svo. Hún Dóra okkar er horfin sjónum „á snöggu augabragði“. Hún mun ekki fram- ar lyfta samfundum okkar í hæðir. Við munum ekki framar teiga að okkur nærandi lífssýn hennar framsetta meitluðum orðum, fá heimssöguna í hnotskurn, hlýða á hljómfallegu röddina, smitast af dillandi hlátrinum. Hún sem var sagnameistarinn okkar, sú sem miðlaði okkur jafnt skemmtisög- um og hárbeitti heimsádeilu. Því hún Dóra dansaði ekki hlýðin við hljómana frá hörpum heimsins. Í hjarta hennar sló voldugt hljóð- færi sem hún hlýddi á og leitaðist óþreytandi við að miðla djúpum tónum þess til okkar hinna. Í hljóðfæri hennar voru margir strengir og við sem ritum nöfn okkar undir þessi minningarorð áttum hver og ein okkar persónu- lega tón þar. Dóra var engin hóp- Halldóra Kristín Thoroddsen ✝ Halldóra Krist-ín fæddist 2. ágúst 1950. Hún lést 18. júlí 2020. Útförin fór fram 31. júlí 2020. sál heldur dýrmæt vinkona okkar hverrar fyrir sig. Hún var sameignar- sinni en ekki sam- eign. Hún var náin hverri og einni okkar á ólíkum forsendum og þess vegna stóð hún okkur svo nærri. Við leituðum til hennar hver og ein á mismunandi ævi- skeiðum, hringdum í hana, heim- sóttum hana, hvort sem var á Vesturbrún á æskuárunum, eða síðar, í Kaupmannahöfn, á Stokks- eyri, í Bergstaðastræti, á Miklu- braut eða Fjölnisvegi. Við þörfnuðumst hennar hver og ein á okkar persónulegu for- sendum. En erindi okkar allra var það sama: Að létta á hjarta okkar, finna nálægð hennar, heyra álit hennar, bæta sjón okkar, koma reglu á hugsunina. Og auðvitað hlæja. Því Dóra var laus við alla meðvirkni, sýn hennar var skýr og fölskvalaus, hún hlífði manni hvergi en var raungóð og réttsýn. Það var næring í sjálfu sér að koma inn á heimili hennar sem bar ætíð með sér upprunann af Vest- urbrún, hvar sem það stóð. Djúpir og fallegir litirnir, málverkin, text- ílverkin, hlýleikinn, sagan, menn- ingin, mennskan, rétta umgjörðin fyrir samræður sem skipta máli. Vinátta okkar hefur staðið óhögguð í meira en hálfa öld og á þeim langa tíma höfum við gengið ólíkar leiðir sem þó hafa alltaf skarast, ekki síst vegna Dóru. Hún er segullinn sem við höfum dregist að allt frá uppreisnar- gjörnum unglingsárum. Við eig- um allar okkar dýrmætu persónu- legu minningar tengdar henni, sem við geymum í hjarta okkar hver og ein. Sem betur fer höfum við notað tímann vel í gegnum árin vinkon- urnar og raðað upp á óslitinn silf- urþráðinn dögunum, eins og Vil- borg Dagbjartsdóttir segir svo fallega í ljóði sínu. Þær skínandi perlur eigum við til að gleðja okk- ur við þá daga sem við enn eigum ótalda. Minningin um hana er leiftr- andi skær, áþreifanleg. Tárin svíða og það er verkur fyrir brjóstinu. Hún hafði einstaklega sterka og uppörvandi nærveru og var svo mikið augnayndi hún Dóra. Lífið missir lit, sól, tungl og stjörnur dofna á himni við fráfall hennar. Það má ekki minna vera. Hafðu þökk fyrir allt og allt hjart- kæra vinkona. Megi minningin um elsku þína styrkja okkur og ást- vini þína áfram veginn. Anna Th. Rögnvaldsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Lovísa Fjeldsted, Þóra I. Árnadóttir. Kær bróðir minn Teitur Stefánsson er fallinn frá eftir langa baráttu við erfið veikindi. Ég minnist hans með hlýju og virðingu. Hann hafði gott geðslag og var stutt í brosið, léttleikann og stríðnina, en ákveðinn var hann og staðfast- ur, ef svo bar undir. Á uppvaxtarárum mínum á Bjarkargrundinni hafði hann tíma til að vera með mér, yngsta bróður sínum. Ég minn- ist Teits þegar hann kom í há- deginu á Bjarkargrundina, þá var borðstofuborðið stundum Teitur Stefánsson ✝ Teitur Stef-ánsson fæddist 23. júní 1949. Hann lést 20. september 2020. Útför Teits fór fram 1. október 2020. tekið undir borð- tennisleiki. Hann var mikill keppnis- maður og hart var tekist á. Stundum klingdi í kristals- skálunum hennar mömmu þegar kúla var smössuð og hrökk af borðinu í hillurnar á bak við. Ég minnist Teits þegar við fórum saman á rúntinn eða í bíó. Hann hafði alveg tíma til að fara á rúntinn með yngsta bróður sínum eða í bíó. Fyrstu James Bond-myndina sá ég með Teiti bróður, sem er mér afar eftirminnilegt. Og fleiri myndir fórum við til að sjá. Það var oft gaman hjá okkur í þá daga. Ég minnist Teits þegar hann var í stjórn Handknattleiks- félags ÍA á mínum unglings- árum. Með honum voru eðal- karlar í stjórn og héldu þeir handknattleiksfélaginu uppi með myndarbrag og skipaði handboltinn stóran sess í íþróttalífi Skagans á þeim ár- um. Þá var gaman að æfa hand- bolta, en því miður hefur þessi íþróttagrein ekki átt upp á pall- borðið hjá Skagamönnum nú hin síðari ár. Ég minnist Teits úr öllum þeim veiðitúrum sem við vorum saman í. Ákafur veiðimaður og góður. Hann þekkti vel staðina, Hornið, Blóta, Kvörnina, Systrapolla og fleiri góða staði í Haukadalsá. En við fórum nokkrar ferðir með góðum mönnum í þá skemmtilegu lax- veiðiá nú hin síðari ár. Fáein og fátækleg eru þessi orð, en skrifuð með söknuði og sorg í hjarta. Stórt skarð er höggvið í hópinn okkar. Mamma og pabbi sjá á bak elsta barninu sínu, við systkinin bróður okkar og börnin hans og barnabörn pabba og afa. Eftir lifir falleg minning í hjarta okkar um hlýjan og góð- an mann. Hvíldu í friði elskulegur bróðir minn. Halldór. Það eru margar minningar sem sækja á hugann þeg- ar Þórður Sigurðsson er kvaddur. Þessar minningar tengjast oftar en ekki golfinu. Hann er í mínum huga ákaflega kær félagi sem allt- af stafaði gott frá. Þegar við flutt- um í Borgarnes 1979 fór ég fljót- lega í heimsókn að Hamri, þar sem Golfklúbbur Borgarness (GB) hafði aðstöðu. Þar kynntist ég mörgum góðum mönnum sem ég vann með við uppbyggingu GB, spilaði með þeim og keppti við. Einn þeirra var Þórður lögga Þórður Sigurðsson ✝ Þórður Sig-urðsson fædd- ist 16. október 1936. Hann lést í Brákarhlíð 4. sept- ember 2020. Útför Þórðar var 26. september 2020. sem var mikið hraustmenni og kraftmikill í öllu sem hann kom að. Hann var alveg einstak- lega skemmtilegur og vandaður félagi með góða skaphöfn, var alltaf hvetjandi og jákvæður þannig að margir sóttust eftir að hafa hann sem spilafélaga. Þannig var það þau 13 ár sem við bjuggum í Borgarnesi. Við Þórð- ur spiluðum oft saman og koma nú upp í hugann margar minning- ar, og vel ég hér tvö atvik sem bæði tengjast golfi. Við fórum saman í nokkur skipti sem part- nerar í stóra GR-haustmótið og gekk oft ágætlega, nema í eitt skiptið, þá mætti ég illa fyrirkall- aður, og spilaði mitt versta golf allan hringinn. Þórður bara brosti og hvatti mig áfram alveg til loka, ekki eitt styggðaryrði. Þetta var lýsandi fyrir skaphöfn Þórðar, sem var heilsteyptur og ljúfur á hverju sem gekk. Hitt atvikið var þegar parakeppni átti að fara fram í GB og Þórð vantaði makk- er. Hann kom til mín og spurði hvort Ásta Huld, sem þá var 12 ára og alveg óvön í golfi, mætti spila með sér. Það var auðvelt að leyfa það með þeim barngóða heiðursmanni. Svo fóru reyndar leikar að þau voru í efstu sætun- um og Ásta hefur oft minnst þess síðan hvað hann var góður og skilningsríkur. Ég hitti Þórð fyrir fáum árum þegar ég kom að Hamri og við ákváðum að spila saman og var það skemmtilegur endurómur fyrri tíma. Ég naut hringsins mikið með mínum gamla góða félaga. Þótt nokkuð væri af honum dregið líkamlega var sama góða skapið og ljúf- mennskan enn til staðar. Þórður er nú farinn til fundar við Sonju sína og hugsanlega einnig að líta til Siglufjarðar sem var honum kær. Sértu kært kvaddur gamli vinur. Við þökkum góða samferð og sendum samúðarkveðjur til Guðlaugs og fjölskyldu. Henrý og Ingibjörg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.