Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020 ✝ Helen Þor-kelsson fædd- ist á Siglufirði 4 júlí 1940. Hún lést á SAK 29. sept- ember 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin (Hólmfríður) Sig- urlaug Davíðs- dóttir, f. 31 októ- ber 1906, d. 12. október 1999, og Jón Þorkelsson síldarmats- maður og skipstjóri, f. 10 mars 1896, d. 11. mars 1978. Systur Helenar eru: Anna, f. 1926, látin; Alda, f. 1930; Hall- dóra, f. 1933; og Þórdís, f. 1938. Helen fór í fóstur til Ak- ureyrar þriggja mánaða göm- ul og ólst þar upp. Fósturfor- eldrar Helenar voru þau Jóhann Þorkelsson héraðs- læknir, f. 1. apríl 1903, d. í ágúst 1970, sem jafnframt var bróðir Jóns, föður Helenar, og kona hans Agnete Þorkelsson hjúkrunarfræðingur, f. 11. nóvember 1905, d. 1999. Uppeldissystir Helenar var Sólveig Þorkelsson, f. 7. apríl 1943, d. 1999. Fyrrverandi eiginmaður Helenar var Björgvin Leon- ardsson raf verktaki, f. 27. febrúar 1938, d. 2010. Þau skildu eftir langt hjónaband. Börn þeirra eru: 1) Jóhann Björgvinsson vél- Heiðar Þórarinsson. Börn þeirra Úlfrún Fanney og Þór- dís Ylfa. c) Þuríður Sóley Sigurðardóttir, f. 1990, há- skólanemi. Sambýlismaður Hilmir Þór Sifjarson, dóttir hans er Þórunn. d) Björgvin Veigar Sigurðarson, f. 1996. 4) Emma Agneta Björgvins- dóttir. Synir hennar a) Blæng- ur Mikael Bogason, f. 19 febr- úar 2001, lést af slysförum 1. mars 2013. b) Sigtryggur Kristófer Kjartansson, f. 26. júlí 2011. Stjúpdóttir Helenar og dóttir Björgvins Leon- ardssonar er 5) Ásta Hrönn Björgvins- dóttir, f. 1957, sjávarútvegs- fræðingur. Maki Guðjón Stein- dórsson. Börn þeirra a) Davíð Steinar, f. 1984, tölvunarfræð- ingur. b) Helga Margret, f. 1986. Dóttir hennar er Karitas Hrönn Elfarsdóttir. Helen ól allan sinn aldur á Akureyri. Hún lauk gagn- fræðaprófi 1957, sjúkraliða- prófi 1974 og seinna matráð- sprófi 1979. Helen starfaði lengst af starfsferli sínum á gjörgæsludeild FSA. Á ár- unum fyrir starfslok starfaði hún á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 12. október 2020, klukkan 13.30. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu munu einungis nánustu ætt- ingjar vera viðstaddir. Athöfn- inni verður streymt á FB- síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar út- sendingar https://tinyurl.com/y5cpxdvz Virkan hlekk á slóð má nálgast á https://www.mbl.is/andlat fræðingur, f. 1958. Kona hans er Ást- hildur Sverris- dóttir, f. 1963. Börn þeirra a) Auður Eufemía, f. 1982, snyrtifræð- ingur, maki henn- ar er Elfar Smári Kristinsson vél- fræðingur. Synir þeirra eru Jóhann Sverrir, Kristófer Smári og Leví Fossberg. b) Leonard, f. 1988, vélfræð- ingur, unnusta hans er María Dís Ólafsdóttir líftæknir. 2) Erla Björg Þorkelsson. Börn hennar eru a) Helena Björg Vestfjord lyfjafræð- ingur, f. 1979, maki Rene Vestfjord tölvufræðingur, börn þeirra Heinrich, María, Thomas og Alexander Emil. b) Alex Björn Stefánsson, f. 1986, stjórnmálafræðingur, maki hans er Madeline Oliva Daily. c) Ólafur Ólafsson kennara- nemi, f. 1991. Maki Drífa Huld Guðjónsdóttir hjúkrunarfræð- ingur. 3) Halla Björgvinsdóttir Þorkelsson, f. 1962. Maki Sig- urður Gunnar Sigurðarson, f. 1963, bifvélavirkjameistari. Sonur Höllu og Ívars Andra- sonar er a) Andri Valur, f. 1980, lögmaður. Maki Guðný Nielsen. b) Helen Valdís Sig- urðardóttir, f. 1988, hjúkr- unarfræðingur, maki Björn Elsku mamma. Ég gleymi aldrei hversu vel þú tókst á móti mér þegar ég 11 ára kom í fyrsta sinn til Ak- ureyrar. Óttablandin eftirvænt- ing mín var mikil þegar ég kom fljúgandi frá Ísafirði til bæjar þar sem ég engan þekkti. Ég skildi það betur síðar að þessar hlýju móttökur ásamt móðurmildi stjúpmóður voru ekki sjálfsagðar á þeim tíma er lausaleikskrógar áttu helst að vera í felum. En aldrei nokkurn tíma léstu mig gjalda þess. Þess í stað fann ég fljótt vö- kuaugun og næma móðurhönd. Upp frá þessu tilheyrði ég barnahópnum þínum. Þú varst gift pabba og áttir með honum fjögur börn. Lítil föðurtengsl mín bættir þú upp með sterku sambandi. Sú umhyggja þín var fögur. Seinna sagðir þú mér að þá hefði barnahópurinn þinn verið fullkominn. Og þegar mín börn fæddust tilheyrðu þau ömmu- börnunum þínum. Ég fylltist stolti þegar fólk sagði okkur líkar. Enda vorum við það og áttum mörg sameig- inleg áhugamál, ekki síst eld- húsið þar sem við gátum notið góðs matar og veiga. Einn áttir þú óvin innra með þér. Ofvirkni og hvatvísi gat oft komið þér í vandræði. En það var þó ekki alslæmt. Ótrúleg- ustu hlutum var komið í verk og skópu margar skemmtilegar sögur sem ylja um ókomna framtíð. Þegar þú loks á efri árum fórst í greiningu, auðn- aðist mér að kynnast þér upp á nýtt, meta þig og skilja. Ég naut þeirra forréttinda að fá að fara með þér í síðustu Danmerkurferðina, til lands sem þú elskaðir. Ferðin var í alla staði vel heppnuð. Góðir vinir, matur og veigar, og stjan- að var við okkur frá morgni til kvölds. Þú lékst á als oddi. Sú bjarta mynd brosir til mín enn. Sofður rótt, mamma mín. Ásta Hrönn. Minningar mínar ná ekki eins langt og minningar Helle þegar hún segir frá því að ég hafi tekið mín fyrstu óstöðugu skref í átt að henni, þar sem sex ára aldursmunur var á milli okkar. Hún dvaldi með fjöl- skyldu sinni um tíma hjá for- eldrum mínum í Danmörku vegna framhaldsmenntunar Jo- hanns frænda. Helle dvaldi hjá okkur sem unglingur, í það skiptið ein, á meðan hún leitaði sér meðferð- ar við slæmu baki hér í Dan- mörku. Við börnin þrjú, Helle, Kirsten stóra systir mín og ég, lékum okkur allan daginn í garðinum og á götunni. Við hittumst síðan aftur þeg- ar ég var 16 ára og notaði út- skriftargjöfina mína frá Nete frænku, móður Helle, sem var ferðalag til Íslands. Helle og Björgvin bjuggu í Rosenborg, þar sem var glæsilegt útsýni yfir fallegu kirkjuna og fjörð- inn. Tvö ung börn voru á heim- ilinu, Didda og Johann, sem kenndu mér orðin fyrir sæl- gæti, gosdrykk og þreytu þegar við vorum á ferð í borginni. Halla var þá bara bunga á maga Helle. Björgvin ók há- værum Land Rover, svo að ég var mjög ánægður með heim- sóknina. Síðar á ævinni fór ég ásamt fjölskyldu minni í heimsókn að Beykilundi, þar upplifðum við að Helle var miðpunktur fjöl- skyldunnar og þangað lá stöð- ugur straumur af börnum og barnabörnum. Hjá henni var alltaf nóg pláss, bæði í hjartanu og húsinu. Ég hef ótal sinnum dvalið á heimili Helle í Furulundi rétt eins og þegar Helle dvaldi hjá okkur í Danmörku. Einnig hafa börnin mín notið gestrisni Helle. Það hefur auðgað líf mitt að eiga Helle sem frænku. Tak- markalaus ást hennar á börnum sínum og barnabörnum er ein- stök. Flestir Akureyringar virt- ust þekkja Helle og nutu þess að hitta hana. Ef ég reyni að lýsa Helle með einu orði, þá er það ást. Ást til lífsins, annars fólks og ekki síst fjölskyldunnar. Ein mynd stendur mér skýrt fyrir hugskotssjónum: Helle beygir sig yfir nokkrar litlar stelpur í verslunarmiðstöðinni á Glerártorgi. Þær sitja á teppi með nokkur (vel) notuð leikföng sem þær vilja selja og gefa pen- ingana til góðgerðarmála. Helle, með sitt stóra hjarta, var auðfús viðskiptavinur. Ég sakna þín, Helle, og ég hugsa til barna þinna og barna- barna (og barnabarnabarna). Heiðruð sé minning Helle. Claus. Elsku besta vinkona mín, hún Helen, varð að láta í minni pokann fyrir erfiðum veikind- um hinn 29. september síðast- liðinn. Helen hefur verið besta vinkona mín í 74 ár. Kynni okkar hófust þegar Helen var sjö ára og ég árinu eldri. Hún var nýflutt til Ak- ureyrar frá Danmörku og kunni litla íslensku, og systir hennar Sólveig, þá fjögurra ára, var með Down-heilkenni. Helen varð fyrir áreiti annarra barna vegna þessa og málfarsins, og eins og hún sjálf orðaði það í minningargrein um mömmu, Önnu Jónsdóttur, varðist hún allrar nærveru barna með kjafti og klóm. Við hittumst fyrst í mjólk- urbúðinni og þegar ég fór of nálægt henni og Sólveigu brást Helen við hættunni og hellti niður mjólkinni sem ég var að kaupa. Ég hljóp grátandi heim, en mamma brást við eins og hennar var von og vísa. Hún bauð systrunum heim í Skipa- götuna og var góð við þær, allt var fyrirgefið. Upp frá því urð- um við Helen bestu vinkonur, þar var komin vinkona mín fyr- ir lífstíð. Helen var alltaf í góðu sam- bandi við fjölskylduna mína í Skipagötunni. Þær mamma voru sem móðir og dóttir, og yngsta systir mín Helena er skírð í höfuðið á Helen. Ég flutti ung til Reykjavíkur og um tíma minnkuðu samskiptin, en alltaf voru sterk tilfinninga- tengsl og trúnaður okkar á milli. Við vorum eiginlega eins og góðar systur. Helen heim- sótti okkur Svenna á Frakka- stígnum og við hana norður á Akureyri, og þannig styrktist vinátta okkar í gegnum árin. Síðustu samverustundir okk- ar elsku Helen vinkonu voru nýlega á sjúkrabeði hennar. Það var ómetanlegt að geta hist og rifjað upp og hlegið saman. Gott ef það glitti ekki í litlu stúlkurnar tvær sem léku sér saman í portinu í Skipagötunni og í Skátagilinu í gamla daga. Vináttan og væntumþykjan var alltumlykjandi og söknuðurinn er mikill. Helen var sterkur persónu- leiki sem vildi alltaf öllum vel, hún var blíð og hlý, dugleg og vel gefin, glaðvær, hnyttin og sanngjörn. Lengi væri hægt að telja upp kosti Helenar. Hún elskaði fjölskylduna sína og vini og var góð við alla, prjónaði til dæmis fjöldann all- an af fallegum peysum og sokk- um á vini og vandamenn. Fjöl- skyldan er orðin stór og það var aðdáunarvert hversu vel og hlýlega þau hugsuðu um Helen í veikindunum. Ég sakna vinkonu minnar, mun ylja mér við minningarnar. Gleðin og hláturinn er ofarlega í huga mér. Helen lifir áfram í huga okkar og hjarta. Elsku vinkona, takk fyrir allt og allt. Kæra fjölskylda Helenar, ég votta ykkur öllum hjartans samúð og bið Guð að vernda ykkur. Sigrún Pálsdóttir (Lillý). Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Við systur kveikjum á kerti og minnumst kærrar vinkonu sem var okkur mjög náin. Segja má að Helen hafi alla tíð verið ein af fjölskyldunni. Samband hennar og Önnu mömmu okkar var kært og gaf þeim báðum mikið. Þær voru tilfinningalega mjög nánar alla tíð og mamma sagði oft við Helen: „Ég á þig nú alltaf.“ Eins var með Pál pabba okkar. Í minningunni eru þau Helen að gantast og hlæja saman í eldhúsinu í Skipagöt- unni. Lillý, sú elsta af okkur, og Helen kynntust á Akureyri þegar þær voru sjö og átta ára gamlar og var þeirra kærleiks- ríka vinátta óslitin alla tíð. Í framhaldinu nutum við yngri systurnar einnig vináttu henn- ar. Önnur undirritaðra fékk nafnið sitt frá Helen og var alltaf afar ánægð og stolt með það. „Elsku nafna mín“ var við- kvæðið og gleðin og væntum- þykjan mikil í báðar áttir. Helen var einstaklega hlý og gefandi manneskja. Það var eins og hún hefði einhvern æðri skilning og gat gefið svo mikið til allra sem á leið hennar urðu. Væntumþykjan, umhyggjan og stoltið yfir börnum, tengda- börnum og ömmubörnunum leyndi sér ekki. Það var unun að sjá gleði hennar við hvert þeirra skref. Hún var sérstak- lega fróðleiksfús, bar mikla virðingu fyrir menntun, var mikill listunnandi og töfraði fram einstakt handverk af ýms- um toga. Jákvæðni, glaðværð og hlátrasköll tengjast öllum minningunum um elsku Helen. Það er með miklum trega sem við kveðjum vinkonu okkar en við vitum að vel verður tekið á móti henni. Tilfinningin er sú að hún hafi verið búin að leggja inn á framtíðarreikninginn, ef svo má að orði komast, og upp- skeri nú mikilfengleika framtíð- arlandsins og fólksins síns þar. Við sendum börnum, tengda- börnum og ömmubörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Helena og Sigurbjörg. Helen Þorkelsson Ástkær og yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GYÐA GÍSLADÓTTIR, Hvassaleiti 56, lést þriðjudaginn 29. september á Hrafnistu í Reykjavík. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 14. október klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á www.sonik.is/gyda. Ingibjörg Jakobsdóttir Sigríður Jakobsdóttir Sveinn H. Gunnarsson Ásdís Ó. Jakobsdóttir Daníel Jónasson Ásgeir Már Jakobsson Ólafía B. Rafnsdóttir Valgerður Jakobsdóttir Albert G. Arnarson Gunnar Örn Jakobsson Olga S. Marinósdóttir Gyða Haralz Halldór Haralz barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elsku amma, þú varst fyrirmyndin mín í svo mörgu. Þú varst góð við alla og hugs- aðir vel um þína nánustu, eins og þegar ég var veik þá hringdir þú í mig alla vega 5 sinnum á dag. Ég er þakklát fyrir minningar okkar og það sem þú kenndir mér, til dæmis falleg ljóð, að baka og prjóna. Ólöf María Jóhannsdóttir ✝ Ólöf María Jó-hannsdóttir var fædd 16. apríl 1944. Hún lést 21. ágúst 2020. Útför Maju fór fram 5. september 2020. Það var alltaf stutt í húmorinn og hláturinn þegar ég var með þér og ég mun sakna þess. Ég kveð þig með sorg en gleði í hjarta. Helena Dís Birkisdóttir. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Skúli Þór Birkisson. Guðrún Stefanía Brynjólfsdóttir Ég man þegar við fjölskyldan og amma fórum til Tenerife og við systurnar fórum með ömmu í rennibrautina einu til tvisvar sinnum á dag. Líka þegar við krakkarnir komum heim til ömmu og það var alltaf til frostp- inni sem stóð til boða. Svo var líka alltaf svo gaman í matarboðum heima hjá ömmu og afa. Oftast bauð amma upp á hrossakjöt en stundum var líka kjötsúpa eða ✝ Guðrún Brynj-ólfsdóttir fæddist 25. janúar 1948. Hún lést 24. september 2020. Útför Guðrúnar fór fram 6. október 2020. hangikjöt. Svo eftir mat gerðum við krakkarnir oft atriði til að skemmta full- orðna fólkinu. Amma gerði líka bestu pönnukökurn- ar og því var alltaf notalegt að koma i kaffi til hennar. Við ferðuðumst líka oft með ömmu og afa. Til dæmis fórum við í árlegar berja- og veiðiferðir í Hlíðarvatn og svo fórum við líka nokkrum sinnum í veiðiferðir i Gufudalsá. Annað hvert ár komu amma og afi til okkar um jólin þar sem við áttum notalega stund saman. Ég elskaði ömmu mikið og sakna hennar sárt. Guðrún Lilja. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.