Morgunblaðið - 12.10.2020, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Kæru gestir, félagsstarfið okkar er opið en vegna
fjöldatakmarkana verður að skrá fyrirfram á viðburði til þess að
tryggja fjarlægðarmörk og fjölda í hverju rými. Við minnum fólk á
mikilvægi sóttvarna og að það er grímuskylda í Samfélagshúsinu.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 4112701 / 4112702. Tilkynningar
um breytingar koma líka fram á facebooksíðu okkar Samfélagshúsið
Aflagranda.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opinn
handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni. Það þarf að skrá sig í viðburði eða
hópa: sími 411-2600.
Boðinn Félagsstarf er lokað, einungis opið í hádegismat í Boðanum.
Garðabær Kæru gestir, íþrótta- og félagsstarfið okkar er lokað
tímabundið en Jónshús er opið með fjöldatakmörkunum sem er 20
manns í rými. Minnum á grímuskyldu í Jónshúsi og muna að halda
áfram upp á 2 metra regluna. Tilkynningar um breytingar koma líka
fram á facebooksíðu okkar https://www.facebook.com/eldriborgarar-
felagsstarfgardabaer
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Jóga með Kristrúnu kl. 9.50. Minningahópur kl. 10.30.
Jóga með Ragnheiði kl. 11.10 og kl. 12.05. Tálgun kl. 13-16. Stólaleik-
fimi kl. 13.30.
Korpúlfar Morgunleikfimi í útvarpinu kl. 9.45, gönguhópar kl. 10
gengið frá Grafarvogsirkju, Borgum og inni í Egilhöll, minnum á 2ja
metra fjarlægð. Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum. Minnum á grímu-
skyldu í Borgum og vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í kaffi-
veitingar, skráning í eldhúsinu og tímasetning. Virðum einnig fasta
tímasetningu í hádegisverð, þannig er hægt að tryggja 20 manns í
rými.
Seltjarnarnes Námskeið í gleri fellur niður í dag, og enginn billjard í
Selinu. Námskeið í leir í samráði við leiðbeinanda. Jóga á Skólabraut
kl. 11 eingöngu fyrir fólk sem EKKI býr á Skólabraut. Fólki er bent á að
fara inn í salinn og út aftur án viðkomu í öðrum rýmum. Munum
sprittun og hlífðargrímur. Kaffikrókur og handavinna er eingöngu fyrir
íbúa á Skólabraut eins og sakir standa.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn fyrir helgi. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Bílar
Dacia Dokker 4/2017
Ekinn aðeins 38. þ.km. Ódýr sendibíll
sem er frábær í snattið.
Verð : 1.680.000 án vsk.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn, og tek að
mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝ Eiríkur ÞórVattnes Jón-
asson fæddist 20.
maí 1971. Hann
varð bráðkvaddur
á Bráðamóttöku
Landspítala Foss-
vogi 12. september
2020.
Foreldrar hans
eru Jónas Helga-
son, f. 4. maí 1948,
og Eyþóra Vattnes
Kristjánsdóttir, f. 8. janúar
1949. Systir Eiríks er Ingunn
Vattnes, f. 1. júní 1974, gift
Sverri Óskarssyni, börn þeirra
eru Jónas Helgi, Klara Sif og El-
ín Eyþóra. Bróðir Eiríks er
Kristján Vattnes, f. 6. október
1978.
Eiginkona Eiríks er Hjördís
Lóa Ingþórsdóttir,
f. 31. desember
1974, og börn
þeirra eru Óliver
Freyr, 31. október
2004, og Emma
Lóa, f. 21. nóv-
ember 2007.
Eiríkur ólst upp í
Breiðholti en bjó í
Garðabæ með konu
sinni og börnum.
Hann starfaði lengi
sem slökkviliðsmaður á
Keflavíkurflugvelli. Samhliða
starfi sínu á Keflavíkurflugvelli
stundaði Eiríkur nám í Kenn-
araháskólanum. Eftir útskrift
hóf hann störf sem kennari, nú
síðast í Smáraskóla.
Útför Eiríks fór fram 7. októ-
ber 2020.
Það var mikið áfall að frétta af
skyndilegu fráfalli fyrrverandi
samstarfsfélaga okkar og vinar,
Eiríks Þórs Jónassonar, langt
fyrir aldur fram. Hann starfaði
með okkur í Sjálandsskóla í sex
ár sem grunnskólakennari á
yngsta stigi skólans. Eiríkur var
ekki aðeins samstarfsfélagi held-
ur voru augasteinarnir þeirra
Hjördísar þau Óliver og Emma
Lóa nemendur við skólann, svo
að kynni okkar hófust nokkrum
árum áður en hann hóf störf. Ei-
ríkur var vinsæll kennari og náði
til allra nemenda með ljúf-
mennsku sinni, blíðu og góðlát-
legri stríðni. Samstarfsfólkið
fékk stundum að finna fyrir
stríðninni og þannig átti hann til
að hressa upp á hversdagsleik-
ann í skólanum. Nemendur elsk-
uðu sögurnar hans Eiríks en það
voru ekki aðeins börnin sem
hlustuðu með andakt heldur
fangaði hann líka athygli fullorð-
inna og oft var nær ómögulegt að
átta sig á hvort sögurnar höfðu
átt sér stað í raunveruleikanum
eða ekki. Eiríkur var laginn við
að finna grundvöll til samræðna
við alla, það gilti einu hvort það
voru erlendir gestir í heimsókn,
foreldrar, nemendur eða sam-
starfsmenn. Hann hafði einlægan
áhuga á fólki og fór ekki í mann-
greinarálit, allir voru jafnir fyrir
honum, háir og smáir, og hann sá
það góða í hverjum manni. Eirík-
ur var einstaklega bóngóður og
tilbúinn að aðstoða ef þurfti.
Eiríkur á ekki einungis stað í
hjarta okkar samstarfsfólksins,
hann var uppáhaldskennari
margra nemenda Sjálandsskóla.
Hann hafði einstakt lag á börnum
og ekki hvað síst nemendum sem
þurftu mikla lagni og blíðan aga
með svolítilli ákveðni í bland.
Það leyndi sér ekki að Eiríkur
var stoltur af Hjördísi sinni og
börnunum þeirra, þeim Óliver og
Emmu Lóu. Þau voru í fyrsta
sæti hjá Eiríki og samhent
studdu þau hjónin börnin sín í lífi
og leik.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn
þína, sem hefði klökkur gígjustrengur
brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi
lostið, sem hugsar til þín alla daga
sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast
ævinlega
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nem-
ur,
og eilíflega, óháð því sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum
lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.
(Tómas Guðmundsson)
Hvíl þú í friði, elsku Eiríkur,
við minnumst þín með þakklæti
og hlýju.
Elsku Hjördís, Óliver, Emma
Lóa og fjölskylda, hugur okkar
er með ykkur öllum. Við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð og
þökkum Eiríki af alhug fyrir
samfylgdina.
Fyrir hönd starfsfólks Sjá-
landsskóla,
Edda Björg Sigurðar-
dóttir og Sesselja Þóra
Gunnarsdóttir.
Eiríkur Þór
Vattnes Jónasson
Kveðja frá
frænku-
hittingnum
Við frænkur, mæðgur og
systur fórum að taka frá
fimmtudagana í hverri viku til
að hittast fyrir nokkuð mörgum
árum og dreifðum okkur sam-
viskusamlega niður á veitinga-
og kaffihúsin hér í Eyjum. Þetta
Svala Vatnsdal
Hauksdóttir
✝ Svala VatnsdalHauksdóttir
fæddist 4. ágúst
1939. Hún lést 11.
september 2020.
Útför Svölu fór
fram 25. september
2020.
var ein besta
ákvörðun sem hef-
ur verið tekin af
þessum góða hópi
glaðlyndra kvenna
og margar ógleym-
anlegar stundir
höfum við átt sam-
an í þessum
frænkuhittingum
bæði í gleði og sorg
gegnum árin. Svala
frænka okkar kom
inn í hópinn á síðastliðnu ári eða
2019.
Og það sem hún var ánægð að
hitta okkur enda gerði hún sér
far um að koma sem oftast. Við
höfum átt ógleymanlegar stund-
ir með henni á þessum tíma
enda mikið hlegið og haft gam-
an. Enda fór það ekki framhjá
neinum þegar við hittumst, þessi
hópur ólíkra kvenna ættaðra frá
Vatnsdal hér í Eyjum og á öllum
aldri. Enda talað hátt og hlegið
dátt, eins og við værum bara
einar í heiminum þá stundina.
Þessi stórglæsilega frænka
okkar hún Svala var alla tíð svo
smart kona og einhvern veginn
tímalaus í aldri. Gleði hennar,
bros og skemmtilega smitandi
hláturinn munum við geyma við
hjartarætur og minnast hennar
með mikilli hlýju og virðingu.
Ekki eitt augnablik verður efast
um að það hefur verið vel tekið á
móti þér þegar þú komst að hliði
Sumarlandsins og ástvinir tekið
þér opnum örmum og sýnt þér
veröld þar sem allt er gott og
fagurt. Engin sorgartár, aðeins
gleði og ómæld hamingja elsku
Svala okkar.
Guð geymi þig mín kæra. Við
munum örugglega hittast seinna
meir og þá getum við, þessi góði
hópur, tekið upp þráðinn að
nýju.
Við sendum fjölskyldu Svölu
innilegar samúðarkveðjur og
hlýtt faðmlag í sorginni.
Hinsta kveðja
Ég kveð þig kæra vina
ég kveð þig Svala mín
í faðmi drottins sefur
ljúfust sálin þín.
Á vængjum morgunroðans
um röðulglitrað haf
fer sála þín
á guðs vors helga stað.
Þar er engin þjáning
né kvöl né sorgartár
aðeins ró og friður
í hverri þreyttri sál.
Þér þökkum samfylgdina
og minninguna um þig
nú biðjum góðan guð
að geyma þig.
(Kolbrún Vatnsdal Sigríðardóttir)
Kolbrún Harpa
Kolbeinsdóttir.
Veiga frænka er
dáin. Hún var ein af
uppáhaldsfrænkum
mínum og langar mig að minnast
hennar í nokkrum orðum.
Ég hef alltaf litið upp til Veigu
og hugsaði þegar ég var yngri að
ég vildi verða eins og hún að svo
mörgu leyti. Hún var svo full af
kærleik og góðvild til allra; heið-
arleg, dugleg, kát og hress. Ég
dáðist einnig að því að hún stund-
aði hreyfingu frá því ég man eftir
henni, fór í gönguferðir eða sund
daglega en á þeim árum var það
ekki eins algengt og nú er.
Hún var ein af átta systkinum
Sigurveig
Ólafsdóttir
✝ SigurveigÓlafsdóttir
fæddist í Syðstu-
Mörk undir Eyja-
fjöllum. Hún lést 13.
september 2020.
Útför Sigur-
veigar fór fram 25.
september 2020.
frá Syðstu-Mörk og
sú eina sem fluttist
og bjó í Reykjavík,
hin bjuggu öll í
sveit. Hjá Veigu og
Hjalta var alltaf op-
ið hús fyrir alla.
Matur á borðum,
nóg pláss til gisting-
ar og voru ófáar
næturnar sem við
fjölskyldan vorum
þar í mat og gist-
ingu og alltaf þótti það sjálfsagt.
Ef eitthvert okkar systkina-
barnanna þurfti að dvelja í
Reykjavík til lengri eða skemmri
tíma var alltaf opið hús hjá henni
og naut ég oftar en ekki góðs af
því.
Fyrir allt þetta sem og svo
margt annað sem hún kenndi
mér langar mig að þakka Veigu.
Sonum hennar þeim Pálma,
Hauki og Ómari og þeirra fjöl-
skyldum votta ég samúð mína.
Sigrún.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
að höndum og aðrar gagnlegar
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát