Morgunblaðið - 12.10.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.10.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020 NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðsins Jólablað Kemur út 26.11. 2020 Fullt af flottu efni fyrir alla aldurshópa Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hristu af þér alla hræðslu og helltu þér í það sem þig langar mest að gera. Margir vilja leggja stein í götu þína, en til allrar hamingju veltir þú þér ekki upp úr því. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er eins og allt ætli að ganga upp hjá þér í dag. Minntu þig á tilgang- inn með lífinu. Gaumgæfðu vel allar hlið- ar máls áður en þú lætur til skarar skríða. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Farðu varlega í samræðum við fólk í dag. Mundu að þú berð ábyrgð á sjálfum þér og þínum gjörðum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Eyddu ekki tímanum í bið eftir aðstoð annarra heldur notaðu eigin hæfi- leika til þess að ganga frá málunum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það mun reyna verulega á þig í dag, en þú ert tilbúin/n í slaginn og hef- ur ráð til þess að sjá fram úr erfiðleik- unum. Þú hefur ráð undir rifi hverju. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu ekki liðna tíð standa í vegi fyrir framtíð þinni. Teldu í þig kjark til að taka vel á móti ókunnugu fólki. 23. sept. - 22. okt.  Vog Að gefa sér tíma til þess að stoppa og njóta ilmsins af blómunum er þroska- merki. Ekki láta ástandið buga þig. Þetta líður hjá. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú er rétti tíminn til þess að byrja að leita leiða til þess að koma ein- hvers konar andlegri slökun að í þinni daglegu rútínu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Notaðu tímann til þess að rétta vinum hjálparhönd. Með elju og ástundun eru þér allir vegir færir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Passaðu upp á það að setja afþreyingu og skemmtun inn á verkefna- listann. Vertu lipur og víðsýn/n á öllum sviðum. Gáfurnar skína af þér og það fer ekki framhjá neinum í dag. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Félagar þínir munu sýna mjög mikinn skilning á aðstæðum þínum. Ekki láta í minni pokann fyrir ráðríki annarra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ástarmálin eða eitthvað sem tengist fjármálum og eignum veldur þér áhyggjum í dag. Mundu bara að það kemur nýr dagur eftir þennan. úr vannýttu hráefni, en fyrirtækið var sett á laggirnar gagngert til að þurrka þorskmarning til manneldis. Það sem eftir situr eftir fyrirtækj- areksturinn er gífurleg reynsla sem ekki væri hægt að nálgast á skóla- bekk. „Full nýting aukaafurða er eitt- hvað sem á hug minn allan enn þann dag í dag og við erum enn að starfa að ýmsum góðum hugmyndum,“ segir Rúnar sem hefur starfað mikið með dr. Sæmundi Elíassyni hjá Matís, Háskólanum á Akureyri og Bjarna Bjarnasyni yngri, sem hefur mikla framleiðsluþekkingu. Það er því aldr- ei að vita hvað framtíðin mun bera í skauti sér. Rúnar ákvað að venda sínu kvæði í kross og fór að vinna hjá félags- þjónustunni i Fjallabyggð. „Það er nú einn happdrættisvinningurinn í lífinu. Allt í einu var ég kominn í starf sem R únar Friðriksson fædd- ist á Akureyri 12. októ- ber 1970 og ólst þar upp. Á unglingsaldri dvaldi hann fimm sum- ur hjá Oddi Gunnarssyni og Gígju Snædal við bústörf á Dagverðareyri og hafði þar að auki vetursetu eitt ár- ið. „Þetta var alveg dásamlegur tími og ég ber sterkar taugar til sveit- arinnar út af þessum vel heppnaða tíma á Dagverðareyri.“ Eftir skólagöngu réð Rúnar sig í vinnu hjá Vífilfelli á Akureyri þar sem hann var næstu 15 árin í sölu- mennsku. „Þetta var mjög líflegt starf og ég kynntist mörgum á þess- um tíma, en þetta daglega sölusvæði náði frá Húsavík til austurs og vestur til Staðarskála.“ Árið 2000 ákvað Rúnar að breyta aðeins til og feta í fótspor föður síns og fara á sjóinn með æskuvini sínum Helga Berg- þórssyni á Guðrúnu Helgu EA. „Ég held ég sé mesti vesalingur til sjós sem um getur, því það er nóg fyrir mig að labba niður á bryggju og þá verður mér bumbult,“ segir Rúnar. Hann þraukaði þó í tvö ár, en hann losnaði aldrei við sjóveikina. Árið 2002 fór hann aftur að vinna hjá Víf- ilfelli og var þar næstu fimm árin. Rúnar er í eðli sínu frumkvöðull og mjög hugmyndaríkur. Þar kom að hann vildi fara að vinna í að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. „Það var kannski ekki gáfulegt að fara úr tryggu starfi yfir í algjöra óvissu, en ég ákvað samt að slá til.“ Frá árinu 2007 og næstu tíu árin var Rúnar með eigin rekstur og stofnaði á þeim tíma þrjú fyrirtæki. Fyrst var það Tyrma ehf. sem er þjónustu- og sölufyrirtæki, einskonar heildsala sem vann fyrir fjöldamörg fyrirtæki, eins og Vífilfell, Rolf Johansen, Ekta- fisk, Reykjagarð, Sóma og fleiri. „Ég hélt eiginlega sömu vinnu áfram, bara á eigin vegum, og fór að safna nokkrum minni og meðal- stórum fyrirtækjum til að selja fyrir og það virkaði alveg ljómandi vel.“ Síðan stofnaði hann Eldfjallabrugg sem var fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að framleiða áfengt gos. Þriðja fyrir- tækið, Arcticus Sea Products, tengist ástríðu Rúnars fyrir að vinna vörur mér finnst skipta alveg gífurlega miklu máli. Ég er oft þakklátur þegar ég kem heim á kvöldin, að vita að ég hef verið til gagns þann daginn og að fá bros frá fólki sem hefur átt erfiða ævi er ólýsanleg tilfinning.“ Rúnar byrjaði að keppa í kraftlyft- ingum 14 ára gamall og var formaður Kraftlyftingafélags Akureyrar í fjölda ára auk þess að stofna Kraft- lyftingafélag Ólafsfjarðar þar sem hann þjálfar enn. Síðasta mót hans var árið 2007 þar sem hann tók 220 kg í bekkpressu og vann eitt af mörg- um mótum og fékk heiðursviðurkenn- ingu KRAFT fyrir ferilinn. Rúnar segir að áhugamálin séu eiginlega of mörg: lyftingar, skot- veiði, jeppar og hestamennska. „Síð- an finnst mér fátt betra en að hlusta á góða tónlist, og get eiginlega ekki sofnað án þess að hlusta á eitthvað gott.“ Rúnar Friðriksson, starfsmaður Félagsþjónustunnar í Fjallabyggð – 50 ára Hjónin Hér eru hjónin Sunna Eir og Rúnar á góðri stundu í Kálfshamarsvík á norðanverðum Skaga. Alltaf þakklátur eftir daginn Börnin Frá vinstri: Kamilla Sigríð- ur, Sóley Dögg, Tinna Ósk, Þór Adam og Sigmundur Elvar. 30 ára Leó ólst upp á Akranesi en býr núna í Reykjavík. Leó er héraðsdómslögmaður og vinnur á Juralis lögmannsstofunni á Suðurlandsbraut í Reykjavík. Þegar tími gefst hefur Leó gaman af íþróttum og svo samveru með fjölskyldunni. Maki: Steinunn Sveinsdóttir, f. 1992, lögfræðingur, en er í barnsburðarleyfi núna. Börn: Elín Fanney, f. 2017 og tvíburarnir Aðalheiður Eva, f. 2020 og Daði Sveinn, f. 2020. Foreldrar: Daði Halldórsson, f. 1959, d. 2007 og Kristrún Sigurbjörnsdóttir, f. 1961, býr á Akranesi. Leó Daðason Til hamingju með daginn Akureyri Þessar duglegu stúlkur, Berglind Ylfa Árna- dóttir og Kolfinna Kara Helga- dóttir, héldu tombólu við Krambúðina við Borgarbraut á Akureyri og gáfu Rauða kross- inum við Eyjafjörð afrakst- urinn, 3.481 krónu. Við þökkum þeim kærlega fyrir. Tombóla 40 ára Guðbjörg Sæ- unn ólst upp í Hafnar- firði en býr núna í Mosfellsbænum. Hún er verkfræðingur og starfar fyrir Veitur. Helstu áhugamál Guð- bjargar Sæunnar eru ferðlög í sólina með fjölskyldunni. Svo er öll fjölskyldan í mótorkross að hjóla saman. Maki: Valdimar Þórðarson, f. 1984, vél- virki og vinnur sem mælingamaður hjá Volfram. Börn: Ólöf Sæunn, f. 2009 og Viktor Máni, f. 2010. Foreldrar: Ólöf Unnur Einarsdóttir, f. 1952, húsmóðir og Friðrik Óskarsson, f. 1949, leigubílstjóri. Þau búa í Reykjavík. Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.