Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020  England hafði betur gegn Belgíu í riðli okkar Íslendinga í Þjóðadeild UEFA 2:1 þegar liðin mættust á Wem- bley í gær. Er þetta fyrsta tap Belga í 14 leikjum síðan í nóvember 2018 en þeir leika á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn. Romelu Lukaku kom Belgum yfir með marki úr vítaspyrnu en Marcus Rashford jafnaði, einnig úr vítaspyrnu. Mason Mount skoraði sigurmark Englendinga sem eru efstir í riðlinum.  Óvænt úrslit litu dagsins ljós í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er Kristianstad undir stjórn Elísabet- ar Gunnarsdóttur hafði betur gegn stórliði Rosengård á útivelli, 2:1. Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn með Rosengård en Svava Rós Guðmundsdóttir lék ekki með Kristi- anstad og Sif Atladóttir er í barn- eignarfríi.  Lewis Hamilton á Mercedes sigr- aði í Eifel-kappakstrinum í Nürburg- ring. Var það tímamótasigur því með honum jafnaði hann met Michaels Schumachers sem á sínum tíma vann 91 mót í formúlu 1-kappakstr- inum.  Lærisveinar Heimis Hallgríms- sonar í Al-Arabi töpuðu illa í úrslita- leik deildabikarsins í knattspyrnu í Katar, 4:0, gegn Al-Sadd sem er stýrt af Xavi Hernandez, fyrrverandi stjörnu Barcelona. Aron Einar Gunn- arsson gat ekki leikið með vegna landsleikjanna.  Þau tíðindi urðu á Spáni að Barce- lona skoraði 50 mörk í deildarleik gegn Atletíco Madríd og vann 50:24. Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyr- ir spænsku meistarana.  Spánverjinn Rafael Nadal náði þeim áfanga í gær að vinna einliða- leik á risamóti í tennis í tuttugasta sinn. Nadal fór illa með Serbann No- vak Djokovic í úrslitaleik Opna franska mótsins. Nadal vann leikinn 3:0 en settin vann hann 6:0, 6:2 og 7:5. Nadal er 34 ára gamall og fór upp að hlið Rogers Federer með sigrinum. Hafa þeir báðir unnið einliðaleikinn á risamótum tuttugu sinnum en risa- mótin á hverju ári í tennis eru fjögur talsins. „Þetta var greinilega minn dagur en þannig er þetta stundum í íþróttunum. Við [Djokovic] höfum mæst margsinnis á vellinum. Stund- um vinnur hann og stundum vinn ég,“ sagði Nadal við fjölmiðlamenn að leiknum loknum. Eitt ogannað ÞJÓÐADEILD Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Líkurnar á að Ísland verði í A- deildinni í þriðju útgáfu Þjóðadeild- ar UEFA haustið 2022 eru orðnar sáralitlar eftir ósigur gegn Dönum á Laugardalsvellinum í gærkvöld, 0:3. Þegar þrjár umferðir eru búnar af sex í riðlinum er England með sjö stig, Belgía sex, Danmörk fjögur en Ísland ekkert og íslenska liðið verð- ur þar með að vinna tvo leiki af þeim þremur sem eftir eru til að eiga möguleika á að komast úr neðsta sætinu og halda sæti sínu í deildinni. Heimaleikur gegn Belgum á miðvikudag og útileikir við Dani og Englendinga, það er dagskráin sem eftir er í keppninni. Stigin verða ekkert tínd af trjánum gegn þessum andstæðingum. Hvernig sem á því stendur hefur íslenska liðið sjaldnast sýnt sitt rétta andlit í Þjóðadeildarleikjunum á meðan frammistaðan hefur verið mun betri í þeim leikjum sem til- heyra EM og HM. Má vera að hug- arfarið ráði einhverju þar um, þessi keppni hefur vissulega ekki sama vægi og stóru mótin, en svo sann- arlega eru allir leikir í A-deild Þjóðadeildar gegn liðum sem teljast til þeirra bestu í Evrópu. Og það að tilheyra þeim hópi hefur heldur bet- ur komið íslenska landsliðinu til góða. En ef hægt er að velja um hvar slæmu leikirnir koma þá er skásti kosturinn að það sé í þessari keppni sem leysti vináttulandsleikina af hólmi. Danmörk og Ísland voru bæði án sigurs fyrir leikinn í gærkvöld og það segir sitt um styrkleika keppn- innar. Danska liðið er í fremstu röð í Evrópu og tryggði sér rétt til að Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mótmæli Aron, Birkir, Gylfi og Jón Daði viðra skoðanir sínar á ákvörðun Pandzic dómara í Laugardalnum í gær. Rúnar Már er lengst til vinstri. leika á EM strax í undankeppninni en hafði ekki skorað í tveimur og hálfum leik í keppninni þar til það fékk nánast gefins mark frá sænsku dómurunum á síðustu andartökum fyrri hálfleiksins. Nú vantaði græjurnar Myndbandadómgæsla var til staðar á umspilsleiknum gegn Rúm- eníu á fimmtudagskvöldið og græj- urnar frá UEFA hefðu betur verið skildar eftir í nokkra daga í viðbót. Þá hefði staðan væntanlega verið 0:0 í hálfleik og allt annar leikur verið uppi á teningunum. Í staðinn tók sænskur aðstoðar- dómari þá ákvörðun að dæma mark á líkum. Fyrir vikið fóru Danir með 1:0 forskot inn í hléið og Christian Eriksen skoraði svo úr skyndisókn eftir 50 sekúndur í seinni hálfleik, eftir að Ísland fékk innkast við danska vítateiginn. Þessar tvær mínútur fyrir og eftir hlé réðu úr- slitum og drápu niður alla spennu. Þetta danska lið var aldrei líklegt til að missa niður tveggja marka for- skot. Niðurstaðan varð síðan of stórt tap. Danir réðu vissulega ferðinni stóran hluta leiksins en íslenska lið- ið fékk sín færi og liðin áttu álíka mörg skot sem hittu á mark í leikn- um. Kasper Schmeichel hafði t.d. þurft að verja þrisvar í fyrri hálf- leiknum en Hannes Þór Halldórsson einu sinni áður en danska liðið komst yfir. Ljósustu punktarnir í leiknum eru frammistaða Guðlaugs Victors Pálssonar, sem festir sig enn betur í sessi með hverjum leik, og varn- arleikur Sverris Inga Ingasonar sem fer langt með að fylla skarð Kára Árnasonar, og gæti þurft að gera það í stóra leiknum gegn Ungverjum. Sem er að sjálfsögðu sá leikur sem öllu máli skiptir. Danir fengu góða hjálp  Náðu undirtökunum gegn Íslandi með vafasömu marki  Möguleikar Íslands á að halda sér í A-deildinni nánast úr sögunni eftir 0:3 ósigur gegn Dönum „Alltaf svekkjandi að tapa auðvit- að,“ sagði hnugginn Erik Hamrén, landsliðsþjálfari Íslands, á blaða- mannafundi eftir 0:3-tap Íslands gegn Danmörku í Þjóðadeild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Danir komust yfir undir blálok fyrri hálf- leiks og bættu við tveimur mörkum í seinni hálfleik. „Við áttum von á að Danir yrðu meira með boltann en við vörðumst vel í fyrri hálfleik og við fengum bestu færin. Þeirra fyrsta skot kom eftir hálftíma leik. Fyrsta markið breytti leiknum. Við töluðum sam- an í hálfleik og reyndum en svo gerum við mistök og þeir skora annað markið. Eftir það var þetta erfitt. Þeir spiluðu á miðvikudag og hvíldu mikið á meðan við spiluðum á fimmtudag og notuðum okkar besta lið.“ Alfreð Finnbogason fór meiddur af velli strax á tíundu mínútu, Aron Einar Gunnarsson í hálfleik og Ragnar Sigurðsson í seinni hálfleik. „Það var lærið á Alfreð og Aroni og við vildum ekki taka neina sénsa með það. Ragnar fór líka út af og leikurinn á fimmtudag sat í mönn- um. Þeir spila ekki á móti Belgum.“ Þá var Jóhann Berg Guðmundsson ónotaður varamaður í gær en Sví- inn sagði að hann hefði verið tæpur fyrir leikinn. Þá var Hamrén að vonum ósáttur með fyrsta mark Dana, enda virtist boltinn ekki hafa farið yfir marklín- una. „Ég held að boltinn hafi ekki verið inni. Ég skil ekki hvernig línuvörðurinn sá þetta. Ég er ekki ánægður með þessa ákvörðun,“ sagði Svíinn svekktur með ákvörð- un landa síns. Sóknarmaðurinn Jón Daði Böðv- arsson, sem kom inn á sem vara- maður snemma leiks, segir íslenska liðið einfaldlega hafa haft úr litlu að moða. „Þetta var erfitt eftir að þeir skoruðu annað markið og þá þurftum við að pressa þá meira. Það var ójafnvægi hjá okkur eftir þetta annað mark og úr litlu að moða,“ sagði Selfyssingurinn á blaðamannafundinum. Kasper Hjulmand, landsliðsþjálf- ari Dana, var að vonum hæst- ánægður í leikslok. „Við stjórn- uðum leiknum, sóttum og vorum mikið með boltann. Þetta er frábær sigur gegn liði sem ég ber gríðar- lega mikla virðingu fyrir,“ sagði hann á blaðamannafundinum í Laugardalnum í gær. Held að boltinn hafi ekki verið inni ÍSLAND – DANMÖRK 0:3 0:1 Sjálfsmark 45. 0:2 Christian Eriksen 46. 0:3 Robert Skov 61. M Guðlaugur Victor Pálsson Birkir Bjarnason Sverrir Ingi Ingason Dómari: Bojan Pandzic, Svíþjóð. Áhorfendur: 60.  Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyr- irliði lék sinn 89. landsleik og jafnaði Hermann Hreiðarsson í 4.-5. sæti yfir leikjahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi.  Birkir Bjarnason lék sinn 88. lands- leik og jafnaði Eið Smára Guðjohnsen í 6.-7. sætinu yfir þá leikjahæstu.  Alfreð Finnbogason þurfti að fara af velli á 11. mínútu. Hann komst inní sendingu á Schmeichel markvörð, sem varði frá honum úr þröngu færi en Al- freð kenndi sér meins aftan í læri. Þar með er ljóst að Alfreð spilar ekki gegn Belgum á miðvikudagskvöldið.  Danir hafa nú unnið 20 af 24 lands- leikjum sínum gegn Íslendingum frá því þjóðirnar mættust fyrst árið 1946. Jafn- teflin eru fjögur og Ísland þarf að bíða enn um sinn, a.m.k. þar til í nóvember, eftir fyrsta sigrinum.  Ísland mætir Belgíu á Laugardals- vellinum á miðvikudagskvöldið. Tveir síðustu leikirnir eru síðan á útivöllum gegn Danmörku og Englandi 15. og 18. nóvember. Þeir leikir koma í kjölfarið á úrslitaleik umspilsins gegn Ungverjum sem fram fer í Búdapest 12. nóvember. Spánn Gipuzkoa – Zaragoza.......................... 70:67  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 10 stig og tók 6 fráköst. Valencia – Unicaja Málaga................. 66:71  Martin Hermannsson skoraði 5 stig, tók 2 fráköst og gaf eina stoðsendingu. Manresa – Andorra ............................. 64:69  Haukur Helgi Pálsson lék ekki með vegna meiðsla. Litháen Rytas – Siaulai ................................... 107:80  Elvar Már Friðriksson skoraði 14 stig, gaf 6 stoðsendingar og tók 4 fráköst. 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.