Morgunblaðið - 12.10.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Agnes
* The Secret : Dare to
Dream
* Unhinged
* A Hidden Life
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
MÖGNUÐ MYND SEM
GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI :
★★★★★
★★★★★
★★★★★
Roger Ebert.com
San Fransisco Cronicle
The Playlist
88%
HEIMSFRUMSÝNING
FORSÝNINGAR UM HELINGA
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
AF LISTUM
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Lárus Blöndal Guðjónsson,betur þekktur sem Lallitöframaður, hefur á síðustu
árum glatt landsmenn með töfra-
brögðum sínum meðal annars á
hinum ýmsu árshátíðum og í sjón-
varpi allra landsmanna. Hann hef-
ur því fyrir löngu sýnt það og
sannað að hann á auðvelt með að
skemmta áhorfendum og halda
athygli fólks á ólíkum aldri með
ótrúlegum brögðum sínum. Sú
reynsla nýtist honum afar vel í ein-
leiknum Lalli og töframaðurinn
sem hann skrifaði í samvinnu við
Ara Frey Ísfeld Óskarsson sem
leikstýrir meðhöfundi sínum á svið-
inu í Tjarnarbíói þar sem leikurinn
var frumsýndur fyrir skemmstu.
Líkt og titill verksins gefur til
kynna eru Lalli og töframaðurinn
tveir aðskildir menn, en Lárus
Blöndal Guðjónsson túlkar þá báða
á sviðinu í um klukkustundarlangri
sýningu. Í fyrri hluta sýning-
arinnar kynnumst við hinum frem-
ur feimna Lalla sem mættur er í
leikhúsið til að taka til á sviðinu og
undirbúa sýningu töframannsins.
Þegar sviðið er tilbúið hverfur
Lalli og í stað hans birtist töfra-
maðurinn og sýnir listir sínar, en
að töfrasýningu lokinni snýr Lalli
aftur í stuttri lokasenu. Lárus ger-
ir skýran greinarmun á persónun-
um tveimur, þar sem Lalli er frek-
ar feiminn við áhorfendur meðan
töframaðurinn er sjálfsöryggið
uppmálað og nær einstaklega góðri
tengingu við salinn. Hins vegar
hefði mátt skerpa betur á því í
handriti að um tvo ólíka menn væri
að ræða, því það kom í raun ekki
skýrt fram í textanum fyrr en und-
ir lok sýningar. Skýrari aðgreining
persónanna tveggja hefði líka auk-
ið gamanið þegar hinum ofur-
venjulega Lalla tekst óvart að
galdra með töfraskóm afa síns, hef-
ur áhrif á hitastig leikhússins með
tónlistarflutningi sínum og bregður
á leik með grænu ljósi bæði sjálf-
um sér og áhorfendum til undr-
unar.
Hápunktur fyrri hlutans var
samt tvímælalaust bráðskemmti-
legt búktalsatriði Lalla þegar hann
á í mestu vandræðum með sokkinn
sinn sem virðist lifa sjálfstæðu lífi
og lítur á sig sem stórleikara sem
er þess umkominn að gagnrýna
Lalla fyrir lélegt búktal. Vel var að
mestu unnið með tiltekt Lalla á
sviðinu, sem var skemmtilega
klaufalegur. Klaufagangurinn var
þó aðeins of ýktur sem dró að
nokkru úr trúverðugleika persón-
unnar í annars einlægum vand-
ræðagangi hennar.
Hátt orkustig fór töframann-
inum vel og nýttist með góðum
hætti í atriðum hans í seinni hluta
sýningarinnar. Töframaðurinn náði
góðri tengingu við áhorfendur,
ekki síst þá sem voru í yngri kant-
inum og áhugavert var að upplifa
hversu skemmtilegur þeim fannst
hann þrátt fyrir að hann væri ekki
að tala til þeirra með sykurhúðaðri
röddu.
Sum töfrabragðanna voru kunn-
ugleg frá árshátíðum frá fyrri tíð
þar sem Lalli töframaður hefur
skemmt, en það kom ekkert að sök
enda bráðskemmtilegt að fylgjast
með viðbrögðum krakkanna meðal
áhorfenda sem sátu á dýnum
fremst og kepptust um að fá að að-
stoða töframanninn við galdrana.
Undirrituð naut þess eins og barn
að fá að undrast og gleðjast yfir
öðrum göldrum töframannsins sem
engin leið var að skilja hvernig
virkuðu. En í því felast jú töfrarn-
ir.
Eftir stendur að Lalli og töfra-
maðurinn er prýðileg fjöl-
skyldusýning sem óhætt er að
mæla með fyrir alla þá sem langar
að láta gleðja sig með töfrandi
hætti.
Töfri, töfri, töfri
»Eftir stendur aðLalli og töframað-
urinn er prýðileg fjöl-
skyldusýning sem óhætt
er að mæla með fyrir
alla þá sem langar að
láta gleðja sig með
töfrandi hætti.
Búktalsatriði Lárus Blöndal Guðjónsson, betur þekktur sem Lalli töframaður, fer í sýningunni Lalli og töframað-
urinn á kostum í búktalsatriði þar sem hann glímir við sokk með stjörnustæla. Sýningar fara fram í Tjarnarbíói.
Áhugaverð þróun hefur átt sér stað í
bíómenningu Breta síðustu vikur og
mánuði, að því er greint er frá í dag-
blaðinu The Guardian. Mörg sjálf-
stæð kvikmyndahús sem sýna list-
rænar kvikmyndir, gamlar sem nýjar
og myndir sem eru alla jafna ódýrari í
framleiðslu en þær sem stóru kvik-
myndaverin í Hollywood framleiða,
segja aðsókn hafa verið jafna í kófinu
og jafnvel uppselt á sýningar. Bíó-
keðjurnar sem treysta á dýrari gerð
kvikmynda á borð við ofurhetju-
myndir hafa hins vegar barist í bökk-
um þar sem engar nýjar kvikmyndir
hafa borist þeim til sýninga, að Tenet
undanskilinni. Hefur Cineworld, önn-
ur umfangsmesta bíókeðja heims,
þurft að loka kvikmyndahúsum sín-
um og önnur bíó að fækka sýningum.
Eitt hinna listrænu bíóa sem fólk
hefur sótt í kófinu er HOME í Man-
chester og segir dagskrárstjóri þess,
Jason Wood, í samtali við Guardian
að vissulega hafi kófið komið niður á
rekstri kvikmyndahúsa. Hið jákvæða
í stöðunni sé sú athygli sem listrænni
kvikmyndir hafi fengið og bíóáskrif-
endum hafi fjölgað hjá HOME á með-
an bíóið var lokað í samkomubanninu
í Bretlandi. Fleiri sjálfstæð bíó hafa
svipaða sögu að segja, m.a. Waters-
hed í Bristol og Queen’s-bíóið í Bel-
fast en hafa ber þó í huga takmark-
aðan sætafjölda. Ekki eru þó öll
sjálfstæðu bíóin í góðum málum,
fyrirtækið WTW sem gerir út fjögur
bíó hefur biðlað til fólks að styrkja
starfsemina og gefa listrænni mynd-
um tækifæri.
Hatrið Aðsókn að endurbættri út-
gáfu La Haine hefur verið góð í
bíóinu Home í Manchester.
Sjálfstæðum
bíóhúsum
gengur betur