Morgunblaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 241. tölublað 108. árgangur
SJÁ HÆKKANDI
ALDUR Í SPAUGI-
LEGU LJÓSI
ÓTRÚLEGUR
ÍÞRÓTTA-
FERILL
SAUTJÁNDI
NBA-MEIST-
ARATITILLINN
KRISTINN 70 ÁRA 24 STÓRSIGUR 26MIÐALDRA 38
Margir þeirra sem lögðu leið sína í Kringluna í gær báru and-
litsgrímur en Kringlan mælist til þess að fólk beri andlits-
grímur í verslunum verslunarmiðstöðvarinnar. Í reglugerð
heilbrigðisráðherra vegna útbreiðslu kórónuveirusmita á höf-
uðborgarsvæðinu eru viðskiptavinir ákveðinna verslana
skyldaðir til að bera andlitsgrímur. Slík grímuskylda er ein-
ungis í verslunum þar sem ekki er hægt að tryggja að minnsta
kosti tveggja metra fjarlægð á milli einstaklinga.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, vakti athygli á því í
vikulegum pistli sínum í gær að andlitsgrímur sæjust víða úti í
náttúrunni. Forsetinn hvatti fólk til að henda andlitsgrímum í
ruslið að notkun lokinni en huga að smitvörnum sínum. »4
Gestir Kringlunnar grímuklæddir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Niðurstöður
nýrrar íslenskrar
rannsóknar benda
til að bráðakomur á
spítala vegna
hjartasjúkdóma,
sérstaklega vegna
gáttatifs, gátta-
flökts og annarra
hjartsláttartruflana, tengist
skammtímahækkun á styrk köfn-
unarefnisdíoxíðs (NO2).
Skoðuð voru ýmis mengandi efni
sem berast frá umferð. Sterkasta
sambandið fannst milli aukins
styrks köfnunarefnisdíoxíðs og
koma á spítala vegna gáttatifs og
gáttaflökts hjá konum yngri en 70
ára. »10
Tengsl mengunar og
hjartsláttartruflana
Tímabundnar fjarvistir starfs-
manna frá vinnu hafa aukst mikið á
tímum veirufaraldursins í löndum
Evrópu. Á öðrum ársfjórðungi
fjölgaði einstaklingum í löndum
ESB um 18,6 milljónir sem ekki
voru við störf um tíma þó þeir
héldu ráðningarsambandinu og
teljast ekki meðal atvinnulausra.
Tímabundnar uppsagnir voru
helsta ástæða fjarvistanna. Á Ís-
landi fjölgaði einnig í þessum hópi
en hlutfall hans af fjölda starfandi
fólks var þó mun lægra en í öðrum
Evrópulöndum. »10
Fleiri tímabundið
frá vinnu en áður
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra segir að bruni
sem upp kom í húsbíl í Grafningi í
Árnessýslu á föstudagskvöld, þar
sem einn lést, sýni mikilvægi þess að
úrbætur séu gerðar á neyðarsím-
svörun hér á landi. Hún segist hafa
óskað eftir því fyrir nokkrum mán-
uðum að neyðarsímsvörunarkerfi
Neyðarlínunnar yrði samræmdara.
Í gær skapaðist tilefni til að kanna
hversu langt sú vinna væri komin
svo að hægt verði að koma í veg fyrir
að atvik líkt og í Grafningi endurtaki
sig. Prufukeyrsla á nýju kerfi hefst í
lok vikunnar að sögn Áslaugar.
Á föstudagskvöld barst Neyðar-
línunni tilkynning um að eldur hefði
komið upp í húsbíl og mat Neyð-
arlínan það svo að gera þyrfti lög-
reglunni á Suðurlandi viðvart. Sím-
tal þess sem tilkynnti Neyðarlínu
um eldsvoðann var því fært til lög-
reglunnar á Suðurlandi en þar
hringdi út eftir að sá sem tilkynnti
málið hafði beðið í tæpa mínútu á
línunni. Áslaug Arna segir að koma
megi í veg fyrir að svona gerist með
því að samræma neyðarsímsvörun,
svo að ekki þurfi að tilkynna vá á
borð við eldsvoða til tveggja mis-
munandi aðila.
Vinna við úrbætur hafin
„Fyrir nokkru fór ég fram á að
neyðarsímsvörunarkerfi Neyðarlín-
unnar yrði samræmt með þeim
hætti að ekki þyrfti að tilkynna
sama málið til tveggja mismunandi
aðila. Það sem gerðist núna á föstu-
dag styður mikilvægi þessara breyt-
inga sem eru að koma til fram-
kvæmda,“ segir Áslaug í samtali við
Morgunblaðið.
Hún segir jafnframt að neyðar-
símsvörun eigi ekki að vera með
þeim hætti að svona lagað geti kom-
ið fyrir. Með þeirri vinnu sem hún
hefur nú þegar hrundið í fram-
kvæmd segir hún að megi fyrir-
byggja að atvik sem þetta endurtaki
sig.
„Ég tel að ef neyðarsímsvörun
verði samræmd þá eigi álíka atvik og
upp kom á föstudagskvöld ekki að
henda aftur,“ segir Áslaug.
Tveir eða þrír hundar mannsins
voru í húsbílnum sem brann og
fundust leifar þeirra í bílnum, að
sögn Odds Árnasonar, yfirlögreglu-
þjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Hann segir að rannsókn málsins sé í
fullum gangi og að verðmætar upp-
lýsingar hafi fengist frá almenningi
sem nota megi til þess að tímasetja
brunann nákvæmlega.
Nýtt neyðarlínu-
kerfi prufukeyrt
Samræmd símsvörun komi í veg fyrir atvik eins og brunann
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Oddur
Árnason
MÖll atburðarásin er í rannsókn »2
Ríkið gerir kröfu um að 45 svæði á
norðanverðum Vestfjörðum, í Ísa-
fjarðarsýslum, verði úrskurðuð
þjóðlendur. Þar undir falla meðal
annars hin bröttu fjöll Vestfjarða og
hálend svæði, Drangajökull og stór
svæði í Hornstrandafriðlandi.
Óbyggðanefnd áætlar að úrskurða
um þjóðlendur í Barðastrandar-
sýslum fyrir lok árs og á næsta ári í
Ísafjarðarsýslum. Þá eru eftir tvö
svæði á landinu. Áætlað er að taka
Austfirði fyrir í lok þessa árs og
svæði 12 sem eru eyjar og sker við
landið á næsta ári. Eftir að síðasti
úrskurður hefur verið kveðinn upp
verður hægt að ljúka störfum
óbyggðanefndar árið 2024. »14
Ljósmynd/Þráinn Hafsteinsson
Vestfirðir Ríkið gerir sínar kröfur.
Kröfur um
45 svæði
Starfi óbyggða-
nefndar lýkur senn