Morgunblaðið - 13.10.2020, Side 13

Morgunblaðið - 13.10.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020 Liverpool-borg á hæsta stig  Hertar sóttvarnaaðgerðir taka gildi á Englandi á morgun  Tæp 14.000 tilfelli Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, kynnti í gær nýjar og hertar sóttvarnaaðgerðir sem taka eiga gildi á Englandi á morgun. Verður landinu skipt upp í þrjú viðvörunarstig, miðlungs, hátt og mjög hátt, en aðgerðunum er ætlað að koma böndum á stóraukna fjölgun tilfella kórónu- veirunnar, en 13.972 ný tilfelli greindust á sunnu- daginn. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar ná bara til Eng- lands, en heimastjórnirnar í Wales, á Norður-Ír- landi og í Skotlandi hafa allar sett á hertar aðgerð- ir vegna faraldursins að undanförnu. Fyrst um sinn verður Liverpool-borg á allra hæsta viðvörunarstigi, sem þýðir að öllum krám, veðmálastofum, líkamsræktarstöðvum og spilavít- um verður lokað næstu daga. Þá verður óheimilt fyrir fólk sem býr ekki saman að hittast innandyra og í görðum í einkaeigu. 1,5 milljónir manns búa í Liverpool. Núgildandi takmarkanir verða áfram í gildi víð- ast hvar í Englandi, en nú eru samkomur fleiri en sex manns bannaðar um allt land. Þar sem hátt viðvörunarstig tekur gildi eru sömuleiðis tak- markanir á mannamót fólks sem deilir ekki íbúð. Johnson sagði í ræðu sinni í neðri deild breska þingsins að verslanir, skólar og háskólar fengu áfram að hafa opið þrátt fyrir takmarkanirnar. „Svona viljum við ekki lifa lífinu, en þetta er hið þrönga einstigi sem við þurfum að feta milli þess samfélagslega og efnahagslega áfalls sem myndi fylgja fullu útgöngubanni, og svo hinum gríðar- mikla kostnaði í mannslífum og reyndar líka í hag- kerfinu sem fylgir hömlulausum faraldri,“ sagði Johnson í ræðu sinni. Útilokaði hann að aftur yrði gripið til sömu aðgerða og í vor. Umdeildar innan Íhaldsflokksins Þá hét forsætisráðherrann því að um einum milljarði sterlingspunda yrði veitt í fjárhagsaðstoð fyrir sveitarfélög á Englandi til þess að stemma stigu við þeim kostnaði sem hlotist hefði af far- aldrinum, sem og við skimun og sóttrakningu. Aðgerðir Johnsons þykja umdeildar innan Íhaldsflokksins, en þar greinir þingmenn á um til hvaða aðgerða eigi að grípa. Þá hafa aðgerðir rík- isstjórnarinnar þótt óljósar og ruglingslegar. Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, viðraði sömuleiðis efasemdir sínar í gær, og sagð- ist óttast að Johnson og ríkisstjórnin væru alltaf nokkrum skrefum á eftir faraldrinum. Þá væri vafamál hvort aðgerðirnar nú dygðu. AFP Bann Þessir kráargestir í Liverpool hlýddu á ávarp Johnsons í gær, en krám verður lokað þar. Rússnesk stjórnvöld hvöttu í gær Armena og Asera til þess að hlíta þegar í stað skilmálum vopnahlés, sem samþykkt var í Moskvu á laug- ardaginn, og hætta átökum sínum í Nagornó-Karabak-héraði. Vopna- hléið hefur hins vegar ekki náð að halda, og hafa Armenar og Aserar sakað hvorir aðra um að rjúfa skil- mála þess. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í gær að Rússar væntu þess að báðar þjóðir myndu sjá til þess að vopnahléinu yrði sinnt. Sagðist Lavrov jafnframt trúa því að sú vinna sem fór í að fá vopnahléið samþykkti myndi ekki fara til spillis, og að hægt yrði að leysa deilurnar á skömmum tíma. Tyrkir þrýsta á Rússa Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði um helgina að hann hefði áhyggjur af þeim tíðindum að árásum hefði ekki verið hætt þrátt fyrir vopnahléið, en báðar þjóðir saka hina um að hafa ráðist að óbreyttum borgurum. Tyrkir, sem eru helstu banda- menn Asera, hafa lýst yfir stuðningi sínum við vopnahléið, en Hulusi Ak- ar, varnamálaráðherra Tyrklands, skoraði í gær á Rússa á að þrýsta á Armena um að þeir dragi sig frá Na- gornó-Karabak-héraði fyrir fullt og allt. Sagði Akar í símtali við Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rúss- lands, að Aserar myndu ekki bíða í 30 ár í viðbót eftir því að endur- heimta sín eigin yfirráðasvæði. Rússar eru með herstöð í Armeníu og ríkin tvö eru saman í hernaðar- bandalagi fyrrum Sovétlýðvelda. Rússnesk stjórnvöld hafa hins vegar ekki viljað styðja Armena og kröfur þeirra um yfirráð yfir Nagornó-Kar- abak. Virða ekki vopnahléið  Rússar hvetja báðar þjóðir til að leggja niður vopn AFP Nagornó-Karabak Ósprungið flug- skeyti á akri í nágrenni Stepan- akert, höfuðborgar héraðsins. Vitnaleiðslur hóf- ust í gær fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings um hæfi Amy Coney Barrett til þess að sitja sem dómari í Hæsta- rétti Bandaríkj- anna. Áætlað er að vitnaleiðsl- unum ljúki á fimmtudaginn, en þær eru undanfari þess að deildin í heild sinni geti greitt atkvæði með eða á móti skipun Barrett. Lindsey Graham, formaður nefndarinnar, sagðist hlakka til næstu daga og vonast til að banda- ríska þjóðin myndi fræðast meira um dómaraferil Barrett. Þá hrósaði hann Ruth Bader Ginsburg, sem lést í síðasta mánuði, og sagði að sæti hennar yrði „fyllt af annarri frá- bærri konu“. Dianne Feinstein, leiðtogi demó- krata í nefndinni, sagði hins vegar að ekki ætti að halda áfram með málið, þar sem skammt væri til kjördags, en Graham og aðrir repúblikanar vildu bíða með útnefningu Baracks Obama árið 2016, þar til ljóst væri hvor flokkurinn hefði hreppt Hvíta húsið. Einungis tveir af 53 þing- mönnum repúblikana hafa lýst sig andvíga því að fjallað sé um mál hennar, og er því talið líklegt að Barrett verði skipuð hæstaréttar- dómari í lok þessa mánaðar. Útnefning Barrett tekin fyrir Amy Coney Barrett  Vitnaleiðslum lýk- ur á fimmtudaginn Utanríkis- ráðherrar Evr- ópusambandsins sammæltust í gær um að setja viðskiptaþving- anir á nokkra rússneska emb- ættismenn vegna eitrunarmáls Alexei Navalní, en Frakkar og Þjóðverjar hafa sakað rússnesk stjórnvöld um að bera ábyrgð á því. Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, fagnaði samþykktinni og sagði hana skýrt merki um sam- stöðu sambandsríkjanna, en ekki var ljóst hversu margir eða hvaða stofnanir myndu verða fyrir refsi- aðgerðunum. Samþykkja refsiað- gerðir vegna Navalní RÚSSLAND Alexei Navalní Kínversk stjórnvöld hyggjast skima allar 9,4 milljónir íbúa hafnarborgarinnar Qingdao fyrir kórónuveirunni eftir að sex tilfelli greindust á sunnudaginn. Stefnt er að því að skimuninni verði lokið á föstudaginn, en þegar var búið að skima rúmlega 140.000 manns í gær. Seinni bylgja kórónuveirunnar hefur haft lítil áhrif á Kínverja og gripu margir þeirra tækifær- ið í síðustu viku til þess að ferðast innanlands. Rúmar níu milljónir í skimun eftir sex tilfelli AFP Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.