Morgunblaðið - 13.10.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020
Afstaða margra leikmanna
íslenskra knattspyrnuliða í efstu
deildum gagnvart því að halda
áfram keppni á Íslandsmótinu,
eða ekki, sem fjallað er um hér á
síðunni kemur engan veginn á
óvart.
Eins og staðan er á höfuð-
borgarsvæðinu þessa dagana er
lítið vit í því að reyna að spila
fótbolta, hvað þá að ferðast á
milli landshluta til þess.
Það eina rétta er að halda
að sér höndum, gera sitt besta
til að hefta útbreiðslu kórónu-
veirunnar og vonast til þess að
faraldurinn sé í rénun.
Hafi staðan gjörbreyst
næsta mánudag og allt horfi til
betri vegar er sjálfsagt mál að
gera það sem hægt er til að ljúka
Íslandsmótinu á eðlilegan hátt á
2-3 vikum.
En sem betur fer setti KSÍ
reglugerð til bráðabirgða í sumar
sem veitir sambandinu heimild
til að hætta keppni hvenær sem
er, héðan af, og þá mun hlutfalls-
staða liða í deildum verða endan-
leg lokastaða.
Sum félög myndu hagnast á
því, önnur ekki, en slíka ákvörð-
un þyrfti að taka með heildar-
hagsmuni allra að leiðarljósi. Þá
verður að horfa framhjá stund-
arhagsmunum einstakra félaga.
Undanúrslit og úrslitaleikir
eru eftir í bikarkeppni karla og
kvenna og eiga að fara fram á
fyrstu átta dögum nóvember.
Mögulegt væri að ljúka þeim ef
ástandið lagast, jafnvel þótt Ís-
landsmótinu væri hætt.
Bikarúrslitin má eftir sem
áður alltaf leika snemma á nýju
ári, eða þess vegna næsta vor.
Þau þarf ekki að útkljá til að fá
Evrópusæti á hreint fyrr en í lok
maí.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Töluvert verður
um forföll bæði
hjá Íslendingum
og Belgum þegar
liðin mætast í
Þjóðadeild
UEFA í knatt-
spyrnu á Laug-
ardalsvelli annað
kvöld.
Alfreð Finn-
bogason, Aron
Einar Gunnarsson og Ragnar Sig-
urðsson fóru af velli vegna meiðsla
í leiknum gegn Dönum, Kári Árna-
son sömuleiðis í leiknum gegn Rúm-
enum og þá glímir Arnór Sigurðs-
son við meiðsli og er ekki leikfær.
Til viðbótar eru Gylfi Þór Sigurðs-
son og Jóhann Berg Guðmundsson
farnir til Englands til að búa sig
undir leiki sinna liða í ensku úrvals-
deildinni.
Í gærkvöldi bárust þær fréttir að
ein stærsta stjarna Belga, Kevin De
Bruyne, væri kominn aftur til Man-
chester City og kemur því ekki til
Íslands. De Bruyne bað um skipt-
ingu í leiknum gegn Englandi á
sunnudag og er því tæpur vegna
meiðsla. Fyrr í gær kom fram að
varnarmaðurinn Jan Vertonghen
yrði ekki með. Þá má geta þess að
Belgar voru án Edens Hazard í
þessu verkefni þar sem hann var
ekki leikfær.
Forföll hjá
báðum liðum
á morgun
Gylfi Þór
Sigurðsson
ÍSLANDSMÓTIÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Tæplega helmingur leikmanna í úr-
valsdeild kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildinni, vill aflýsa tíma-
bilinu en þetta kom fram í könnun á
vegum Leikmannasamtaka Íslands.
Niðurstöður úr könnuninni voru
birtar í gær en 177 leikmenn úr
efstu deild kvenna tóku þátt í henni.
Þá vilja tæplega 40% þeirra sem
tóku þátt í könnuninni í efstu deild
karla aflýsa tímabilinu en alls tóku
197 leikmenn karlaliða þátt.
Knattspyrnusamband Íslands hef-
ur frestað öllum leikjum til og með
19. október vegna kórónuveirufarald-
ursins og þá mega lið á höfuðborg-
arsvæðinu ekki æfa vegna hertra
sóttvarnareglna.
Yfirlýst markmið KSÍ er að klára
tímabilið í öllum deildum en þrívegis
hefur þurft að gera hlé á keppni í
efstu deildum karla og kvenna í sum-
ar vegna kórónuveirunnar.
Bæði kostir og gallar
„Það er engin fullkomin lausn á
þessu ástandi sem hér ríkir,“ sagði
Almarr Ormarsson, fyrirliði KA, í
samtali við Morgunblaðið, en KA
siglir lygnan sjó í Pepsi Max-deild
karla í sjöunda sætinu með 21 stig.
„Í mínum huga eru kostir og gall-
ar við þá tvo möguleika sem standa
okkur til boða. Það er hægt að slaufa
mótinu en á sama tíma verður fullt
af liðum mjög ósátt með þá niður-
stöðu. KR og Fylkir eru í Evrópu-
baráttu í úrvalsdeildinni og í 1. deild-
inni yrðu Fram, Leiknir frá
Fáskrúðsfirði og Magni eflaust mjög
ósátt. Kvennamegin yrðu þau lið
sem féllu á þennan hátt eflaust líka
brjáluð.
Eins og ég skil þetta var ákveðið
að það væri einn möguleiki í stöð-
unni, að slaufa mótinu ef allt fer á
versta veg. Það þarf að sjálfsögðu að
skoða þennan möguleika og hvort
það sé rétta lausnin.
Svo er auðvitað bara hinn kost-
urinn að bíða og sjá hvað verður.
Þetta er erfitt fyrir alla því það er
svo hrikalega mikil óvissa í gangi.
Liðin fyrir sunnan mega ekki æfa á
meðan við megum æfa en það er
virkilega óþægilegt fyrir okkur leik-
mennina að vita ekkert hvenær verð-
ur byrjað aftur að spila eða hvenær
liðin fyrir sunnan mega byrja að æfa
aftur.
Erum við að tala um að mótið sé
að fara að klárast um miðjan nóv-
ember eða lok nóvember?“
Tekur á hausinn
Almarr bendir á að það sé erfiðara
fyrir íslenskt knattspyrnufólk að ein-
angra sig eins og kollegar þess er-
lendis geta gert.
„Mér finnst allt of seint að klára
mótið í desember. Við erum vön því
að vera í fríi í október. Sum lið byrja
svo að æfa aftur í nóvember en við
sáum strax fram á að æfingum yrði
seinkað eitthvað vegna kórónuveiru-
faraldursins.
Núna er sá möguleiki fyrir hendi
að við munum spila út nóvember og
eftir allt sem á hefur gengið á árinu
verður það erfitt fyrir alla. Undir-
búningstímabilið varð nánast að
engu, við fengum smá pásu um mitt
mót, og svo er aftur pása núna.
Það er verið að teygja endalaust á
þessu sem er erfitt. Þetta er heldur
ekki eins og í atvinnumannadeild-
unum erlendis þar sem hægt er að
fara fram á að fólk einangri sig þar
sem þetta er þess vinna.
Á Íslandi eru langflestir leikmenn
í skóla eða vinnu og með fjölskyldur.
Vissulega fá flestir greitt fyrir þetta
karlamegin í efstu deild en stelp-
urnar fá ekki mikið greitt. Þetta eru
ekki háar upphæðir í neðri deild-
unum og það er því erfitt að ætla að
fara fram á það við fólk að vera að
spila fram í desember.
Þetta getur raskað svo miklu hjá
leikmönnum, vinnu, skóla sem og
fjölskyldulífi. Það er kannski kjána-
legt að segja þetta en þetta tekur al-
veg á hausinn hjá manni líka.“
Almarr viðurkennir að menn séu
ekki í rónni vegna faraldursins.
„Ef við ættum að fara og spila fyr-
ir sunnan núna þá væri maður
stressaður. Það hefur ýmislegt verið
gert til þess að minnka líkur á smiti
eins og til dæmis að skipta klefunum
upp og annað í þeim dúr.
Að sama skapi hafa engar auka-
skimanir átt sér stað á leikmönnum
né starfsfólki. Það þarf því að hafa
allan varann á þegar það verður
byrjað að spila á ný í næstu nið-
ursveiflu, hvenær svo sem það verð-
ur því auðvitað er maður sjálfur
stressaður fyrir þessari blessuðu
veiru eins og aðrir,“ sagði Almarr.
Misjafnt flækjustig
Dagný Brynjarsdóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu og leikmaður
Selfoss, er ein af þeim sem vilja
klára tímabilið.
„Mér finnst gaman að spila og æfa
fótbolta þannig að ég vil að sjálf-
sögðu klára tímabilið,“ sagði Dagný
við Morgunblaðið en Selfoss er í
þriðja sæti Pepsi Max-deildar
kvenna með 22 stig.
„Fyrir þá leikmenn sem eiga að
spila landsleiki í lok nóvember og
byrjun desember þá hentar það okk-
ur mjög vel að spila í nóvember, upp
á leikform að gera.
Fyrir þá sem eru í vinnu og skóla
er flækjustigið orðið aðeins meira
núna þar sem að það er ekki hægt
að samtvinna fótboltann með sum-
arfríinu lengur en ef það er horft til
helganna ætti þetta að vera auðveld-
ara fyrir þá.“
Dagný viðurkennir að það væri
svekkjandi fyrir liðin í neðstu sætum
úrvalsdeildar kvenna ef tímabilinu
yrði aflýst á þessum tímapunkti.
„Mér finnst of langt gengið að tala
um að það væri ósanngjarnt að af-
lýsa tímabilinu því við höfum enga
stjórn á þeim aðstæðum sem eru í
þjóðfélaginu í dag. Stundum þarf að
fara erfiðu leiðina ef ekkert annað er
í boði.
Að sama skapi væri hundfúlt að
vera í þeim liðum sem eru neðst á
töflunni núna, ef ákveðið verður að
slaufa mótinu, því vissulega geta
bæði liðin enn þá bjargað sér og því
sanngjarnast að klára mótið“
Mikið púsluspil
Dagný stundar nám í heilsuþjálfun
og kennslu í HR, ásamt því að kenna
í grunnskólanum á Laugarvatni.
„Ég er í mastersnámi í Háskól-
anum í Reykjavík og hluti af náminu
er að kenna líka í grunnskólanum í
Bláskógaskóla á Laugarvatni. Ég er
mamma líka og í fótbolta þannig að
það er nóg að gera hjá mér og mikið
púsluspil en ég á góða að sem er allt-
af hægt að treysta á með aðstoð.
Ég hef líka fengið góðar und-
anþágur frá vinnu og námi þegar við
erum að spila leiki á virkum dögum
en á sama tíma þarf maður að vera
bæði vel skipulagður og andlega gír-
aður í verkefnin sem fram undan
eru.“
Landsliðskonan viðurkennir að
henni standi ekki á sama um kór-
ónuveiruna.
„Ég er alveg smeyk við að smitast
því ég vil alls ekki fá þessa veiru. Í
fyrsta lagi veit maður ekkert hvaða
afleiðingar þetta getur haft á mann
til lengri tíma litið og eins vil ég ekki
að fólkið í kringum mig sem er í
ákveðnum áhættuhópi fái þetta.
Ég reyni að passa mig eins og ég
get og í þessari bylgju hef ég vanið
mig á það að vera með grímu á mér
við nánast allar æfingar, nema þegar
að ég sæki son minn á leikskólann
og á æfingum,“ sagði Dagný.
Með sanngirni að leiðarljósi
Guðni Bergsson, formaður KSÍ,
segir að stefna KSÍ sé mjög skýr og
hún sé að klára tímabilið.
„Það er stutt í að við munum til-
kynna okkar áform um hvernig við
hyggjumst klára tímabilið,“ sagði
Guðni við Morgunblaðið.
„Við höfum rætt við bæði félögin
og Íslenskan toppfótbolta (ÍTF) um
framhald mótsins og annað í þeim
dúr. Þrátt fyrir þá stöðu sem uppi er
í þjóðfélaginu tel ég vera almennan
vilja fyrir því hjá félögunum að klára
mótið. Það er ákveðin sanngirni fólg-
in í því að úrslit þess ráðist með eðli-
legum hætti á knattspyrnuvellinum.
Markmið KSÍ eins og staðan er í
dag er að sjálfsögðu að klára mótið
og við horfum til þess að ná því
markmiði.“
Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir
mörg lið í öllum deildum sem eru
annaðhvort í baráttum um Evr-
ópusæti eða fall og hafa forráðamenn
þessara liða verið í sambandi við
Guðna undanfarnar vikur.
Ásættanleg lausn fyrir alla
„Við höfum fengið viðbrögð frá
mörgum, bæði frá liðum þar sem
mikið er undir og líka þar sem lítið
er undir.
Það veltur aðeins á stöðu liðanna
hver þeirra skoðun er á því hvort
klára eigið mótið eða ekki. Við reyn-
um að finna lausn sem er ásættanleg
og gerleg í núverandi stöðu.
Við bindum vonir við að þriðja
bylgja kórónuveirufaraldursins sé í
rénun en hlutverk okkar er að sjálf-
sögðu að finna lausn sem er ásætt-
anlegust fyrir heildina og að sem
flestir leikir geti farið fram. Við er-
um í algjörlega óþekktum aðstæðum
og erum að reyna vinna sem best úr
því eins og við mögulega getum.“
Guðni á ekki von á því að spilað
verði í desember en segir mikilvægt
að allir rói í sömu átt.
„1. desember er sú dagsetning
sem við erum að miða við og það
verði ekki spilað eftir þann dag.
Við viljum klára mótið mun fyrr ef
það er í boði en það er alveg ljóst að
við erum að fara teygja okkur eitt-
hvað inn í nóvember með mótið í
efstu deild. Vonandi náum við hins
vegar að klára aðrar deildir fyrr.
Það er samt alveg ljóst að við get-
um ekki haldið áfram út í hið óend-
anlega en að sama skapi tel ég mik-
ilvægt að allir leggi sitt að mörkum
til þess að klára Íslandsmótið 2020,“
sagði Guðni við Morgunblaðið.
Engin fullkomin lausn
Skiptar skoðanir um hvort ljúka eigi Íslandsmótinu í fótbolta eða hætta
keppni vegna kórónuveirunnar Guðni segir KSÍ stefna alfarið á að spila til loka
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Óvissa Almarr Ormarsson segir skiljanlegt að leikmenn séu á báðum áttum
varðandi framhaldið á Íslandsmótinu og hvort því verði lokið.
Morgunblaðið/Eggert
Púsluspil Dagný Brynjarsdóttir vonast eftir því að hægt verði að ljúka
mótinu, ekki síst vegna landsliðsins sem spilar í lok nóvember.