Morgunblaðið - 13.10.2020, Page 24

Morgunblaðið - 13.10.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020 NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Við komum víða við í ár, heimsækjum fjölda fólks og verðummeð fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa. Kemur út 26. 11. 2020 Morgunblaðsins Jólablað Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Samtöl við vini og fjölskyldu- meðlimi ganga ekki sem skyldi í dag. Hug- myndir þeirra munu gera það að verkum að þú ferð að hlusta betur á sjónarmið annarra. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú mátt búast við því að heimili þitt og fjölskylda þurfi meiri athygli en ella. Vinur vill láta óánægju sína í ljós en bentu honum á að fara varlega. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þeir hlutir sem þú hefur látið þig dreyma um svo lengi eru ekki eins fjar- lægir og þú vilt vera láta. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú getur ekki ætlast til þess að aðrir viti hvað þú hugsar ef þú þegir, fólk les ekki hugsanir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Munið að hvatning er betra veganesti en aðfinnslur. Settu þér skýr markmið og treystu því síðan að tekjur úr nýrri átt hjálpi til við að flýta ferlinu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ættir að nota daginn til að taka skref í ástamálunum. Gefðu þér góðan tíma til þess að velja og hafna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það getur verið varasamt að fara um ókunnar slóðir án nokkurs undirbúnings. Mundu að ekki hafa allir sömu skoðanir á hlutunum og það ber líka að virða. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er ekki mikill tími til stefnu svo þú verður að hraða þér ef þú ætlar að ljúka verkefnunum í tæka tíð. Láttu sköpunarhæfileika þína leiða þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Leyfðu sköpunargáfu þinni að fá útrás. Best væri ef þú gætir látið að- finnslursem vind um eyru þjóta. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ekki láta fjarlægðina draga úr þér með að hafa samband við gamlan vin eða vandamann. Ef þú helgar þig göfugum málstað tekst þér að ná þínum metnaðar- fyllstu takmörkum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hógværð er góður kostur en þú mátt samt ekki láta fólk misnota góð- vild þína. Ekki gleyma að setja þitt eigið nafn á lista yfir þá sem þú vilt veita að- stoð. 19. feb. - 20. mars Fiskar Að treysta einhverjum sem maður þekkir varla er hluti af ævintýri dagsins í dag. Allir hafa gott af smátilbreytingu. ehf. Kristinn stofnaði ásamt Lög- mönnum Hafnarfirði Ráðgjafastofuna ehf. og Bókhaldsstofuna ehf. og rak til ársins 2002. Þá fór hann inn í fjöl- skyldufyrirtækið Ris, þar til hann fór að starfa sjálfstætt í ráðgjafarfyrir- tæki sínu Kjöri ehf. ásamt því að starfa sem deildarstjóri skrifstofu VHE ehf. þar sem hann hefur starfað síðan. Kristinn hefur einnig gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir Frí- Skotlands þar sem Kristinn starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Eiderknit UK Ltd, dótturfyrirtæki Hildu hf. Þar lék hann einnig körfubolta með syni sínum, Jörundi, og urðu þeir skoskir þriðjudeildarmeistarar árið 1991. Fjölskyldan flutti aftur heim sama ár og Kristinn varð skrifstofu- og fjármálastjóri hjá Byggðaverki ehf. fram til ársins 1995 þegar hann stofnaði ráðgjafarfyrirtækið Kjör K ristinn Jörundsson fæddist 13.10. 1950 á sjúkrahúsinu í Vest- mannaeyjum, en fjöl- skyldan bjó lengst af í Álfheimum og síðar í Garðabæ. Krist- inn var í Langholtsskóla frá átta ára aldri og tók landspróf í Vogaskóla 1966. Hann var í fyrsta árgangi MH og útskrifaðist 1970 og lauk viðskipta- fræði frá HÍ árið 1974. „Ég var í sveit hjá frábæru fólki á Viðivöllum Fremri í Fljótsdal í Norð- ur-Múlasýslu frá 1958-63 og ég hef búið að þessum tíma alla ævi.“ Átta ára gamall byrjaði Kristinn að æfa körfubolta hjá ÍR undir hand- leiðslu Einars Ólafssonar, sem var íþróttakennari hans við Langholts- skóla, en eiginkona Einars, Guðfinna Kristjánsdóttir, var aðalkennari hans í barnaskólanum. Kristinn varð strax öflugur liðsmaður í körfunni og vann ýmsa titla í yngri flokkunum. Hann spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki haustið 1968 og þeir urðu Íslands- meistarar sjö sinnum næstu níu árin, en Kristinn var fyrirliði lengst af þeim tíma. Kristinn var með meistaraflokki ÍR allt til ársins 1989 fyrir utan eitt ár sem hann þjálfaði og spilaði með Íþróttafélagi stúdenta. Meðan Kristinn var að mennta sig vann hann ýmis störf á sumrin, var í gatnagerð, var öskukarl, í bygginga- vinnu, í frystihúsi, hjá Ríkisendur- skoðun og eitt sumar í húsgagna- verslun og smíðastofu á Húsavík sem hann notaði líka til að þjálfa fótbolta hjá Völsungi og spilaði með þeim í 2. deild það sumar. „Síðasta árið í viðskiptafræðinni vann ég í hlutastarfi í hagdeild Lands- banka Íslands og byrjaði þar síðan í fullu starfi þegar ég útskrifaðist úr Háskólanum og vann þar til ársins 1983 að ég varð skrifstofu- og fjár- málastjóri hjá Hildu hf.“ Kristinn fór á námskeið til Bandaríkjanna í tvo mánuði á vegum bankans og nýtti tím- ann líka til að spila fótbolta með liði í New Jersey. „Maður þurfti að standa í röð og sanna tilvist sína og sýna til- skilin leyfi áður en hver leikur hófst.“ Liðið vann deildina svo Kristinn er líka deildarmeistari í Bandaríkjunum. Árið 1989 fluttist fjölskyldan til múrararegluna frá árinu 1999. Ferill Kristins í íþróttum er ótrú- legur því hann spilaði 79 landsleiki í körfubolta á árunum 1970-81 og var oft fyrirliði liðsins. Hann hefur verið valinn körfuboltamaður ársins þrisv- ar og tvisvar besti leikmaður úrvals- deildarinnar. Einnig hefur Kristinn haldið merki körfuboltans á loft og miðlað til yngri kynslóða, en hann hefur þjálfað bæði yngri flokka og Kristinn Jörundsson, viðskiptafræðingur og íþróttamaður – 70 ára Hjónin Kristinn og Steinunn í ferð í Jerúsalem með Frímúrurum, en Kristinn varð Frímúrari árið 1999. 81 landsleikur í tveimur greinum Fótbolti Kristinn að skora fjórða markið í 5-2 sigri Fram á ÍBA. Körfubolti Kristinn lék 79 landsleiki í körfubolta. Til hamingju með daginn Reykjavík Drengur Einarsson fæddist á Landspítalanum 29. september 2920. Hann vó 3.290 g og var 51 cm að lengd. Foreldrar hans eru Björg Brynjarsdóttir og Einar Sigurðsson. Nýr borgari 30 ára Björg ólst upp bæði í Reykjavík og í Vestmannaeyjum en býr núna í Reykjavík. Björg er verkfræðingur og hefur bæði starfað hjá ISAVIA og í eigin fyrirtæki, en er núna í barnsburðarleyfi. Björg hefur mikinn áhuga á matreiðslu og svo allri útiveru og samveru með fjölskyldunni. Maki: Einar Sigurðsson, f. 1991, verk- fræðingur hjá Norðuráli. Barn: Drengur Einarsson, f. 2020. Foreldrar: Ester Hafsteinsdóttir, f. 1961, lífeindafræðingur hjá Teva Pharma í Hafnarfirði, og Sigurgeir Brynjar Krist- geirsson, f. 1960, framkvæmdastjóri í vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Björg Brynjarsdóttir 40 ára Dagbjört Erla ólst upp í Breiðholtinu og býr enn í Reykjavík. Hún er yfirlögfræð- ingur fasteignafélags- ins Regins hf. Dag- björt Erla hefur mikinn áhuga á ferðalögum og svo allri útivist og íþróttum. Hún fer mikið á skíði, hefur gaman af því að veiða og svo stundar hún sjósund. Maki: Ásgeir Einarsson, f. 1978, eigandi og framkvæmdastjóri Egils Árnasonar og Harðviðarvals. Synir: Einar Orri, f. 2009, og Ásgeir Smári, f. 2010. Foreldrar: Einar E. Guðmundsson, f. 1950, viðskiptafræðingur og Jóna Gunn- arsdóttir, f. 1948, kennari. Dagbjört Erla Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.