Morgunblaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Verð kr. 1990 NETVERSLUN gina.is Sími 588 8050. - vertu vinur Bílar Nýir 2020 Mitsubishi Outlander Hybrid. Flottasta typa með öllum búnaði. Listaverð 6.690.000,- Okkar verð er 800.000 lægra eða 5.890.000,- Til sýnis á staðnum í nokkrum litum. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com á- og raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnu- stofa kl. 9-12. Handavinnuhópur kl. 12-16. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni. Allir vel- komnir. Það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa, sími 411-2600. Boðinn Félagsstarf er lokað, einungis opið í hádegismat í Boðanum. Bústaðakirkja Ekkert félagsstarf fyrir eldri borgara verður í Bústaða- kirkju í október vegna covid-19. Guð blessi ykkur öll og við sjáumst hress þegar að öllu er óhætt. Hólmfríður djákni. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Thai chi kl. 9. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Minnum á grímuskyldu í félagsmiðstöðinni. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upp- lýsingar i síma 411-2790. Garðabær Kæru gestir, íþrótta- og félagsstarfið okkar er lokað tíma- bundið en Jónshús er opið með fjöldatakmarkanir sem er 20 manns í rými. Minnum á grímuskyldu í Jónshúsi og muna að halda áfram upp á 2 metra regluna. Tilkynningar um breytingar koma líka fram á face- booksíðu okkar https: //www.facebook.com/eldriborgararfelagsstarf- gardabaer Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Hjúkrunarfræðingur kl. 10.30 Hádegismatur kl. 11.30. Jóga kl. 14.30–15.30. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Gönguferð kl. 13.30. Korpúlfar Frjáls listmálun kl. 9 í Borgum, spjallhópur kl. 13 í Borgum. Virðum sóttvarnir, sýnum samstöðu og styðjum hvert annað. Helgi- stund, leikfimi og sundleikfimi fellur niður vegna Covid. Opið í Borg- um frá kl. 8 til 16, minnum á grímskyldu og sprittvarnir. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er hópþjálfun með sjúkraþjálfara í setustofu 2. hæðar kl. 10.15-11. Bókband verður í smiðju 1. hæðar kl. 13-17. Eftir hádegi verður einnig söngstund með píanóleik kl. 13.30- 14.30. Við minnum á að grímuskylda ríkir í félagsmiðstöðinni og því verða allir að mæta með grímu í dagskrárliði. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59! Seltjarnarnes Ath. engin vatnsleikfimi í dag vegna lokunar sund- staða. Ef viðrar fyrir útiveru þá púttum við á vellinum við Skólabraut kl. 10.30. Að öðru leyti verður engin dagskrá á vegum félagsstarfsins í dag. Þeir sem eiga leið um félagsaðstöðuna eru minntir á almennar sóttvarnir, sprittun og grímuskyldu. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka- bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. ✝ GuðmundaStefánsdóttir fæddist í Skipanesi í Leirársveit 20. október 1926. Hún lést á dvalarheim- ilinu Höfða á Akranesi 4. októ- ber 2020. Hún var dóttir Guðríðar Ólafíu Jóhanns- dóttur ljósmóður, f. 13.6. 1888, d. 21.3. 1947, og Stefáns Ólafs Jónassonar bónda, f. 18.5. 1884, d. 11.6. 1927. Systkini hennar voru Jónas, f. 1909, Jó- hann, f. 1912, Þorsteinn, f. 1914, og Guðlaug, f. 1918, en öll eru þau látin. Guðmunda giftist hinn 14. desember 1946 Magnúsi Magn- ússyni skipasmið, f. 18.2. 1909, d. 12.10. 1999, frá Söndum á Akranesi. Börn þeirra eru: 1) Magnús, f. 31.7. 1948. Sam- býliskona hans er Halla Bergs- dóttir, f. 20.4. 1948. Magnús á tvær dætur með Margréti Markúsdóttur, Berglindi, f. 1976, gift Jónasi Ríkharð Jóns- syni, f. 1975, eiga þau þrjú börn, og Þóru, f. 1980, gift Birni Inga Björnssyni, f. 1974, eiga þau þrjá syni. 2) Guð- munda Magnea, f. 30.8. 1950, gift Sæmundi Hafsteini Jóhannessyni, f. 28.12. 1950, d. 12.2. 2018. Þau eignuðust þrjú börn, Magnús Orra, f. 1974, kvæntur Guðrúnu Gísladóttur, f. 1979, eiga þau þrjú börn, Jó- hönnu Friðriku, f. 1980, á hún einn son, og Guðmund Óla, f. 1987, d. 1988. 3) Guðríður Ólafía, f. 13.1. 1955. Munda, eins og hún var allt- af kölluð, ólst upp í Skipanesi en flutti á Akranes á 15. ári. Þar starfaði hún m.a. í fisk- verkun, á saumastofu og í mat- arbúð. Eftir að börnin fæddust var hún heimavinnandi hús- móðir á Krókatúni 6 og bjó þar þangað til hún flutti á Höfða 2016. Hún hafði yndi af alls konar hannyrðum, prjónaði m.a. lopapeysur í áratugi. Útförin fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 13. október 2020, klukkan 13. Vegna að- stæðna í þjóðfélaginu geta að- eins nánustu ættingjar og vinir verið viðstaddir útförina. Munda tók mér opnum örm- um í orðsins fyllstu merkingu þegar ég kom inn í fjölskylduna fyrir rúmlega tuttugu árum þeg- ar ég kynntist Magga syni henn- ar. Einmitt þess vegna hafa síð- ustu mánuðir verið ákaflega erfiðir með öllum þeim varúðar- reglum og fjarlægðartakmörk- unum sem gilda í dag. Að geta ekki faðmað Mundu eins og allt- af þegar við hittumst. Munda ólst upp í sveit með foreldrum sínum og fjórum systkinum en faðir hennar féll frá þegar hún var á fyrsta árinu. Síðan lést bróðir hennar Jónas aðeins tuttugu og fjögurra ára að aldri. Þetta hefur verið mikil og erfið lífsbarátta fyrir fjölskyld- una þessi ár í sveitinni. En móðir Mundu var ljósmóðir og hefur það haft mikið að segja þegar þurfti að framfleyta fjölskyld- unni. Þegar Munda er á fimmtánda ári flytur móðir hennar á Akra- nes. Þar vinnur Munda ýmis störf; í verslun, við fiskvinnslu og saumaskap, en eftir að hún gift- ist var hún heimavinnandi hús- móðir. Samhliða heimilisstörfun- um fór hún að prjóna lopapeysur og það má með sanni segja að henni féll ekki verk úr hendi. Síðan þurfti að koma peysunum í búðir og fór hún því fyrstu árin með vinkonum sínum með Akra- borginni til Reykjavíkur. Þegar erindinu var lokið fengu þær sér kaffi á Hressó. Fann ég að þess- ar ferðir höfðu verið hin besta skemmtun. Munda saumaði líka út og sagðist alveg gleyma sér því þetta þætti sér svo skemmti- legt. Nú er mikið talað um núvit- und og er ég sannfærð um að út- saumurinn var hennar núvitundarstund. Munda var skipulögð í heim- ilishaldi. Keypt var í matinn einu sinni í viku og spurningin hvað á að vera í matinn var ekki vanda- mál eða að það vantaði eitthvað. Allt var til reiðu og enginn flýtir á neinu. Alltaf tími til að fá sér kaffi í rólegheitum eftir matinn eða kvöldkaffi. Þegar fyrsti bíllinn kom til sögunnar var farið í bíltúra og naut Munda þess að skoða sig um. Munda hafði líka mjög gam- an af veiðiskap, í sveitinni hafði hún vitjað um net í fjörunni og þótt leiðin væri nokkuð löng var spennandi að fylgjast með hvað hafði komið í netin. Einnig sagði hún oft frá því að hún hefði veitt í læk einum í nágrenninu. Hún fór í veiðiferðir með Magnúsi manni sínum og einnig með tengdasyni og fjölskyldunni í Vatnsá og veiddi þar maríulax- inn sinn um áttrætt. Svo var far- ið í berjamó og tínt af kappi, síð- an var unnin úr berjunum saft og notað í ýmsa matargerð svo sem súpu og grauta. Svo var ræktað margs konar grænmeti sem sumt þurfti líka að forrækta með mikilli natni. Síðustu fjögur árin dvaldi Munda á dvalarheimilinu Höfða. Munda var alsæl á Höfða; tók þátt í ýmsu starfi sem þar var í boði svo sem handavinnu, göngu- ferðum, líkamsrækt og fleira. Í hvert skipti sem ég kom á Höfða hafði hún orð á því hve dásam- legt allt starfsfólkið væri. Já, það er margs að minnast þegar litið er yfir farinn veg en það sem er mér efst í huga er hlýjan sem ég fann alltaf fyrir og yljar mér nú í hvert skipti sem ég hugsa um elsku Mundu. Halla Bergsdóttir. Það voru ófá skrefin sem ég tók upp stigann til ömmu í æsku og alltaf tók hún svo vel á móti mér. Ég tengdist henni strax til- finningaböndum og sat mikið hjá henni í prjónaherberginu í spjalli um allt milli himins og jarðar. Eftir skilnað foreldra minna var ég oft uppi hjá ömmu á pabba- helgunum sökum sterkra banda okkar á milli. Ég fór aldrei að sofa fyrr en ég hafði farið upp og kysst hana góða nótt. Með ryk í augunum og hlýju í hjarta minn- ist ég þess að vera ævinlega heppin með ömmu. Hún var alltaf svo glöð að heyra í mér og hún sparaði ekki orðin þegar ég tilkynnti komu mína í heimsókn með fjölskyld- una, en það var alltaf glatt á hjalla þegar við mættum í helg- arheimsókn upp á Skaga, afi á neðri hæðinni og langamma á efri hæðinni, börnin sérstaklega glöð með þessa dekurferð til langömmu sem var fljót að hlaupa upp til handa og fóta að baka og græja allskyns kræsing- ar fyrir komu okkar. Við fundum mikið fyrir væntumþykju hennar og hlýju. Amma var ekki mikið fyrir ævintýramennsku og naut sín best heima við prjónaskap og út- saum ásamt því að hitta ástvini sína, sérstaklega í seinni tíð. Hún var hörkudugleg prjóna- maskína sem gleymdi sér iðulega við lopapeysurnar og síðan síð- ustu árin mikið við útsaum. Hún sagði að prjónninn hefði svo góð og róandi áhrif á sig. Ég mun sakna þess að vita ekki af henni á Höfða þar sem henni leið langbest síðustu ár og var hún endalaust ánægð með þjónustuna, ég held jafnvel að hún hafi verið búin að tryggja pláss fyrir mig í ellinni, því þarna skyldi ég einnig vera, hjá þessu dásemdarfólki sem hugs- aði svo vel um hana. „Þú finnur hvergi betra fólk en hérna á Höfða,“ sagði hún oft við mig orðrétt, sem segir allt um dvöl hennar þar. Ég veit að ömmu líður vel núna hjá afa, hann er eflaust bú- inn að bíða eftir henni í nokkurn tíma svo það er gott að vita af þeim saman í englaheiminum. Amma, ég mun alltaf sakna þín og þú ert í hjarta mínu um alla ævi. Þín Berglind. Guðmunda Stefánsdóttir Öllu er afmarkað- ur tími og tími okk- ar mömmu er liðinn. Það er margs að minnast og margt að þakka fyrir kærleikann og umhyggjuna fyrir börnum mínum og maka, sem er ómetanlegt og dýrmætar minn- ingar að ylja sér við. Ég er þakk- lát fyrir að hafa geta grátið örlög þín og móðurmissinn í þínum faðmi, það er ekki sjálfgefið að fá huggun mömmu sinnar í þeim kringumstæðum og hjálp til sátt- ar við það sem var óumflýjanlegt. Hún ætlaði svo sannarlega að eyða sumrinu í annað en að liggja sárþjáð. Stórafmæli, útskriftir, fæðing, utanlandsferð og fleira spennandi var á dagskránni. Þeim mun þéttari sem dagskráin var með uppákomum því ham- ingjusamari var hún mamma. Ávallt reiðubúin með tækifær- iskort og gjafir og tilbúin að gleðjast með vinum og vanda- mönnum. Hún var mörgum kostum búin hún mamma, samviskusöm, vandvirk, fyndin, glaðvær, skap- andi, traust vinum sínum og ákaf- lega fróðleiksfús. Listakokkur og bakari, handavinnu sinnti hún af vandvirkni. Það er stórt skarð Helen Þorkelsson ✝ Helen Þorkels-son fæddist 4. júlí 1940. Hún lést 29. september 2020. Útför hennar fór fram 12. október 2020. fyrir skildi og mikið er tómlegt hér í Víðilundinum þar sem hún bjó og henni leið svo vel. Ég þakka fyrir sam- fylgdina, elsku hjartans mamma mín, blessuð sé minning þín. „Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg. Þar ríkir fegurðin ein ofar hverri kröfu.“ – Heimsljós – Fegurð himinsins (Halldór Laxness.) Þín dóttir, Halla Björgvinsdóttir Þorkelsson. Ástkær móðir mín er farin í sumarlandið góða að hitta horfna ástvini sína. Þar verða fagnaðar- fundir. Að trúa á líf eftir þetta líf er gott. Góður guð tekur vel á móti mömmu minni. Hún var ótrúlega skemmtileg, lífsglöð og jákvæð. Ef eitthvað var erfitt eða leiðinlegt þá fann hún það já- kvæða og það góða í öllu. Hún var mikil félagsvera og átti erfitt með að vera kyrr og flögraði um eins og fiðrildi. Alltaf vinnandi í mörg- um áhugamálum; spilamennsku, prjónaklúbbi, dansi, í matarboð- um, prjónandi, málhress, skap- andi í listum, námskeiðum og margt fleira. Mamma mín var líka vinur minn, hún var lítið eldri en ég. Við áttum margar sam- verustundir, til dæmis talaði hún oft um litlu skólasystkinin sín. Gat rakið ættir fólks, hún var mannglögg, ættfróð og hafði mikla frásagnargleði. Upplifði ég hennar æsku og æskuvini eins og ég þekkti þau. Þetta voru skemmtilegar stundir sem hún sagði alltaf fallega frá og þá var nú gaman. En hún átti sína drauma, vonir og þrár. Það eru alltaf tvær hliðar, en hún kaus alltaf þá góðu. Takk fyrir að vera mamma mín og amma barna minna og langaló. Guð geymi þig. Ef vér lifum, lifum vér drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér drottni. Hvort sem þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér drottins. (Róm 14:8) Þín dóttir, Erla Björg Þorkelsson. Elsku mamma mín. Þú fylltir hjarta mitt af litum og listsköpun. Þú kenndir mér svo mikið og margt mikilvægt í gegn um líf okkar saman og langar mig að nefna víðsýni og hjálpsemi. Allar sögurnar þínar í ljóðum og myndum lýsa nú okkur í hjart- anu. Ég bið þess nú að þið sonur minn og ömmubarn þitt, hann Blængur Mikael Bogason, fáið ykkar langþráða faðmlag á bak við hlið regnbogans. Það er þungbært að kveðja þig. Hæfileikar þínir svo margir, alla tíð varstu full af drifkrafti og dugnaði. Ég minnist hæfileika þinna í matreiðslu, bakstri, leirlist, gler- list, ritlist og prjónaskap. Þú varst stór persónuleiki, vinmörg, bænheit og trúuð. Þú snertir líf margra með hjálpsemi þinni. Þú varst víðlesin og hafðir gaman af nýjungum. Mikill húmoristi, prakkari og tókst jafnvel að þér hlutverk skemmtikrafts. Skemmtileg, góð, natin og um- vefjandi amma. Þakka þér fyrir lífið sem þú gafst. Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, eintómt sólskin, bjart og jafnt. Þó að dimmi að með daga kalda og skamma, dagar þínir verða ljósir allir samt. Litlu blómin, sem þig langar til að kaupa, skal ég lita hér á teikniblaðið mitt. Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, svo alltaf skíni sól í húsið þitt. Óskaðu þér mamma, alls sem þú vilt fá, ennþá á ég liti, til hvers sem verða má. Allar heimsins stjörnur og ævintýrafjöll óskaðu þér mamma svo lita ég þau öll. Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, eintómt sólskin, bjart og jafnt. Þó að dimmi að með daga kalda og skamma, dagar þínir verða ljósir allir samt. Litlu blómin, sem þig langar til að kaupa, skal ég lita hér á teikniblaðið mitt. Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, svo alltaf skíni sól í húsið þitt. (Þýð. Hinrik Bjarnason) Þín Emma Agneta Björgvins- dóttir og Sigtryggur Kristófer Kjartansson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.