Morgunblaðið - 13.10.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 13.10.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið HÁTT HITAÞOL „ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÉG VÆRI UPPTEKINN!” „UPP OG TIL VINSTRI.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita að hann styður við bakið á þér. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KETTIR FINNA Á SÉR ÞEGAR VANDRÆÐI ERU Í NÁND OG HÉR NÁLGAST ÞAU (PSST … HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞESSA HEFÐ AÐ BUGTA SIG SVONA OG BEYGJA?) (HANN ER KOMINN AF MJÖG LÁGVÖXNUM KONUNGUM!) meistaraflokk kvenna og karla í ÍR, auk þess að þjálfa meistaraflokk Fram og ÍS. Það eru ekki margir íþróttamenn sem komast í fremstu víglínu í tveimur íþróttagreinum, en Kristinn er einn af þeim. Hann æfði fótbolta með Fram á sumrin eftir að hann hætti í sveit fjórtán ára og spil- aði sinn fyrsta meistaraflokksleik vor- ið 1970. Með Fram varð hann Íslands- meistari 1972 og bikarmeistari þrisvar. Kristinn spilaði 208 leiki með meistaraflokki Fram og skoraði 69 mörk í efstu deild. Ekki nóg með það, heldur lék Kristinn einnig tvo lands- leiki í knattspyrnu á ferlinum. Krist- inn keppti einnig við stórveldið Real Madrid í Evrópukeppni bæði í körfu- bolta og fótbolta. Geri aðrir betur! Það kemur því væntanlega engum á óvart að íþróttir séu aðaláhugamálið, en núna segist Kristinn mest vera í golfinu, einnig hefur hann unnið fyrir íþróttahreyfinguna frá því hann hætti að keppa. Síðan hefur hann gaman af stangveiði og að fara í ferðalög. Þá er hann gallharður Liverpool-aðdáandi, enda búinn að halda með þeim frá árinu 1963. Eiginkona Kristins er Steinunn Helgadóttir, f. 27.5. 1953, bókari. For- eldrar hennar eru hjónin Helgi Jón- asson, f. 31.8. 1915, d. 15.9. 1997, verkstjóri bifv.verkst. MS, og Eyrún Lilja Guðmundsdóttir, f. 6.8. 1920, d. 18.2. 2015, húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík. Sonur Kristins og Stein- unnar er Jörundur, f. 9.9. 1975, hóp- stjóri í Kópavogi. Eiginkona hans er Erna Hrönn Ólafsdóttir söngkona. Afabörnin eru Herdís Ósk, f. 1997; Steinunn María, f. 2000; Máni Steinn, f. 2001; Silja Sól, f. 2003; Margrét Lilja, f. 2005, og Júlía Dís, f. 2012. Systkini Kristins eru 1) Kristín Bára, f. 22.12. 1953, hjúkrunarfræðingur í Kópavogi; 2) Jón Sævar, f. 19.4. 1955, skrifstofumaður í Kópavogi; 3) Alda Guðrún, f. 25.3. 1957, hjúkrunarfræð- ingur í Garðabæ; 4) Anna Sigríður, f. 22.11. 1958, fjármálastjóri í Bolung- arvík og 5) Jörundur, f. 3.10. 1968, framkvæmdastjóri í Garðabæ. Foreldrar Kristins eru hjónin Jör- undur Kristinsson, f. 16.8. 1930, d. 24.4. 2005, skipstjóri og Auður Waag- fjörð Jónsdóttir, f. 15.2. 1929, d. 15.9. 2010. Þau voru búsett í Garðabæ. Kristinn Jörundsson Hróbjartur Hróbjartsson sjómaður á Eyrarbakka Guðrún Björnsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka Kristinn Hróbjartsson bifreiðastjóri í Reykjavík Kristín Guðrún Guðmundsdóttir húsmóðir í Reykjavík Jörundur Kristinsson skipstjóri frá Reykjavík, lengst af búsettur í Garðabæ Guðmundur Sigurðsson húsbóndi og sjómaður í Reykjavík Sigríður Bergsteinsdóttir húsfreyja í Reykjavík Vigfús Kjartansson snikkari á Seyðisfirði Jónína Lilja Jónsdóttir vinnukona í Vestmannaeyjum Jón VigfússonWaagfjörð málara- og bakarameistari frá Vestmannaeyjum Kristín Jónsdóttir Waagfjörð húsmóðir frá Vestmannaeyjum Jón Sighvatsson kaupmaður í Vestmannaeyjum Karólína Kristín Oddsdóttir húsfreyja Vestmannaeyjum Úr frændgarði Kristins Jörundssonar Auður Waagfjörð Jónsdóttir húsmóðir frá Vestmannaeyjum lengst af búsett í Garðabæ Maðurinn með hattinn“ er nýr áBoðnarmiði eða síðan 10. október. Hann gerir þannig grein fyrir sér: Fagna ég að taktföst tifi tungan okkar snjöll og þjál. Ferskeytt stefin lengi lifi, þau létta oki af hverri sál. Ort hef stundum arfa slakt eins og sjálfur skrattinn. Má ég kynna mig með prakt; Maðurinn með hattinn. Orti þessa í morgun þegar ég skreið á fætur: Uppúr rúmi ferskur fer, frjáls úr húmi nætur, fjarri kúm og kindaher kemst á gúmmífætur. Hann segist nýr á þessum slóðum og vonar að yrkingarnar taki fram- förum. – „Svo lengi lærir sem lifir.“ Ég hitti karlinn á Laugaveginum á sunnudaginn og fór með þessar vísur fyrir hann. Ég sagði honum auk heldur, að Maðurinn með hatt- inn væri vinur kerlingarinnar á Skólavörðuholtinu. Þá skaut karlinn höfðinu aftur og upp eilítið til vinstri og tautaði: Af háttum hans undan og ofan fyrir eitt vil ég prísa ’ann og lofa ’ann ef hann kerlingu sér í holtinu hér hattkúfinn tekur hann ofan. Og snerist á hæli. Helgi R. Einarsson sendi mér póst með þeirri athugasemd, að æskan léki sér hér í bæ, sem annars staðar. Og bætti við: „Á!“: Þeir lambakjötið líta’ á, svo línur öngla hnýta’ á. Á þeim má merkja þrá. Bara’ að þær nú bíti’ á. Karl G. Smith skrifaði mér „svo ekki gleymist“: „Heill og sæll. Sveinn Jónsson (1895-1977) húsa- smíðameistari frá Seglbúðum kom áratugum saman til sjóbirtingsveiða í Baugsstaðaósi. Gisti þá jafnan hjá vini sínum, Ólafi Gunnarssyni bónda á Baugsstöðum (1896-1984). Ólafur átti létt með að gera vísur og hér er ein um Svein, sem lýsir honum vel, rétt eins og ég minnist hans: Frá Seglbúðum svinnur Sveinn, sýnist jafnan glaður, hæglátur og hjartahreinn, heppinn veiðimaður. Ingólfur Ómar gaukaði að mér þessari vísu um sólsetrið sem skart- aði sínu fegursta að kvöldi dags hinn 9. október: Skreyta glæður skýjaslóð skarlatsslæðu mynda. Sól að græði rennur rjóð roðar hæð og tinda. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Maðurinn með hattinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.