Morgunblaðið - 13.10.2020, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Miðaldra nefnist nýútkomin breið-
skífa hljómsveitarinnar Tveggja
dónalegra hausta, ellefu laga þema-
plata þar sem fjallað er um ferðalag
manns sem áttar sig á því, einn góðan
veðurdag, að hann er orðinn mið-
aldra. „Því fylgja alls konar agnúar
og tilfinningar sem hellast yfir og
þarf að vinna úr: Frústrasjón yfir því
að vera hálfnaður með lífið og bara
ellin eftir. Börnin orðin stór og eng-
inn þarf á þér að halda lengur. Grái
fiðringurinn og niðurbrotið sem fylgir
því að horfast í augu við eigin dauð-
leika og rísa upp sem hinn sátti mað-
ur, sem tekur því sem eftir er af lífinu
með yfirvegun og æðruleysi í fartesk-
inu,“ segir um umfjöllunarefnið í til-
kynningu.
Gráhærðir með gigt
Guðmundur Ingi Þorvaldsson er
söngvari sveitarinnar og segist hann
sem ungur maður ekki hafa þolað
miðaldra karla sem voru orðnir full-
komlega sáttir við lífið og sjálfa sig.
12 spora menn sem töluðu um æðri
mátt og æðruleysi í öðru hverju orði,
eins og hann orðar það. Fyrir honum
hafi þessir menn verið búnir að missa
lífsviljann og metnaðinn, orðnir mið-
aldra og leiðinlegir.
Nú er Guðmundur orðinn miðaldra
og er spurður hvers vegna þetta
tímabil ævinnar hafi veitt honum og
vinum hans í hljómsveitinni inn-
blástur með þeim afleiðingum að úr
varð þemaplata. „Við erum búnir að
vera vinir síðan við vorum 16 ára og
við fórum í mjög merkilega bústað-
arferð árið 2016 þar sem þetta allt
hófst, byrjuðum þar að semja þessa
plötu. Það er bara ógeðslega fyndið –
þegar maður hefur þekkt menn svona
lengi og allir fara í bústað og eru
komnir allsberir í pottinn og aðeins
búnir að fá sér – þegar þú sérð bara
allt í einu hvað allir eru orðnir gamlir!
Líkamarnir eru
orðnir gamlir,
menn eru grá-
hærðir og tala um
að þeir séu komn-
ir með gigt og
heilsuna hjá
mæðrum sínum. Börnin eru komin í
menntaskóla og það er kominn annar
fasi. Þá byrjuðum við að ræða þessa
hugmynd,“ segir Guðmundur.
Allt í einu miðaldra
Guðmundur segir þessa hugmynd
hafa kveikt í sér að semja plötu um
þennan vinahóp sem væri nú orðinn
miðaldra og tína til nokkrar sögur
sem sagðar eru í lagatextum. Hann
nefnir sem dæmi annað lag plötunnar
sem fjallar um tvo menn sem ætluðu
að hrinda af stað byltingu sem ungir
menn en nú talar annar þeirra bara
um hundinn sinn og hvað hundurinn
eigi erfitt. „Allt í einu verða menn
bara miðaldra,“ segir Guðmundur og
að þeir vinirnir hafi farið að gera upp
þær hugmyndir sem þeir höfðu sem
ungir menn um lífið og tilveruna og
þá hörmung að vera miðaldra.
– Nú er þetta orðið svo jákvætt
sem þú segist ekki hafa þolað sem
ungur maður, að vera miðaldra karl
og fullkomlega sáttur við lífið og tala
um æðri mátt og æðruleysi. Nú þykir
sjálfsagt mál að tala um slíka hluti og
það eru allir að leita að þessari sátt.
„Ég veit það,“ segir Guðmundur og
hlær, „það er svolítið svoleiðis og
kannski er bara í tísku að vera mið-
aldra?“
Neikvætt hugtak
– Það fyrsta sem mér datt í hug
þegar ég sá titil plötunnar var að
þetta væri svo neikvætt hugtak, mið-
aldra hvítir karlar eru orðnir sam-
nefnari fyrir allt sem er slæmt í heim-
inum, virðist vera. Eruð þið að reyna
að snúa því við? Pælduð þið eitthvað í
því?
„Já, já, já, við pældum í því og ég
hef mikið pælt í þessu. Ég hef mikið
verið í feminískum leiksýningum með
hópum eins og Ratatam sem er að
fjalla um ástalíf kvenna, heimilis-
ofbeldi og annað slíkt frá sjónarhóli
kvenna og mitt „take“ á þetta er að
leyfa stelpunum að eiga sviðið. Ég má
alveg tala um mitt tilfinningalíf en ég
ætla ekkert að fara að semja plötu
núna um það sem mér finnst um
metoo-byltinguna. Ég yrði tekinn af
lífi sem miðaldra hvítur karlmaður að
semja um hana. Mér finnst frábært
að stelpurnar eigi sviðið,“ svarar
Guðmundur.
Hann segir merkilegt að átta sig á
því, um miðjan aldur, hvert maður sé
kominn í lífinu. „Allt í einu eru börnin
orðin svo stór að þau nenna ekki að
hanga með þér og þú þarft mögulega
að kynnast konunni þinni aftur því
þið hafið verið að vinna saman í því að
koma upp börnum, húsi og sumar-
bústað. Þetta er bara heilmikið sjokk,
þú hefur allt í einu heilmikinn tíma og
þarft að fara að setja þig aftur í sam-
band við vini þína,“ segir Guðmundur
kíminn og ítrekar að þeir vinirnir í
Tveimur dónalegum haustum eigi
auðvelt með að sjá þetta ástand í
spaugilegu ljósi.
Melódískt popp með stílbrigðum
Miðaldra var tekin upp í hljóðveri
Borgarleikhússins á árunum 2016-
2020 og stýrði Þórður Gunnar Þor-
valdsson upptökum og aðstoðaði við
útsetningar. Hljómsveitin sótti við
plötugerðina innblástur í popp frá
áttunda og níunda áratugnum, til
sveita á borð við Spandau Ballet,
Deacon Blue og Johnny Hates Jazz.
„Mér finnst þetta vera melódískt
popp með alls konar stílbrigðum,“
segir Guðmundur um tónlistarstíl
hljómsveitarinnar sem hafi yfirgefið
pönskotna poppið sem einkenndi
fyrri plötu hennar. Hann segir hljóm-
sveitarmeðlimi afar sátta við afrakst-
urinn og bendir að lokum á útgáfu-
tónleika Tveggja dónalegra hausta
sem stendur til að halda á Hard Rock
Café 7. nóvember kl. 21. Miðasala á
þá fer fram á tix.is.
Hljómsveitin Frá vinstri Tryggvi M. Gunnarsson, Stefán Gunnarsson, Ómar Örn Magnússon, Sigfús Ólafsson, Skúli
Magnús Þorvaldsson og Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Á myndina vantar Halldór Má Stefánsson sem býr erlendis.
„Þetta er bara heilmikið sjokk“
Hugmyndin að nýútkominni plötu Tveggja dónalegra hausta, Miðaldra, kviknaði í heitum potti
í sumarbústaðarferð „Allt í einu verða menn bara miðaldra,“ segir söngvari hljómsveitarinnar
664 starfsmenn í danskri kvikmyndagerð, þar á meðal
þekktir leikarar, framleiðendur og leikstjórar, skrifa
nafn sitt undir yfirlýsingu þar sem karlremba og
áreitni í faginu eru fordæmd. Meðal þeirra sem skrifa
undir eru leikstjórinn Susanne Bier og leikararnir
Pilou Asbæk, Sofie Gråbøl, Trine Dyrholm og Lars
Mikkelsen.
Þeir sem vinna við kvikmynda- og sjónvarps-
þáttagerð á Norðurlöndum hafa talað um að í Dan-
mörku sé áreitni af slíku tagi algengari en annars
staðar á Norðurlöndunum en yfirlýsingin nú kemur
fram, samkvæmt dagblaðinu Politiken, eftir að fyrrverandi aðstoðar-
kona framleiðanda við heimildarkvikmynd sakaði leikstjórann Feras
Fayyad um áreitni.
Fordæma áreitni við kvikmyndagerð
Sofie Gråbøl
Ásmundarsafn við Sigtún, með verk-
um Ásmundar Sveinssonar mynd-
höggvara (1893-1982), verður lokað
næstu mánuði. Til stendur að bæta
aðstöðu gesta og sinna nauðsynlegu
viðhaldi hússins. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Listasafni Reykjavíkur er
stefnt að því að opna safnið fljótlega
á næsta ári „með nýjum og spenn-
andi sýningum og betra aðgengi fyr-
ir alla“.
Garðurinn umhverfis Ásmundar-
safn er áfram öllum opinn en þar er
að finna stækkanir og afsteypur af
verkum Ásmundar, en hann kom
mörgum þeirra þar fyrir sjálfur.
Ásmundarsafn var opnað árið
1983. Safnið er í hinni einstæðu
byggingu sem var heimili og vinnu-
stofa listamannsins. Þar eru ávallt
sýningar á verkum Ásmundar en
hann ánafnaði Reykjavíkurborg
stóru safni listaverka sinna auk
byggingarinnar. Þá eru reglulega
haldnar þar sýningar á verkum ann-
arra listamanna. Ásmundur hannaði
bygginguna að mestu leyti sjálfur á
árunum 1942-1959. Hann byggði
meðal annars bogalaga byggingu
aftan við húsið sem var hugsuð sem
vinnustofa og sýningarsalur. Form-
hugmyndir hússins eru sóttar í kúlu-
hús Mið-Austurlanda og píramída
Egyptalands. Mannfreð Vilhjálms-
son arkitekt hannaði tengibygg-
inguna sem tengir saman aðalhúsið
og bogabygginguna.
Gert við Ásmundarsafn
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Listamaðurinn Ásmundur Sveinsson við vinnustofuna um miðja síðustu öld.
Abstrakt málverk eftir þýska
myndlistarmanninn Gerhard Richt-
er var slegið hæstbjóðanda í Hong
kong á vefuppboði Sotheby’s fyrir
29,2 milljónir dala, rúma fjóra millj-
arða króna. Hefur aldrei jafn hátt
verð verið greitt fyrir vestrænt
listaverk á uppboði í Asíu.
Í frétt The Art Newspaper segir
að Covid-19 virðist ekki hafa dregið
úr áhuga listaverkasafnara í Asíu á
síðustu mánuðum og hefur hátt
verð fengist fyrir fjölda verka á
uppboðum. Málverk Richters, sem
heitir Abstraktes Bild (649-2), mál-
að árið 1987, var keypt af einka-
safni í Hakone í Japan, The Pola
Museum of Art, og var greitt fyrir
það nær tvöfalt matsverð.
Hæsta verð sem áður hafði verið
greitt á uppboði í Asíu fyrir verk
vestræns listamanns var 14,8 millj-
ónir dala en þar var málverkið 30
Sunflowers (1996) eftir David
Hockney sem var selt á uppboði
Sotheby’s í júlí síðastliðnum.
Verk Richters dýrasta vestræna í Asíu
Ljósmynd/Sotheby’s
Verðmætt Málverkið Abstraktes Bild
(649-2) eftir Gerhard Richter.
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir