Morgunblaðið - 13.10.2020, Qupperneq 32
Hljómsveitin Mammút
mun halda tíu klukku-
stunda langa tónleika í
Gamla bíói 7. nóvember, ef
samkomutakmarkanir
leyfa, og flytja efni af
væntanlegri breiðskífu
sinni, Ride the Fire, í
bland við eldri lög. Dag-
skránni verður skipt í tvennt þannig að hægt verður að
kaupa miða á fyrri eða seinni hluta tónleikana en frítt
er inn fyrir 15 ára og yngri á fyrri hlutann og aldurs-
takmark 20 ár á þann seinni. Ride the Fire kemur út 23.
október og var hún tekin upp í London og á Íslandi í
fyrra. Ýtrustu sóttvarna verður gætt á tónleikunum og
vel fylgst með fjölda gesta. Lengdin á tónleikunum er
„kómískt svar við heimsástandi og skorti á lifandi tón-
listarflutningi, í bland við einhverja sjálfseyðingar-
hvöt“, eins og segir í tilkynningu og er sveitin með
maraþoninu að binda enda á langt, frjótt og snúið
plötuferli og mun hljómsveitin taka einhverjum form-
og áherslubreytingum í kjölfar útgáfu plötunnar.
Mammút heldur 10 klst. tónleika
Tæplega helmingur leikmanna í úrvalsdeild kvenna
vill aflýsa Íslandsmótinu í knattspyrnu og tæplega
fjörutíu prósent leikmanna í úrvalsdeild karla. Guðni
Bergsson, formaður KSÍ, segir að markmiðið sé alfar-
ið að ljúka mótinu sem þó megi ekki ná lengra en til 1.
desember. Rætt er við Guðna, landsliðskonuna Dag-
nýju Brynjarsdóttur og Almar Ormarsson, fyrirliða
KA, um stöðuna. »27
Er rétt að aflýsa Íslandsmótinu?
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Undanfarin tíu haust hefur Helga
Aðalsteinsdóttir staðið vaktina fyrir
framan Nettó í yfirbyggða ganginum
í Mjódd alla virka daga og selt veg-
farendum afrakstur líðandi árs. „Ég
prjóna frá áramótum fram á haust og
er svo hérna frá 1. október til jóla,“
segir afmælisbarn dagsins, en Helga
er 86 ára í dag.
„Þetta hefur verið lífsstarfið mitt
fyrir utan að þjóna heimilisfólkinu,
ég hef prjónað í rúm 60 ár eða síðan
ég gifti mig,“ segir Helga. Eigin-
maður hennar var Einar Marinó
Magnússon járnsmiður, sem lést fyr-
ir um þremur árum, og eiga þau tvo
fóstursyni.
Gekk úti eins og féð
Helga ólst upp í Krossamýri, að-
eins fyrir neðan þar sem Húsgagna-
höllin er uppi á Höfða. Hún er næst-
elst ellefu systkina og eru tíu á lífi.
„Pabbi keypti hús og flutti það á holt-
ið. Engin hús voru fyrir ofan byggð-
ina og þar gengum við úti eins og féð,
fórum inn til þess að borða og svo út
aftur, í berjamó eða hvað sem var.“
Áhyggjulaust líf nema hvað hún
þurfti að hafa auga með yngri systk-
inum sínum. „Ég slapp ekki við það
og svo var svolítið langt að fara eftir
mjólkinni og fiskinum. Það var fiskur
í alla mata nema á sunnudögum. Þá
fengum við kjöt í hádeginu og
kannski graut í kvöldmat.“
Eftir fermingu vann Helga í sjö ár í
Sænska frystihúsinu, sem var þar
sem Seðlabankinn er nú til húsa, og
síðan í tvö ár hjá prjónastofunni Feld-
inum í Skipholti. „Konurnar máttu
ekki vinna úti eftir að þær giftu sig,
því þá fengu karlagreyin svo háan
skatt auk þess sem þeir þurftu að
sýna fram á að þeir gætu séð fyrir
konunum. Þá keypti ég mér gamla
prjónavél og fór að prjóna heima fyrir
fólk. Vinnan breyttist eftir að heim-
ilisvélarnar komu, að ég tali ekki um
þegar mótorinn kom á þær.“
Helga var með vörur sínar á úti-
markaðnum í Austurstræti, á meðan
hann var og hét, og í Kolaportinu á
veturna. Síðan var hún á horni Veltu-
sunds og Hafnarstrætis í áratug. „Þá
stoppaði ég í rúmt ár en sá að það
dygði ekki, þá legðist ég bara í kör.“
Þegar Helga byrjaði að selja vörur
sínar í Mjóddinni var þar vísir að
markaði. „Nú er ég bara ein eftir,“
segir hún. „Það var lítil eftirspurn
eftir markaðsvörum í fyrra og enn
minni núna, en fólk veit af mér, bíður
eftir að ég komi, svo ég kvarta ekki.“
Úrvalið er fjölbreytt en Helga
prjónar fyrst og fremst barnafatnað.
„Svo er ég líka með dömuboli og
herranærbuxur og sokka á karlana,“
bendir hún á. „Föðurlandið er reynd-
ar ekki úr íslensku ullinni, bara úr
garni, en þeir eru ánægðir með það.“
Leggur áherslu á að eftirspurn sé eft-
ir öllum fatnaði, burtséð frá stærð og
kyni.
„Ég er hætt að keyra,“ segir Helga
sem býr á Dalbraut og fer allra sinna
ferða með strætó. Kórónuveiran
truflar hana ekki. Hún passar vel upp
á allar sóttvarnir, heldur hæfilegri
fjarlægð frá viðskiptavinum, er með
grímu og sprittar sig reglulega. Hún
er spræk og ber sig vel. „En það fer
nú að líða að lokum. Ég finn það á
skrokknum eftir að ég varð áttræð.“
Föðurlandið í Mjóddinni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Helga Aðalsteinsdóttir er 86 ára í dag og gefur ekkert
eftir í prjónaskapnum Fjölbreytnin er í fyrirrúmi
Hannyrðir Fjölbreytnin er mikil í
prjónaskapnum hjá Helgu.
Afmælisbarnið Helga Aðal-
steinsdóttir stendur vaktina
fyrir utan Nettó í Mjódd.
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
DUCA model 2959
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
L 241 cm Leður ct. 10 Verð 549.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 10 Verð 339.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
GOLF model 2945
L 176 cm Áklæði ct. 70 Verð 239.000,-
L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
L 244 cm Leður ct. 10 Verð 489.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 287. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING