Morgunblaðið - 14.10.2020, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 4. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 242. tölublað 108. árgangur
NOKKUR
HAGNAÐUR
HJÁ FORLÖGUM
AFHENDINGU HÉRLENDIS
FRESTAÐ
ELSTU
TVÍBURAR
LANDSINS
VERÐLAUN 25 98 ÁRA Í DAG 4VIÐSKIPTI 12 SÍÐUR
„Það er ljóst að tónleikarnir fara
ekki fram í núverandi mynd, það
verða engir áhorfendur í sal,“ segir
Ísleifur B. Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Senu Live, um Jóla-
gesti Björgvins sem verið hafa einn
stærsti viðburður ársins um árabil.
Mikil óvissa er um það hvernig
vertíð jólatónleika verður hér á
landi þetta árið – og hvort af henni
verður yfirhöfuð. Sena Live hefur
að sögn Ísleifs brugðist við nýjum
veruleika af völdum kórónuveiru-
faraldursins með því að leita nýrra
lausna. „Við erum að skoða nýja
lausn. Hugmyndin er að halda tón-
leikana í fullri stærð fyrir framan
myndavélar og að hægt verði að sjá
þá á öllum heimilum.“
Hrefna Sif Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Tix.is, segir að ein-
hverjir tónlistarmenn hafi þegar
hætt við jólatónleika í ár. Baggalút-
ur, Bubbi, Friðrik Ómar og Geir
Ólafs stefna þó enn að tónleika-
haldi. »6
Björgvin syngur
fyrir tómum sal
Nýtt fyrirkomulag Jólagesta í ár
Morgunblaðið/Eggert
Sígilt Björgvin Halldórsson og Diddú á Jólagestum fyrir nokkrum árum.
„Við lítum á þetta sem þjón-
ustuviðbót fremur en sparnað,“
segir Sigurður Óli Árnason, ráð-
gjafi hjá Advania, um svokölluð
snjallmenni sem nú ryðja sér til
rúms. Gervigreind er nýtt við
þróun netspjalls þannig að snjall-
mennið geti hjálpað viðskiptavin-
um að nálgast upplýsingar og
svör við einföldum erindum á
fljótlegan hátt.
Meðal stofnana og fyrirtækja
sem hafa tileinkað sér þetta eru
Íslandsbanki, Þjóðskrá, Mennta-
sjóður námsmanna og Vinnu-
málastofnun. „Þetta skilar betri
og hraðvirkari þjónustu og léttir
álagi af þjónustuverinu til lengri
tíma,“ segir Margrét Hauksdóttir,
forstjóri Þjóðskrár Íslands. »4
Snjallmenni spjalla
við viðskiptavinina
Ekki er tímabært að ráðast í frek-
ari virkjanaframkvæmdir hér á
landi. Þetta er mat Bjarna Bjarna-
sonar, forstjóra Orkuveitunnar.
Bendir hann á að eftirspurn eftir
orku sé lítil um þessar mundir og
að mikil umframorka sé í kerfinu
sem ekki sé í notkun. Þá bendi
margt til þess að álverinu í
Straumsvík verði lokað á komandi
misserum og að þá muni enn
draga úr orkunotkun í landinu.
Fari svo að það losni um 20-30% af
rafmagnsframleiðslunni geti það
tekið 5 til 10 ár að koma rafmagn-
inu „í vinnu“ á nýjan leik.
Minna álag á flutningskerfinu
Á sama tíma segir Bjarni að
stórtækar fyrirætlanir upp á 90
milljarða uppbyggingu flutnings-
kerfis raforku séu varasamar. Um
leið og notkunin minnki dragi
einnig úr álagi á kerfinu. „Það
mun leiða til hækkunar á gjald-
skrá Landsnets sem að endingu
lendir á almenningi. Það er þó afar
mikilvægt að styrkja afhending-
aröryggi til almennings eins og ný-
legir atburðir á Norðurlandi
sýna.“ »ViðskiptaMogginn
Ljósmynd/Atli Már Hafsteinsson
Orkumál Bjarni Bjarnason segir
næga raforku í kerfinu hér á landi.
Varar
við offjár-
festingu
Segir stefna í
lokun í Straumsvík
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Atvinnuleysi á Suðurnesjum er kom-
ið í áður óþekktar hæðir, en spá
Vinnumálastofnunar gerir ráð fyrir
að í Reykjanesbæ verði það komið í
25% fyrir jólin. Engin dæmi eru um
svo mikið atvinnuleysi frá því skipu-
legar mælingar hófust.
„Þetta er grafalvarleg staða og ég
er dauðhrædd við veturinn,“ segir
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokksins í Suður-
kjördæmi. „Ég vona að stjórnvöld
komi til móts við þennan stóra hóp
með sértækum aðgerðum. Það hefur
nú þegar talsvert verið gert, en það
þarf meira til ef atvinnuleysið er að
ná þessum hæðum.“
Í skýrslu Vinnumálastofnunar,
sem kom út í gær, kemur fram að at-
vinnuleysi á landinu sé nú talið vera
komið yfir 10% og að það muni enn
aukast næstu mánuði. Atvinnuleysi í
september mældist 9,8%, en af því
eru 9,0% almennt atvinnuleysi, en
0,8% tengt minnkuðu starfshlutfalli.
Samanlagt atvinnuleysi í almenna
kerfinu og í minnkaða starfshlutfall-
inu jókst alls staðar á landinu, en
hvergi í líkingu við það sem gerðist á
Suðurnesjum. Þar fór heildarat-
vinnuleysi úr 18,0% í ágúst í 19,6% í
september, en talið er að það fari í
19,8% í þessum mánuði.
Spár Vinnumálastofnunar, sem
finna má í gögnum á vef stofnunar-
innar, eru þó enn dekkri, því þær
segja fyrir um að atvinnuleysi á Suð-
urnesjum verði komið í 21,9% í des-
ember. Enn bágara verður ástandið
þó í Reykjanesbæ, en þar er því spáð
að almennt atvinnuleysi verði komið
í 24,6% í desember og atvinnuleysi
kvenna geti náð allt að 26,5% í jóla-
mánuðinum.
Silja Dögg segir að hér sé ekki að-
eins um atvinnuástandið að ræða,
heldur félagslegar aðstæður í víðum
skilningi. „Það er einfaldlega farið að
sjást. Hún var skelfilega löng röðin
hjá fjölskylduhjálpinni, röð langt út
á götu eftir matargjöfum.“ Á Suður-
nesjum er atvinnuleysi mun meira
meðal kvenna en karla, eða 22,5%
hjá konum en 17,7% hjá körlum þeg-
ar horft er á heildaratvinnuleysi.
Spá 25% atvinnuleysi
Fjórðungsatvinnuleysi í Reykjanesbæ fyrir jól Vinnumálastofnun spáir
stórauknu avinnuleysi á Suðurnesjum Atvinnuleysið í landinu komið í um 10%
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Suðurnes Unnið var af kappi við gatnagerð í Grindavík, en atvinnuleysi er nú þegar nær 20% á Suðurnesjum og fer ört vaxandi á næstu mánuðum.
MAtvinnuleysi nálgast 20% … »2