Morgunblaðið - 14.10.2020, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 14.10.2020, Qupperneq 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020 Alþingi Grímuskylda er á Alþingi í aðstæðum þar sem ekki er hægt að halda eins metra fjarlægð á milli fólks. Þingmenn klæðast því grímum þegar þeir sitja í sætum sínum þessa dagana. Eggert Jóhannesson Þráðurinn verður stöðugt styttri. Umburðarlyndi og þol- inmæði eiga í vök að verjast. Stjórnmálamenn, almenningur og fjölmiðlamenn fella dóma yfir mönnum og málefnum án þess að hika. Tungutakið er harðara en áður, stundum ofsafengið og sví- virðilegt. Hjólað er af hörku í einstaklinga sem varpa fram öðr- um sjónarmiðum – hafa aðra sýn á hlutina. Samfélag samtímans refsar umsvifalaust. Litli dreng- urinn sem af hreinskilni benti á að keisarinn væri ekki í neinum fötum hefði verið smán- aður á samfélagsmiðlum. Óþol samtímans veitir fáum grið. Þegar ráðherra kemst klaufalega að orði nýta samverkamenn í öðrum ríkisstjórn- arflokki tækifærið og ráðast á hann með ósvífni þess sem óttast dapurt gengi þegar innan við eitt ár er í kosningar. Útúrsnún- ingur og orðhengilsháttur yfirtekur dreng- skap og lítið er gefið fyrir samvinnu og traust ólíkra flokka sem standa að ríkisstjórn á erf- iðum tímum. Pólitískur hráskinnaleikur tekur yfir orðræðuna líkt og oft gerist þegar stjórn- málamenn lítilla sanda og lítilla sæva reyna að gera sig gildandi á kostnað annarra. Þingmaður, sem leyfir sér að efast opin- berlega um hertar aðgerðir þar sem gengið er freklega á borgaraleg réttindi í alvarlegri bar- áttu við kórónuveiruna, fær það óþvegið á samfélagsmiðlum, í fjölmiðlum og tölvu- póstum. Innan heilbrigðiskerfisins spila sumir undir. Þingmanninum eru gerðar upp skoð- anir og hann sakaður um mannfyrirlitningu og skort á samkennd. Þó gerði hann ekki ann- að en spyrja spurninga og benda á að hertar aðgerðir, þar sem viðskiptalífið er að stórum hluta lamað, hafi afleiðingar sem nauð- synlegt sé að ræða. Afleiðingar fyrir almenna heilsu þjóðarinnar en ekki síður fyrir velferðar- kerfið allt geti orðið alvarlegar, þar sem hægt og bítandi er dreg- ið úr sameiginlegum þrótti okkar (ríkissjóði) til að standa undir öflugu heilbrigðiskerfi, mennta- kerfi og almannatryggingum. Eitrar samskipti fólks Dæmin um dómhörkuna eru miklu fleiri. Umburðarlyndi hefur farið þverrandi á síð- ustu árum og þar hefur kórónuveiran ekki leikið hlutverk. En við Íslendingar erum ekki einir í glímunni við óþol gagnvart þeim sem eru á annarri skoðun. Óþolinmæði og for- dómar sundra samfélögum, eitra samskipti fólks og grafa undan lýðræði. Lýðræðið hvílir á mörgum hornsteinum. Málfrelsi þar sem ólíkar skoðanir takast á er einn þessara steina. Friðsamleg stjórnarskipti að loknum opnum og frjálsum kosningum er annar hornsteinn. Í Bandaríkjunum er stöðugt grafið undan þeim báðum og þannig verður sífellt hættu- legra að tapa kosningum. Á þetta benti John Cochrane, hagfræðingur við Hoover- stofnunina við Stanford-háskólann og áður prófessor við Háskólann í Chicago, á blogg- síðu sinni í september. Hæfileikinn til að sætta sig við niðurstöðu kosninga sé að hverfa, hefðbundin viðmið í samskiptum hafa verið brotin niður. Þegar tæpur mánuður er til forsetakosn- inga er ástæða til að bera nokkurn kvíðboga fyrir því hvernig brugðist verður við úrslit- unum. Sundrung samfélagsins í Bandaríkj- unum birtist á hverjum degi og hefur m.a. myndað farveg fyrir nýja tegund stjórnmála „réttláta ógnun“ [righteous intimidation] – þar sem samfélögum er skipt í fórnarlömb og kúgara. (Um þetta fjallaði ég hér í grein 9. september sl.). Vandinn er hins vegar djúp- stæðari. Kannanir benda til að sífellt fleiri kjósendur – jafnt demókratar sem repúblik- anar – telji að það geti verið réttlætanlegt að beita ofbeldi til að ná fram pólitískum mark- miðum. Og hvernig má annað vera þegar pólitískir andstæðingar virða hver annar lítils? Árið 2018 leiddi könnun vefritsins Axios í ljós að 21% demókrata taldi repúblikana vera illa inn- rætta og 54% sögðu þá fáfróða. Um 23% repú- blikana voru á því að demókratar væru vont fólk og 49% væru fávís. Í sameiginlegri grein sem birtist á vefritinu Politico 1. október lýsa fimm viðurkenndir fræðimenn við háskóla og rannsóknastofnanir yfir þungum áhyggjum yfir þróun síðustu ára – auknum vilja til að réttlæta ofbeldi sem leið til að ná sínu fram í stjórnmálum. Í upphafi benda þeir á að frambjóðandi repúblikana (Donald Trump) hafi í kappræðum nokkrum dögum áður lýst yfir áhyggjum af ofbeldisöldu sem ríður yfir margar borgir Bandaríkjanna – ofbeldi sem sé runnið undan rifjum vinstri manna. Forsetaframbjóðandi demókrata (Joe Biden) hafði einnig áhyggjur – af ofbeldi hægriöfgamanna. Báðir frambjóðendurnir hafa rétt fyrir sér en virðast ekki hafa póli- tíska burði til að takast á við þá hættu sem lýðræðinu stafar af ofbeldinu. Ábyrgð forystumanna í stjórnmálum Kannanir fræðimannanna sýna að ástæða er til að hafa áhyggjur. Fari allt á versta veg standa Bandaríkin frammi fyrir mestu krísu í 150 ár, ekki síst ef úrslit kosninganna verða ekki skýr eða ef annar frambjóðandinn dregur niðurstöðu þeirra með einhverjum hætti í efa. Það geti leitt til óeirða og ofbeldis um allt land. Um einn af hverjum fjórum demókröt- um og repúblikönum segir að það geti verið réttmætt ef frambjóðandi þeirra tapar í kom- andi kosningum. Margir telja að þróunin í Bandaríkjum sam- tímans eigi sér hliðstæðu með sögu Evrópu á þriðja og fjórða áratug liðinnar aldar. Þá varð hófsemdarfólk undir þegar öfgar og ofbeldi tóku yfir og tóku öll gildi lýðræðis úr sam- bandi. Afleiðingarnar þekkja allir. Öllum sem hafa tekið að sér forystu í lýð- ræðisríki – í sveitarstjórnum, stjórnmála- flokkum, á þingi og ríkisstjórn – ber skylda til þess að fordæma hvers konar ofbeldi, jafnt of- beldi pólitískra andstæðinga og eigin stuðn- ingsmanna. Stjórnmálamenn bera öðrum fremur ábyrgð á því að standa vörð um grunn- gildi lýðræðis, ekki síst að allir geti tekið þátt í frjálsum kosningum og að niðurstöður þeirra séu virtar. Fram til þessa hafa forseta- frambjóðendur demókrata og repúblikana ekki skilið eða forðast að axla þessa ábyrgð. Eftir Óla Björn Kárason »Hjólað er af hörku í ein- staklinga sem varpa fram öðrum sjónarmiðum – hafa aðra sýn á hlutina. Samfélag sam- tímans refsar umsvifalaust. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Pólitískt ofbeldi og óþol

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.