Morgunblaðið - 14.10.2020, Blaðsíða 14
14 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020
Á liðnu sumri hófst
fornleifauppgröftur að
nýju í Odda á Rang-
árvöllum, undir stjórn
Kristborgar Þórs-
dóttur, fornleifafræð-
ings hjá Fornleifa-
stofnun. Hinn stóri
manngerði hellir, sem
fannst fyrir tveimur
árum, var nú rannsak-
aður betur og m.a. var
birt þrívíddarmynd af
hellinum í fjölmiðlum.
Uppgröfturinn mun
halda áfram næsta
sumar, en Oddarann-
sóknin nýtur styrks frá
RÍM-verkefninu, Rit-
menningu íslenskra
miðalda, sem er fimm
ára þverfaglegt rann-
sóknarverkefni á veg-
um ríkisstjórnarinnar,
með aðkomu fjögurra
sögustaða þar sem rit-
stofur voru starfræktar á miðöldum:
Odda, Þingeyra, Staðarhóls og
Reykholts, en Stofnun Árna Magn-
ússonar er einnig aðili að þessu
verkefni, sem er undir stjórn
Snorrastofu í Reykholti.
RÍM-verkefninu var hleypt af
stokkunum í tilefni af 75 ára afmæli
lýðveldisins, en aðrir styrktaraðilar
Oddarannsóknarinnar eru m.a. Hér-
aðsnefnd Rangæinga, Uppbygging-
arsjóður Suðurlands og ráðherra ný-
sköpunar-, iðnaðar- og ferðamála.
Sérstakt rannsóknarteymi er
tengt hverjum stað og í tilfelli Odda
samanstendur teymið af Kristborgu
Þórsdóttur, Ármanni og Sverri Jak-
obssonum, Agli Erlendssyni og
Helga Þorlákssyni, sem leiðir starf
teymisins. Fyrir utan fornleifaupp-
gröft er Oddi rannsakaður m.a. sem
lærdómsmiðstöð, kirkju- og valda-
miðstöð, auk þess sem áhrif mann-
vistar á umhverfi staðarins í gegnum
tíðina eru rannsökuð. Það er því
óhætt að segja að æsispennandi
tímar séu fram undan, þegar fortíð
Oddastaðar fer smám saman að rísa
úr myrkri aldanna.
Markmið Oddafélagsins hefur frá
upphafi verið að standa að uppbygg-
ingu menningar- og fræðaseturs í
Odda í nafni Sæmundar Sigfússonar.
Framtíðaruppbygging í Odda hlýtur
þó ávallt að standa á grunni þeirra
niðurstaðna sem fornleifa- og fræði-
rannsóknir munu leiða í ljós, um leið
og stofnun og rekstur menningar- og
fræðaseturs þarf að þjóna íbúum
héraðsins sérstaklega, síðan lands-
mönnum öllum og erlendum gestum.
Sú mynd sem flestir Íslendingar
hafa af Sæmundi Sigfússyni er mynd
af tilbúinni þjóðsagnapersónu. Eitt
af stofnmarkmiðum Oddafélagsins
er að varpa ljósi á hinn raunverulega
mann að baki þjóðsögunni: soninn,
eiginmanninn, föðurinn, prestinn,
rithöfundinn, fræði- og lærdóms-
manninn, hinn lögmenntaða kirkju-
goða og aðalsmann á íslenska mið-
aldavísu. Í heild sinni mun
Oddarannsóknin dýpka og breikka
mynd okkar af Sæmundi Sigfússyni,
afkomendum hans og sögu Odda.
Frá því að forn-
leifauppgröftur hófst,
árið 2018, hefur stjórn
Oddafélagsins unnið að
hugmyndadrögum að
uppbyggingu menning-
ar- og fræðaseturs í
Odda. Í byrjun sept-
ember sendi stjórnin
þær tillögur til fé-
lagsmanna til að fá at-
hugasemdir og opna á
umræður hjá fé-
lagsmönnum og íbúum
héraðsins. Drögin hafa
einnig verið send sveit-
arstjórnum í Rang-
árþingi og á þessum
tímapunkti hefur
stjórnarmönnum fé-
lagsins verið boðið að
kynna þau á fundi hjá
einni sveitarstjórn, enn
sem komið er.
Stjórn Oddafélagsins
stefnir að því að halda
opinn fund í Rang-
árþingi um það sem
Rangæingar vilja helst
ræða í tengslum við Odda framtíð-
arinnar – en vegna Covid-19 hefur
dagsetning ekki enn verið ákveðin.
Vilji Oddafélagsins er að hvetja til
víðtækrar umræðu í héraðinu um
framtíðaruppbygginu menningar-
og fræðaseturs í Odda, til að sem
breiðust samstaða verði um þær
hugmyndir sem síðan verða lagðar
til grundvallar frekari úrvinnslu.
Í lok nóvember mun rannsókn-
arteymi Oddarannsóknarinnar halda
fyrstu haustráðstefnu sína í Gunn-
arsholti og kynna helstu rannsókn-
arverkefni og framvindu þeirra.
Þangað eru allir velkomnir – með
takmörkunum þó – en einnig verður
streymt frá þeim kynningarfundi
svo þeir sem ekki komast geti fylgst
með heima.
Stjórn Oddafélagsins vill hvetja
alla þá sem áhuga hafa á málefnum
og sögu Odda, og þá sérstaklega
íbúa á Suðurlandi, að skrá sig í
Oddafélagið (oddafelagid.net) og fá
þar tíðindi af því merka og mik-
ilvæga starfi sem nú er að eiga sér
stað á vegum þess.
Í sögu Þorláks helga er Oddi
nefndur „æðsti höfuðstaður“ og það
er markmið Oddafélagsins að Odd-
astaður megi bera það viðurnefni
með réttu í framtíðinni.
En framtíðin er ekki langt undan:
Eftir aðeins 13 ár minnumst við 900
ára ártíðar Sæmundar Sigfússonar
hins fróða, sem lést hinn 22. maí
1133. Stjórn Oddafélagsins lítur svo
á að ekki sé eftir neinu að bíða að
taka fyrstu skóflustunguna að fram-
tíðinni í Odda.
Oddafélagið, samtök áhugamanna
um endurreisn menningar- og
fræðaseturs á Odda á Rangár-
völlum, var stofnað árið 1992. Nú-
verandi stjórn skipa: Ágúst Sigurðs-
son, Árni Bragason, Bergþóra
Þorkelsdóttir, sr. Elína Hrund
Kristjánsdóttir, Elvar Eyvindsson,
Friðrik Erlingsson og dr. Helgi Þor-
láksson.
Eftir Friðrik
Erlingsson
»Eftir aðeins
13 ár minn-
umst við 900
ára ártíðar
Sæmundar
Sigfússonar
hins fróða,
sem lést hinn
22. maí 1133.
Friðrik Erlingsson
Höfundur er rithöfundur og
stjórnarmaður í Oddafélaginu.
fridrik07@gmail.com
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Oddi á Rangárvöllum.
Oddi, hinn æðsti
höfuðstaður
Almáttugi Guð, skap-
ari himins og jarðar,
höfundur og fullkomn-
ari lífsins!
Nú felum við okkur,
allt okkar fólk jafnt sem
heimsbyggðina alla í
þínar hendur. Hjálpaðu
okkur að standa saman
og láta eitthvað gott af
okkur leiða. Blessaðu
lífið okkar og samskipti,
störf, athafnir og verk. Gefðu að við
mættum verða þér til dýrðar og sam-
ferðafólki okkar til blessunar og
þannig sjálfum okkur til heilla.
Blessaðu fjölskyldur okkar, skóla-
félaga, vinnufélaga og öll þau sem við
umgöngumst með einhverjum hætti.
Minntu okkur á að gæta vel að sótt-
vörnum og fara eftir tilmælum og
reglum eins og staðan er í dag.
Og við biðjum þess svo heitt og
innilega að þessi ófétis veira sem hef-
ur aldeilis fellt mann og annan og
valdið þvílíkum usla og tjóni, nánast
á öllum sviðum, mætti hverfa og
hætta að gera okkur lífið leitt.
Ef okkur er ætlað sem mannkyni
að lifa áfram í þessum heimi biðjum
við þig í auðmýkt að miskunna þig yf-
ir okkur í þessum óviðunandi hörm-
ungaraðstæðum. Þar sem allt virðist
einhvern veginn vera að fara á verri
veg og heimurinn vart lífvænlegur
við þessar aðstæður.
Síðustu tímar?
Jesús lýsti því fyrir okkur fyrir um
tvö þúsund árum eða svo að yfir
heimsbyggðina
myndu koma marg-
víslegar hörmungar.
Plágur og farsóttir,
jarðskjálftar, nátt-
úruhamfarir og hung-
ur. Stríðsátök á milli
þjóða og þjóðarbrota,
ójafnvægi í sam-
skiptum, lögleysi
myndi magnast og
kærleikur margra
kólna. Og á þeim dög-
um myndi fólk leitast
við að hverfa aftur til
síns heima.
Hann nefndi jafnframt að þetta
væru ekki endalokin heldur upphaf
fæðingarhríðanna inn til lífsins
ljóma. Hann hvatti okkur til að ótt-
ast ekki og vera ekki hrædd. Hann
sagði: „Hjarta ykkar skelfist ekki. Í
heiminum hafið þið þrenging. En
verið hughraust. Því ég hef sigrað
heiminn.“
Hann kom til að frelsa okkur í eitt
skipti fyrir öll svo við mættum lífi
halda, þrátt fyrir allt. Og til að veita
okkur von og gefa okkur sinn frið í
hjarta.
Nú vitum við ekki hvort við erum
að lifa síðustu tíma mannkyns hér á
jörð en við biðjum þig, Jesús, að
stytta þessa hörmungartíma eins og
þú hvattir okkur til að biðja þig um.
„Nú sjáum við svo sem í skuggsjá, í
ráðgátu,“ en þegar yfir lýkur mun-
um við „sjá augliti til auglitis“. Þeg-
ar allt verður bert og augljóst og við
náum að greina hismið frá kjarn-
anum.
Einn dagur hjá þér er líkt og þús-
und ár og þúsund ár sem einn dag-
ur. Þannig að það er ógjörningur fyr-
ir okkur að finna á okkur eða reikna
út hvar við erum stödd í þessu ferli.
Stundina veit enginn, nema Guð
einn.
En þú baðst okkur að halda vöku
okkar. Vera á bæn, því við vissum
ekki hvenær tíminn kæmi. Þú hvattir
okkur til að gleyma ekki Guði. Held-
ur elska hann og þig, Jesús Kristur,
og vera opin og móttækileg fyrir þín-
um heilaga, góða og lífgefandi anda.
Og elska náungann eins og okkur
sjálf. Gleymum því ekki.
Stöndum saman. Lof sé þér og
dýrð fyrir lífið. Fyrir að minnast okk-
ar og gleyma okkur ekki. Þú sagðist
ekki myndu skilja okkur eftir mun-
aðarlaus heldur biðja fyrir okkur eft-
ir að þú kæmir heim í ríki þitt á
himnum. Þú sem sagðir einnig: „Ég
verð með ykkur alla daga, allt til
enda veraldar.“ „Himinn og jörð
munu líða undir lok en orð mín munu
aldrei undir lok líða.“ „Ég er upp-
risan og lífið. Sá sem trúir á mig mun
lifa þótt hann deyi.“
Með þakklæti, kærleiks-, sam-
stöðu- og friðarkveðju.
– Lifi lífið!
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Jesús sagði:
Í heiminum hafið
þér þrenging. En
verið hughraust. Ég
hef sigrað heiminn.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Pælingar og spjall við Guð
Þeir sem trúa því að tæknin leiði alltaf
til þæginda gætu lært af dæmi kunn-
ingja míns, sem oft verður fyrir ónæði
af hringingum ókunnugra sem vilja fá
hann í vinnu og það strax.
Þannig er að hann er alnafni tveggja
eða þriggja valinkunnra pípara og
stendur við hlið þeirra í rafrænu síma-
skránni, sem nú er
orðin allsráðandi
síðan menn tóku
að sér að bjarga
regnskógunum.
Þeir sem
hringja, segir
kunningi minn,
eru alla jafna
kumpánlegir og
alveg vissir um að hafa sinn mann í
eyranu, og hann hljóti að þekkja
röddina.
Þetta er búið að ganga einhver ár,
og var kunningjanum fyrst dálítið
pínlegt, sérstaklega ef seiðandi kven-
raddir óskuðu eftir snöggri þjónustu
og tóku jafnvel fram að nýlagað kaffi
væri í boði, strax og búið væri að gera
við kranann.
Það kom fyrir að kunninginn óskaði
þess að hafa farið í Iðnskólann í stað-
inn fyrir viðskiptafræðina, en það var
orðið of seint að gera sér rellu út af því.
Enn er verið að hringja og hann far-
inn að kannast við númerin. Vont en
venst.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Píparinn og
símaskráin
Við Fellsmúla | Sími: 585 2888