Morgunblaðið - 14.10.2020, Side 15

Morgunblaðið - 14.10.2020, Side 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020 ✝ Gyða Gísladóttirvar fædd í Reykjavík 2. sept- ember 1924. Hún lést á Hrafnistu 29. september 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Einarsson, f. 5. nóv. 1883, d. 9. júlí 1931, og Ólöf Ásgeirsdótt- ir, f. 26. ágúst 1883, d. 8. des. 1964. Systkini Gyðu voru: Sigríður, f. 1911, Guðrún, f. 1915, Einar Jón, f. 1918, og Ásgeir Héðinn, f. 1920, og eru þau öll látin. Gyða giftist 7. október 1945 Jakobi Jóhanni Sigurðssyni vaktformanni og verktaka, f. 6. ágúst 1923, d. 6. des. 1995. For- eldar Jakobs voru hjónin Ingi- björg Jónsdóttir, f. 4.5. 1888, d. 10.2. 1986, og Sigurður Bárð- arson, f. 5.1. 1888, d. 17.12. 1979. Börn Gyðu og Jakobs eru: 1) Ingibjörg, f. 1945, maki Ómar Hafliðason, látinn, börn þeirra eru Jóhann, Linda Björk og Haf- liði Hörður. 2) Sigríður, f. 1948, maki Sveinn Heiðar Gunnarsson börn Jónas Halldór og Guðrúnu Gyðu en fyrir á Gyða eina dótt- ur, Belindu Ýr. 8) Anton Valur, f. 23. mars 1964, d. 21. sept. 1965. Barnabörnin eru 24, langömmubörn 49 og langalang- ömmubörn fjögur. Gyða ólst upp í Reykjavík og eftir hefðbundna skólagöngu vann hún ýmis störf, m.a. hjá Slysavarnafélaginu, en helgaði sig síðan fjölskyldu og börnum auk þess sem hún tók þátt í verktakavinnu Jakobs. Gyða og Jakob hófu búskap á Bergstaða- stræti en byggðu síðan Berg- þórugötu 2 ásamt foreldrum Jakobs og bróður þar sem þau bjuggu frá 1948 til 1963 er þau fluttu í Stóragerði 21. Eftir and- lát Jakobs flutti Gyða í Hvassa- leiti 56 þar sem hún bjó frá árinu 2000 en síðastliðin tvö ár dvaldi hún á Hrafnistu, Laug- arási. Úför Gyðu fer fram frá Bústaðakirkju í dag 14. október kl. 13. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar viðstaddir en athöfninni verður streymt á: https://www.sonik.is/gyda Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat og eiga þau fjögur börn, Gunnar Val, Önnu Gyðu, Ingu Birnu og Jakob Jó- hann. 3) Ásdís Ólöf, f. 1952, maki Daníel Jónasson og eiga þau fjögur börn, Maríu Sif, Eddu Dröfn, Ómar Orra og Örnu Hlín. 4) Ás- geir Már, f. 1954, maki Ólafía B. Rafnsdóttir, fyrrv. maki Guðrún Pálsdóttir, látin, og eru börn þeirra Gyða Hrönn, Jakob Ingi, og Páll Daði en fyrir átti Guðrún eina dóttur, Ingibjörgu Lilju. 5) Valgerður, f. 1955, maki Albert G. Arnarson, fyrrv. maki Þór- arinn Sigurjónsson (skildu) og eiga þau þrjú börn, Ellen Báru, Anton Kristin og Ásgeir Örn. 6) Gunnar Örn, f. 1959, maki Olga S. Marinósdóttir og eiga þau þrjú börn, Ernu Dís, Díönu Dögg og Daða Frey en fyrir á Gunnar eina dóttur, Guðrúnu Önnu og Olga tvær dætur, Guðmundu og Írisi. 7) Gyða, f. 1962, maki Jónas Halldór Haralz og eiga þau tvö Óvænt var kallið þrátt fyrir há- an aldur. Lífsgæðum hafði hrakað í því fári sem gengur yfir heims- byggðina. Sem vistkona á hjúkrunar- heimili, að glata tækifærum til að fá sína nánustu í heimsókn eða komast í hárlagninguna sína á föstudögum gat skapað vanlíðan, það skynjaði ég vel hjá þér. Elsku mamma. Þú stóðst svo sannarlega fyrir þínu alla tíð. Brosið fallega, tindrandi augu og blíða þín. Hafðir þitt að segja og stóðst á þínu. Hafðir gaman af að fá smá dekur frá þínum nánustu ættingj- um og hjálp við að punta þig þegar mikið stóð til. En elsku mamma , þú varst bú- in að vinna fyrir því öllu, leggja í púkkið gegnum áratugi. Þú varst þakklát og skemmti- leg og naust þín vel með þínu fólki sem umvafði þig. Þinn staður var fallegt heimilið, nánast sem samkomuhús, hús- móðir, sem áttir mikið annríki í kringum fjölskyldur barna þinna og barnabarna. Þú gættir þeirra endalaust, ávallt tilbúin að gera þitt besta. Það kristallaðist í elsku allra þinna niðja sem dáðu þig og lofuðu. Minningar þeirra verða fjársjóður. Þú fylgdir hópnum eftir, misstir varla úr barnaafmæli og varst ómissandi á hátíðarstund- um. Tími ykkar pabba var fallegur, glæsihjón. Stóðuð saman, komuð börnum ykkar á legg og sköpuðu samheldni með kærleika og vinnu- semi. Þar hefur oft verið á brattann að sækja sem þið tókust á í samein- ingu og þurfti að leggja hart að sér að sjá stóru heimili farborða. En elsku mamma. Þú nýttir tíma þinn vel. Áttir auðvelt með að tengjast fólki. Komst okkur á óvart með dugnaði þínum eftir lát pabba, söknuður alla tíð. Aldar- fjórðungi síðar sameinast þú hon- um aftur. Það var gefandi að koma til þín í Hvassaleiti, þú fannst alltaf verk- efni til að leysa. Spjalla um líðandi stund og að fá upplýsingar hvern- ig mínum farnaðist. Þú varst um- hyggjusöm, besta mamma sem hægt er að hugsa sér og við náð- um vel saman. Síðustu dagar þínir reyndu á þig. Nú ert þú farin heim til aust- ursins eilífa. Þar sameinast þú mörgum þinna ástvina. Elsku mamma. Ég mun sakna þín mikið og varðveita minningu þína og þakklátur fyrir allar gæðastundir sem þú gafst mér og fjölskyldu minni. Þinn sonur, Ásgeir Már Jakobsson. Margs er að minnast margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast og margs er að sakna. Guð þerri trega tárin stríð (Valdimar Briem) Hún kvaddi þennan heim hún tengdamóðir mín Gyða Gísladóttir þriðjudaginn 29. september 2020, 96 ára gömul. Hún kvaddi snöggt eins og hún hafði óskað sér. Gyðu kynntist ég fyrst fyrir 55 árum síðan þegar ég ungur maður gekk með grasið í skónum á eftir næstelstu dótturinni. henni Siggu minni. Hún og Jakob maður henn- ar, sem lést um aldur fram 1995, tóku mér, þessum strákpjakki úr Vesturbænum, mjög vel og oft átt- um við Gyða skemmtilegt spjall við eldhúsborðið í Stóragerðinu en þar var alltaf líf og fjör. Þetta var stundum eins og strætóstoppi- stöð, börn, tengdabörn og barna- börn að koma eða fara búin að borða eitthvað sem hafði verið töfrað fram af henni og tengda- pabba sem var yndislegur og góð- ur maður. Þau stóðu samhent í þessu, hvort sem það var virkur dagur, jól, aðfangadagskvöld, gamlárskvöld og hver man ekki eftir Þorláksmessukvöldunum eftir að búðir lokuðu í smörrebröd og kannski lítinn bjór. Þá voru það þorrablótin, maður lifandi allt var þetta haldið í Stóragerðinu og allir komust fyrir og allt er þetta minn- isstætt. Utanlandsferðirnar sem farnar voru eru flestum minnis- stæðar, m.a. Glasgow, London, Spánn eða Þýskaland svo eitthvað sé nefnt. Það var alltaf líf og fjör í kring- um þau hjónin. Eftir fráfall Jak- obs hefur stórfjölskyldan komið saman sérhver jól og haldið jóla- samkomu og þá dugir ekkert minna en salur. Gyða flutti í Hvassaleiti 56 árið 2000 þar sem hún eignaðist marga góða vini. Þar tók hún þátt í jóga, boccia o.fl. og barnabörn nutu þess að heim- sækja ömmu í Hvassó og spila jóla- og páskabingó. Gyða sótti í meira en 20 ár eldriborgarastarf á miðvikudögum í Bústaðakirkju þar sem hún bjó til marga fallega hluti til að gleðja afkomendur sína með. Þessar stundir gáfu henni mikið og í kirkjunni eignaðist hún vini og fór í margar eftirminnileg- ar ferðir með þeim. Gyða þurfti alltaf að eiga sælgæti til að grípa í þegar einhver kom í heimsókn, tala nú ekki um ömmubörnin hvort heldur var í Hvassaleitinu eða á Hrafnistu þá dró hún alltaf fram eitthvað sem gott var að stinga upp í sig. Síðustu tvö árin bjó hún á Hrafnistu í Reykjavík og átti þar góðar stundir. Hún elskaði að fylgjast með íþróttum og var eiginlega alæta á þær allar. Gyða var yndisleg kona og átti gott með að fá fólk til að hlæja að hinum ýmsu uppátækjum og frös- um hennar. Öllum ömmubörnum hennar, stórum og smáum, var hún góð og öllum þótti vænt um ömmu Gyðu og þekkti hún þau flest ef ekki bara öll með nafni til síðustu stundar. Í fallegum texta eftir Ómar Ragnarsson um íslensku konuna, segir Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla á fold. Þú veist hver var skjól þitt þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin, hún hnígur, og sólin hún rís, og sjá þér við hlið er þín hamingjudís, sem alltaf er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það er íslenska konan, tákn trúar og vonar, sem ann þér og helgar sitt líf. Ég þakka að lokum yndislegri tengdamóður samfylgdina í 55 ár Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýðarhnoss þú hljóta skalt (Valdimar Briem) Sveinn Heiðar (Svenni). Þá kom kallið, nú var hún elsku amma mín sótt. Hún náði þeim ótrúlega áfanga að verða 96 ára núna í byrjun september. Sjálf átti ég ekki von á því að hún myndi ná svona háum aldri þegar elsku afi dó fyrir nærri 25 árum en nú eru þau loksins sameinuð og blessunin ánægð, hún er búin að bíða lengi eftir honum. Þegar maður nýtur þeirra for- réttinda að verða sjálfur svona fullorðinn og eiga ömmu á lífi þá eru auðvitað minningarnar marg- ar. Amma og afi voru þannig að ég dróst til þeirra í heimsókn, ekki síst þegar ég sjálf var orðin full- orðin, þá var gaman að renna við hjá þeim, alltaf svo gaman að sitja hjá þeim og spjalla, þau gáfu sér alltaf tíma og höfðu alltaf áhuga. Í seinni tíð voru nú heimsókn- irnar bestar þegar við amma vor- um bara tvær, við gátum alltaf blaðrað svo mikið saman og hleg- ið, hún sagði sögur frá því hún var ung, rifjaði upp dýrmætar minn- ingar og átti svo myndir til að sýna mér. Ég hef alltaf verið stolt af því að vera skírð í höfuðið á elsku ömmu, hún var svo yndisleg, falleg og lítil kona með svo stórt hjarta sem átti pláss fyrir okkur öll. Hún lét sig ekki vanta í neina veisluna, í neitt boðið, hún var al- gjör foringi. Alltaf var hún svo fín, með fallega lakkaðar neglurnar, skartið á sínum stað, hárið gull- fallegt og hún svo yndislega sæt. Við vorum svo heppin að hún gat komið í fermingarveislu hjá okkur í sumar og endaði hún daginn á því að fá sér rauðvínsglas. Hún svo sannarlega lifði lífinu og naut þess, hljóp með göngugrindina og hló svo fallega. Ég prjónaði og heklaði nokkur sjöl handa henni og fór hún með þau eins og um gull væri að ræða. Hún braut þau saman, strauk þeim og gekk svo fallega frá þeim ef hún var ekki með þau á herð- unum en hún fór nú svo vel með alla hlutina sína, það var líka ein- staklega gaman að gefa henni. Hún gaf mér líka hluti sem hún hafði perlað og könnur og fleira sem hún hafði málað á, allt svo fal- legt sem hún gerði. Ég hef líka alltaf reynt að gera eins og amma og passa þessa hluti eins og mína mestu dýrgripi, sem þeir auðvitað eru, hef alltaf stolt sýnt það sem hún hefur gefið mér og mun passa þetta enn frekar núna. Margt lærði ég af ömmu, margt ætla ég að gera eins og hún. Hún mundi nöfnin á öllum börnunum sem bættust á ættartréð hennar og þau eru mörg! Hún spurði um alla og passaði upp á alla. Hún var dugleg að hringja til að spjalla og stundum skammaði hún mig fyrir það að vera ekki búin að koma í heimsókn en svo hló hún bara og sagði mér sögur. Ég ætla að vera svona amma. Ég ætla að vera svona amma Gyða. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Blessuð sé minning elsku ömmu. Gyða Hrönn Ásgeirsdóttir. Allar ömmur eru góðar en hún amma í Stóró er með þeim betri ef ekki bara best. Amma var alltaf til staðar og tók höfðinglega á móti okkur bæði í Stóragerði og síðar Hvassaleiti. „Viltu ekki eitthvað að borða?“ eða „Má ekki bjóða þér eitthvað?“ var kunnuglegur frasi hjá ömmu. Að koma í hádegi til ömmu var veisla. Hún gerði besta matinn með kakósúpu og steiktum kjöt- bollum og brúnni sósu í farar- broddi að ógleymdri soðinni ýsu með kartöflum og tómatsósu og brauðsúpu. Svo var hvíta borð- tuskan aldrei langt undan, alltaf á lofti, alltaf jafn hvít og amma þreif á okkur fingur og neglur fyrir og eftir mat. Í seinni tíð fór maður ekki frá ömmu án þess að hafa fengið sætabrauð, nammi eða púrtvínsstaup. Mannfagnaðir voru í miklum metum hjá ömmu en hún gerði allt til að geta mætt á alla viðburði alla tíð. Hún var afar kappsfull um að vera vel tilhöfð og fín. Ef hún gat ekki mætt þá bað hún um „date“ og fékk „update“ um allt og alla. Hún gerði sér far um að fá fréttir af fólki og segja fréttir af fólki. Hún sá það jákvæða hjá fólki og var sjálf ávallt með jákvæðnina að vopni. Það var alltaf stutt í hlátur og grín. Jólin og áramótin voru uppá- haldsárstími ömmu og afa og hjá þeim sköpuðust hefðir sem haldið er í enn í dag með samveru og gleði langt fram eftir jólanótt og líktist meira ítölsku umhverfi en íslensku. Börnin sátu í tröppunum og brölluðu á meðan fullorðnir skvöldruðu og amma og afi báru veitingar í okkur öll, snittur, öl og sætindi eins og enginn væri morg- undagurinn. Undir morgun var svo farið heim og við borin í rúmið örþreytt með stórhátíðina í blóðinu. Amma hafði mikið dálæti á börnum. Þau voru alltaf velkomin og hún var þeim alltaf góð. Inn á milli gat hún þó verið mjög stríðin en hún hafði einstakt lag á að bretta upp á augnlokin sín til að bregða okkur. Nornagrímuna úr efri skápnum setti hún upp þegar maður átti síst von á því, en maður bar óttablandna virðingu fyrir þeirri grímu. Þessi saklausu strákapör gáfu ömmu gott tæki- færi til að faðma okkur enn betur að sér, hugga okkur og sýna vænt- umþykju. Eitt af því magnaða við ömmu var að þrátt fyrir að stórfjölskyld- an teldi um 150 beina og óbeina af- komendur þá vissi hún um alla, alltaf. Hún spurði fregna af fólki og fékk fregnir. Hún hélt látalaust uppi skipulagi í stóru fjölskyld- unni með sínu jákvæða viðmóti og einlægni hvort sem var í Stóra- gerði, Hvassaleiti eða á ferðalög- um erlendis. Við munum sakna hins blíða viðmóts ömmu og við munum minnast hennar og afa við öll möguleg tækifæri. Við þökkum þér allt elsku amma og biðjum að heilsa afa, sem við efumst ekki um að taki glaður og flautandi á móti þér. Við vitum að þú nýtur nú lystisemda paradísar með honum og með gilt ökuskírteini krúsið þið um himnaríki á Benz til Beni- dorm. Anna Gyða, Gunnar Valur, Inga Birna, Jakob Jóhann. Elsku besta amma. Það er ótrúlega erfitt og skrítið að kveðja ömmu sína núna á þess- um skrýtnu tímum. Að fá að alast upp í eins samheldinni fjölskyldu er ómetanlegt og að hafa alltaf að- gang að ömmu sinni er mér svo dýrmætt. Að koma til ömmu og afa í Stóragerði var eins og um- ferðarmiðstöð. Þar var alltaf há- degismatur og þar sem ég var í skóla við hliðina á þeim þá fór ég alltaf í mat til þeirra, þar voru mikil hlátrasköllin sem heyrðust um allt. Svo var amma alltaf tilbú- in með hvítu bleyjuna/tuskuna til að þrífa okkur um hendur og munn. Amma var mikill fagurkeri og var alltaf flott og fín. Amma var hrókur alls fagnaðar og að fá að ferðast með henni var algjört æv- intýri sem hlýjar manni á þessum tímum. Við amma hittumst alltaf á hverjum föstudegi og það gladdi okkur báðar svo mikið. Elsku amma, ég veit að nú ertu komin til afa og þið dansið saman. Þín Linda. Gyða Gísladóttir  Fleiri minningargreinar um Gyðu Gísladóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Hjallanesi, lést laugardaginn 10. október. Sigrún Björk Benediktsdóttir Valtýr Valtýsson Valtýr Bjarki Valtýsson Dagný Ásta G. Andersen Kristinn Þór Valtýsson Helena Björgvinsdóttir Vala Rún Valtýsdóttir Kristinn Júlíusson Guðbjörg Forberg Elskuleg móðir mín, amma, systir okkar og mágkona, HILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR frá Flórída, Bandaríkjunum, áður til heimilis í Bræðraborg, Höfnum, lést á heimili sínu laugardaginn 10. október. Jarðarför verður auglýst síðar. Sonja Ósk Matos Casandra Ortiz Jóhanna Guðmundsd. Sells, Bill Sells Sigurjón Guðmundsson Þórdís Guðmundsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÞORSTEINSSON bóndi, Heiði, Biskupstungum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 11. október. Ágústa S. Sigurðardóttir Gísli Þórarinsson Þorsteinn Sigurðsson Abigael Sörine Kaspersen Guðmundur B. Sigurðsson Guðríður Egilsdóttir Brynjar S. Sigurðsson Marta Sonja Gísladóttir og fjölskyldur Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.