Morgunblaðið - 14.10.2020, Síða 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020
✝ Helga Hans-dóttir fæddist í
Reykjavík 10. nóv-
ember 1923. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eir 30.
september 2020.
Foreldrar hennar
voru Hans R. Þórð-
arson stórkaupmað-
ur í Reykjavík, f.
19.11. 1901, d. 18.7.
1974, og fyrri kona
hans, Guðrún Sveinsdóttir, f.
21.6. 1901, d. 26.2. 1925. Albróðir
Helgu var Gunnar, arkitekt, f.
19.2. 1925, d. 6.1. 1989. Seinni
kona Hans Ragnars var Hanna
Þórðarson, f. 24.2. 1901, d. 1.6.
1993. Sonur þeirra var Ragnar
Már, rafvirkjameistari á Siglu-
firði, f. 18.7. 1931, d. 18.10. 2003,
og dóttir þeirra Hansína Hrund,
f. 13.5. 1933.
Helga ólst upp hjá móðurfor-
eldrum sínum, Sveini Jóni Ein-
arssyni bónda í Bráðræði í
Reykjavík og Helgu Ólafsdóttur
konu hans.
Helga giftist 13. desember
1947 Þorsteini Þorsteinssyni við-
skiptafræðingi, f. 31.3. 1920, d.
15.12. 2015. Foreldrar hans voru
Þorsteinn Þorsteinsson hag-
fyrstu 26 árin á Laufásvegi 57 í
húsi foreldra Þorsteins og frá
1955 til 1974 heldu þau heimili
með Þorsteini eldri eftir að Guð-
rún kona hans lést. Helga og
Þorsteinn bjuggu lengi á Flóka-
götu 62 þar sem Þorsteinn rak
sérverslun fyrir fluguveiði. Árið
2007 fluttu Helga og Þorsteinn á
Sléttuveg 13.
Helga lauk verslunarprófi frá
Verzlunarskóla Íslands árið
1941 og starfaði síðan sem skrif-
stofumaður hjá Samninganefnd
utanríkisviðskipta til ársins 1945
að hún fór til Bandaríkjanna þar
sem hún stundaði nám í tann-
smíði við School of Mechanic
Dentistry í Boston. Eftir heim-
komuna starfaði Helga við tann-
smíðar þar til heimilisstörfin
tóku við. Seint á sjöunda ára-
tugnum réð hún sig í vinnu sem
póstfreyja. Hún stundaði seinna
nám í Póstskólanum og starfaði
sem póstafgreiðslumaður þar til
hún lét af störfum 70 ára árið
1993.
Útför Helgu fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 14.
október 2020, klukkan 11. Vegna
aðstæðna í þjóðfélaginu verða
aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir útförina. Athöfninni
verður streymt á slóðinni:
https://youtu.be/FNRtbtqsdi0
Virkur hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
stofustjóri og kona
hans Guðrún Geirs-
dóttir Zoëga, hús-
móðir og skrift-
arkennari. Börn
Helgu og Þorsteins
eru: 1) Guðrún, fv.
launafulltrúi, f.
1948, maki Friðrik
G. Olgeirsson sagn-
fræðingur, f. 1950.
Börn þeirra eru
Sturla Geir, f. 1975,
Helga, f. 1980, og Þorsteinn
Gunnar, f. 1990. 2) Sigrún, fv.
flugfreyja, f. 1950, maki Brynj-
ólfur Markússon rafverktaki, f.
1949. Sonur þeirra er Jóhannes, f.
1989. Fyrir átti Sigrún synina
Frank Þór, f. 1969, og Egil Rúnar,
f. 1975, og Brynjólfur dæturnar
Hallfríði, f. 1972, og Báru, f. 1978.
3) Hans Ragnar byggingameist-
ari, f. 1958, maki Helga Laufdal
leikskólastarfsmaður, f. 1956.
Börn þeirra eru Linda, f. 1974,
Tómas, f. 1981, Heba, f. 1985, og
Geir, f. 1991. 4) Sveinn forritari, f.
1960, maki Heiða Lára Eggerts-
dóttir grunnskólakennari, f. 1960.
Dætur Sveins eru Kristín, f. 1988,
og Lára, f. 1995. Aðrir afkom-
endur Helgu eru á þriðja tug.
Heimili Helgu og Þorsteins var
Mamma var aðeins eins árs
þegar móðir hennar Guðrún dó
af barnsförum. Föðurforeldrar
hennar tóku að sér nýfæddan
bróður hennar en móðurforeldr-
ar, Sveinn Jón og Helga, tóku
hana að sér og ólu upp. Um tví-
tugt styrkti Hans Ragnar faðir
mömmu hana til náms til Banda-
ríkjanna að læra tannsmíði.
Þetta var stuttu eftir seinni
heimsstyrjöldina og ferðaðist
hún með herflugvél sem var full-
setin bandarískum hermönnum
sem voru að koma frá Evrópu á
leið heim eftir stríðið. Það hefur
verið glatt á hjalla hjá þeim og
ekki leiðinlegt að hafa unga fal-
lega stúlku sem ferðafélaga í
þessu langa flugi. Þarna sat
mamma alla leiðina með með fall-
hlíf á bakinu og vel klædd en
amma hennar hafði ráðlagt henni
að vera í föðurlandinu þar sem
það yrði svo óskaplega kalt yfir
Grænlandi.
Fljótlega eftir að mamma kom
heim kynntist hún föður mínum,
Þorsteini, og þau giftu sig 1947.
Þau fluttu í íbúð í húsi foreldra
pabba, Þorsteins og Guðrúnar,
við Laufásveg en þegar Guðrún
lést 1955, þá tók mamma einnig
við heimili tengdaföður síns. Það
hefur verið fullt starf fyrir unga
konu að sjá um stórt heimili þar
sem heimilisstörfin voru sjö daga
vikunnar frá morgni til kvölds.
Við systkinin ólumst upp við það
að finna kakóilminn þegar við
vöknuðum á morgnana áður en
við fórum í skólann og steikarilm-
inn af hádegismatnum um helgar.
Þvottadagar voru ekki auð-
veldir á þessum tímum. Ég sé
mömmu í minningunni í stígvél-
unum á blautu þvottahúsgólfinu
lyfta þungum þvotti með kúst-
skafti milli bala. Hún var ósér-
hlífin og myndarleg húsmóðir
sem saumaði og prjónaði föt á
fjölskylduna og dúkkurnar okkar
systranna voru ekki undanskild-
ar. Mamma var vinsæl af vinum
okkar systkinanna og voru þeir
alltaf velkomnir heim og ekkert
sjálfsagðara en að bjóða þeim í
mat ef þeir voru hjá okkur.
Mamma naut þess að fara í
göngutúra og utanlandsferðir,
sérstaklega til Spánar, en það
voru ekki til miklir peningar til
fyrir þannig lúxus. Hún ákvað að
fara að vinna en tannsmíðanámið
var orðið frekar úrelt eftir mörg
ár í húsmóðurstarfinu.
Þá datt henni í hug það snjall-
ræði að fyrst hún hefði gaman af
því að ganga, því ekki fá peninga
fyrir það! Hún réð sig sem póst-
freyju og starfaði við það í Þing-
holtunum og svo seinna í Breið-
holti. Mamma fékk nú laun og
gat farið í sólarferðir því hún
elskaði sólböð og sund. Hún synti
500 metra daglega í Sundlaug-
unum í Reykjavík fram yfir ní-
rætt.
Það var yndislegt að eiga góða
móður þegar ég sem einstæð
móðir þurfti að fara heilu dagana
og næturnar í burtu vegna vinnu
minnar en þá kom ekki til greina
annað af hálfu mömmu en að
hafa syni mína hjá þeim á meðan
ég var í burtu og er ég því æv-
inlega þakklát.
Síðustu árin bjuggu foreldrar
mínir á Sléttuvegi 13. Pabbi dó
2015, 95 ára að aldri, og var það
mikill missir fyrir mömmu og
minntist hún oft á það hvað hún
saknaði hans mikið.
Mamma fluttist á Eir á síðasta
ári og þar hefur henni liðið vel
þrátt fyrir mikið minnistap. Hún
var umvafin frábæru starfsfólki
sem var svo yndislegt við hana og
færum við systkinin því innileg-
ustu þakkir.
Sigrún Þorsteinsdóttir.
Í dag er til moldar borin
tengdamóðir mín, Helga Hans-
dóttir, 97 ára að aldri. Lengst af
var hún við ágæta heilsu og bar
aldurinn vel þótt minnið hafi ver-
ið farið að gefa sig undir það síð-
asta.
Það stöðvar enginn tímans
þunga nið, eins og norðlenska
þjóðskáldið komst að orði í einu
ljóða sinna, og það fækkar óðum í
röðum þeirra sem létu að sér
kveða um og eftir miðja síðustu
öld.
Það var vorið 1974 sem ég kom
í fyrsta sinn á heimili Helgu og
Þorsteins Þorsteinssonar eigin-
manns hennar á Laufásveginum í
fylgd eldri dóttur þeirra, Guð-
rúnar. Móttökur voru góðar og
mér leið strax vel á heimilinu.
Með samræðunum fylgdist Þor-
steinn eldri, fyrsti hagstofustjóri
landsins, sem átti heimili með
þeim hjónum.
Um tíma bjuggum við Guðrún
skammt frá tengdaforeldrum
mínum í Breiðholti og þá var oft
daglegur samgangur milli heim-
ilanna. Eftir að við fluttum í Mos-
fellsbæ árið 1979 og Helga og
Steini stuttu seinna á Flókagötu
urðu sunnudagsheimsóknir til
þeirra fastur liður í tilverunni.
Helga sá um kaffi og meðlæti og
svo var setið og spjallað um það
sem efst var á baugi hverju sinni.
Margs er að minnast frá liðn-
um árum. Meðal þess sem kemur
upp í hugann eru ánægjulegar
ferðir með Helgu og Steina í
sumarbústaði og í nokkur ár fór-
um við saman í ferðalög um
verslunarmannahelgi. Helga var
félagslynd og hafði mikla ánægju
af ferðalögum, bæði innanlands
og til fjarlægari landa. Um og
eftir aldamótin síðustu fórum við
Guðrún í nokkrar ferðir til Dan-
merkur. Árið 2004 bættust Helga
og Steini í hópinn og á næstu ár-
um fórum við í allmargar sum-
arferðir saman. Þá leigðum við
sumarhús á ýmsum stöðum og
fórum í dagsferðir um nálægar
sveitir. Þetta voru ógleymanleg-
ar ferðir; við vorum heppin með
veður og ávallt var glatt á hjalla
og umræðuefnin óþrjótandi.
Stundum sagði Helga okkur frá
því sem á daga hennar hafði drif-
ið þegar hún var ung, löngu liðn-
Helga Hansdóttir
✝ Stella Stefáns-dóttir fæddist
26. júní 1941 á
Hömrum, Hraun-
hreppi, Mýrasýslu.
Hún lést á heimili
sínu í Reykjavík 30.
september 2020.
Foreldrar hennar
voru Stefán
Sigurðsson, f. 6.3.
1910, d. 18.8. 1988,
og Ásta Björns-
dóttir, f. 22.5. 1921, d. 5.3. 2011.
Þau skildu. Albróðir: Björn Sig-
urður, f. 1940.
Sammæðra systkin: Hulda
Sigurvinsdóttir, f. 1947, d. 2017.
Logi Arnar Guðjónsson, f.1951.
Sveinbjörn Guðjónsson, f. 1952.
Guðmundur Guðjónsson, f. 1954.
Jón Ívar Guðjónsson, f. 1955.
Samfeðra: Ragnheiður Ein-
björg, f. 1960.
Hinn 25.12. 1966 giftist Stella
eftirlifandi eiginmanni, Ás-
mundi Reykdal, f. 27.7. 1945.
Foreldrar Ásmundar voru
Kristján Reykdal, f. 27.7. 1918,
d. 8.3. 2013, og Jóhanna Ög-
mundsdóttir, f. 6.6.1917, d. 27.5.
1997. Synir Stellu og Ásmundar
eru: 1) Jóhann Kristján, f. 6.10.
1966, kvæntur Ásu Þorkelsdótt-
ur, f. 1964. Synir þeirra eru Ás-
mundur, f. 1997, og Kristján
Ari, f. 2000. 2) Ögmundur Reyk-
dal, f. 22.7. 1968, kvæntur Val-
gerði Aðalsteinsdóttur, f. 1970.
Dætur þeirra eru a) Jóhanna, f.
1988, sambýlism. Andreas Es-
tensson, f. 1989. Börn þeirra eru
Kristín Lilja, f. 2013, og Óskar
Emil, f. 2018. b) Ásdís, f. 1995,
Stella og Ásmundur stofnuðu
heimili á Langholtsvegi 113 árið
1965. Fjölskyldan flutti 1971 í
Þórufell 12 í Breiðholti og voru
þau frumbýlingar. Árið 1977
hófu þau byggingu húss í
Starrahólum 11 og fluttu inn í
það 1980.
Ásamt húsmóðurstörfunum
stundaði Stella ávallt vinnu.
Hún prjónaði lopapeysur og
seldi og vann í mörg ár við ræst-
ingar í höfuðstöðvum SÍS við
Sölvhólsgötu. Árið 1988 hóf hún
störf sem ritari hjá borgarverk-
fræðingi þar til hún komst á eft-
irlaunaaldur.
Stella hafði alltaf mikinn
áhuga á félagsmálum og tók
virkan þátt í þeim. Hún var um
árabil í stjórn verkakvenna-
félagsins Framsóknar og var
þar ritari um skeið. Í pólitík var
hún á framboðslista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík í alþingis-
kosningum árið 1979 og í borg-
arstjórnarkosningum árið 1982.
Um árabil var hún virkur félagi
í Slysavarnafélagi Reykjavíkur,
síðar Landsbjörg, og vann þar
ýmis sjálfboðaliðsstörf við fjár-
öflun og fleira
Útförin fer fram frá Fella- og
Hólakirkju í dag, 14. október
2020, og hefst athöfnin klukkan
15. Í ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu aðstandendur við-
staddir.
Streymt verður frá athöfn-
inni á slóðinni:
https://www.rafmennt.is/stella
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á:
https://www.mbl.is/andlat
sambýlism. Ragnar
K. Lárusson, f.
1990. Sonur þeirra
er Unnar Atli, f.
2018. c) Sóley, f.
1999, sambýlism.
Alfreð Valencia, f.
1998.
Fyrir átti Stella
synina: 1) Stefán
Örn Einarsson, f.
14.3. 1962, kvænt-
ur Hafdísi Huld
Reinaldsd., f. 1962. Börn þeirra
eru a) Fannar Már, f. 1979,
kvæntur Lisbeth Lebæk Jesper-
sen, f. 1978. Synir þeirra eru
Stormur, f. 2009, og Elmar, f.
2013. b) Stella, f. 1988, sam-
býlism. Einar Örn Sigurjónsson,
f. 1989. Börn þeirra eru María
Mist, f. 2014, og Stefán Örn, f.
2020. 2) Guðjón Sævar Guð-
bergsson, f. 15.7. 1963. Dóttir
Guðjóns og Ruth Reginalds, f.
1965, er Sæbjörg, f. 1984, gift
Starra Vilbergssyni, f. 1978.
Dóttir þeirra er Emilía Nótt, f.
2006. Sonur Sæbjargar er Fann-
ar Freyr Haraldsson, f. 2001.
Sonur Guðjóns og Gayle Scobie,
f. 1952, er Alex James, f. 1989.
Stjúpdóttir er Michelle Marie
Morris, f. 1986.
Stella flutti með móður sinni
og stjúpa, Guðjóni Sveinbjörns-
syni, til Reykjavíkur níu ára.
Hún gekk í Melaskóla og Gagn-
fræðaskólann við Hringbraut,
þar sem hún lauk gagnfræða-
prófi. Hún var í Kvennaskól-
anum á Blönduósi 1959-1960. Á
yngri árum var hún t.d. í kaupa-
vinnu og afgreiðslustörfum.
Ég minnist tengdamóður
minnar hennar Stellu (ömmu
Stellu) með hlýhug. Hún var frá-
bær kona sem aldrei sló slöku við.
Hún var lífleg og skemmtilega
hreinskilin og beinskeytt. Fylgd-
ist vel með öllu og öllum. Stoppaði
sjaldnast og ef hún settist niður
þá var hún með prjónana í hönd-
unum.
Hún kom inn í líf mitt fyrir 44
árum, ég var þá 14 ára og Stebbi
kærastinn minn. Man vel eftir
deginum þegar hún hringdi og
vildi koma í heimsókn, þá var ég
16 ára og komin ca. 6 mánuði á
leið með Fannar, hún ætlaði sko
ekki að missa af ömmuhlutverk-
inu. Ég var hálfstressuð yfir þess-
ari heimsókn en það var nú óþarfi,
hún mætti bara til að brjóta ísinn
og kynnast mér betur og mikið
var það gott. Eftir þennan dag
vorum við alltaf mestu mátar. Ég
gat alltaf leitað til hennar og það
kom líka fyrir að hún leitaði til
mín. Hún stóð alla tíð með okkur
og aðstoðaði ef á þurfti að halda.
Kom með ungbarnaföt sem hún
hafði saumað í Kvennaskólanum á
Blönduósi og gaf mér. Föt sem
Stebbi hafði verið í. Útvegaði
vöggu og saumaði gult fallegt ver
utan um hana. Hún vildi að við
værum sjálfstæð í foreldrahlut-
verkinu þó við værum ung, en var
alltaf tilbúin að aðstoða og hjálpa
ef á þurfti að halda. Seinna gáfum
við henni alnöfnuna Stellu Stef-
ánsdóttur sem ég veit að henni
þótti afskaplega vænt um.
Ég á endalaust margar minn-
ingar um samverustundir, heim-
sóknir í Starrahólana og á Hofsós.
Alltaf svo gott að koma til Stellu
og Ása. Ég minnist hennar sem
tengdamömmunnar sem hélt frá-
bærustu jólaboðin, grillveislurnar
og viðburðina. Aldrei neitt vanda-
mál þó við værum á misjöfnu mat-
aræði (eins og tíðkast í dag), allir
fengu sitt. Þótt sumir væru græn-
metisætur jafnvel vegan og aðrir
borðuðu bara pasta þá var auðvit-
að allt eldað. Það var oft ansi mar-
gréttað í hólunum en það var sko
ekki vandamál fyrir ömmu Stellu.
Sveppasúpan á gamlárskvöld
mátti ekki klikka og það var eitt-
hvað verulega gott við hana.
Spurning hvað hún setti í hana
sem gerði hana svona góða.
Amma Stella var alltaf á fullu
og það gat verið erfitt að fá hana
til að setjast niður og borða með
okkur hún var alltaf að passa að
allir fengju sitt, var á fleygiferð
um húsið. Hún var jú af gamla
skólanum og passaði vel upp á að
allir fengju nú örugglega nægju
sína. Hún var límið í fjölskyldunni
og hjá henni og Ása hitti maður
fjölskyldu og vini. Mikið er ég
þakklát fyrir að hafa fengið að
eiga hana sem tengdamóður öll
þessi ár og mikið á ég eftir að
sakna hennar. Við áttum gott
samband alla tíð.
En að lokum vil ég segja takk,
elsku Stella mín, fyrir allt. Ég veit
að þú ert á góðum stað núna. Við
sjáumst síðar.
Elsku Ási, þú átt alla mína
samúð en við erum sterk fjöl-
skylda og stöndum saman.
Þín tengdadóttir,
Hafdís (Haddý).
Sæbjörg mín …
Svona byrjuðu ófá skilaboðin
frá þér á Facebook elsku amma
mín. En nú verða þau ekki fleiri.
Ekki frekar en símtöl, heimsókn-
ir, jólaboð og svo mætti lengi
telja. Enda varst það þú sem
passaðir upp á að fjölskyldan
sameinaðist við ýmis tækifæri. Þú
varst límið sem hélt þessu saman.
79 ára er enginn aldur hugsar
maður, alla vega fannst mér þú
alltaf síung og í barnslegri hugsun
minni hélt ég að þú myndir lifa
okkur öll. Ég hélt ég hefði nægan
tíma til að njóta með þér.
Stella Stefánsdóttir
Yndislega móðir mín, tengdamóðir og
amma,
SÓLRÚN HERMANNSDÓTTIR,
lést sunnudaginn 4. október.
Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þórdís Ingjaldsdóttir Guðmundur Arnarsson
Sólrún Sif Arnar Orri
Sigríður Birta
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir
og amma,
HELGA HELGADÓTTIR,
Álfaskeiði 102, Hafnarfirði,
er lést á líknardeild Landspítalans
29. september, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 16. október klukkan 15.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á
slóðinni: https://promynd.is/live
Helgi Freyr Kristinsson Helga Sigurbjörg Árnadóttir
Kristinn Freyr Kristinsson Hildur Ísfold Hilmarsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ERLENDUR GUÐLAUGUR
EYSTEINSSON,
fyrrverandi bóndi á Stóru-Giljá,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
fimmtudaginn 1. október. Útförin fer fram frá
Þingeyraklausturskirkju laugardaginn 17. október klukkan 14.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Þingeyraklausturskirkju, banki
0307-13-785, kt 710269-3439.
Í ljósi aðstæðna verður aðeins nánasta fjölskylda viðstödd
útförina. Bein vefútsending er frá facebooksíðunni: Útför
Erlendar G. Eysteinssonar. Einnig verður sent út frá mbl.is og
útvarpað frá athöfn við kirkju, bylgjulengd 106,5.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Helga Búadóttir
Árdís Guðríður Erlendsdóttir
Ástríður Helga Erlendsdóttir
Eysteinn Búi Erlendsson Bahrotut Takiyah
Sigurður Erlendsson Þóra Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn