Morgunblaðið - 14.10.2020, Síða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020
Í gær var allt starfslið A-landsliðs
karla í knattspyrnu sent í sóttkví af
smitrakningarteymi almanna-
varnadeildar ríkislögreglustjóra
eftir að starfsamaður landsliðsins
greindist með kórónuveiruna.
Þjálfarinn, Erik Hamrén, og Freyr
Alexandersson aðstoðarþjálfari
verða því ekki á hliðarlínunni en
fengu leyfi til að vera í glerbúri á
Laugardalsvellinum. Freyr greindi
frá þessu í samtali við 433.is í gær-
kvöldi og sagði þá vera með fjar-
skiptabúnað til að koma skila-
boðum áleiðis.
Eru í sóttkví en
geta fylgst með
Morgunblaðið/Íris
Sóttkví Erik Hamrén fær ekki að
vera á hlíðarlínunni í kvöld.
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari U21
árs landsliðsins í knattspyrnu, verð-
ur á hliðarlíunni þegar Ísland mæt-
ir Belgíu í Þjóðadeildinni á Laugar-
dalsvelli í kvöld. Mun hann stýra
liðinu og tekur við skilaboðum frá
Erik Hamrén og Frey Alexand-
erssyni. Ásamt Arnari verða þeir
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U17
landsliðs karla, og Þórður Þórðar-
son, þjálfari U19 landsliðs kvenna, í
teyminu. Þórður verður mark-
mannsþjálfari. Annað starfsfólk á
morgun kemur úr öðrum lands-
liðum á vegum KSÍ.
Morgunblaðið/Eggert
Staðgengill Arnar Þór Viðarsson
hleypur í skarðið í dag.
Arnar Þór á
hliðarlínunni
BELGÍA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Það verður vængbrotið íslenskt
landslið sem tekur á móti Belgíu í
Þjóðadeild UEFA í knattspyrnu á
Laugardalsvelli í kvöld.
Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson,
Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór
Sigurðsson, Jóhann Berg Guð-
mundsson og Alfreð Finnbogason
verða allir fjarri góðu gamni en þeir
hafa verið lykilmenn í liðinu und-
anfarin ár.
Þá er Arnór Sigurðsson, leik-
maður CSKA Moskvu, einnig meidd-
ur og ekki leikfær en hann hefur
fengið tækifæri í byrjunarliði Íslands
undanfarin ár í fjarveru Jóhanns
Bergs Guðmundssonar.
Íslenska liðið hefur ekki riðið feit-
um hesti í Þjóðadeildinni frá stofnun
hennar í september 2018 en Ísland,
ásamt smáríkinu San Marínó, er eina
landið sem hefur ekki fengið stig í
keppninni frá því að hún var sett á
laggirnar.
Þá hefur ekkert land fengið á sig
fleiri mörk í Þjóðadeildinni eða 22
talsins. Íslenska liðinu hefur heldur
ekki gengið vel að skora í keppninni
en liðið hefur skorað tvö mörk.
Alfreð Finnbogason skoraði það
fyrra gegn Sviss á Laugardalsvelli í
október 2018 og Hólmbert Aron
Friðjónsson það seinna gegn Belgum
í Brussel í september 2020. Þeir eru
hvorugir í hópnum núna vegna
meiðsla.
Leikir sem allir vilja spila
Birkir Bjarnason verður með fyr-
irliðabandið í leiknum í kvöld en
hann á að baki 88 A-landsleiki fyrir
Ísland og er á meðal reyndustu
leikmanna landsliðsins í Þjóða-
deildinni.
„Það hefur verið mikið um meiðsli
í okkar leikmannahópi frá því að
Þjóðadeildin var stofnuð og við höf-
um því verið óheppnir í keppninni að
mínu mati,“ sagði Birkir á blaða-
mannafundi íslenska liðsins í höf-
uðstöðvum KSÍ í Laugardal í gær.
Birkir telur ekki að leikmenn liðs-
ins eigi erfitt með að gíra sig upp í
leiki í Þjóðadeildinni þrátt fyrir
slæmt gengi.
„Nei, þvert á móti. Við erum að
spila á móti bestu liðum heims og
bestu leikmönnum heims líka. Þetta
eru leikirnir sem allir vilja spila.
Það þarf enginn að hafa áhyggjur
af því að leikmenn séu ekki gíraðir
upp í leikina í þessari keppni því það
hefur aldrei verið vandamál.
Eins og ég kom inn á áðan þá höf-
um við verið óheppnir með meiðsli í
keppninni en það gefur líka öðrum
leikmönnum tækifæri til þess að
stíga upp og sýna hvað í þeim býr,“
sagði Birkir meðal annars á fund-
inum í gær.
Tölfræðin hliðholl Belgum
Ísland og Belgía hafa tólf sinnum
mæst á knattspyrnuvellinum í gegn-
um tíðina og hefur íslenska liðinu
aldrei tekist að vinna.
Belgar hafa alltaf fagnað sigri, nú
síðast í Brussel þegar liðin mættust
8. september, þar sem Belgía vann
5:1-sigur eftir að hafa lent 1:0 undir
snemma leiks.
Liðin léku einnig saman í 2. riðli
Þjóðadeildarinnar árið 2018 og þá
vann Belgía 3:0-sigur á Laugardals-
velli í september og 2:0-sigur ytra í
nóvember.
Belgar eru í efsta sæti heimslist-
ans og hafa í raun verið í efsta sætinu
frá því árið 2018 eftir að hafa verið í
fimmta sæti listans árið 2017.
Íslenska liðið hefur hins vegar fall-
ið hratt á listanum frá því árið 2017
þegar liðið var í 22. sæti en í dag situr
Ísland í 41. sæti heimslistans.
Erik Hamrén, landsliðsþjálfari Ís-
lands, er með 39% sigurhlutfall í
þeim 23 leikjum sem hann hefur
stýrt liðinu frá því hann tók við í
ágúst 2018.
Það er mjög svipað sigurhlutfall og
Lars Lagerbäck var með sem þjálf-
ari liðsins frá 2012 til ársins 2016 en í
þeim 52 leikjum sem Lägerback
stýrði vann Ísland 40% þeirra.
„Þetta hefur verið erfitt í Þjóða-
deildinni,“ sagði Hamrén á blaða-
mannafundi KSÍ í Laugardal í gær
þegar hann var spurður hvort lands-
liðsþjálfarastarfið hefði verið erf-
iðara en hann átti sjálfur von á þegar
hann tók fyrst við.
Horfir sáttur til baka
„Við höfum verið í A-deildinni þar
sem bestu lið Evrópu leika og haust-
ið 2018 vorum við með liðunum í
fyrsta og sjötta sæti heimslistans í
riðli.
Núna erum við í riðli með liðunum
í fyrsta, fjórða og sextánda sæti
heimslistans þannig að það segir sig
sjálft að við erum að mæta virkilega
sterkum þjóðum.
Ef við horfum til Svíanna sem
dæmi, sem unnu B-deild Þjóðadeild-
arinnar síðast og spila nú í A-
deildinni, þá hafa þeir ekki unnið leik
í A-deildinni og það sýnir bara svart
á hvítu hversu erfitt það er að ná í úr-
slit í þessari keppni.“
Þrátt fyrir döpur úrslit í Þjóða-
deildinni er þjálfarinn sáttur með sitt
framlag til íslenskrar knattspyrnu.
„Ég hef ekki alltaf náð að spila
eins og ég hefði viljað, aðallega vegna
fjarveru lykilmanna, en þannig er
fótboltinn stundum. Þótt úrslitin hafi
ekki verið okkur í hag er ég ánægður
með spilamennskuna í heild.
Bestu lið heims geta ekki alltaf
stillt upp sínum bestu liðum heldur
en það hefur minni áhrif á þau en
okkur því þar er breiddin mun meiri.
Þar liggur stærsti munurinn á okkur
og þessum sterkustu þjóðum að mínu
mati.
Þetta hefur verið erfitt en við höf-
um líka sýnt það að við getum náð í
góð úrslit, sérsaklega í undankeppni
EM, að undaskildum leiknum ytra
gegn Albaníu kannski, og þegar ég
horfi til baka er ég sáttur,“ bætti
þjálfarinn við.
Aldrei vandamál í Þjóðadeildinni
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliði Birkir Bjarnason mun fara fyrir íslenska landsliðinu þegar liðið
fær Belgíu í heimsókn í Þjóðadeild UEFA á Laugardalsvöll í kvöld.
Karlalandsliðið án sex lykilmanna
Ísland aldrei unnið Belgíu í landsleik
Undankeppni HM
Suður-Ameríka:
Bólivía – Argentína .................................. 1:2
Þjóðadeild UEFA
A-deild, 4. riðill:
Þýskaland – Sviss..................................... 3:3
Úkraína – Spánn....................................... 1:0
Spánn 7, Þýskaland 6, Úkraína 6, Sviss 2.
C-deild, 1. riðill:
Aserbaídsjan – Kýpur.............................. 0:0
Svartfjallaland – Lúxemborg.................. 1:2
Svartfjallaland 9, Lúxemborg 9, Aserba-
ídsjan 4, Kýpur 1.
D-deild, 1. riðill:
Lettland – Malta....................................... 0:1
Færeyjar – Andorra................................. 2:0
Færeyjar 10, Malta 5, Lettland 3, An-
dorra 2.
D-deild, 2. riðill:
Liechtenstein – San Marínó .................... 0:0
Gíbraltar 6, Liechtenstein 4, San Marínó
1.
EM U21 karla
Undankeppnin, 1. riðill:
Lúxemborg – Ísland .................................0:2
Ítalía – Írland............................................ 2:0
Svíþjóð – Armenía .................................. 10:0
Staðan:
Ítalía 7 5 1 1 17:3 16
Írland 8 5 1 2 12:5 16
Svíþjóð 8 5 0 3 27:8 15
Ísland 7 5 0 2 13:9 15
Armenía 8 1 0 7 4:27 3
Lúxemborg 8 1 0 7 2:23 3
Evrópudeildin
Valencia – Barcelona .......................... 66:71
Martin Hermannsson skoraði 1 stig, gaf
2 stoðsendingar og tók 1 frákast fyrir Val-
encia á 14 mínútum.
Evrópubikarinn
Andorra – Virtus Bologna.................. 66:82
Haukur Helgi Pálsson skoraði 6 stig og
tók 2 fráköst á 17 mínútum hjá Andorra.
„Þetta er mjög
óheppilegt. Þú
vilt að allir fái að
njóta leiksins og
fá að vera með
leikmönnum.
Landsliðsþjálf-
arar fá ekki
langan tíma með
leikmönnum á
hverju ári og
þetta er mjög
óheppilegt. Við óskum öllum þeim
sem smituðust góðs bata og von-
andi fara þeir í gegnum þetta ein-
kennalausir,“ sagði Roberto Mart-
inez, landsliðsþjálfari Belgíu, við
blaðamenn á Laugardalsvelli í gær.
„Það er ekkert sem heitir auðveld-
ur sigur. Það vantar lykilmenn í ís-
lenska liðið en það er eðlilegt þegar
það eru þrír leikir á skömmum
tíma. Okkur vantar líka fimm mik-
ilvæga leikmenn; Thibaut Courtois,
Eden Hazard, Kevin De Bruyne,
Thorgan Hazard og Dries Mer-
tens,“ sagði þjálfarinn.
„Við búumst við að þeir spili eins
á heimavelli og útivelli. Þeir verða
varnarsinnaðir, aggressívir og
beita löngum boltum. Við verðum
að vera einbeittir í 90 mínútur, vera
þolinmóðir og spila okkar bolta,“
sagði Axel Witsel, leikmaður belg-
íska liðsins, á fundinum en Belgía
tapaði fyrir Englandi á dögunum
og með því fóru Englendingar upp í
toppsætið í riðlinum.
„Við erum einu stigi á eftir Eng-
landi. Ef við vinnum á morgun þá
eigum við úrslitaleik gegn Eng-
landi í síðustu umferðinni, svo það
er mjög mikilvægt að vinna á morg-
un,“ sagði Witsel einnig, sem er
leikmaður hjá Dortmund.
Segir smitið
vera mjög
óheppilegt
Roberto
Martinez
KNATTSPYRNA
Þjóðadeild UEFA:
Laugardalsvöllur: Ísland – Belgía.......18:45
Í KVÖLD!
Íslenska U21 árs landslið karla í
fótbolta gerði góða ferð til Lúx-
emborgar í gær og vann 2:0-sigur á
landsliði þjóðarinnar í undankeppni
Evrópumótsins sem fram fer í Ung-
verjalandi og Slóveníu á næsta ári.
Ísak Óli Ólafsson skoraði fyrra
mark Íslands á 30. mínútu og aðeins
tveimur mínútum síðar bætti
Sveinn Aron Guðjohnsen við marki
og þar við sat.
Er Ísland í fjórða sæti riðilsins
með 15 stig eftir sjö leiki, einu stigi
á eftir Írlandi og Ítalíu og með jafn-
mörg stig og Svíþjóð sem er í þriðja
sæti. Hafa Írland og Svíþjóð leikið
einum leik meira en Ítalía og Ís-
land. Léku Ítalía og Írland á Ítalíu í
gær og hafði heimaliðið betur, 2:0.
Þá léku Svíþjóð og Armenía í Sví-
þjóð og unnu frændur okkar afar
þægilegan 10:0-sigur.
Efsta lið hvers riðils fer í loka-
keppnina ásamt þeim fimm liðum
sem ná bestum árangri í öðru sæti
riðlanna. Ísland á þrjá leiki eftir í
riðlinum; gegn Armeníu og Írlandi
á útivelli og gegn Ítalíu á heima-
velli. Áttu Ísland og Ítalía að mæt-
ast í síðustu viku en leiknum var
frestað vegna kórónuveirusmita í
leikmannahópi ítalska liðsins.
Alfons Sampsted lék allan leikinn
með íslenska liðinu og er orðinn
leikjahæsti Íslendingurinn í aldurs-
flokknum með 28 leiki. Hólmar Örn
Eyjólfsson átti áður metið. Andri
Fannar Baldursson og Hákon Arn-
ar Haraldsson léku sinn fyrsta leik í
aldursflokknum en Andri lék með
A-landsliðinu gegn Belgíu í Þjóða-
deildinni í síðasta mánuði.
Mikilvægur sigur í Lúxemborg
Morgunblaðið/Eggert
Mark Sveinn Aron Guðjohnsen
skoraði seinna mark Íslands.