Morgunblaðið - 14.10.2020, Page 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020
KRAFTLYFTINGAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Júlían J.K. Jóhannsson er í
fremstu röð í heiminum í kraftlyft-
ingum. Heimsmethafi í rétt-
stöðulyftu og margfaldur verð-
launahafi frá
heimsmeistaramótum. Á tímum
kórónuveirunnar stendur Júlían
frammi fyrir því, eins og sjálfsagt
fleira íþróttafólk, að vita ekki hve-
nær hann keppir næst erlendis.
Júlían tjáði Morgunblaðinu að svo
gæti farið að það verði ekki fyrr
en í ágúst 2021.
„Ég horfi svolítið til þess að EM
verður í byrjun ágúst. Ágætt er að
hafa fastan punkt sem hægt er að
horfa til en það er ansi langt í
hann. EM átti að vera í Danmörku
á þessu ári en Danir hættu bara
alveg við að halda mótið og verður
það haldið í Tékklandi í staðinn.
Tékkarnir eru mjög vanir svona
mótshaldi og eru áhugasamir,“
sagði Júlían þegar Morgunblaðið
kannaði stöðuna hjá honum.
„Arnold-mótið í Ohio er yfirleitt
í byrjun mars. Mér finnst líklegt
að það verði haldið en maður veit
ekkert hvernig ástandið verður.
Ég hef fengið boð á það mót und-
anfarin ár en fór ekki þetta árið
þar sem sonur minn var vænt-
anlegur í heiminn. Í ljós kom að
hefði ég þegið boðið í mótið þá
hefði ég misst af fæðingunni. Ég
var því mjög ánægður með
ákvörðunina. Þessi tvö mót eru á
ratsjánni hjá mér varðandi mögu-
leg mót erlendis. Ég sé fyrir mér
að keppa á þeim innanlandsmótum
sem verða haldin. Til stendur að
halda bikarmót í nóvember hér
heima en það eru blikur á lofti
varðandi það eins og staðan er
núna. Ég fór ekkert út að keppa á
þessu ári. Það gerðist síðast árið
2010 en þá var ég sautján ára
gamall. Áratugur er því síðan ég
keppti eingöngu á Íslandi. Þetta
ár er stórfurðulegt.“
Öðruvísi væntingastjórnun
Júlían segist ekki sjá að hann
hafi tapað styrk á árinu og segist
hafa reynt að nýta þetta ár til að
vinna í ýmsum þáttum sem vana-
lega gefst illa tími til.
„Það er ekki heppilegt að vera í
þeirri stöðu að vita ekki hvenær
maður keppir næst á stóru móti
og hafa ekki fastan punkt í tilver-
unni. Meðal annars þess vegna
horfi ég á EM í ágúst. Ég held í
vonina að maður keppi á Arnold-
mótinu í mars og mögulega á
boðsmóti erlendis í maí en reikna
frekar með því að næsta stóra mót
hjá mér verði í ágúst. Við getum
orðað það þannig. Staðan er skárri
en í vor að því leytinu til að í vor
var ég í miðjum undirbúningi fyrir
mót þegar faraldurinn skall á. Þá
vissi maður ekki hversu langan
tíma þetta tæki en núna veit mað-
ur að biðin er löng. Vænt-
ingastjórnunin er því öðruvísi.
Maður heldur auðvitað áfram að
æfa. Fyrir mánuði síðan tók ég
1.135,5 kg í samanlögðu sem var
12,5 kg frá mínu besta. Þá sá ég
að ég er ekki aumari en ég var
þótt árið hafi verið skrítið. Ég er
því bjartsýnn á næsta mót hvenær
sem það verður.“
Tíminn vel nýttur
Enginn kraftlyftingamaður í
heiminum stendur Júlían á sporði
í réttstöðulyftu. Í hnébeygjunni er
hann nokkuð öflugur miðað við þá
bestu í heimi en segja má að
bekkpressan hafi dregið hann nið-
ur í samanlögðum árangri. Bæting
í bekkpressunni gæti því mögu-
lega lyft honum úr brons-
verðlaunum í gullverðlaun á
heimsmeistaramótum í framtíðinni
ef allt gengur upp. Blaðamaður
gerist svo djarfur að spyrja hvort
Júlían hafi notað árið til að bæta
sig í bekknum þótt svolítið ein-
kennilegt sé að spyja í ljósi þess
að Júlían tekur meira en helmingi
meira í bekkpressu en sæmilega
hraustir menn.
„Alveg klárlega. Ég hef einmitt
unnið í því og hnébeygjunni. Ég
bætti mig í hnébeygjunni og bekk-
pressunni um hálft kíló á móti í
september. Þá reyndi ég við 350
kg í bekknum. Ég fór upp með þá
þyngd en missti hana á lokasenti-
metrunum. Hefði það gengið upp
þá hefði það verið bæting um 20
kíló. Út frá því að dæma er sú
vinna sem ég hef lagt í þessar
greinar að skila sér vel. Hefði ég
getað keppt á HM á þessu ári þá
hefði ég skilað betri tölum í bekk-
pressu en áður. Ég er viss um
það.
Ég hef einnig nýtt tímann til að
gera fleira sem gæti hjálpað mér.
Ég hitti íþróttasálfræðing og gerði
ýmislegt annað sem ekki er alltaf
tími fyrir. Um leið hef ég opnað á
öðruvísi pælingar en áður. Ég er
því ennþá bjartsýnn og jákvæður
á framhaldið þótt hlutirnir séu
eins og þeir eru.“
Þung skref í geymsluna
Athygli vakti síðasta vetur þeg-
ar Júlían kom sér upp æfingaað-
stöðu í lítilli geymslu heima hjá
sér svo hann gæti æft í samkomu-
banninu og var til umfjöllunar í
fjölmiðlum. Júlían segist þurfa á
betri aðstöðu að halda í þetta
skiptið ef hertar aðgerðir yfirvalda
verða viðvarandi.
„Ég fór niður í geymslu á mið-
vikudag og tók æfingu. [Daginn
eftir upplýsingafundinn þar sem
hertar aðgerðir voru boðaðar]. Ég
verð að viðurkenna að stemningin
var aðeins öðruvísi en síðasta vet-
ur. Skrefin niður stigann voru
þyngri núna. Jafnvel þótt geymsl-
an hafi reynst bjargvættur í mars.
En ég skynja svipaða stemningu
hjá fleirum. Ég bjó til dæmis til
skoðanakönnun á Twitter til gam-
ans og spurði hvort fólk væri jafn
opið fyrir því að halda áfram æf-
ingum í samkomubanni. Meira en
helmingur var ekki í sama gír og í
fyrstu bylgjunni.Við fengum líka
sumarið til að æfa við ágætar að-
stæður. Þá æfði maður með æf-
ingafélögunum á ný og andinn var
góður. Það spilar inn í að maður
var kominn í góðan gír í þeim fé-
lagsskap,“ sagði Júlían og segist
hafa verið spurður hvort hann geti
nýtt tímann í samkomubanni til að
hvíla.
„Ég hef verið spurður út í hvort
skynsamlegt væri hjá mér að hvíla
eða taka mér frí fyrst ástandið sé
svona. Ég kann það bara ekki og
þess vegna kom það eiginlega ekki
til greina. Ég stefni á sama stað
og áður og þetta hefur ekki dregið
úr mér hvað það varðar. Drifkraft-
urinn er sá sami og ég held bara
áfram,“ sagði Júlían enn fremur.
„Drifkrafturinn er sá sami“
Áratugur síðan Júlían keppti eingöngu hér heima eins og nú gerðist
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Heimsmethafi Júlían J.K. Jóhannsson á Íslandsmótinu í réttstöðulyftu í Fagralundi í júní.
Ísland mun eiga fjóra fulltrúa þeg-
ar heimsmeistaramótið í hálfu
maraþoni fer fram á laugardaginn í
Póllandi en keppendur verða 283
talsins frá 62 löndum. Hlaupið verð-
ur eina alþjóðlega mótið á vegum
World Athletics á þessu ári og á
meðal keppenda verða fremstu
hlauparar heims. Ísland sendir sitt
allra sterkasta lið, samkvæmt til-
kynningu Frjálsíþróttasambands-
ins, en það eru þau Andrea Kol-
beinsdóttir, Arnar Pétursson, Elín
Edda Sigurðardóttir og Hlynur
Andrésson. k ris@mbl.is
Fjögur frá Íslandi
hlaupa á HM
Morgunblaðið/ Stella Andrea
Pólland Andrea Kolbeinsdóttir og
Elín Edda Sigurðardóttir.
Leikmaður Aftureldingar í úrvals-
deild karla í handknattleik, Olís-
deildinni, greindist með kórónu-
veiruna á dögunum en þetta
staðfesti Gunnar Magnússon, þjálf-
ari liðsins, í þættingum Seinni
Bylgjunni á Stöð 2 Sport.
„Ég er með einn leikmann í ein-
angrun sem er með Covid og svo er
ég með tvo í sóttkví,“ sagði Gunnar
í þættinum.
„Sem betur fer þegar leikmað-
urinn smitaðist vorum við ekki að
hittast og ekki að æfa þannig að
það hafði engin áhrif á liðið.“
Einn smitaður
hjá Aftureldingu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjálfarinn Gunnar Magnússon stýr-
ir nú liði Aftureldingar. Argentína er með fullt hús stiga í
Suður-Ameríkuriðli undankeppni HM í
Katar veturinn 2022 eftir 2:1-útisigur
á Bólivíu í gærkvöld. Marcelo Moreno
kom Bólivíu óvænt yfir á 24. mínútu
en Lautaro Martínez jafnaði í blálok
fyrri hálfleiks og var staðan í leikhléi
því 1:1. Þannig var hún allt fram á 79.
mínútu þegar varamaðurinn Joaquín
Correa skoraði sigurmarkið. Vann
Argentína 1:0-sigur á Ekvador í fyrstu
umferðinni og er fyrsta liðið til að
fagna tveimur sigrum í undankeppn-
inni til þessa. Fjögur efstu liðin í Suð-
ur-Ameríku komast beint á HM 2022
eins og verið hefur undanfarin ár og
fimmta liðið fer í umspil.
Grindvíkingurinn Ingvi Þór Guð-
mundsson mun ekki leika með Dres-
den Titans í austurhluta Þýskalands í
vetur eins og til stóð. Netmiðillinn
Karfan.is hefur þetta eftir Ingva en
hann gaf ekki upp hvaða möguleikar
væru í stöðunni hjá honum. Ingvi
skoraði 14 stig að meðali í leik fyrir
Grindavík í Dominos-deildinni í körfu-
knattleik á síðasta tímabili. Eldri
bróðir Ingva, Jón Axel, mun leika í
Þýskalandi í vetur með Skyliners
Frankfurt.
Alfons Sampsted, fyrirliði íslenska
21-árs landsliðsins í knattspyrnu, sló
leikjametið í þessum aldursflokki
þegar Ísland sigraði Lúxemborg, 2:0,
í undankeppni Evrópumótsins í Esch-
sur-Alzette í Lúxemborg í gær.
Alfons lék sinn 28. leik með 21-árs
landsliði Íslands og sló þar með met
Hólmars Arnar Eyjólfssonar en hann
lék 27 landsleiki í þessum aldurs-
flokki á árunum 2007 til 2012. Alf-
ons, sem leikur með norska topp-
liðinu Bodö/Glimt, er
langleikjahæstur af núverandi leik-
mönnum 21-árs landsliðsins. Hann
hefur í yfirstandandi keppni farið
fram úr þeim Bjarna Þór Viðarssyni
sem lék 26 landsleiki frá 2005 til
2011 og Birki Bjarnasyni sem lék 25
landsleiki frá 2006 til 2011.
Haukur Helgi Pálsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, er orðinn leik-
fær á ný eftir að hafa meiðst á læri í
lok september. Lék Haukur með liði
sínu Andorra gegn Bologna í Evrópu-
bikarnum í gær og skoraði sex stig
en ítalska liðið sigraði 82:66. Talið
var að Haukur yrði frá í fimm vikur
vegna meiðslanna og er því mun fyrr
á ferðinni en búist var við. Martin
Hermannsson og samherjar töpuðu
66:71 fyrir stórliði Barcelona í Euro-
league en Martin hafði hægt um sig í
leiknum.
Knattspyrnumaðurinn Cristiano
Ronaldo greindist með kórónuveiruna
er hann fór í skimun hjá portúgalska
landsliðinu og verður því í einangrun
næstu daga. Ronaldo spilaði með
portúgalska liðinu gegn því franska í
Þjóðadeildinni síðasta sunnudag, en
hann verður ekki með gegn Svíþjóð í
sömu keppni í kvöld.
Verður hann væntanlega ekki með
Juventus gegn Cro-
tone í ítölsku A-
deildinni um
helgina og þá
gæti hann líka
misst af leik liðs-
ins við Dynamo
Kíev í Meist-
aradeildinni
í næstu
viku.
Eitt
ogannað