Morgunblaðið - 20.10.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 20.10.2020, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 0. O K T Ó B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  247. tölublað  108. árgangur  HIN ÝMSU KVIKINDI Á KREIKI LEGGJA ÁRAR Í BÁT DEKK VALIN Í SAMRÆMI VIÐ ÞARFIR GAMLA VEIÐIHÚSIÐ Á LAXAMÝRI 11 BÍLAR 16 SÍÐURSTUTTMYNDAKEPPNI 29 Alls hefur 21 látist í eldsvoðum á Ís- landi frá ársbyrjun 2010 til dagsins í dag. Þetta kemur fram í tölum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Á þessu ári hafa sex farist. Kona lést í bruna á bænum Augastöðum í Hálsa- sveit í Borgarfirði síðastliðinn sunnu- dag og helgina þar á undan fórst mað- ur þegar eldur kom upp í bíl í uppsveitum Árnessýslu. Einn lést eft- ir eldsvoða á Akureyri í maí og þrír í stórbruna við Bræðraborgarstíg í Reykjavík síðari hluta júnímánaðar. Þeir sem sinna eldvörnum segja að eftirliti á einkaheimilum verði varla komið við, enda séu heimili friðhelg samkvæmt lögum. Málum þessum verði því helst sinnt með fræðslu og forvörnum. Þó sé bót í máli að nú eigi að gæta sérstaklega að gastækjum í farhýsum við ástandsskoðun þeirra, en slíkur búnaður þykir viðsjárverður eins og dæmin sanna. »10 21 látist í eldsvoðum á rúmum áratug  Sex látnir eftir bruna á þessu ári Látnir í eldvoðum síðasta áratug Ár Látnir 2010 2 2011 0 2012 4 2013 1 2014 1 2015 0 2016 1 2017 2 2018 3 2019 1 2020* 6 *T il og m eð 1 9. 10 . 2 0 20 H ei m ild : H ús næ ði s- o g m an nv ir kj as to fn un Starfsmenn verkstæðisins Prófílstáls á Smiðshöfða þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur af kórónuveirusmiti í vinnunni enda vel varðir jafnt fyrir loganum sem ósýnilega vágestinum. Alexander Bridde, eigandi verkstæðisins, mundar hér rafsuðu- tækið. Hann segir að veirufaraldurinn hafi óneitanlega haft áhrif á viðskiptin en ekkert í líkingu við marga aðra geira. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vel varinn í vinnunni að vanda Húsnæði Landspítalans er afar þröngt og uppfyllir ekki nútímakröf- ur um sýkingavarnir í sumum tilfell- um. Anna María Þórðardóttir, hjúkrunarfræðingur sem er í smit- rakningarteymi spítalans, sagði að þrengsli í starfsmannarýmum ykju hættu á dreifingu smits milli starfs- manna. „Samkvæmt tilmælum sóttvarna- læknis á fólk að halda tveggja metra fjarlægð ef það er ekki með grímu. Það er ekki framkvæmanlegt á kaffi- stofum spítalans en þangað þarf fólk að fara í neysluhléum á vinnutíma. Við höfum haft miklar áhyggjur af þessu. Hins vegar getum við ekki fullyrt að smit hafi borist á milli starfsmanna á kaffistofum en mögu- leikinn er sannarlega fyrir hendi,“ sagði Anna María. Hættan á að smitast af nýju kór- ónuveirunni eykst eftir því sem fleiri koma saman, að sögn Jóhanns Björns Skúlasonar, yfirmanns smit- rakningarteymis sóttvarnalæknis og almannavarna. Ef margmenni er á staðnum og einhver í hópnum er smitandi aukast líkurnar á smiti ef loftræsting er léleg og mikil nálægð á milli fólks. »4 Þrengsli á kaffistofum spítalans auka smithættu  Ekki hægt að virða tveggja metra regluna vegna þrengsla Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Landspítali Kaffistofur sem starfsfólkið hefur not af eru margar þröngar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.