Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Starfsmenn Loftorku hafa í sumar unnið að breikkun Vest- urlandsvegar í Mosfellsbæ og nú hillir undir verklok. tvær akreinar í hvora átt og akstursstefnur aðskildar með vegriði. Umferðarflæði mun batna og öryggi eykst. Á þessum 1.100 metra kafla við Lágafell var 2x1-vegur og mynduðust oft bílaraðir á álagstímum. Framvegis verða Hillir undir verklok á Vesturlandsvegi Morgunblaðið/Árni Sæberg Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Útgerðir og skipstjórar tveggja grá- sleppubáta hafa verið sýknuð af ákæru í tveimur aðskildum málum um brottkast á samtals ellefu fiskum. Það er niðurstaða Héraðsdóms Norð- urlands vestra að ekki hafi verið sýnt fram á að umrætt brottkast hafi verið á tegundum, sem varðar refsingu að henda fyrir borð. Ógerningur sé að greina á mynd- bandi af hvaða tegund fiskurinn var sem varpað var í sjóinn. Ákærðu voru því sýknaðir af kröfum ákæruvalds- ins og málsvarnarlaun verjanda ákærðu skal greiða úr ríkissjóði. Fiskistofa svipti annan bátinn veiði- leyfi í viku vegna málsins og veitti hinum áminningu. Í öðru tilvikinu var kært vegna brottkasts á átta fiskum af ótilgreind- um tegundum nytjafiska, en þremur í hinu málinu. Í málunum var byggt á gögnum frá Landhelgisgæslunni, sem sendi lögreglustjóranum á Norð- urlandi vestra kærurnar. Þar kemur fram að 15. apríl 2019 hafi flugvél Landhelgisgæslunnar komið að grá- sleppubátunum þar sem þeir voru að veiðum. Fylgst hafi verið með þeim í gegnum eftirlitsmyndavél og komið hafi í ljós að fiski var kastað í sjóinn. Í kærunum er rakið að ætluð brot ákærðu varði við tiltekin ákvæði laga um umgengni við nytjastofna sjávar. Með kærunum fylgdu myndbands- upptökur sem kærurnar eru reistar á. Skipverjar höfnuðu því alfarið að hafa hent þorski eða öðrum meðafla sem skylt er að landa enda hafi þeir ekki haft nokkra ástæðu til þess enda haft hag af því að landa slíkum afla. Fiskur í flest skiptanna Í niðurstöðum dómsins segir að fallast verði á það með ákæruvaldinu að í flest skiptanna hafi verið um fisk að ræða. „Hins vegar er það mat dómsins, eftir ítrekaða skoðun á myndbandinu, að ómögulegt er að fullyrða nokkuð um það hverrar teg- undar fiskarnir eru þó einhverjir þeirra séu að öllum líkindum bolfisk- ar. Stendur þá eftir hvort sannað sé að þetta hafi verið nytjafiskar sem skylt var að koma með í land,“ segir í dómnum í átta fiska málinu. Niðurstaðan er hliðstæð í þriggja fiska málinu, en þar snerist dæmið einkum um brottkast á einum þorski. Í báðum tilvikum sé ógerningur að greina á myndbandinu hverrar teg- undar fiskurinn var sem varpað var í sjóinn. Sýknað vegna brottkasts á 11 fiskum Ljósmynd/Landhelgisgæslan Eftirlit Í frétt á heimasíðu Landhelgisgæslunnar var greint frá því 26. apríl í fyrra að áhöfnin á TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefði staðið skipverja þriggja fiskibáta að meintu ólöglegu brottkasti.  Ekki sannað að brottkast hafi verið á nytjategundum  Hagur skipverja að landa slíkum afla Ríkiskaup birtu um helgina auglýsingu í Morgunblaðinu fyrir hönd Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Þar kemur fram að ÁTVR vilji taka á leigu 450-550 fermetra húsnæði fyrir vínbúð í Reykjavík. Húsnæðið skal vera á svæði sem afmarkast í grófum dráttum af Kringlumýrarbraut, Skipholti, Barónsstíg og Sæbraut. Á þessu svæði er nú þegar að finna vínbúð, sem staðsett er í Borgartúni 26. Sú verslun var opnuð í maí árið 2008. Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR segir að núverandi leigusamningur fyrir vínbúð- ina í Borgartúni sé að renna út. „Við erum að leita að hús- næði fyrir vínbúð á svæðinu en erum ekki að bæta við búð,“ segir Sigrún. Ekki liggi fyrir á þessari stundu hvort leigusamningurinn verði mögulega endurnýjaður. Fram kemur í auglýsingunni að húsnæðið muni skiptast í tvo þriðju hluta verslunarsvæði og einn þriðja hluta fyrir lager og starfsmannaaðstöðu. Það verður að vera á skilgreindu verslunarsvæði og liggja vel við sam- göngum. Þá skal aðkoma fyrir viðskiptavini vera góð og næg bílastæði, eða allt að 30. Leigutíminn verður 8-10 ár. Leigutilboðum skal skilað í síðasta lagi 2. nóvember nk. ÁTVR rekur nú 14 vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu og 37 vínbúðir á landsbyggðinni, samkvæmt yfirliti á heima- síðu fyrirtækisins. sisi@mbl.is Flytur vínbúðin?  Leigusamningur ÁTVR í Borgartúni er að renna út Ljósmynd/Vínbúðin Vínbúðin Verslun ÁTVR hefur verið í Borgartúni 26.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.