Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Bókaútgáfan Sæmundur gefur út þrjátíu og eina bók af ýmsum stærðum fyrir þessi jól. Fyrr á árinu kom úr smásagnasafn Böðv- ars Guðmundssonar sem hann nefnir Fyrir daga farsímans. Þá kom einnig út Aldrei nema kona, heimildaskáldsaga eftir Svein- björgu Sveinbjörnsdóttur sem fylgir þremur ættliðum kvenna í Skagafirði á átjándu og nítjándu öld. Í skáldsögunni Síðustu dagar Skálholts segir Bjarni Harðarson frá endalokum biskupsstóls í Skál- holti, en bókin er sú þriðja sem hann ritar um hnignun Skálholts- stóls, áður eru komnar Í skugga drottins og Í gullhreppum. Síðasta barnið eftir Guðmund Brynjólfsson er sjáfstætt framhald bókanna Eitraða barnið og Þögla barnið, en allar eru bækurnar saka- málasögur sem gerast um þarsíð- ustu aldamót. Stigið á strik er einn- ig glæpasaga, sú þriðja sem Ingvi Þór Kormáksson skrifar, en hann hlaut glæpasagnaverðlaunin Gadda- kylfuna árið 2009. Frásaga Jóns Jónssonar eftir Börk Gunnarsson er saga af and- hetju vorra tíma. Appelsínuguli drekinn er fjórða barnabók Ólafar Völu Ingvarsdóttur, myndskreytt af listakonunni. Af ljóðabókum Sæmundar er fyrst að nefna bækur tveggja skáldkvenna sem ekki hafa áður kvatt sér hljóðs, þeirra Valgerðar Brynjólfsdóttur á Leirubakka með ljóðabókina Öldufax og bók Elínar Gunnlaugsdóttur tónskálds, Er ekki á leið, strætóljóð. Vél heitir ný bók Steinunnar Arnbjargar Stef- ánsdóttur og finnski verðlaunahöf- undurinn Tapio Koivukari hefur ort um Innfirði. Bókin Birtingaljóð hef- ur að geyma kveðskap Sigurðar Ágústssonar tónskálds og tveggja barna hans. Segðu það steininum er ljóðaúrval Jóhönnu Steingríms- dóttur frá Árnesi, gefið út nú þegar 100 ár eru liðin frá fæðingu hennar. Einnig er skáldverkið Tvöfalt gler eftir Halldóru Thoroddsen gef- ið út að nýju til minningar um skáldkonuna, sem lést í sumar. Af bókum almenns eðlis má nefna framhald af Kindasögum Guðjóns Ragnars Jónassonar og Aðalsteins Eyþórssonar, sem heitir einfaldlega Kindasögur, 2. bindi, en að þessu sinni er þar bæði fjallað um framliðnar kindur og Sauð- fjárverndina. Ragnar S. Ragn- arsson hefur svo safnað saman sög- um af mótoráhugamönnum í Mótorhausasögum. Nýkomin er bókin Þjóð gegn sjálfsvígum eftir sálfræðinginn Wil- helm Norðfjörð og er rit helgað sjálfsvígsfræðum og forvörnum á því sviði. Nýkomið er út fjögurra binda verk sem ber heitið Samvinna á Suðurlandi, eftir Guðjón Frið- riksson sagnfræðing. Í verkinu er rakin héraðs- og verslunarsaga Suðurlands allt frá 19. öld og fram á þá 21. með fjölda mynda. Tvö fræðirit á sviði bókmennta- fræði koma út hjá Sæmundi á árinu. Hið fyrra er Fræðaskjóða eftir Bergljótu Soffíu Kristjáns- dóttur, prófessor í íslenskum bók- menntum, og Ritdómar eftir Auði Aðalsteinsdóttur, ritstjóra Hug- rásar og doktor í bókmenntafræði við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá gefur Sæ- mundur út í samvinnu við Má Jóns- son prófessor í sagnfræði og Sögu- setrið 1627 í Vestmannaeyjum ný og áður óútgefin handrit að Reisu- bók Ólafs Egilssonar með ítarefni. Fræðaþulurinn Þórður Tómasson í Skógum sendir einnig frá sér bók, að þessu sinni um gestakomur, Það er kominn gestur. Saga guðanna eftir Þórhall Heimisson, rithöfund, leiðsögumann og prest, trúarbragðasaga heims- ins, kom út fyrir stuttu og einnig Síðasta dagblaðið á vinstri vængn- um eftir Elías Snæland Jónsson, þar sem hann rifjar upp svipting- arnar þegar öll vinstri blöðin hurfu af markaði. Bókin Vonarskarð segir frá ævin- týralegri gönguferð Stolzenwald- feðga þvert yfir landið við lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Höf- undurinn, Gústav Þór Stolzenwald, fléttar hér ferðasögu feðganna saman við ótrúlega fjölskyldusögu. Í bókinni Stærri en banvæn mis- tök eftir Auðbjörgu Reynisdóttur, hjúkrunarfræðing sem missti barn sitt, ræðir Auðbjörg um læknamis- tök í víðu og fræðilegu samhengi. Einnig gefur Sæmundur út að nýju eina mest lesnu og áhrifa- mestu bók Íslandssögunnar, Litlu gulu hænuna, með myndum Iðunn- ar Örnu sem draga dám af þeim myndum sem voru í upprunalegri útgáfu. Loks er að geta þriggja ævi- sögulegra verka Sæmundar þar sem viðamest er endurútgáfa á bók sr. Helga Konráðssonar um Bertel Thorvaldsen, en hún kemur út 19. nóvember þegar 250 ár eru liðin frá fæðingu listamannsins. Formálsorð ritar Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands en eftirmáli er eftir Stefano Grandesso, einn fremsta sérfræð- ing heims um verk Thorvaldsens. Bókin Sigríður á Tjörn, minn- ingar og myndbrot frá langri ævi er eftir Sigríði Hafstað á Tjörn í Svarfaðardal. Þriðja ævisaga Sæmundar er endurminningabók Ingimundar Gíslasonar augnlæknis sem heitir Úr hugarfylgsnum. Af þýddum bókum má nefna skáldsöguna Valdimarsdagur sem Kim Leine byggir á nöturlegri morðsögu föðurafa síns. arnim@mbl.is Glæpasögur, ævisögur og litla gula hænan  Sæmundur gef- ur út á fjórða tug bóka  fagurbók- menntir og fræði í bland Bjarni Harðarson Valgerður Brynjólfsdóttir Elín Gunnlaugsdóttir Guðmundur Brynjólfsson Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir Halldóra Kristín Thoroddsen Bergljót Soffía Kristjánsdóttir Sigríður Hafstað á Tjörn Listræn. Draumkennd.Hugrökk. Samhengislaus.Fjögur orð sem ná aðmestu leyti utan um ljóð- söguna Þagnarbindindi, fyrstu skáldsögu Höllu Þórlaugar Ósk- arsdóttur. Um er að ræða fallega sögu af sam- böndum og sam- bandsslitum aðal- persónunnar sem er hvergi nefnd á nafn. Höfundur setur fram ýmsar vangaveltur um lífið og dauðann og veitir lesandanum innsýn í veröld ungrar konu í leit að sjálfri sér. Konur skapa söguþráð bókar- innar enda eru persónur hennar nánast einungis af einu kyni og er femínisminn áþreifanlegur þótt hann sé ekki orðaður beinlínis. Uss, sagði bróðir minn. Uss, sagði læknirinn. Ekki vera með læti. Sagan fetar erfiðan veg á milli skáldsögu og ljóðs og tekst höfundi ágætlega upp hvað það varðar. Þó verður að segjast eins og er að sag- an er á tíðum nokkuð samhengis- laus og erfitt fyrir lesandann að halda þræði. Það er frískandi að sjá óhefðbundinn stíl Höllu Þórlaugar sem sýnir mikið hugrekki með Þagnarbindindi. Orð hennar eru valin af kostgæfni og samlíkingar úthugsaðar. Maður ber ábyrgð á ástinni eins og gæludýrum. Að gefa þeim að borða, sýna hlýju, klappa þeim og strjúka, ormahreinsa, bólusetja og svo – þegar tíminn kemur – lóga þeim. Undirrituð hlakkar strax til að lesa næsta verk Höllu Þórlaugar. Þagnarbindindi veit á gott og er Halla Þórlaug líklega rithöfundur sem skynsamlegt er að fylgjast með frá upphafi. Halla Þórlaug „Sagan fetar erfiðan veg á milli skáldsögu og ljóðs og tekst höfundi ágætlega upp,“ skrifar rýnir og segir höfund sýna mikið hugrekki. Stígur milli skáld- sögu og ljóðs Ljóðsaga Þagnarbindindi bbbmn Eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur. Benedikt bókaútgáfa, 2020. Kilja, 94 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Belgísku leikstjórarnir og bræð- urnir Jean-Pierre og Luc Dardenne hlutu Lumière-verðlaunin á Lumi- ère-kvikmyndahátíðinni í Lyon í Frakklandi sem lauk um helgina. Var þetta í 12. skipti sem hátíðin er haldin. Dardenne-bræður hafa notið mik- illar athygli og hlotið viðurkenn- ingar fyrir fjölda kvikmynda sem þeir hafa gert á undanförnum aldar- fjórðungi, bæði heimildar- kvikmyndir og leiknar. Hátíðin er tileinkuð sögu kvik- myndanna og eru ætíð sýndar eldri merkilegar kvikmyndir, gjarnan uppgerðar, og í dagskránni fjallað um sögu og áhrif kvikmynda. Dardenne-bræður heiðraðir  Hlutu heiðurs- verðlaun Lumière- hátíðar í Lyon AFPHylltir Jean-Pierre og Luc Dardenne með verðlaunagripi á sviði í Lyon. Merkilegt bréf sem tengist mót- unarsögu hljómsveitarinnar Bítl- anna verður á næstunni boðið upp í Bretlandi. Bréfið var skrifað af Bri- an Epstein, umboðsmanni hljóm- sveitarinnar, og sent Joe Flannery, sem sá um bókanir hljómsveit- arinnar á árunum 1962 til ’63, en hann lést í fyrra. Í bréfinu sem er frá janúar 1962 skrifar Epstein um þá ákvörðun sína að reka þáverandi trommara sveitarinnar, Pete Best, og ráða Ringo Starr í hans stað. Bréf Epsteins um að reka Best boðið upp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.