Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 Raðauglýsingar Tilboð/Útboð Tillaga nýs deiliskipulags Í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 137. fundi sínu þann 10. október 2019 að auglýsa fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum tillögu deiliskipulags 8 frístundalóða í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt, sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnisins þar sem allar megin- forsendur deiliskipulags liggja fyrir í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022. Í megindráttum felur skipulagstillagan í sér 8 nýjar frístundalóðir á 7 ha svæði. Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 20. október til og með 1. desember 2020. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 1. desember 2020. Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is. Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnu- stofa kl. 9-12. Handavinnuhópur kl. 12-16. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni, velkomin. Það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa, sími 411-2600. Boðinn Félagsstarf liggur niðri en opið fyrir matarþjónustu í Boð- anum, sími 441-9779 ef þið viljið nánari upplýsingar, erum ávalt við símann. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Prjónum til góðs kl. 8.30-12. Thai chi kl. 9-10. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari uppl. i síma 411-2790. Garðabær Kæru gestir, íþrótta- og félagsstarfið okkar er lokað tíma- bundið en Jónshús er opið með fjöldatakmörkun sem er 20 manns í rými. Minnum á grímuskyldu í Jónshúsi og muna að halda áfram upp á 2 metra regluna. Tilkynningar um breytingar koma líka fram á face- booksíðu okkar https://www.facebook.com/eldriborgararfelagsstarf- gardabaer Grafarvogskirkja Félagsstarf eldri borgara mun falla niður þriðju- daginn 20. október vegna ástandsins í samfélaginu. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Jóga kl. 14.30– 15.30. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Helgistund kl. 14. Korpúlfar Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9.45 í dag. Frjáls listmálun og postulínsmálun með fjarlægðarmörkum f. h. í dag í Borgum. Helgistund fellur niður út október. Leikfimishópur í Egilshöll frestast í óákveðin tíma. Spjallahópur í Borgum kl. 13. í lístasmiðjunni í Borg- um, förum varlega og virðum allar sóttvarnir. Skráning í mat og kaffi. Við erum öll almannavarnir. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10.15 í setustofu 2. hæðar. Bókband verður á sínum stað eftir hádegi, milli kl. 13-17. Eftir hádegi verður einnig söngstund í matsal 2. hæðar kl. 13.30-14.30. Við minnum á að grímuskylda ríkir í félagsmið- stöðinni um þessar mundir. Verið velkomin til okkar á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Vegna samkomutakmarkana og lokana þá verður engin vatnsleikfimi í dag. Kaffispjallið í króknum er á sínum stað fyrir íbúa Skólabrautar. Ef veður leyfir þá verður púttað á púttvellinum við Skólabraut kl. 10.30. Minnum á sóttvarnir og grímuskyldu. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka- bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.3–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Verð 7500 ST. 14-28 NETVERSLUN gina.is Sími 588 8050. - vertu vinur Plöstun Bílar Nýir 2020 Mitsubishi Outlander Hybrid Uppgefin drægni 67 km á raf- magni. Ótrúlega vel útbúnir bílar á lágu verði. 800.000 undir listaverði á 5.890.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com mbl.is alltaf - allstaðar Vantar þig fagmann? FINNA.is Mín kæra mág- kona varð bráð- kvödd miðvikudags- morgun 30. septem- ber. Allan þann dag gat ég ekki trúað því að hún væri farin, þar sem við systur kíktum til hennar og Ása bróður nokkrum dögum áður og hún svo hress eins og alltaf þegar við litum inn hjá þeim, mikið fjör og gaman að spjalla um heima og geima. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa, var til staðar þegar ég (Anna) flutti til Reykjavíkur, hjálpaði mér með- al annars að fá vinnu og var til staðar þegar ég þurfti stuðning. Krafturinn í henni alla tíð prjónandi lopapeysur í öllum frítímum. Elsku Stella, takk fyrir allt, ég og við systur munum ætíð sakna þín. Elsku Ási, synirnir fjórir og fjölskyldur ykkar, okk- ar dýpstu samúðarkveðjur. Anna Reykdal og fjölskylda, Inga Reykdal og fjölskylda. Elsku Stella mín. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. (Friðrik Jónsson/ Guðmundur Halldórsson.) Ég var svo lánsöm að eiga Stellu og Ása að vinum, ástvin- um vil ég segja því þannig voru þau mér kær. Þegar lífið var grimmt og allt dálítið dimmt þá gat dagurinn breytt um lit bara við að heyra í þeim, allt varð bjartara því hlýjan í minn garð var svo sterk og umhyggjan var svo góð og sönn. Elsku Ási minn, nú er dálítið dimmt yfir og því verðum við að rifja upp og muna perluna okk- ar hana Stellu og minnast allra góðu og björtu stundanna. Ástvinum öllum sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Góða ferð, góða ferð, góða ferð góða ferð já það er allt og síðan bros. Því ég geymi alltaf vinur það allt er gafstu mér góða ferð já vertu sæll og góða ferð. (Jónas Friðrik.) Stella mín, yndislega hafðu þökk fyrir allt. Góða ferð í sumarlandið. Þín Berglind. Kær vinkona til margra ára- tuga er fallin frá. Stella Stefánsdóttir ✝ Stella Stef-ánsdóttir fædd- ist 26. júní 1941. Hún lést 30. september 2020. Útförin fór fram 14. október 2020. Kynni okkar hófust í Melaskóla þegar við vorum níu ára og hún kom úr sveit í bekkinn okkar. Hróðmar kennari sagði við mig: „Ég veit að þú verður góð við Stellu.“ Þannig hófst vin- áttan sem stóð til síðasta dags henn- ar. Á unglingsárunum bjuggum við hvor í sínum bæjarhlutanum en ekki rofnaði sambandið. Svo komu árin þegar báðar voru uppteknar við húsbyggingar og barnauppeldi, en ávallt fylgd- umst við hvor með annarri. Ferðalög voru alla tíð áhuga- mál okkar beggja, jafnt innan- lands sem erlendis, með okkar fjölskyldum. Er við, komnar vel yfir miðjan aldur, áttum kost á ferð í skosku hálöndin ákváðum við að fara saman. Okkur hent- aði vel að ferðast saman og stækka sjóndeildarhringinn. Ferðin til Skotlands var fyrsta ferðin okkar saman, en á næstu 16 árum urðu ferðirnar 28 til framandi landa. Við heimsóttum flest lönd í Evrópu en einnig höfðu Kúba og St. Pétursborg í Rússlandi áhrif á okkur. Alltaf eitthvað nýtt að sjá og nóg að ræða um og velta fyrir sér. Við nutum einnig þess að ferðast um landið okkar og ekki síst ótal gönguferðir um Elliðaár- dalinn þar sem við nutum nátt- úrunnar og þess er fyrir augu bar. Ási hennar Stellu sam- gladdist okkur að eiga þessa vináttu og „nenna“ þessu sí- fellda flakki okkar. Og nú er hún farin í sína hinstu ferð, ferðina sem bíður okkar allra að lokum. Ég vil að leiðarlokum þakka henni fyrir vináttuna og allar ferðirnar sem við áttum saman. Sendi Ása og strákun- um, ásamt öllum í fjölskyldum þeirra, innilegar samúðarkveðj- ur. Edda Rakel Imsland. Mig setti hljóða þegar ég frétti af andláti Stellu. Ég kynntist henni í Gerðubergi fyr- ir mörgum árum. Við vorum saman í glerskurði. Við urðum mjög góðar vinkonur. Hún bauð mér í mat til sín og við ræddum saman um margt. Stella var yndisleg vinkona, hún tók mér alltaf fagnandi. Við vorum einn- ig í góðu sambandi á Facebook. Ég sendi henni oft lög sem hún hafði gaman af að hlusta á og ég líka. Elsku Stella mín, ég er þér þakklát fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Takk fyrir allt, ég mun sakna þín mikið. Eiginmanni Stellu og fjölskyldunni allri votta ég mína dýpstu samúð. Guðrún Lára Pálsdóttir. Mamma mín og friðurinn Hún mamma kunni ekki neitt að óttast og okkur hinum gat hún veitt sitt lið, í hjartans kyrrð var alltaf eftirsóttast að eignast nógu dásamlegan frið. Já, mömmu minni fylgdi alltaf friður og frelsið rann sem blóð um æðarnar og það var ljúft er sæl hún settist niður því sáttin átti víst sinn bústað þar. Við kveðjustund hún ekkert upp sér kippti en átti von um samfund – seinna meir, þar ást úr augum skein í hinsta skipti og skildi eftir frið sem aldrei deyr. (Kristján Hreinsson) Finnbogi Auðarson. Auður Finn- bogadóttir ✝ Auður Finnbogadóttir fæddist 19. mars1960. Hún varð bráðkvödd 15. sept- ember 2020. Útför Auðar hefur farið fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.