Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 19
Við Helga sendum fjölskyldu Péturs, dætrunum Kristínu og Margréti, innilegustu samúðar- kveðjur við fráfall Péturs. Hilmar J. Malmquist. Dr. Pétur féll frá 1. þessa mánaðar hundrað ára gamall. Hann var brautryðjandi á sviði vatnalíffræði og þekktasti vatna- líffræðingur Norðurlanda um langt skeið. Pétur kynntist náttúrufræð- inni sem smaladrengur á Mið- felli við Þingvallavatn. Hann fór utan til náms til að nema líffræði við Hafnarháskóla árið 1939. Hann lifði á „vind frikadeller“ og „luftpostej“ á stríðsárunum í Höfn. Eftir stríð var hann frum- kvöðull í rannsóknum á vistfræði straumvatna (Suså) og stöðu- vatna (Esrum). Hann er fyrsti Íslendingurinn til að verða pró- fessor við Hafnarháskóla í ann- arri grein en íslenskum fræðum. Hann var lengi forstöðumaður Vatnalíffræðistofnunar Hafn- arháskóla og forseti Alþjóða- vatnalíffæðisambandsins. Hann hlaut fjölda viðurkenninga á langri ævi, m.a. Neumann-Thi- enmann-medalíuna, æðsta heið- ursmerki fyrir rannsóknir í vatnalíffræði. Þegar áform voru uppi um stórvirkjanir í Laxá í S-Þingeyj- arsýslu, þar sem áform voru um að flytja Skjálfandafljót í ána, sem hefði breytt Laxá í jökulá og jökullitað Mývatn í vorleys- ingum, var Pétur fenginn til að stýra rannsóknum á vistfræði Mývatns og Laxár. Hann fékk til liðs við sig fremstu náttúru- fræðinga til að fá heilsteypta mynd af þessum vistkerfum. Í kjölfarið var Mývatn og Laxá friðuð með lögum sem heimiluðu ekki frekari virkjanir í Laxá eða rask í Mývatni. Þetta reyndist happadrjúg lagasetning, þó að reynt hafi verið að finna leiðir fram hjá henni. Pétur sneri sér síðan að rann- sóknum á Þingvallavatni, einnig í samvinnu við stóran hóp fræði- manna. Niðurstaðan þar er einn- ig útgáfa bóka um þetta nátt- úruundur, en einnig hafa verið sett lög um friðun vatnsins og vatnasviðsins. Þar hefur Pétur einnig verið fremstur til að ber- ast fyrir verndun Þingvallavatns og að setja vatnið á Heimsminja- skrá UNESCO. Hann barðist ötullega gegn loft- og áburðar- mengun í vatninu, oft í andstöðu við nátttröll sem huguðu ekki að samhengi hlutanna. Ég vann með Pétri í nefnd um áhrif Kísiliðjunnar á vistkerfi Mývatns, sem hafði verið reist án undangenginna rannsókna. Þar var um erfitt verkefni að ræða, því í nefndinni voru ekki eingöngu fræðimenn, heldur einnig fulltrúar Kísiliðjunnar og sveitarstjórnar, sem reyndu ekki aðeins að breyta túlkun á nið- urstöðum, heldur einnig niður- stöðunum sjálfum. Nú er Mý- vatn hægt og bítandi að ná sér af þeirri eyðileggingu sem kís- ilgröftur hafði á starfsemi vist- kerfisins. Ég reyndi eftir mætti að heimsækja Pétur og Dóru í hvert einasta skipti sem ég átti leið um Danmörku undanfarin 30 ár. Skemmtilegra fólk var vandfundið og naut ég þess að hlusta á frásagnir úr langri ævi og af vísindastarfi Péturs. Pétur var einstaklega fróður maður, gæddur miklum persónutöfrum og sannfæringarmætti þegar hann ræddi sín málefni. Hann var mjög ern fram í lokin og seinustu fræðigreinina birti hann í Náttúrufræðingnum í júní sl. um Þingvallavatn og Mý- vatn. Þar kemur margt fram um sögu rannsókna á vatninu og fyrirætlanir stjórnvalda, sem ekki hefur verið á allra vitorði hingað til. Ég færi fjölskyldu Péturs mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Gísli Már Gíslason. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 ✝ HörðurBergmann fæddist 24. apríl 1933. Hann lést á Landspítalanum 10. október 2020. Foreldrar Harð- ar voru Halldóra Árnadóttir f. 13.10. 1914, d. 13.3. 2006, og Jóhann Berg- mann, f. 18.11. 1906, d. 4.2. 1996. Bræður Harðar: Sigurður Jó- hann, f. 1.5. 1929, d. 27.5. 1943, Árni, f. 22.8. 1935, Stefán, f. 2.7. 1942, og Jóhann, f. 16.10. 1946. Eiginkona Harðar var Dórothea Sveina Einarsdóttir, f. 21.2. 1932, d. 16.8. 2011. Foreldrar hennar: Einar Jörundur Helgason, f. 10.6. 1896, d. 20.2. 1985, og Jónasína Sveinsdóttir, f. 21.2. 1980, d. 13.10. 1967. Börn Harðar og Dórotheu: 1) Halldóra Björk Bergmann, f. 21.3. 1953. Börn; Freyr Æv- arsson, f. 22.10. 1976, maki Kirs- ten Simonsen. Dórothea Ævars- dóttir, f. 12.9. 1981. 2) Atli Bergmann, f. 31.12. 1958, maki Unnur Elísabet Ingimarsdóttir, f. 3.12. 1967. Börn; Heiðar Valur Bergmann, f. 10.8. 1979, maki Arndís Oddfríður Jónsdóttir. Sal- vör Bergmann, f. 5.3. 1990. Katr- ín Þorgerður Jóhannesdóttir, f. 2.2. 1994, maki Jökull Logi Arn- arsson. Kolbrún Atladóttir, f. deildarstjóri fræðsludeildar Vinnueftirlits ríkisins 1984-93 og framkvæmdastjóri Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, 1993-2001. Hörður sat í Stúdentaráði 1955-56, var formaður Félags róttækra stúdenta 1956-57, sat í stjórn Æskulýðsfylkingarinnar 1958-60 og Félags háskóla- menntaðra kennara 1968-71, var í fræðsluráði Reykjavíkur 1978- 82 og fulltrúi Íslands í nefnd um norrænu grannmálaáætlunina 1976-77. Hörður var fyrsti for- maður Hagþenkis, félags höf- unda fræðirita og kennslugagna 1983-89 og sat í stjórn Fjölís, samtaka rétthafa, 1986-2002. Hörður ritaði margt um mennta- og þjóðmál, þar á meðal þrjár bækur um þróun þjóðfélags og lífshátta: Umbúðaþjóðfélagið – uppgjör og afhjúpun, nýr fram- faraskilningur, 1989, Þjóðráð. Haldbær þróun samfélags og lífs- hátta, 1999, og Að vera eða sýn- ast. Gagnrýnin hugsun á tímum sjónarspilsins, 2007. Hann samdi, einn eða í samstarfi við aðra, fjölda kennslubóka í dönsku og íslensku. Þá var hann höfundur bóka og fræðsluefnis um aðbún- að, hollustuhætti og öryggi á vinnustað. Útför Harðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 20. október 2020, kl. 15. Streymi: https://www.facebook.com/ groups/967438233742990 Virka slóð á hlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat 30.3. 1996, maki Ísak E. G. Róberts- son. 3) Jóhanna Bergmann, f. 26.6. 1963. Sonur; Einar Bergmann Stein- grímsson, f. 18.6. 2000. 4) Helga Lilja Bergmann, f. 7.11. 1967. Börn; Úlfur Alexander Einars- son, f. 4.6. 1987, maki Katerina Blahutová. Hörður Gabríel Flosason, f. 22.12. 1992. Una Geirdís Flosadóttir, f. 16.12. 1994, maki Magnús Árnason. Barnabarnabörnin eru ellefu. Hörður ólst upp í Keflavík. Hann lauk stúdentsprófi frá ML 1954, BA-prófi í dönsku, sögu og uppeldisfræði frá HÍ 1956, stund- aði nám í kennslufræði, uppeld- issálarfræði og dönsku við Kenn- araháskólann í Kaupmannahöfn 1971-72 og sótti auk þess nám- skeið í þessum fögum hér á landi, í Danmörku, Svíþjóð og Eng- landi. Hörður var kennari við Gagn- fræðaskólann við Hringbraut 1956-58 og Hagaskóla 1958-74, var námstjóri í dönsku við skóla- rannsóknadeild menntamála- ráðuneytis 1972-82 og endur- skoðandi námskrár fyrir grunn- skóla 1982-84, annaðist endurmenntunarnámskeið fyrir dönskukennara 1973-79, var Við Hörður bróðir áttum langa samfylgd, allt frá því við gengum út á stakkstæði lífsins í Keflavík, fórum ungir saman að heiman í heimavistarskóla og byrjuðum þar saman í vinstripólitík um leið og við frelsuðumst til góðs skáld- skapar. Og allt til þess að Hörður fékk mig til að halda með sér nám- skeið hjá Endurmenntun um Gagnrýna hugsun þegar komið var fram yfir endalok starfsferla okkar. Þegar við vorum smástrákar að leika okkur í loðdýrabúi sem pabbi vann við vildi Hörður prófa hvern- ig hakkavél virkaði, sem tætti fóð- ur ofan í mink og ref, og rak inn í hana vísifingur. Síðan var sá fing- ur hans styttri en efni stóðu til. Ég hefi stundum getið um þetta atvik sem sönnun fyrir djarfri forvitni Harðar, sem vildi ýmsu til hætta til að komast að samhengi hlut- anna, að því hvernig maskínur heimsins fúngeruðu. Hörður varð kennari sem gaml- ir nemendur hans minnast með þakklátri virðingu, hann barðist fyrir betra námsefni, réttindum kennara, öflugri menntun. En hann var snemma reiðubúinn til þess að efast um og endurskoða einnig það sem hafði verið honum sjálfsagt hjartans mál, varaði þá við oftrú á langri skólagöngu sem höfuðmælikvarða á menntun, tók jafnvel undir róttækustu efasemd- ir um skólakerfið eins og boðskap Ivans Iljitsj um afskólun sam- félagsins. Hann skrifaði greinar og bækur um efni sem fáir ef nokkrir aðrir hér á landi létu of- arlega á sína áhyggjuskrá og var með því vel á undan sínum tíma. Hann dró upp sterkar myndir af sóun og ofneyslu í ritinu Umbúða- þjóðfélagið og bæði þar og í seinni ritum gerði hann harða hríð að sjálfumgleði hugsunarlítillar framfaratrúar. Ekki síst veittist hann að því falsi sem felur sig bak við flottar skýrslur um hagvöxtinn sem svo margir hafa gert sér að máttugum hjáguði. Einnig varaði hann við lúmskri innrætingu sem uppi veður í auglýsingaheimi og í háskalega villandi notkun tungu- málsins sem höfð er til þess að fegra ríkjandi en hæpin viðhorf í samfélagsumræðu. Um þetta komst ég svo að orði í gamanmál- um um Hörð áttræðan: Flestir dorma í föstum sessi forðast Hörður hegðun slíka. Afhjúpar hann innrætingu illskufláa og lygna líka gægist yfirborðið undir umbúðirnar tætir sundur. Við hillingum kann Hörður svör: hagvöxtur er afturför! Ég dáðist oft að ósérhlífnum vilja bróður míns til að taka til bæna margt sem talið var sjálfgef- ið og ekki síst það sem maður sjálf- ur hefur treyst á um sinn. Um þessa hluti ræddum við oft – en ekki síður það sem varðaði okkar einkahagi og eigin stöðu í tilver- unni. Því svo sannarlega máttum við lesa hvor annan eins og opna bók. Ég vil áður en lýkur minnast góðrar vinkonu og eiginkonu Harðar, Dórótheu, sem ævinlega lagði gott til mála og sendi börnum þeirra og öðrum afkomendum hjartanlegar kveðjur. Bróður minn kveð ég með tilvitnun í rúss- neskt skáld sem orti um þá „kæru samferðamenn“ sem „með nær- veru sinni gefa heiminum líf og lit“ og gefur okkur fagurt ráð: Segðu ekki hryggur: þeir eru horfnir heldur með þökkum: þeir voru hér. Árni Bergmann. „Áttu svar við því?“ spurði hann gjarnan, ekki endilega til að reka viðmælanda sinn á gat, heldur til að koma honum á sporið við leit að haldbæru svari. Þessi síspuruli Sókrates sam- tímans var Hörður Bergmann. Við vorum samkennarar nokkur lær- dómsrík ár fyrir meir en hálfri öld, þar sem okkur var ætlað að berja unglinga á mótþróaskeiði til bók- ar. Ég er ekki frá því, að ég hafi lært meira af Herði en Háskólan- um um nám og kennslu. Nefnilega að allt nám er sjálfsnám. Kennsla er í því fólgin að leita svara við spurningum, sem skipta máli. Mér var til dæmis sett fyrir að kenna þessum unglingum um þjóðfélagið. Gallinn var sá, að það var ekkert tilsniðið námsefni til. Ég varð bara að búa það til jafn- óðum – sækja það út í þjóðfélagið. Þá var ekki lakara að geta ráð- fært sig við hugsandi mann eins og Hörð. Hann sagði til dæmis: Taktu eldhúsdag á Alþingi og láttu krakkana skilja, um hvað er deilt. Eða kjarasamninga, sem þá voru í deiglunni, ditto. Eða hvernig ung hjón geta farið að því að koma þaki yfir höfuðið. Skattkerfið fékk sinn skammt: Hverjir borga skattana og í hvað fara þeir? Þeir segja, að þjóðin sé enn í dag þungt haldin af fjármála(ó) læsi. Varla þessir krakkar. Við tókum „sneiðmynd af lífinu“ (De- wey) eftir samtímaheimildum og létum nemendur leita svara. Oft bar ég þessar tilraunir undir Hörð til að njóta góðs af gagnrýnum spurningum hans. Þessa reynslu tók ég með mér í veganesti vestur og skráði í námskrá Menntaskól- ans á Ísafirði – fyrsts framhalds- skóla. Það er nefnilega laukrétt sem Egill Helgason sagði um Hörð, kennara sinn: Hann var langt á undan sinni samtíð í þjóðfélags- rýni sinni. Bækur hans bera því vitni: „Umbúðaþjóðfélagið“ 1989, „Þjóðráð“ 1999 og „Að vera eða sýnast“ 2007. Ég nefni líka til sög- unnar kennslubók Peters Berger um félagsfræði, sem þeir Loftur Guttormsson þýddu, og kom að góðum notum við að hleypa þjóð- félaginu inn fyrir áður luktar dyr skólakerfisins. Það var Galbraith sem afhjúp- aði sólund ofneyslunnar í stjórn- lausum kapítalisma upp úr 1950, en Rachel Carson sem vakti okkur til vitundar um ógnina við sjálft líf- ríkið, sem stafar af sömu öflum, með tímamótaverki sínu „Silent Spring“ 1962. „Raddir vorsins þagna“ heitir það í íslenskri þýð- ingu 1965. Hörður tók boðskap beggja um sjálfbæra lifnaðarhætti alvarlega og fylgdi því eftir í orði og verki. Á seinni árum tók Hörður upp á því að senda vinum og vanda- mönnum sitt prívat „áramóta- skaup“, sem var einatt sýnu beitt- ara en hitt, sem við öll þekkjum. Þar fékk klisjukennd vanahugsun fjölmiðlaumræðunnar á baukinn, eins og hún átti skilið. Undir lokin skildi hann við okkur með áleitn- um spurningum um það sem máli skipti. Þannig hélt hann okkur við efnið til hinsta dags. Ég kveð vin minn með þakklæti og virðingu. Jón Baldvin Hannibalsson. Hörður var óvenju hreinskipt- inn og stefnufastur hugsjónamað- ur um réttlæti; boðaði og lifði sjálf- ur eftir boðorðum um umbúðalaust og sjálfbært þjóðfélag, hjólaði og leitaði hagkvæmra lausna á hús- næðis- og samgönguvanda. Mennt- un og upplýsingu úr ólíkum mál- heimum taldi hann góða leið til að koma skynseminni til valda við ákvarðanir í almannaþágu. Þau sem miðla fræðum eiga Herði mikla skuld að gjalda fyrir þrotlaust brautryðjendastarf hans í Hagþenki, félagi höfunda fræði- rita og kennslugagna. Það var mjög á brattann að sækja þegar Hörður hóf baráttu sína fyrir því að höfundar fengju sanngjarnar greiðslur fyrir vinnu sína, hefðu tekjur af útgefnum verkum og gætu sótt í höfundasjóði vegna til- tekinna verkefna. Sjálfur varð hann fyrsti formaður Hagþenkis árið 1983 og allt í öllu á meðan hann fylkti fleirum með sér í lið um þennan nýstárlega málstað. Þegar ég varð formaður félagsins árið 1996 hafði Hörður tekið allt starfið að sér undir starfsheitinu framkvæmdastjóri. Það var því sérlega þægilegt að sinna baráttu og hagsmunagæslu fyrir fé- lagsmenn með hann sér við hlið; ekki síst í samstarfinu við önnur höfundarréttarfélög innan Fjölíss þar sem Hörður hafði setið lengi og sá til þess að sitt fólk fengi sanngjarna sneið af kökunni sem þar var til skipta – og lagði áherslu á að sú sneið rynni óskert alla leið inn á reikninga félagsmanna sjálfra frekar en að étast upp í yf- irbyggingu félagsins. Félagið hafði á þessum árum ekki aðra að- stöðu en borðshorn á heimaskrif- borði Harðar sjálfs og kostaði því lítið í rekstri. Það hafði lengi brunnið á Herði hve illa höfundum fræðirita gekk að sækja sér starfslaun í launasjóð rithöfunda. Þótt lög um sjóðinn gerðu ráð fyrir fræðibókahöfund- um hafði framkvæmdin jafnan verið sú að túlka þau í þágu list- rænna verka – og athugasemdir félagsins mættu daufum eyrum. Við breyttum því stefnunni og herjuðum nú á yfirvöld um að stofna sérstakan launasjóð fyrir okkar höfunda sem við töldum að lentu á milli sjóða í sjóðakerfi rík- isins. Björn Bjarnason, þáverandi menntamálaráðherra, hlustaði á röksemdir okkar, sá strax að við höfðum lög að mæla og ákvað að breyta skipulaginu. Á hátíðarsam- komu í húsi Rithöfundasambands- ins hinn 18. desember 1998, þar sem úthlutað var í fyrsta skipti úr Bókasafnssjóði höfunda, tilkynnti hann um farsælar málalyktir þessa baráttumáls: að ríkisstjórn- in „hefði samþykkt að stofna sér- stakan launasjóð fyrir höfunda al- mennra fræðirita“ eins og sagði í frétt Morgunblaðsins af þessum viðburði. Það sýndi sig að mikil þörf var fyrir sjóðinn og útgáfa fræðirita hefur notið góðs af síðan. Á þessu ári gat sjóðurinn aðeins veitt 15 umsækjendum úrlausn af þeim 82 sem sóttu. Það er því löngu tímabært að bæta vel í, bók- menntalífinu, menntun og upplýs- ingu landsmanna til hagsbóta og minningu Harðar til sóma. Eldhugur Harðar var smitandi og fékk þau sem í kringum hann voru til að leggjast á árarnar með honum; ekki síst vegna þess að sjálfur dró hann aldrei af sér eða taldi áratogin sem þurfti til að komast í áfangastað. Gísli Sigurðsson. Margir munu vafalaust minn- ast Harðar sem eins þeirra manna sem lögðu drjúgan skerf til um- ræðu um þróun skóla- og uppeld- ismála hér á landi á síðari hluta liðinnar aldar. Ég minnist í þessu samhengi tveggja daga ráðstefnu í apríl 1978 sem Alþýðubandalagið stóð fyrir. Einkunnarorð hennar voru „Skólinn og þjóðfélagið“. Hörður var þar í hópi níu frum- mælenda og fjallaði um „vald- dreifingu, meira lýðræði og jafn- rétti innan skólakerfisins“. – Hann átti á þessum árum sæti í Fræðsluráði Reykjavíkur sem fulltrúi Alþýðubandalagsins. Sem varamaður hans í ráðinu skipt- umst við oft á skoðunum um þessi mál, en áhugi minn beindist á þessum árum ekki síst að iðn- fræðslunni og tónlistarskólunum. Oft bar ég undir Hörð ýmislegt sem ég setti á blað um þessi efni. – Fyrsta bók Harðar, Umbúðaþjóð- félagið, uppgjör og afhjúpun, nýr framfaraskilningur, sem út kom 1989, vakti margan til umhugsun- ar um vissa þætti umhverfismála. Hörður og Dóra voru heimilis- vinir okkar systkinanna fjögurra, Margrétar, Lofts, Elísabetar og mín, þegar við bjuggum hjá Guð- rúnu móður okkar í Bólstaðarhlíð 9 veturinn 1958-’59; Hjörleifur þá við nám í Þýskalandi. Við Margrét höfðum þá kynnst Dóru í Söng- félagi verkalýðssamtakanna, SVÍR, og ég hafði kynnst Herði í Æskulýðsfylkingunni og m.a. far- ið með honum og Dóru á Heims- mót æskunnar í Moskvu sumarið 1957 sem 176 Íslendingar sóttu; ungmenni þar eðlilega í miklum meirihluta. Hörður var í farar- stjórn íslenska hópsins ásamt Guðmundi Magnússyni verkfræð- ingi, Jóni Böðvarssyni kennara og sr. Sigurjóni Einarssyni. Með í þessari ferð var góður vinur Harð- ar og Dóru, Ingólfur A. Þorkels- son, fv. skólameistari. Á svoköll- uðum vináttufundum á mótinu tók Ingólfur lagið með söngkonunni Hönnu Bjarnadóttur. – Ég minn- ist skemmtilegrar samverustund- ar með Herði og Dóru í þrítugs- afmæli hans, en þar voru Ingólfur og Rannveig Jónsdóttir eiginkona hans meðal gesta. Nýlega fékk ég í hendur dag- bækur Margrétar systur minnar frá árunum 1958-1959. Þar segir hún m.a. frá því hvað við gerðum okkur helst til gamans þegar góða gesti, á borð við Hörð og Dóru, bar að garði í Bólstaðarhlíð 9. Ósjaldan skemmtum við okkur við að lesa upp ljóð hvert fyrir annað ellegar syngja við undirleik Mar- grétar, sem spilaði ýmist á gítar eða píanó. Stundum tókum við upplesturinn eða sönginn upp á segulband, og skemmtum okkur síðan við að hlusta á afraksturinn. – Búta úr þessum upptökum varð- veiti ég enn. Við fórum líka stund- um saman á bíó eða í leikhús og á eftir lögðum við gjarnan leið okk- ar á Kaffi Höll eða Hótel Borg. – Hörður og Dóra bjuggu um þetta leyti í lítilli íbúð við Haðarstíg. Okkur Sigrúnu er í fersku minni þegar okkur var trúað fyrir því að passa Halldóru litlu þar eitthvert kvöld þegar foreldrar hennar fóru í leikhús. Seinna fluttu þau þau hjónin í Mjóuhlíð. Þar var oft glatt á hjalla. Við Sigrún sendum börnunum og öllum aðstandendum hlýjar samúðarkveðjur. Gunnar Guttormsson. Við Hörður Bergmann kynnt- umst í Félagi róttækra stúdenta veturinn 1957-58; störfuðum þar saman fáein ár. Síðar urðum við samkennarar við Hagaskóla í Reykjavík. Þar kenndi hann dönsku og líka íslensku, ég móð- urmálið nær eingöngu. Í móður- málskennslunni unnum við náið saman. Hörður var vel menntaður og reyndur kennari. Naut ég góðs af. Við urðum mátar. Íslensku- kennsluna í gagnfræðadeildum mótuðum við eftir okkar höfði, lögðum áherslu á bókmenntir, rit- smíðar og munnlega tjáningu. Próf í bókmenntum voru munnleg. Saman skrifuðum við kennslubók í ljóðalestri, Ljóðalestur. Sú bók sætti tíðindum. Horfið var að mestu frá bókmenntasögulegum áherslum, en rækt lögð við að skyggnast eftir eigindum ljóða. Þar var íslenski módernisminn fyrst kynntur í kennslubók. Hörður var mér afar traustur félagi, látlaus, yfirvegaður og glöggsýnn. Hann var líka hag- sýnn. Ef hann sá einhvers staðar í blaði eða bók eitthvað sem nýta mátti í kennslunni þá tók hann það til handargagns til að nota síðar. Enginn var mér eins hjálplegur sem hann meðan ég fékkst við kennslu. Ekki er ég gagnkunnug- ur þeim bókum sem Hörður skrif- aði, en ég man hvað mér þótti Um- búðaþjóðfélagið þörf og lýsandi. Hörður lét ekkert frá sér fara án íhugunar. Vandaður maður til orðs og æðis. Og fór ekki með fleipur. Finnur Torfi Hjörleifsson. Hörður Bergmann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.