Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.isljósmyndastofa
NJÓTUM
MINNINGANN
A
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Líflegt hefur verið á Austfjarðamið-
um undanfarið þar sem tugir skipa
af ýmsum stærðum og gerðum hafa
verið að veiðum. Togarar, línuskip
og línubátar hafa verið á þorskveið-
um á þessum slóðum og sum þeirra
landað aflanum á Austfjarðahöfnum.
Íslensk uppsjávarskip hafa verið á
kolmunna og norsk-íslenskri síld.
Um helgina fékk Jón Kjartansson
SU 800 tonn af síld í tveimur holum
og var túrinn 23 tímar höfn í höfn á
Eskifirði. Þá hafa Færeyingar verið
á síldveiðum fyrir austan.
Hjálmar Sigurjónsson, skipstjóri
á togaranum Ljósafelli SU, sagði að
nánast eingöngu væri þorsk að fá á
miðunum, en þó smávegis af ýsu.
„Þeir sem fyrstir hitta í blettina fá
þokkalegan fisk, en þetta er fljótt að
verða smærra og tregast þegar
margir toga á slóðinni,“ sagði Hjálm-
ar. „Þorskurinn er fullur af síld, það
er að segja þeir sem eru nógu stórir
til að geta étið síld.“
Tvö skip með reynslu
Hjálmar segir að stundum hafi
verið þröng á þingi á miðunum und-
anfarið, en um leið sé tilbreyting í því
að svo mörg skip séu á Austfjarða-
miðum. Oft hafi Ljósafellið og Gull-
ver NS frá Seyðisfirði verið einu tog-
ararnir á þessum miðum og oft mæst
á togslóðinni. Þar fara tvö skip með
reynslu því Ljósafellið var smíðað
1973 og er einn Japanstogaranna og
Gullver er smíðað 1983.
Ljósafellið var að veiðum í Norð-
fjarðardýpi í gær, en túrinn byrjaði í
leit að karfa í Lónsdýpi á fimmtu-
dagskvöld og síðan var siglt norður í
Héraðsflóa. Löndun var ráðgerð á
Fáskrúðsfirði í dag. Hjálmar segir
að markaðir, vinnsla og kvóti ráði
miklu um hvernig veiðum er hagað.
Ekki sé farið að veiða þorsk fyrr en
síðustu daga veiðiferðar. „Best er ef
hann veiðist á landleiðinni svo hann
komi spriklandi á færibandið í
vinnslunni,“ segir Hjálmar.
Líflegt á Austfjarðamiðum
Fjöldi skipa á miðunum Vilja
þorskinn spriklandi Góð síldveiði Stór hluti fl otans eystra
Grunnkort: marinetraffi c.com og atlas.lmi.is
Seyðisfjörður
Reyðarfjörður
Meirihluti áhafnar frystiskipsins
Júlíusar Geirmundssonar ÍS 270 er
smitaður af kórónuveirunni. Sýni
voru tekin úr bátsverjum er skipið
kom til hafnar á Ísafirði í fyrra-
kvöld til að taka olíu, en áhöfnin
hafði þá verið um þrjár vikur á sjó
og sýndu nokkrir úr henni flensu-
einkenni.
Við komuna til hafnar fóru heil-
brigðisstarfsmenn um borð til sýna-
töku en enginn úr áhöfninni fór í
land. Að svo búnu lagði skipið úr
höfn. Niðurstöður sýnatökunnar
lágu fyrir í gærkvöldi og hefur
skipinu verið snúið við til lands.
Það er væntanlegt til Ísafjarðar í
dag.
Í tilkynningu frá Hraðfrystihús-
inu-Gunnvöru, sem gerir út skipið,
segir að svo virðist sem enginn um
borð sé alvarlega veikur. Næstu
skref verði ákveðin í samráði við
umdæmislækni sóttvarna á Vest-
fjörðum.
Meirihluti
áhafnar
smitaður
Útkall barst Björgunarfélagi Ísa-
fjarðar um klukkan hálfellefu í
gær vegna vélarvana skips innar-
lega í Ísafjarðardjúpi. Hélt björg-
unarskipið Gísli Jóns af stað um
tíu mínútum seinna.
Það var áhöfnin á skipinu Hall-
dóri Sigurðssyni ÍS-014 sem bað
um aðstoð, en það hafði verið við
rækjuveiðar þegar það tók að
reka í átt að landi rétt norður af
Laufskálaeyri, austur af Vatns-
firði.
Áhöfnin kastaði út akkerum til
að draga úr reki, að sögn Davíðs
Más Bjarnasonar, upplýsingafull-
trúa Landsbjargar. Ágætis veður
var á svæðinu og var Gísli Jóns
mættur á staðinn um hádegi og
dró skipið til hafnar á Ísafirði, en
þangað var komið síðdegis.
Tog- og hrefnuveiðibáturinn
Halldór Sigurðsson er í eigu
Tjaldtanga ehf. og er Flateyri
skráð heimahöfn. Skipið tók mik-
inn þátt í hrefnuveiðum á sínum
tíma, en slíkar veiðar voru hvorki
stundaðar síðastliðið sumar né
sumarið í fyrra. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Skipi í
Djúpinu
bjargað
Ljúft haustveður hefur verið víða á
Norðurlandi síðustu daga, hægviðri
og hiti yfir daginn gjarnan 5-10
gráður. Fólk hefur því nýtt dagana
til útiveru í hinu fallega umhverfi
haustlitanna sem nú eru áberandi til
dæmis í Innbænum á Akureyri. Þar
eru trén í brekkunum ofan við gömlu
húsin sum komin með rauðan lit,
brúnan eða gulan ef barr þeirra er
þá ekki fallið.
Áfram verður stillt veður víðast
hvar í vikunni, en á miðvikudaginn
gæti kólnað um landið norðan- og
austanvert. Undir helgina snýst í
suðaustlægar áttir með rigningu og
hlýnandi veðri víðast hvar um land-
ið. Fólki ættu því áfram að bjóðast
tækifæri til útivistar áður en grimm-
ur veturinn lætur fyrir sér finna. All-
ir vegir eru enn greiðfærir, en á vef
Vegagerðarinnar var í gær varað við
hæstu fjallvegum; Þröskuldum fyrir
vestan, Öxnadalsheiði, Háreks-
staðaleið og Fjarðarheiði milli Hér-
aðs og Seyðisfjarðar. sbs@mbl.is
Hægviðri helst í vikunni
Sunnanátt og
rigning um helgina
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyri Litasinfónía í Innbænum, þar sem brekkan er skógi vaxin.