Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA PON er umboðsaðili Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir að Feneyjanefndin, ráðgjafarnefnd Evrópuráðsins um breytingar á stjórnarskrám, hafi gert mjög alvarlegar athugasemd- ir við drög að nýrri stjórnarskrá sem byggðust á tillögum stjórn- lagaráðs árið 2012. Þau fælu í sér töluverða óvissu, vandi yrði að túlka textann og óvíst hver áhrif þeirra yrðu á löggjöf. Þetta sagði Katrín í óundir- búnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær, en hún svaraði þar fyrirspurn Helga Hrafns Gunnarssonar, þing- manns Pírata, sem bað forsætis- ráðherra að gefa almenningi sann- færandi skýringar á því að gengið væri fram hjá tillögum ráðsins sem samþykktar voru í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012. Vísaði hann einmitt til Feneyja- nefndarinnar sem sagði í umsögn sinni um þær tillögur ríkisstjórn- arinnar að stjórnarskrárbreyt- ingum að gefa þyrfti almenningi fyrrnefndar skýringar. Afhenda undirskriftir í dag Á miðnætti í nótt lauk undir- skriftasöfnun þasr sem þess er krafist að Alþingi virði niður- stöður kosninganna og lögfesti nýja stjórnarskrá. Söfnunin stóð yfir í fjóra mánuði, en alls söfn- uðust ríflega 42 þúsund undir- skriftir. Klukkan eitt í dag munu að- standendur söfnunarinnar afhenda formönnum stjórnmálaflokka á þingi undirskriftirnar fyrir utan Alþingishúsið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjórnarskrá Katrín Jakobsdóttir vísaði til orða Feneyjanefndarinnar. Tekist á um nýja stjórnarskrá  42 þúsund undirskriftir afhentar Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Alls hafa sex látist í eldsvoðum á landinu það sem af er þessu ári og á sl. tíu árum hafa þeir aldrei verið fleiri en nú. Síðasta tilvikið var nú á sunnudag, þegar kona á bænum Augastöðum í Hálsasveit í Borgar- firði lést þegar íbúðarhúsið þar brann. Helgina þar á undan lést ungur maður þegar eldur kom upp í húsbíl við bæinn Torfastaði í Grafningi í Ár- nessýslu. Hin til- vikin á árinu eru þegar eldur kom upp í timburhúsi í innbænum á Akureyri í maí. Þar lést einn og þrennt fórst í stórbruna í húsi við Bræðraborgarstíg í Reykjavík í júní. Alls 21 látist frá árinu 2010 Í fyrra lést einn í bruna og þrír árið 2018; þar af tveir þegar kveikt var í húsi á Selfossi. Alls hefur 21 látist í eldsvoðum á Íslandi frá byrj- un árs 2010 til dagsins í dag. Slökkviliðin í landinu hafa með höndum eldvarnaeftirlit, sem nær þó aðeins til opinberra bygginga og fyrirtækja. Í íbúðabyggingum og á einkaheimilum felast brunavarnirn- ar einkum í því að fulltrúi slökkviliðs fylgir byggingarfulltrúa sveitar- félags gjarnan eftir við lokaúttekt á nýbyggingum áður en þær eru tekn- ar í notkun. Frekari heimildir til eft- irlits eru ekki fyrir hendi, sbr. sjón- armið um friðhelgi einkalífs og heimilis. „Við höfum auðvitað vak- andi auga með því að verja líf fólks komi til eldsvoða. Það er alltaf efst á blaði í fyrirbyggjandi starfi okkar,“ segir Þorgeir Margeirsson hjá eld- varnasviði Húsnæðis- og mann- virkjastofnunar í samtali við Morg- unblaðið. Áhyggjur af gasi í farhýsum „Hve langt skal ganga í eldvarna- eftirliti er mjög vandmeðfarið. Auð- vitað viljum við fyrirbyggja slys en ekki má heldur ganga of langt með skerðingu á persónufrelsi. Forvarn- ir hljóta því fyrst og fremst að felast í fyrirbyggjandi starfi og að ýmsum slíkum verkefnum er unnið,“ segir Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Ánessýslu og formaður Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi. Pétur segir menn hafa haft sér- stakar áhyggjur af farhýsum, svo sem húsbílum og ferðavögnum. Komi upp eldur í þeim hafi fólk í raun aðeins örfáar sekúndur til að bjarga sér út, sé slíkt gerlegt á ann- að borð. Hætta vegna gasleka og að eldur kvikni af þeim sökum sé stór áhættuþáttur. Því sé nú fyrirhugað að í framtíðinni verði allur búnaður tengdur gasi í farhýsum tekinn til skoðunar þegar komið er með vagn- ana til árlegar ástandsskoðunar. Slík skoðun á gastækjum sé jafnan gerð í löndunum í kringum okkur. Efst á blaði að verja líf  Margir hafa látist í eldsvoðum á síðustu árum  Eldvarna- eftirlit ekki á einkaheimilum  Gas í farhýsum verði skoðað Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bruni Einn lést í eldsvoða í gömlu timburhúsi á Akureyri í maí á þessu ári. Pétur Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.