Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 Við erum sérfræðingar í malbikun Frank Jensen boðaði í gærmorgun blaðamenn til fundar við sig á Ís- landsbryggju í Kaupmannahöfn og tilkynnti að hann segði af sér sem yfirborgarstjóri Kaupmannahafnar og varaformaður Jafnaðarmanna- flokksins. Jensen hefur átt í vök að verjast dögum saman vegna ásak- ana um kynferðislega áreitni. „Þetta mál myndi varpa skugga á allt það sem ég vil gera í stjórn- málum. Þess vegna hef ég ákveðið að segja af mér,“ sagði Jensen á blaðamannafundinum. „Ég er hreykinn af þeim árangri sem náðst hefur í Kaupmannahöfn á undan- förnum árum og vil ekki standa í vegi fyrir frekari framförum borg- arinnar.“ Hann bætti við að hann vildi biðja þær konur afsökunar sem hann hefði misgert við. Aðeins deginum áður hafði hann játað á sig ósæmilega hegðan, en að hann hygðist samt sem áður halda áfram sem borgarstjóri. „Ég vil vera hluti af lausninni, ekki aðeins hluti vandans,“ sagði hann þá. Jensen kvaðst jafnframt láta af embætti sem varaformaður Jafn- aðarmannaflokksins, sem er við völd í Danmörku. Formaður Jafnaðar- mannaflokksins er Mette Frederik- sen forsætisráðherra. Fjölþreifinn í jólaboðum Afsögn Jensens má rekja til ásak- ana tveggja kvenna, sem sögðu í grein í dagblaðinu Jyllands-Posten á föstudag að hann hefði hagað sér ósiðlega gagnvart þeim við opinber tækifæri árin 2012 og 2017. Önnur þeirra var þá starfsmaður Jafn- aðarmannaflokksins. Hann hafði gengist við því að hafa komið ósæmilega fram við þær, kvaðst iðr- ast hegðunar sinnar, en vildi freista þess að endurvinna sér traust og láta fólk dæma sig af verkum sínum. Á sunnudag hafði Jyllands- Posten það hins vegar eftir Cecilie Sværke Priess, formanni ungliða- hreyfingar Jafnaðarmannaflokksins í Kaupmannahöfn, að átta konur aðrar hefðu einnig sakað Jensen um kynferðislega áreitni, sjö þeirra af eigin reynslu, en sú áttunda hefði orðið vitni að mörgum slíkum atvik- um. Priess sagði að sumar þeirra hefðu leitað til lögfræðings síðustu daga. Þetta er þó alls ekki í fyrsta sinn sem greint hefur verið frá fjöl- þreifni og flangsi Jensens, en árið 2004 reyndi hann við konur í jóla- boði Jafnaðarmannaflokksins af slíkri ákefð að undan var kvartað og 2011 var hann hálfu ágengari í jóla- boði í ráðhúsi Kaupmannahafnar, með kossum og káfi. Engin kvennanna vildi þó leggja fram kæru gegn borgarstjóranum nú. Getur Mette leyst vandann? Í færslu á Facebook nú sagði Jen- sen að hann hefði verið hluti af „skaðlegri“ og „gamalli“ menningu í Jafnaðarmannaflokknum. Mette Frederiksen forsætisráðherra og formaður flokksins sagði að hún tæki ásakanir kvennanna mjög al- varlega. „Það blasir við að við í Jafnaðarmannaflokknum eigum við vandamál að stríða og það þarf að breytast núna.“ Hvernig það verður gert liggur ekki fyrir, en stjórnmálaskýrendur eru á einu máli um að það verði ekki létt verk og alls óvíst að flokks- formaðurinn njóti trausts til þess. Jensen sé eins innvígður og innmúr- aður og hugsast getur, en hann hafi hlotið framgang og stuðning þrátt fyrir að hafa oftsinnis og um langt tímabil orðið uppvís að ósæmilegri hegðun. Öðrum í forystunni hljóti að hafa verið ljóst að þar ræddi um hegðunarmynstur, ekki stök undan- tekningartilvik. Jensen hefur verið aðalborgar- stjóri Kaupmannahafnar í áratug, en áður hafði hann gegnt margvís- legum öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokk sinn. Borgarstjórinn sagði loks af sér  Frank Jensen segir af sér sem borgarstjóri Kaupmannahafnar  Ásökunum um áreitni fjölgar  Hættir líka sem varaformaður jafnaðarmanna  Mette Frederiksen boðar breytingar á flokknum Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í bandarísku forsetakosningunum hófst í Flórída í gær en ríkið er eitt svokallaðra lykilríkja sem gætu ráð- ið úrslitum í kosningunum eftir hálf- an mánuð. Sennilega er baráttan hvergi harðari en í Flórída þar sem sigur- vegarinn í ríkinu hreppir 29 kjör- menn. Í 18 af síðustu 20 forsetakosn- ingum hefur sá frambjóðandi, sem flest atkvæði fékk í Flórída, verið kjörinn forseti. Samkvæmt síðustu skoðanakönn- unum mælist stuðningur við Joe Bi- den, frambjóðanda Demókrata- flokksins, 48,2% og 46,8% við Donald Trump, forseta og frambjóðanda Repúblikanaflokksins. Munurinn hefur minnkað síðustu vikur, var 4,5% Biden í vil fyrir hálfum mánuði. Þegar litið er til landsins í heild hefur Biden hins vegar 8,9% forskot á Trump og virðist eiga sigurinn vís- an í að minnsta kosti sex af lykilríkj- unum níu. Kamala Harris, varaforsetaefni Bidens, var í gær á kosningaferða- lagi í Flórída. Trump var á ferðalagi um vesturhluta Bandaríkjanna, hélt fundi í Nevada í gær og verður í Ari- zona í dag. AFP Kosning Starfsmaður á kjörstað í Flórída afhendir kjósanda kjörgögn. Byrjað að kjósa utan kjörfundar í Flórída  Afar mjótt er á mununum í ríkinu Frank Jensen er 59 ára gamall hagfræðingur, sem verið hefur virkur í stjórnmálum nær alla sína starfsævi. Hann varð ráðherra rann- sóknarmála í ríkisstjórn Pouls Nyrups Rasmussens árið 1994, en tveimur árum síðar var hann gerður að dómsmálaráðherra. Hann varð aðalborgarstjóri Kaupmannahafnar árið 2011. Þegar Mogens Lykketoft sagði af sér eftir kosningaósigur 2005 tapaði Jensen mjög naumlega fyrir Helle Thorning- Schmidt í formannskosningu Jafnaðarmannaflokksins. Jensen er kvæntur Jane Fri- mand Pedersen leikskólakenn- ara og eiga þau tvö börn. Gæfa og gjörvileiki FRANK JENSEN AFP Afsögn Frank Jensen borgarstjóri í Kaupmannahöfn sagði af sér í beinni útsendingu frá Íslandsbryggju í gær. AFP Úrbætur Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana og formanns Jafn- aðarmannaflokksins bíður erfitt verkefni við að endurheimta traust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.