Morgunblaðið - 20.10.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Í ritstjórnargreininni Óðinn íViðskiptablaðinu var í liðinni
viku fjallað um útþenslu trygg-
ingagjaldsins og hins opinbera í
heild sinni. Rifjað var upp að
launaskattur hefði verið lagður á
árið 1965 og hann hefði verið 1%.
Í tíð Ólafs Ragnars Grímssonar
sem
fjár-
mála-
ráð-
herra hefði gjaldið orðið
tryggingagjald og þá í raun farið
í 3,8% en væri nú 6,35% eftir að
hafa hæst farið í 8,65% í tíð
vinstri stjórnarinnar á árunum
2010 og 2011.
Þrátt fyrir þessa lækkun álagn-ingarprósentunnar frá því
sem hún var hæst bendir Óðinn á
að tekjur ríkissjóðs af gjaldinu
hafi haldið áfram að hækka.
„Tekjur ríkissjóðs af trygginga-
gjaldi voru tvöfalt hærri árið
2019 en árið 2000 á föstu verð-
lagi, en íbúum landsins fjölgaði
um 28% á tímabilinu.
Augljóst er að þeir sem hafa
farið með fjármál ríkisins und-
anfarin ár hafa komið þarna
auga á vannýttan skattstofn, eins
og þeir kalla svo oft tekjur eða
eignir almennings í landinu, og
gengið freklega fram í skatt-
heimtunni. Það er auðvitað gömul
og ný saga. En einmitt við þær
aðstæður sem eru í dag þá er
þessi tegund skattheimtu stór-
hættuleg velferð íbúa þessa
lands, efnahagslífinu í heild og
afkomu ríkissjóðs,“ segir í Við-
skiptablaðinu.
Þar er einnig bent á að stjórn-málamenn hafi „algjörlega
misst tökin á útgjöldunum“. Um
aldamótin hafi hugmyndir um
ríkisútgjöld verið „heilbrigðari
og skynsamlegri“. Er ekki full
ástæða til að snúa nokkur ár til
baka og vinda ofan af mestu
skatta- og útgjaldaþenslunni?
Gjaldið lækkar en
tekjurnar hækka
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Í nokkur ár hefur vefspjaldskrá með
myndum af sporðum hnúfubaka verið
aðgengileg á heimasíðu Hafrannsókna-
stofnunar. Skráningin er liður í inn-
lendu og alþjóðlegu vísindasamstarfi,
en er einnig aðgengileg almenningi og
til fræðslu. Hægt er að þekkja hnúfu-
baka í sundur með því að greina lita-
samsetningu, mynstur og önnur sér-
kenni á sporði.
Nú eru skráðir í gagnabankann 38
hnúfubakar sem hafa dvalið í lengri eða
skemmri tíma við Ísland, en hafa einn-
ig sést á öðrum slóðum við N-Atlants-
hafið. 17 samsvaranir hafa fundist við
austanvert Atlantshaf og sex við það
vestanvert. Hinir 15 hafa einkum fund-
ist við Írland og Noreg. Af þessum ein-
staklingum eru 23 með samsvaranir
við svæði við sunnanvert Norður-
Atlantshaf þar sem vitað er að helstu
æxlunarslóðir Atlantshafs-hnúfubaka
eru. Alls eru myndir af um 1.500 hnúfu-
bökum í fórum Hafrannsóknastofn-
unar. Að sögn Valerie Chosson, líffræð-
ings á Hafrannsóknastofnun, getur fólk
sent stofnuninni myndir af sporðum
hnúfubaka og eru þær þá keyrðar í
gegnum gagnabanka til að leita upplýs-
inga um viðkomandi hval. Þannig er
fjöldi innsendra mynda frá einstakl-
ingum og ferðamönnum í vefgátt
Hafrannsóknastofnunar. Aðrar myndir
hafa borist eftir ýmsum leiðum, m.a. úr
vísindasamstarfi, frá sjómönnum og frá
starfsfólki Hafró. aij@mbl.is
Myndir af 38 víðförlum hnúfubökum
Gagnabanki aðgengilegur á heimasíðu Hafró Myndir úr ýmsum áttum
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hnúfubakur Hægt er að þekkja
einstaklinga í sundur á sporðinum.
Þing ASÍ sem fram fer á morgun
verður óvenjulegt og á aðeins að
standa yfir í nokkrar klukkustundir
vegna faraldurs kórónuveirunnar.
Þingið, sem hefst kl. 10 í fyrramálið,
verður rafrænt þar sem afgreiða á
kjarnaatriði, samkvæmt lögum ASÍ,
en þinginu verður svo frestað fram á
vor þar sem fram á að fara málefna-
vinna skv. upplýsingum ASÍ.
Meðal tillagna sem fram eru
komnar en ákveðið hefur verið að
fresta til næsta vors er tillaga Ragn-
ars Þórs Ingólfssonar, formanns VR,
um að árlegur skattur sem sambönd
og félög greiða til ASÍ verði lækk-
aður úr 7,85% af iðgjaldatekjum fé-
laganna í 7%.
Ragnar Þór sagði í samtali við
Morgunblaðið um ástæður tillögunn-
ar að mikilvægt væri að fá fram um-
ræðu um skattinn og fjármuni hreyf-
ingarinnar. „Hann var hækkaður að
mig minnir síðast árið 2015 þegar
stóð til að vera með þjóðhagsráð og
Alþýðusambandinu var ætlað að
hafa annan tilgang, sem varð síðan
undanfari þeirra breytinga sem síð-
ar urðu innan verkalýðshreyfingar-
innar. Ég reikna með að þessari um-
ræðu verði vísað til framhalds-
þingsins í vor.“
Í drögum að ályktun um vinnu-
markaðsmál frá miðstjórn sem af-
greiða á á þinginu er þess m.a. kraf-
ist að grunnatvinnuleysisbætur
verði hækkaðar og að ríkisfjármál-
um verði beitt af fullum þunga til að
milda höggið af kreppunni.
Þingið hefst með ávörpum forseta
ASÍ, félags- og húsnæðismálaráð-
herra, fulltrúa ASÍ-UNG og Sharan
Burrow, framkvæmdastjóri Alþjóða-
samtaka verkalýðsfélaga ITUC, flyt-
ur ávarp. Um hádegi fer svo fram
kosning forseta, varaforseta og full-
trúa í miðstjórn.
Kjósa forystu á
stuttu þingi
Skattatillögu vísað til vorþingsins
Morgunblaðið/Ófeigur
ASÍ Þing Í stað fjölmenns þings
verður það rafrænt að þessu sinni.