Morgunblaðið - 20.10.2020, Page 21

Morgunblaðið - 20.10.2020, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 borgu og Árna, föður hennar, í stofunni í Stigahlíðinni og þau sungu saman öll lögin sem þau kunnu í söngbók stúdenta. Leiðir okkar bekkjarsystra lágu í mismunandi áttir eftir menntaskólann. Sumar fóru ut- an til náms, aðrar út á land eins og gengur. Samskiptin urðu minni en nokkur minningabrot lifa: Vilborg að syngja með Heimi og Jónasi. Vilborg að vinna í íslenska sýningarskálanum á Heimssýn- ingunni í Montreal 1967 þar sem hún heillaði gesti þegar hún sagði þeim frá eldgosum og hverum og notkun heita vatnsins á Íslandi. Vilborg í sænsku og bók- menntanámi í Háskóla Íslands og sátt við lífið. Vilborg í London þar sem hún sótti söngtíma, geislandi glöð og full eftirvæntingar. Vilborg flutt upp á Skaga frá Bandaríkjunum með fjölskyldu sinni og tíðrætt um muninn á að ala upp börn í þessum tveimur löndum. Þau voru vart flutt inn þegar drengirnir hennar höfðu bankað upp á í næsta húsi og voru komnir út í fótbolta. Það er trú okkar að söngur Vilborgar um Hótel Jörð muni hljóma lengi enn í útvarpinu, minna á hana, gera okkur stolt- ar eins og forðum og gleðja eins og hann hefur gert öll árin. Með innilegum samúðarkveðj- um til allra ástvina Vilborgar. Fyrir hönd 6. bekkjar A í MR 1966, Hrefna S. Einarsdóttir. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Þessar upphafslínur á ljóði Tómasar söngst þú svo undur fallega, ásamt þeim Jón- asi og Heimi, höfundi lagsins, svo ekki verður betur gert og verður hlustað á um ókomin ár af þjóð okkar. Sumar myndir minninga okkar eru sterkari en aðrar. Ég óharðnaður ungling- urinn, kannski 12 ára eða svo, á erindi upp á Eiríksgötu af Þórs- götunni þar sem ég átti lengst af heima. Sól í heiði snemmdægurs og mér svolítið eldri stúlka með bækur í faðmi mætir mér við Hnitbjörg með ögn sveiflu- kenndu fasi og sláandi fegurð og við horfumst í augu. Hún brosir, ég veit ekki hver svipbrigði mín voru. Ég vissi seinna að hún var á leið ofan úr Stigahlíð niður í MR. Síðar varð hún mágkona mín og við áttum góðar stundir saman í tónlistinni sem og lífinu meðan heilsa hennar leyfði. Glíma okkar við Hirðinn á hamr- inum eftir Franz Schubert bless- aðan er ógleymanleg. Megi sál- nahirðir okkar allra umvefja hana og hið eilífa ljós lýsa henni. Ég kveð Vilborgu með aðdáun og þakklæti. Einar Jóhannesson. Sjáið minningar svífa í lofti upp yfir leiðum látinna vina. Gróa þar blóm á grænum stofni höfuð sín hneigja himins til. (Margrét Pálmadóttir frá Sauðafelli) Elsku vinkona okkar er núna laus við fjötra sem hún varð að þola í mörg ár. Nú getur hún sungið og dansað eins og hún gerði svo vel. Í minningum okk- ar sem við eigum um Vilborgu okkar var hún fallegust, alltaf brosandi og mikill gleðigjafi. Við vinkonurnar þökkum allar ynd- islegar stundir okkar saman al- veg frá Meló þar sem vináttan hófst. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar hennar. Megi Vil- borg okkar vera að eilífu Guði falin. Bryndís Stefánsdóttir, Hildur Stefánsdóttir, Svandís Bjarnadóttir. ✝ Þorbjörg Sam-úelsdóttir fæddist í Bæ í Tré- kyllisvík 6. júní 1934. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 2. október 2020. Þorbjörg var dóttir hjónanna Samúels Sam- úelssonar, f 4.12. 1907, d. 20.2. 1942, og Önnu Jakobínu Guðjónsdóttur, f. 6.10. 1913, d. 4.10. 2006, bæði frá Skjalda- bjarnarvík. Þau eignuðust fimm dætur og var Þorbjörg elst. Seinni maður Önnu Jak- obínu var Kristinn Hallur Jónsson, f. 8.9. 1912, d. 9.8. 2000, og eignuðust þau níu börn. Eftir fráfall föður síns fór Þorbjörg í fóstur til Sigríðar Samúelsdóttur föðursystur sinnar að Vonarlandi við Ísa- fjarðardjúp og ólst þar upp. Þorbjörg lauk gagnfræða- prófi frá Reykjaskóla og flutt- ist til Ísafjarðar. Þar kynntist hún eftirlifandi eiginmanni Már, Kári Mar og Aron. 5) Stíg- ur Andri Herlufsen, f. 13.9. 1966. Börn: Íris Tinna, Stefán Erik og Alexius Sólon. Þorbjörg og Stígur fluttu í Hafnarfjörð 1954 og bjuggu fyrst á Hverfisgötu, svo á Skúlaskeiði og byggðu sér síð- ar hús á Hrauntungu. Seinustu árin bjuggu þau á Álfaskeiði. Þorbjörg vann margvísleg störf, m.a. í fiskvinnslu bæði á Ísafirði og í Hafnarfirði. Hún endaði starfsævina á Hrafnistu í Hafnarfirði, vann þar í 24 ár. Þorbjörg var stofnfélagi, stjórnarmaður og formaður Al- þýðubandalagsins Hafnarfirði og varabæjarfulltrúi sama flokks í bæjarstjórn 1978-1982. Einnig var hún stjórnarmaður og varaformaður verkakvenna- félagsins Framtíðarinnar um árabil. Hún tók þátt í stofnun Samfylkingarfélagsins í Hafn- arfirði 1999. Hún var einarður verkalýðssinni og jafn- aðarmaður. Þá var hún virk í starfi eldri borgara og söng í Gaflarakórnum. Útförin fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafn. í dag, 20. október 2020, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni: https://youtu.be/nIFEZMkkfc0 Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat sínum Stíg Tyle Herlufsen, f. 13.9. 1934. Foreldrar Stígs voru Harrý Ottó Ágúst Herluf- sen, f. 18.8. 1913, d. 15.9. 2006, rak- ari og tónlistar- kennari, og Auður Helga (Herlufsen) Stígsdóttir, f. 13.6. 1917, d. 7.12. 2012, kaupmaður og húsmóðir. Börn Þorbjargar og Stígs eru: 1) Harrý Samúel Herluf- sen, f.17.8.54, maki Kolbrún Þorleifsdóttir, f. 13.2.1961. Börn: Rafn, Árni Samúel, Þor- björg og Jenný Lind. 2) Jens Sigursveinn Herlufsen, f. 15.1. 1956, maki Selma Ágústs- dóttir, f. 22.12. 1959. Börn: Fjóla Björk, Ágúst Bent, Anna Kristín og Þorri. 3) Eiríkur Herlufsen, f. 7.4. 1957. Barn: Hanna Lilja. 4) Auðunn Helgi Herlufsen, f. 30.10. 1962, barnsmóðir Laufey Baldvins- dóttir (þau skildu). Börn: Elsa Kristín, Auður Ronja, Sindri Þorbjörg Samúelsdóttir er þekkt nafn í Hafnafirði. Allir þekkja Tobbý. Einn af máttarstólpum Hafn- arfjarðar er fallinn frá og eftir situr heill her af manneskjum sem Þorbjörg hafði djúpstæð áhrif á. Ég þekkti hana alltaf og ein- ungis sem ömmu Tobbý. Feg- ursta sál sem ég hef þekkt. Þegar ég hugsa um hana verður mér hlýtt og ég finn matarlykt. Ég man eftir ömmunni sem trúði öllu sem börnin sögðu. Allir hlutir og málefni urðu dularfull og spenn- andi í hennar meðförum. Hraun- tungan var sannkallað ævintýra- land fyrir okkur krakkana og sama má segja um Álfaskeiðið fyrir krakkana okkar (lang- ömmubörnin). En ég er bara einn maður og amma mín var búin að lifa á við þrjár mannsævir þegar ég kom í heiminn. Hún bjó yfir einhverjum lækningamætti með sinni sterku nærveru sem og var sálusorgari margra þegar hart sló í bakkann. Því má gefa sér að heilu kynslóðirnar syrgi í dag. Sumir muna eftir ungu bar- áttukonunni í bæjarpólitíkinni sem barðist fyrir réttindum kvenna á tíma sem hugtakið eitt og sér þótti hlægilegt. Aðrir muna eftir henni sem mömmu Herlufsen-bræðranna sem ollu miklum usla í bæjarlíf- inu á árum áður. Mitt fólk minnist hennar sem drottningarinnar sem lyktaði svo vel dansandi um í þjóðbúningnum sem hún fór í við minnsta tilefni. Ég man eftir jólastemningunni í Hrauntungunni; djassinn hans afa innan úr herbergi og amma klædd eins frú sveinka sjálf. Fyrir mér var hún einfaldlega besta amma í heimi. Engri lík. Eftir á að hyggja hefði ég kannski átt að gefa því meiri gaum. Hefði mátt láta hana vita hversu mikilvæg hún var fyrir mig og hvað ég elska(ði) hana mikið. Það var bara ekkert í boði að vera að velta sér upp úr ein- hverju sem var henni svo eðlis- legt, hún var var bara góð- mennskan uppmáluð og hafði því ekkert fyrir því að vera best í heimi. Sjálfsagt mál. Mamma mín sá um ömmu síð- ustu árin. Allt umstangið sem fylgir veikindum tók mamma á sig og úr varð fallegt samband deyjandi konu og dótturinnar sem hún hafði alltaf óskað sér. Að sama skapi var amma Tobbý mamman sem mamma mín átti aldrei. Sannarlega ljóðrænt. Þótt mín ástkæra amma Tobbý sé fallin frá mun andi hennar svífa yfir vötnum um komandi kynslóðir. Margir munu hugsa til hennar á erfiðum dögum og segja börnum sínum sögur af ömmu Tobbý, ofurkonunni úr Firðinum, besta vini barnanna og sannri fyrirmynd fullorðinna. Ég sakna þín amma. Ég elska þig amma. Ágúst Bent Jensson. Við þessi tímamót hvarflar hugurinn til bernskuára minna á Vonarlandi við Ísafjarðardjúp. Á bænum þar sem alltaf var tekið á móti þeim sem á þurftu að halda. Jens og amma mín Sigríður tóku að sér fjögur fósturbörn: Þor- björgu (Tobbý), Kristin Jón (Nonna), Höskuld (Hödda) og mig, Sigrúnu. Fóstursystkini mín Nonni og Tobbý voru nokkrum árum eldri en ég og kallaði Tobbý mig alltaf litlu systur. Margar góðar minningar á ég frá þessum tíma í uppeldinu með þeim svo sem silungaveiði og ferðir í fjöruna og berjamó, smalamennsku fram til fjalla og ýmis önnur sveitastörf. Alltaf eitthvað skemmtilegt, fróðlegt og nytsamlegt að kynnast og sjá. Tobbý var einstök í mínum huga enda var hún stóra systir mín sem gætti vel að litlu systur. Ég var hugfangin að hlusta á Tobbý segja mér sögur frá Ströndum þaðan sem hún kom eða önnur málefni sem hún flutti vel og kjarnyrt en hún var einstaklega orðheppin og sagði svo skemmti- lega frá. Þegar fram liðu stundir tóku Tobbý og Nonni til við að kenna mér að reikna og lesa sem mér leist illa á og sagði ég að það vildi ég ekki því þá yrði ég bara eins og Tobbý sem lægi alltaf í bókum. Ég var handviss um að ég kæmist upp með þetta, en svo reyndist ekki og tóku þau til óspilltra mála til að koma þessu í gang enda Tobbý ávallt drífandi, iðin og fylgin sér. Seinna þegar ég þurfti á góðum ráðleggingum að halda þá leitaði ég til Tobbýjar, sem alltaf leysti vel úr öllum vanda. Kæri Stígur, við fjölskyldan vottum ykkur öllum innilega samúð. Sigrún (litla systir). Elsku góða og fallega Tobbý frænka mín er búin að fá friðinn eftir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Hún var elsta systir mömmu minnar og þær voru mjög nánar, skrifuðust alltaf á og mikil hátíð hjá mömmu þegar jólabréfið kom frá Tobbý. Þegar Tobbý kom norður í sveitina, oft á leið að Dröngum, eða við hittum hana fyrir sunnan eða á einhverju ættarmótinu, þá var alltaf líf og fjör, hvað þá þegar þær systur Samúelsdætur komu allar saman. Þá var mikið hlegið og mikið tal- að, allar svo glaðar og kátar, sam- heldnar með eindæmum. Tobbý var afskaplega hlý, glaðvær, full af elsku og blíðu, svo einstaklega góð manneskja. Hún var mikil fyrirmynd fullorðinna og barna, allir elskuðu hana hvar sem hún kom. Hún tók alltaf fast utan um mann þegar við hitt- umst, horfði á mann og sagði eitt- hvað fallegt – „þú ert svo falleg elskan mín“ (við mig og dóttur mína), „en hvað þú ert góður og fallegur strákur“ (við son minn). Hún sá alltaf það góða í öllum og var dugleg að gefa öðrum heil- ræði af sínum djúpa viskubrunni. Börnin mín voru heppin að fá að kynnast henni – þótt þau hittu hana ekki oft heilluðust þau al- gjörlega af henni, dýrkuðu hana og dáðu. Eftir að amma þeirra dó varð aðdráttaraflið enn sterkara, því þeim fannst Tobbý líkjast ömmu sinni heitinni. Enda voru þær líkar, og samband þeirra sterkt og einstakt. Tobbý átti erfitt með að sætta sig við hversu snemma mamma mín dó, og sagði mér oft frá draumum um litlu systur sína. Enda var hún greinilega ber- dreymin og dreymdi oft framliðið fólk. Þegar ég hitti hana síðast, á spítalanum í sumar, sagði hún mér frá draumi sem hana hafði dreymt nýlega, þar sem Gústa systir hennar kom á rauðum skóm á gullvagni og benti henni að koma („og Selma systir var örugglega líka þarna þótt ég sæi hana ekki“). En kona sem stýrði vagninum sagði: „Nei, hún á ekki að koma alveg strax.“ Enda liðu nokkrir mánuðir áður en kom að leiðarlokum hjá henni elsku Tobbý okkar. Við munum öll sakna hennar sárt, en núna er hún hjá Gústu og Selmu systrum sínum í gullvagninum, þar sem allt er gott og engir sjúkdómar, hvorki krabbamein né alzheimer. Ég veit að þar er kátt á hjalla, mikið talað og mörg hlátrasköllin. Ég og fjölskylda mín, pabbi minn, bræður mínir og fjölskyld- ur þeirra sendum Stíg, sonunum, tengdadætrunum og afkomend- um öllum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Ingibjörg Ágústsdóttir. Það var líklega árið 1953 sem Tobbý kom inn í mína tilveru sem mágkona þegar þau Stígur bróðir minn felldu hugi saman vestur á Ísafirði. Ári síðar fluttu þau til Hafnarfjarðar þar sem þau hafa búið síðan. Þetta er orðinn langur tími og ég hef fengið að fylgja þessari konu gegnum áratugina. Allan þann tíma bar aldrei skugga á okkar samskipti og vinátta okkar var einlæg og fölskvalaus. Þannig hefur það æxlast að við báðar fjölskyldurnar höfum búið í Hafnarfirði allan okkar búskap og höfum verið samferða í lífsins leik í 60 ár. Þetta þykir langur tími en eins og þeir vita sem reynt hafa, þá er eiginlega ekkert úr fortíðinni sem telst langur tími, því eins og segir í þjóðsöng- num; „fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár og þúsund ár dag- ur, ei meir“, og svo er endirinn „eitt eilífðar smáblóm með titr- andi tár, sem tilbiður guð sinn og deyr“. Þorbjörg Samúelsdóttir var alltaf kölluð Tobbý og það geri ég líka. Í afmæli hennar 6. mars sl. kom sterkt yfir mig sú tilfinning að nú væri komið að endalokum hennar tilveru. Síðan þá hef ég verið að syrgja fráfall hennar, en á þeirri stundu var lífshlaupið ekki sjáanlega að verða búið. Hún mágkona mín var sér- stakur gleðigjafi og góðmennsk- an holdi klædd. Hvað getur mað- ur sagt þegar svona yndisleg manneskja kveður okkur? Í raun og veru getur maður ekkert tí- undað því hennar æðstu eigin- leikar, að vera góð manneskja, var alfa og ómega hennar lífs, að gefa af sér stöðugt gleði og góð- vild. Manngæska hennar og ein- lægni var yfir og allt um kring. Það verður geymt og varðveitt alltaf þegar hún er annars vegar. Hún trúði á að lífið væri meira en efnisheimurinn og nú er hún hin- um megin og við skulum vona að hún upplifi eins og hún trúði, því ef góðmennska hennar fær að njóta sín þar eins og hún gerði á meðan hún var hérna megin, þá er vel fyrir séð. Ég þakka þér, elskulega mág- kona, fyrir allt sem þú varst okk- ur og það máttu vita að þú skilur stórt skarð eftir þig við flutning- inn úr þessum heimi. Sigurður Herlufsen og Sigríður Rósa. Tobbý mín, þú hjartahlýja, hláturmilda náttúrubarn og glæsilega heimskona. Það er ekkert svo hugljúft sem hlátur er hann hljómar fra einlægri sál. Hann er gæfunnar leikandi geisli, hann er gleðinnar fegursta mál. (Guðmundur I. Kristjánsson) Þakka þér kærar samveru- stundir. Alúðarkveðjur til allra þinna, frá Margréti P. Guðmunds- dóttur (Maddý). Nú þegar ég kveð bestu mína Þorbjörgu Samúelsdóttir (Tobbý), verður mér hugsað um það alþýðufólk konur og karla, sem við venjulega köllum þjóðina, þann ónafngreinda fjölda sem í landinu hefur lifað og starfað um aldir: í blíðu og stríðu og er í rauninni uppistaðan í Íslandssög- unni og hefur gefið jafnan öllu sem þar glitrar á birtu, yl og gildi. Elsku Tobbý mín, nú er þinni þrautagöngu lokið. Komin í ljósið og hlýjuna umvafin foreldrum og systrum. Ég læt fylgja með fal- lega vísu eftir þig sem ég fann í Vonarlandinu okkar. Ég man það svo glöggt og minnist hve magnþrunginn dularkraftur sveif yfir vötnum þar vestra er voraði í dalnum aftur. og nú þegar ég hugsa héðan heim þar sem gerðist mín saga á heiðríku kvöldi ég horfði til hafsins og sólarlagsins. Takk fyrir allt. Ég elska þig, þín Selma Ágústsdóttir. Þorbjörg Samúelsdóttir Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra HELGA HALLGRÍMSSONAR, fyrrv. vegamálastjóra. Einnig viljum við þakka heilbrigðisstarfsfólki vel unnin störf við þessar erfiðu aðstæður. Margrét G. Schram og fjölskylda Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.