Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 11

Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgdu okkur á facebook SKOÐIÐNETVERSLUNLAXDAL.IS TRAUST Í 80 ÁR ÞÚ FÆRÐ YFIRHÖFNINA HJÁ LAXDAL Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Gallabuxur Kakí buxur Str. 36-52 Beinar skálmar – Breiðar skálmar Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Flottar yfirhafnir fyrir flottar konur Fæst í netverslun belladonna.is Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur sýknað Svein Margeirsson, sveitarstjóra Skútustaðahrepps og fyrrverandi forstjóra Matís, af ákæru fyrir brot gegn lögum um slátrun og sláturafurðir með því að hafa staðið að sölu og dreifingu á fersku lambakjöti af gripum sem hafði verið slátrað utan löggilts sláturhúss. Byggðist sýknudómurinn á því, að enga refsiheimild var að finna í lögum fyrir þeirri háttsemi, sem Sveini var gefin að sök. Málið á rætur sínar að rekja til þess að í september árið 2018 fór fram bændamarkaður á Hofsósi í Skagafirði. Var þar meðal annars selt kjöt af lömbum, sem hafði verið slátrað í samstarfi við Matís og var það gert í samræmi við verklag sem Matís hafði lagt til að gilti um ör- sláturhús. Sveinn stóð meðal annars að söl- unni á markaðinum og bar fyrir dómi, að hann hefði sem forstjóri Matís ásamt samstarfsfólki sínu og í samræmi við tilgang stofnunar- innar ákveðið að gera tilraun varð- andi það hvort bændur gætu slátr- að á eigin býli og um leið hvort áhugi væri hjá almenningi á að kaupa slíkt kjöt. Matvælastofnun innkallaði í kjöl- farið afurðirnar sem voru seldar á bændamarkaðnum og óskaði eftir því að lögreglan á Norðurlandi vestra tæki málið til rannsóknar og lyki málinu ef tilefni væri til. Eftir rannsókn lögreglunnar gaf lög- reglustjóri Norðurlands vestra út ákæru. Á heimasíðu Matvælastofnunar segir að stofnunin muni taka málið upp við atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið varðandi viðbrögð við niðurstöðu dómsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ær með lömb Sýknað hefur verið af ákæru fyrir að selja af heimaslátruðu. Ekki refsi- vert að selja sláturafurðir Sótt um tvö stöðugildi Ríkissaksóknari óskaði í upphafi árs eftir auknum fjárheimildum til að geta ráðið einn saksóknara og einn skrifstofumann til viðbótar núver- andi starfsliði. Í bréfi embættisins til dómsmálaráðherra kom fram að vegna aukinna verkefni væri þörf á að bæta við þremur og hálfu stöðu- gildi saksóknara og einu stöðugildi skrifstofumanns. Beiðni embættis- ins var þó aðeins um fjárheimildir til að bæta við einu stöðugildi saksókn- ara, ekki þremur og hálfu stöðugildi, eins og misritaðist í frétt Morgun- blaðsins í gær. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Allt um sjávarútveg Starfsmenn Norðuráls hafa sam- þykkt nýgerðan kjarasamning. Tæp 90% þeirra sem kusu sam- þykktu kjarasamninginn. 88,9% þeirra sem voru á kjör- skrá kusu. Þannig kusu 356 starfs- menn með samningi, 32 á móti og 11 starfsmenn tóku ekki afsöðu. Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, segir þetta ásættanlega nið- urstöðu á erfiðum tímum. Þakkar hann stuðning og samstöðu meðal félagsmanna. Samþykktu samn- ing við Norðurál

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.