Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 30
Litríkar Fyrri ljóðaskammtur Bjarna samankominn. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Hvað allar bækurnar heita kemur ekki í ljós fyrr en þeim hefur öll- um tólf verið raðað í rétta röð. Þetta er því eins konar stafarugl og orðaleikur í leiðinni,“ segir Bjarni Stefán Konráðsson, ljóð- skáld og kennari við MH, en Bóka- útgáfan Hólar hefur gefið út sex ljóðabækur eftir hann. Aðrar sex bækur koma út á næsta ári en á forsíðu hverrar bókar og kili er einn bókstafur. Saman munu þess- ar tólf bækur mynda eitt orð sem lesendur þurfa að finna út úr hvað er. Bjarni varð sextugur 5. maí síð- astliðinn og koma bækurnar út af því tilefni. Þær áttu reyndar að koma út fyrir sjálft afmælið en Bjarni hafði boðið vinum til tón- leika og fagnaðar í samkomusal MH en vegna kórónuveirunnar hefur ekkert orðið af hátíðar- höldum enn þá, hvað sem síðar verður. Ingunn Snædal og Ragnar Ingi Aðalsteinsson veittu Bjarna góð ráð kringum útgáfuna og kann hann þeim bestu þakkir fyrir. Eins og grunntónar í tónlist Hver bók er 48 blaðsíður að lengd. Ljóðin og vísurnar hafa ver- ið samin yfir langt tímabil, allt frá árunum kringum 1980 og til þessa árs. Hann segist ekki kunna töluna á þeim fjölda sem hann hefur sam- ið. „Ætli þetta sé ekki svona helm- ingurinn,“ segir hann og hlær. Í þessum fyrri pakka innihalda tvær bækur vísur og stökur, ein er með hefðbundin ljóð, ein með óhefðbundnum ljóðum og tvær með textum og ljóðum sem Bjarni hefur samið við lög ýmissa tón- skálda. Hann segir það vilja svo vel til að bækurnar verði jafn- margar og grunntónar í tónlist, þ.e. tólf talsins. Með bókapakk- anum fylgir aðgangur að 31 lagi í gegnum tölvu. Kaupendur gefa upp netfang sitt og fá þá aðgang að möppu á netinu sem í eru öll lögin. Flytjendur eru m.a. Skag- firska söngsveitin í Reykjavík, Álftagerðisbræður, Léttsveit Reykjavíkur, Óskar Pétursson, Björgvin Halldórsson og Bergþór Pálsson. En útgáfa ljóðanna á sér aðra sérstöðu. Gefum Bjarna orðið: „Mörg tónskáld sjá fyrir sér liti þegar þau heyra ákveðna tóna. Rússneska tónskáldið Alexander Scriabin hefur gengið hvað lengst í þessum fræðum. Því var ákveðið að hafa bækurnar í þeim litum sem hann sér fyrir sér fyrir hvern grunntón,“ segir Bjarni en sá rúss- neski raðar tónunum upp eins og vísum á klukku og gefur hverri „klukkustund“ sinn lit. Fyrstu sex bækurnar bera því sama lit og sex fyrstu „klukkustundirnar“ á „tóna- litaklukku“ hans. Tekur við pöntunum Bókin verður ekki til sölu í búð- um eins og staðan er núna í miðjum faraldri. Bjarni hefur samt verið önnum kafinn við að dreifa ljóðunum til vina, vandamanna og unnendur góðra ljóða. Hann tekur einnig við pöntunum á netfangið bjarnist7@gmail.com. Að endingu er ekki úr vegi að birta ljóð úr bókunum. Bjarni kem- ur úr Skagafirðinum, uppalinn á Frostastöðum í Blönduhlíð, og fær stundum heimþrá, eins og þetta ljóð, Hugsað heim, ber með sér: Horfi ég einn móti hækkandi sól, horfi á jörðina vakna. Horfi á gróðurinn halda sín jól, horfi og reyni að gleyma hve sárt ég núna sakna sveitarinnar heima. Bjarni hefur lengi átt samstarf með Björgvini Þ. Valdimarssyni, kórstjóra og lagahöfundi. Hann samdi m.a. lag við ljóð Bjarna, Ást- arþrá, og fyrsta hendingin er svona: Þú komst inn í líf mitt og kveiktir þar ljós sem kviku í brjósti mér snart. Og brosið þitt leiftrandi lifir og lýsir sem fegursta skart. Morgunblaðið/Björn Jóhann Ljóðskáld Bjarni Stefán Konráðsson með ljóðabækurnar sex í einum pakka. Seinni skammtur kemur út á næsta ári og þá skýrist titill bókanna. Sex ljóðabækur og aðrar sex eftir  Tengir bækurnar við tóna og liti  Sextugsafmæli Bjarna varð tilefnið 30 FRÉTTIRBækur MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Borðstofuhúsgögn frá CASÖ í Danmörku Teg. 700, langborð 200x100, stækkun 6x50 cm Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Samfélög sem ekki hafa byggst upp í kringum átrúnað hafa aldrei verið til. Mannfólkinu er bókstaflega eðl- islægt að trúa á eitthvað,“ segir sr. Þórhallur Heimisson, prestur og rit- höfundur. „Elstu heimildir sem menn hafa skilið eftir sig eru til dæmis hellamálverk, píramídar, fleygrúnir og ekkert af þessu skilst ef við tökum trúarbrögðin út úr myndinni. Sömuleiðis verður maður að þekkja sögu trúarbragða til að átta sig á samtímanum.“ Finna kjarna tilverunnar Bókin Saga guðanna, sem forlagið Sæmundur gefur út, er yfirsgrips- mikil; 410 blaðsíður og er í kynningu sögð ferðalag um heim trúarbragð- anna. Fjallað er á aðgengilegan hátt um helstu trúarbrögð mannkyns þannig að lesendur verða að leita eig- in svara og finna kjarna tilverunnar. Sjálfur segir Þórhallur bókina vera í raun framhald af störfum sínum í tímans rás, þar sem prestsþjónusta, sagnfræði og ritstörf séu rauði þráð- urinn. Sem leiðsögumaður íslenskra hópa víða um veröldina hafi honum einnig gefist kostur á að sækja heim öll helstu höfuðból trúarbragðanna, allt frá Róm til Himalajafjalla. „Áhugi þeirra sem ferðast með mér á því sem fyrir augu ber er mik- ill, en því miður hefur að mestu skort lesefni á íslensku um menningu og trúarbrögð í fjarlægum löndum. Því fannst mér tímabært að rita sam- fellda sögu trúarbragðanna og nota myndir sem ég hef tekið á ferðum mínum.“ Spegill menningar Í dag búa á Íslandi um 55.000 manns af erlendum uppruna – sem er um 15% landsmanna. Tölurnar eru á þessa lund einnig í Svíþjóð, þar sem Þórhallur hefur búið undanfarin ár. Svo sambúð innfæddra og að- fluttra verði sem best segir höfund- urinn gagnkvæman skilning fólks á aðstæðum hvert annars, svo sem trúarbröðum, mikilvægan. „Trúarbrögðin eru spegill menn- ingarinnar. Sá sem er ólæs á trúar- brögðin og skilur þau ekki eða þekk- ir, er blindur á menninguna. Alveg óháð því hvort menn eru trúaðir eða ekki. Það sama á við um okkar eigin sögu og samfélag. Ef við töpum sam- bandinu við þá sögu sem við erum sprottin úr þá glötum við samheng- inu og rótum tilveru okkar,“ segir Þórhallur. Í formála bókarinnar seg- ir að átök líðandi aldar muni mikið ráðast af trúarbrögðum. Að baki þessari staðhæfingu segir hann margt liggja og minnir á að í komm- únistaríkjum hafi verið predikað stíft gegn trú í sérhverri mynd. Trúar- leiðtogar voru drepnir, sendir í út- tlegð og niðurlægðir – og kirkjur og moskur brotnar niður. Flókin flóra „Um hinn vestræna heim predik- uðu menntamenn gegn trúarbrögð- unum og hæddust að þeim,“ segir Þórhallur. „Vesturlönd kepptust við að styðja einræðisherra um víða ver- öld á tímum kommúnistaríkja. Og þegar æskan á Vesturlöndum reis upp gegn hernaðarhyggju og neyslu- hyggju var það ekki undir merkjum trúarbragðanna. Tómhyggja réð för. Nú er líka sagt að kenningin um átök menningarheilda sé barnaleg ein- földun. Styrjaldir í dag eigi sér flókn- ar skýringar – en í grunninn má halda því fram að árásirnar á tvíburaturnana í New York og styrj- aldir sem á eftir fylgdu hafi markað línurnar fyrir 21. öldina.“ Þrátt fyrir átök eru margir þeirrar skoðunar að trúarbrögð séu í mikilli sókn um víða um veröld. „Arabíska vorið árið 2011 var knúið fram í nafni trúar að einhverju leyti. Um leið er flóra trúarbragðanna flóknari en verið hefur um aldir. Hvert sem litið er um jarðarkringluna er áhuginn á trúarbrögðum mikill og umræðan lif- andi. Að því leyti eiga bækur eins og Saga guðanna mikið erindi við sam- tímann,“ segir Þórhallur Heimisson að síðustu. Átrúnaður er mann- fólkinu eðlislægur  Saga guðanna í nýrri bók  Skilningur á samtímanum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Guðir Sá sem er ólæs á trúarbrögðin og skilur þau ekki eða þekkir er blind- ur á menninguna, segir Þórhallur Heimsson sem heldur hér á bók sinni. Störf sín við prestþjónustu, námskeiðahald, bókaskrif og fararstjórn seg- ir Þórhallur Heimisson að séu um margt eðlislík. Hann eigi til kennara og skólafólks að telja og leiðsögn sé kennsla að nokkru leyti. Oft verði til góð og náin vinátta í ferðalögum á nýjum slóðum þar sem ævintýrin ger- ast. Vinátta sem endist og styrkist. „Ég hef unun af fræðslu, leiðsögn og samtölum við allskonar fólk. Bók- in er því sem samtal mitt við lesendur. Svo hlakka ég auðvitað til að hitta fólk á ný á ferðaflakki og fá að heyra hvað fólk hafi lært af bókinni. Til þess er leikurinn gerður. Þá er ég með í smíðum bókina Biblían fyrir tossa, sem verður eins konar skemmri skírn af guðspjöllunum,“ segir Þórhallur sem býr með með fjölskyldu sinni í háskólaborginni Uppsala í Svíþjóð. Starfar þar sem svokallaður kirkjuhirðir í 10.000 manna söfnuði rétt fyrir utan borgina. Samtal mitt við lesendur KENNSLA, PRESTSKAPUR OG FARARSTJÓRN EÐLISLÍK STÖRF   þú það sem    á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.