Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Ást Elenoru á bakstri er nokkuð
augljós en hún starfar sem bak-
aranemi í Bláa lóninu en þar á und-
an var hún í Brauð & co. Hún seg-
ist vera heppin að fá að læra af
þeim bestu og ekki
síst heppin að fá að
starfa við það sem
hún elskar. Ástæða
þess að hún gefur út
sína fyrstu bók er
líka fremur
skemmtileg en það
ævintýri hófst þegar
Elenora mætti í við-
tal í Ísland vaknar á
K100 þar sem hún
heillaði alla upp úr
skónum. Einn þátta-
stjórnenda, Jón Ax-
el, hafði í kjölfarið samband við
hana og spurði hvort hún hefði ein-
hvern tíma íhugað að gefa út bók.
Hann kom henni í samband við
Edduna og nú, hálfu ári seinna, er
afraksturinn að líta dagsins ljós.
„Ég hafði enga trú á að þær
myndu hafa samband aftur þannig
að þegar ég fékk staðfestingu á að
það ætti að gera bókina eiginlega
trylltist ég. Ég var þá þegar búin
að vera innilokuð lengi út af Covid
og hafði nýtt tímann vel í að stúd-
era allt sem viðkom súrdeigs-
brauðsgerð og vísindunum á bak
við það. Ég hafði unnið með súr-
deigið í mörg ár en þarna fór ég á
bólakaf sem var einstaklega
skemmtilegt og lærdómsríkt,“ segir
Elenora. Bókin sé hugsuð fyrir
mjög breiðan hóp enda bæði að
finna í henni ítarlegar leiðbeiningar
um súrdeigsbakstur og girnilegar
brauðuppskriftir
sem og sætabrauðs-
gerð, kökubakstur
og gamaldags ís-
lenskt bakkelsi.
„Ég hef alltaf unnið
í frekar töff og
„rustic“ bakaríum
og ólst upp við
gamaldags
mömmubakstur og
þessi bók er svolítil
sameining af því
öllu. Það mætti eig-
inlega segja að ég
og mín stutta ævi sameinist í þess-
ari uppskriftabók.
Hún hentar sérstaklega þeim
sem vilja fá nýjar og ferskar upp-
skriftir, þeim sem vilja læra
hvernig á að gera þetta gamla
góða sem við þekkjum öll og hún
hentar heldur betur súrdeigs-
áhugafólki Íslands. Í bókinni
eru súper auðveldar uppskriftir
en einnig flóknari uppskriftir
fyrir þá sem eru lengra komnir.
Allar uppskriftirnar eru mjög
vel útskýrðar og vel uppsettar og
ættu því allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi í bókinni enda er
bókin einir fimm kaflar með
kennslu fremst í bókinni og tæp-
lega 170 blaðsíður að lengd.
Kolféll fyrir
skoskum plötusnúð
Elenora á rætur að rekja bæði
til Íslands og Skotlands en faðir
hennar er skoskur. „Mamma mín
fer eitt haustið í brúðkaup hjá
bróður sínum og á þeim tíma var
pabbi minn ágætlega vinsæll plötu-
snúður í Skotlandi. Mér finnst það
mjög fyndið því ég hef alltaf þekkt
pabba sem gamlan kall sem finnst
hann sjálfur fyndnastur í heimi og
elskar að gera mig vandræðalega.
En jæja, mamma fer í brúð-
kaup þar sem hann er að sjá
um tónlistina. Þau taka þar
léttan dans og nokkru síðar
kemur pabbi í heimsókn til Ís-
lands til að hitta mömmu. Eftir
það varð ekki aftur snúið og þau
hafa verið saman síðan þá.“
Elenora segir að bernska sín hafi
verið dásamleg og að hún búi að
því að koma úr samrýndri fjöl-
skyldu sem stendur þétt saman.
Elenora fæddist með fæðingargalla
sem heitir Omphalocele en þá eru
Algjörlega einstök Elenora
Ljósmynd/GASSI
Uppáhald Elenora hefur sagt frá því
að þetta sé uppáhaldsbakkelsið henn-
ar. Þeir sem hafa smakkað taka heils-
hugar undir það.
Hún er einungis 19 ára gömul en strax þegar sest er niður með Elenoru Rós Georgesdóttur verður manni ljóst að
þarna er engin venjuleg kona á ferðinni. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún ýmsa fjöruna sopið og með sínu einstaka
viðhorfi til lífsins hefur hún sigrast á áskorunum, barist fyrir draumum sínum og náð að skapa eitthvað algjörlega
einstakt. Hún er þessa dagana að gefa út sína fyrstu bók sem heitir einfaldlega BAKAÐ með Elenoru Rós og það er
morgunljóst að vænta má mikils af þessari kjarnorkukonu sem virðist víla fátt fyrir sér.
Bakkelsi gerir allt betra Það er fátt
sem stöðvar Elenoru Rós þessa dagana
en einstakt viðhorf hennar til lífsins og
bakkelsis er til eftirbreytni.