Morgunblaðið - 23.10.2020, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 23.10.2020, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld í Aserbaídsjan lýstu því yfir í gær að þau hefðu náð fullu valdi á landamærum sínum að Íran, eftir að Armenar höfðu áður hertekið nokkur þorp og bæi við landamærin í átökum ríkjanna um Nagornó-Kar- abak-hérað. Vladimír Pútín Rússlandsforseti lýsti því yfir í gær að samkvæmt þeim gögnum sem Rússar hefðu, hefðu rúmlega 2.000 manns fallið hjá báðum þjóðum síðan átökin hófust fyrir þremur vikum, og væri tala fall- inna því ört að nálgast 5.000 manns. Armenskar hersveitir höfðu fyrr í átökunum náð á sitt vald sjö öðrum héruðum í nágrenni Nagornó-Kar- abak, þar á meðal stórum hluta landamæranna við Íran. Ilham Al- iyev, forseti Aserbaídsjan, lýsti því hins vegar yfir í gær að hersveitir Asera hefðu tekið á ný yfirráð yfir þorpinu Agbend, og réðu þar með aftur yfir landamærum sínum. Degi fyrr hafði Nikol Pashinyan, forsætis- ráðherra Armeníu, viðurkennt að Armenar færu nú halloka í bardög- um innan Aserbaídsjan. Lítil von um þriðja vopnahléið Útilokaði Pashinyan að hægt væri að finna friðsama lausn á deilunum „um langan tíma“. Virðist það hið eina sem Armenar og Aserar geta verið sammála um, en nú þegar hef- ur verið samið tvisvar um hlé á átök- unum, og í bæði skiptin hefur það verið rofið nánast samstundis. Helstu stórveldi heims hafa þrátt fyrir það haldið áfram að reyna að stilla til friðar. Þannig munu utan- ríkisráðherrar rikjanna funda í dag með Mike Pompeo, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í Washington, og Pútín Rússlandsforseti lýsti því yfir í gær að hann væri í „stöðugum samskiptum“ við bæði Aliyev og Pashinyan. „Ég tala við þá í síma nokkrum sinnum á dag,“ sagði Pútín. Greindi hann þar einnig frá því mati Rússa að nærri því 5.000 manns hefðu fallið í átökunum til þessa. Eru Lét Stoltenberg ummæli sín falla við heimsókn Armens Sarkisan, for- seta Armeníu, til höfuðstöðva banda- lagsins í Brussel, en Armenar hafa krafist þess að bandalagið setji hömlur á Tyrki, eina af bandalags- þjóðunum. Stoltenberg sagði hins vegar að bæði Armenía og Aserbaídsjan væru dyggir samstarfsaðilar bandalags- ins, en þau tilheyra bæði hinu svo- nefnda „Samstarfi í þágu friðar“, sem sett var á laggirnar eftir lok kalda stríðsins. „Við þurfum vopnahlé án tafar og að vopnahléið sé virt, og við skorum því bæði á Armeníu og Aserbaídsjan að láta af átökunum,“ sagði Stolten- berg á blaðamannafundi sínum. Tyrkir séu hluti af lausninni Átökin milli Asera og Armena hafa valdið áhyggjum um að þau gætu breiðst út og dregið að sér bandamenn ríkjanna, en Rússar eru í bandalagi við Armena og Tyrkir í bandalagi við Aserbaídsjan. Hafa Tyrkir verið sakaðir um að hafa stutt Asera, meðal annars með því að greiða leið sýrlenskra vígamanna til átakasvæðanna í gegnum Tyrkland. Jens Stoltenberg, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, lýsti því yfir í gær að hann vænti þess að Tyrkir myndu beita sínum töluverðu ítökum til þess að reyna að stöðva átökin á milli Armeníu og Aserbaíd- sjan og draga úr spennunni þar. þær mannfallstölur nokkru hærri en opinberar tölur frá bæði Armeníu og Aserbaídsjan, sem segjast bæði hafa misst innan við þúsund manns. Gerardo Moloeznik, fulltrúi Rauða krossins í Nagornó-Karabak, sagði í gær í viðtali við AFP-fréttastofuna, að báðar þjóðir yrðu að hætta að skjóta á almenna borgara og virða alþjóðalög. Um hundrað óbreyttir borgarar eru sagðir hafa fallið til þessa samkvæmt hinum opinberu tölum, en óttast er að rétt tala sé mun hærri. Varaði Moloeznik um leið við því að vetur gengi nú í garð, og því gæti ástandið orðið virkilega slæmt á næstu vikum, ef ekki fyndist lausn á átökunum hið fyrsta. Ráða yfir landamærunum  Nærri því 5.000 manns sagðir hafa fallið í átökunum um Nagornó-Karabak  NATO hvetur Tyrki til þess að beita áhrifum sínum til þess að draga úr spennu AFP Nagornó-Karabak Armenskir sjálfboðaliðar í heimavarnarliði Nagornó-Karabak-héraðs sjást hér æfa vopnaburð í Jerevan, höfuðborg Armeníu, í gær. Áætlað er að um 5.000 manns hafi látist í átökum Armena og Asera til þessa. Amy Coney Bar- rett, sem tilnefnd hefur verið í Hæstarétt Bandaríkjanna, var í gær sam- þykkt sem dóm- araefni af dóms- málanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings. Gert er ráð fyrir að öldungadeildin í heild sinni muni greiða atkvæði um endanlega skip- un hennar í réttinn á mánudaginn. Barrett var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, en fulltrúar demókrata í dómsmálanefndinni gengu út áður en atkvæðagreiðslan var haldin, þar sem þeir segja út- nefningu hennar vera of nálægt forsetakosningunum. Lindsey Graham, formaður nefndarinnar, sagði hins vegar að demókratar myndu ekki fá að taka yfir dagskrá nefndarinnar. Líklegt er að meirihluti þingmanna sé með því að staðfesta skipan Barrett. Málið úr nefnd eftir útgöngu demókrata Amy Coney Barrett BANDARÍKIN Ghislaine Max- well, sem sökuð er um að hafa að- stoðað barnaníð- inginn Jeffrey Epstein við glæpi hans, neitar allri sök í skriflegum vitnisburði sín- um, sem gerður var opinber í gær. Til stendur að Maxwell fari fyrir rétt í New York-borg á næsta ári, en hún er sökuð um að hafa lokkað til sín stúlkur undir lögaldri og fært þær til Epstein. Allt að 35 ára fangelsi liggur við sakargiftunum. Í vitnisburði Maxwells, sem er rúmlega 460 blaðsíður, segir hún meðal annars að hún hafi aldrei fengið neinn undir lögaldri til fylgi- lags við sig, og að hún hafi aldrei orðið vitni að ólöglegu athæfi af hálfu Epsteins. Neitaði vitneskju um glæpi Epsteins Ghislaine Maxwell BANDARÍKIN Rudy Giuliani, lögfræðingur Don- alds Trumps Bandaríkjaforseta og fyrrverandi borgarstjóri í New York, neitaði í gær ásökunum um að hann hefði reynt að áreita leikkonu í annarri kvikmynd Sacha Baron Co- hen um hinn seinheppna Borat, sem verður frumsýnd í dag. Í fyrradag láku út myndir af meintu atviki, sem virðast sýna Giuliani snerta sjálfan sig, en hann sagði í gær að hann hefði einungis verið að laga skyrtu sína eftir að hafa tekið af sér míkrófón. „Ég sýndi hvorki fyrir, eftir né á meðan viðtal- inu stóð af mér óviðeigandi hegðun,“ sagði Giuliani á Twitter-síðu sinni og bætti við að ef Cohen héldi öðru fram væri hann „ískaldur lygari“. Cohen er m.a. þekktur fyrir per- sónur sínar, Ali G og Borat, sem hafa tekið viðtöl við ýmsar frægar per- sónur án þess að þær hafi áttað sig á því að um grín væri að ræða. Sagði Giuliani í viðtali við New York Post að hann hefði í fyrstu haldið að um alvöru viðtal væri að ræða um heims- faraldurinn og Trump, en síðar áttað sig á því að þarna hlyti Sacha Baron Cohen að hafa verið á ferðinni. Giuliani neitar öllum ásökunum  Borat veldur fjaðrafoki enn á ný AFP Borat Uppblásin blaðra í líki Borats sveif niður Thames-ána í Lundúnum í gær vegna frumsýningar seinni myndarinnar um Kasakkann seinheppna. Þú getur verslað linsur og margt fleira á eyesland.is Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu! Linsurnar heim! Eyesland gleraugnaverslun www.eyesland.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.