Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 45

Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Ásdís Inga Helgadóttir, eigandi Deisymakeup, deildi myndbandi af sér taka lagið „Alone“ með hljómsveitinni Heart á Facebook- síðu sinni. Viðbrögðin stóðu ekki á sér og segist Ásdís í samtali við blaða- mann K100 vera í sjokki. „Mér finnst ég aldrei nógu flott eða nógu góð og þess vegna settum við lag sem er ekki full- komið sem ég hef aldrei sett áð- ur fyrr. Ég er búin að fá svo mörg skilaboð að ég er í sjokki! Ég fór bara að gráta,“ segir Ás- dís. Ásdís segist alls ekki hafa bú- ist við svona miklum viðbrögðum og viðurkennir hún að þrátt fyrir að hafa lært söng þori hún aldrei að syngja opinberlega. Hún segist alltaf vera í keppni við sjálfa sig um að vera full- komin og það að deila laginu á samfélagsmiðlum hafi verði eitt það erfiðasta sem hún hafi gert. Ásdís gaf K100 góðfúslegt leyfi til þess að birta myndbandið á K100 síðunni og má horfa á myndbandið þar. Vægast sagt má segja að Ásdís sé virkilega hæfi- leikarík söngkona og óskum við henni á K100 til hamingju með að hafa loksins tekið af skarið og deilt hæfileika sínum. Ásdís tók ótrúlega ábreiðu af laginu Alone Grét í kjölfar viðbragðanna Ásdís Inga Helgadóttir Tók ótrúlega fallega ábreiðu af laginu Alone. Góðir vinir Ásdís Inga og vinur hennar Kristján R. Guðnason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.